blaðið - 12.12.2006, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaöið
ÍTALlfl l
Í
79 mafíósar handteknir
Italska lögreglan handtók 79 í tengslum við áhlaupi
sem beint var gegn liðsmönnum mafíunnar í gær. Mbl
greinir frá því að flestir þeirra hafi verið handteknir á
Sikiley en aðrir í Róm og í Busto Arsizio á Norður-ltalíu.
Allir eru taldir tilheyra Rinzivillo-mafíunni.
Taka á djöfladýrkendum
Italska lögreglan vill setja á stofn sérstaka deild
til að taka á útbreiðslu nýrra trúarhópa og þá
sérstaklega hóþa ofbeldisfullra djöfladýrkenda.
I deildinni væri að finna sálfræðinga auk prests
sem væri sérfræðingur í hinu yfirnáttúrlega.
Wallström og Jamtin segja nei
Margot Wallström og Carin Jámtin ítrekuðu báðar í gær
að þær gæfu ekki kost á sér til að taka við formennsku
í sænska Jafnaðarmannaflokknum af Göran Persson á
aukalandsfundi flokksins í mars næstkomandi, en þær
höfðu báðar þótt líklegir arftakar Perssons.
Förðunarspegillinn
sem stækkar fimmfalt
Sigurboginn, Laugavegi 80
SMÁAUGLÝSINGAR
KAURA
/SEUA
blaðiða
SMAAUGLYSINQAR@BLADID.NET
Ölvaður í Borgarnesi:
Keyrði á hjá
lögreglustöð
Ölvaður ökumaður keyrði á
grjótgarð íyrir framan lögreglu-
stöðina í Borgarnesi. Lögreglu-
þjónar þurftu því einungis að
bregða sér rétt í dyragættina
til að athuga hvað væri á seyði.
Atvikið átti sér stað rétt um
klukkan níu á laugardagskvöld.
Allshafa 56 ökumenn verið
teknir fyrir ölvunarakstur í
umdæminu á árinu en á síðasta
ári voru 46 ökumenn teknir
þar undir áhrifum áfengis.
Lík þriggja vændis-
kvenna Hafa fundist
íkringum Ipswich á
síðustu dögum.
Vændiskonur í Ipswich í Bretlandi:
Hágæða ræstivörur
fyrir nútíma ræstingu
LitnbúAio - SR byglngavörur - Byggt og búiö - Litavor - Rýinl - Núpur -
Afany.tr Koflavik - Pottar og prik (Dafjgir) Akuroyri - Takk hroinlœti
Heilsöludroifing Ræstivörur ehf - Stangnrhyl 4 -
110 Reykjavik * Slmi 567 4142 - www.raostivorur.is
Þrjár myrtar og
einnar saknað
■ Óttast raömoröingja ■ Engin merki um nauðgun
Tania Nicol Fannst Gemma Adams Fannst Paula Clennell
myrt 8. desember. myrt 2. desember Saknað.
Þrjár vændiskonur hafa fundist
látnar í borginni Ipswich í Englandi
á síðustu vikum og óttast lögregla að
raðmorðingi sé á ferð. Lögregla leitar
nú fjórðu vændiskonunnar, Paulu
Clennell, sem hefur ekki sést síðan
á laugardaginn. Lögregla hefur rann-
sakað ýmsa staði sem vitað er að hún
hafi dvalið á á undanförnum árum
en hún hefur enn ekki fundist.
Lík hinnar nítján ára gömlu
Taniu Nicol fannst á föstudaginn, en
lík Gemmu Adams, 25 ára, fannst í
byrjun mánaðarins. Líkin fundust í
sama læknum í vesturhluta Ipswich
en konurnar hurfu skyndilega úr
vændishúsahverfi borgarinnar í síð-
asta mánuði. Kona sem var á gangi
í skógi rétt utan við Ipswich fann
svo lík þriðju vændiskonunnar á
sunnudaginn.
Konurnar voru allar naktar þegar
lík þeirra fundust. Talsmenn lög-
reglu grunar að morðmálin tengist
þar sem verksummerki eru mjög
svipuð. Engin merki eru um að
konunum hafi verið nauðgað eða
þær beittar ofbeldi, en frekari rann-
sókna er þörf til að úrskurða um dán-
arorsök. Föt hinna látnu sem þær
klæddust þegar þær hurfu hafa enn
ekki fundist.
David Wilson afbrotafræðingur
telur að morðingi vændiskvenn-
anna hafi fleiri morð á samviskunni.
,Þessi maður á sér sögu og hefur að
öllum líkindum myrt og keypt sér
þjónustu vændiskvenna áður. Hann
er vel skipulagður og þekkir vel til í
nágrenni bæjarins.“
Lögregla kallar nú eftir aðstoð
frá almenningi til að hjálpa til við
rannsókn málsins. Hún beinir þeim
orðum sérstaklega til viðskiptavina
hinna látnu að gefa sig fram og til
vændiskvenna að vera ekki á götum
úti. Þá rannsakar lögregla einnig
hvort mögulegt sé að morðin tengist
sex öðrum morðum á vændiskonum
í austurhluta Englands á siðustu
þrettán árum.
Ertu að leita að gjöf?
- stæði fyrir alla
Á bíl í jólaösinni í miðborg Reykjavíkur.
Hvað má bjóða þér? Miðastæði, stöðu-
mæli eða bílahús. Viltu greiða með
korti eða krónum, eða kannski gsm
símanum þínum?
Tímamiðar úr miðamælum gilda
áfram þegar lagt er við stöðumæli
innan sama gjaldsvæðis.
Ótakmarkaðurtími býðstá stöðu-
mælum í miðborginni.
í desember verða bflahúsin opin
klukkustund tengur en verslanir
f miðborginni. Gleðilega aðventu!
Reykjavíkurborg
Bílastæðasjóður
... svo í borg sé leggjandi