blaðið - 12.12.2006, Blaðsíða 12
GL
ERFÍNT OG
ÁANDI
01
'YRIR JÓLIN
20 %"
REIN FAGMENNSKA
\ FRAM í FINGURGÓMA
* HJÁBESTA
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
ÍRAN
Ráðstefna um helför gyðinga
UTAN ÚR HEIMI
Ráðstefna um helför gyðinga í síðari heimsstyrjöld hófst í Teheran gær. Markmiðið er
að rannsaka hvort helförin hafi átt sér stað, þar sem nasistar voru sagðir hafa myrt um
sex milljónir gyðinga. Gestgjafinn er Mahmoud Ahmedinejad, forseti írans, og sækja 67
vísindamenn frá þrjátíu löndum ráðstefnuna. Meðal fyrirlesara er David Duke, fyrrum
leiðtogi Ku Klux Klan í Bandaríkjunum. Fjöldi ríkja hefur fordæmt ráðstefnuna.
Kolbrún Halldórsdóttir um ný lög:
Hætta á mistökum
■ Mál keyrö í gegn ■ Stjórnin of örugg ■ Búið aö ræöa í nefndum
ATHUGASEMDIR KOLBRÚNAR:
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Villmeiri
samvinnu
Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstri
grænna
Yfirieitt
nægurtími
Arnbjörg Sveins-
dóttir, þingmaður
Sjáifstæðisflokksins
Tekjuskattur (vaxtabætur):
Lágmark eignaviðmiðunar að frádregnum
skuldum til skerðingar á vaxtabótum hækk-
ar afturvirkt um 30 prósent. „I þessu máli
hefði átt að ná betri sáttum.”
„Þetta er allt á réttri leið. Mig rak
hins vegar í rogastans þegar ég byrj-
aði á þingi fyrir átta árum. Þá voru
yfir 8o mál afgreidd síðustu tvo
til þrjá dagana fyrir lok þinghalds
þegar mest var. Nú er þetta komið
niður í um 30 mál,” segir Kolbrún
Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna, en bætir við að enn fái
vandasöm mál of hraða afgreiðslu.
„Það var alltof takmarkaður
tími á þingi fyrir mál aldraðra og
öryrkja svo dæmi sé tekið. En auð-
vitað hafa nokkrir þættir færst til
betri vegar. Fjárlög eru til dæmis
samþykkt fyrr en áður var gert.
Það þyrfti hins vegar að vera meiri
vinna og hraðari í nefndum fyrri
hluta haustþings. Nefndardagar
þurfa að nýtast betur og þing þarf
að koma saman fyrr,” leggur Kol-
brún áherslu á.
Það er mat Kolbrúnar að nær
þriðjungur þeirra 39 frumvarpa
sem samþykkt voru sem lög frá Al-
þingi í lok haustþings hefði þurft
meiri umfjöllun. „Það er hætta á
mistökum ef svona mörg mál eru
keyrð í gegn á svona stuttum tíma.
Slík mistök getur tekið mörg ár að
leiðrétta.”
Og Kolbrún lýsir eftir meiri
samvinnu. „Það að ríkisstjórnin
telji sig ekki þurfa samvinnu um
hlutina er vísbending um að hún
sé orðin allt of örugg um sig á
valdastólnum.”
Arnbjörg Sveinsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
að yfirleitt sé nægur tími til að ræða
mál í nefndum. „Það er auðvitað
búið að ræða málin í nefndum þótt
ekki hafi náðst að ræða þau lengi
inni í Alþingi. Yfirleitt er nægur
tími í nefndum en auðvitað getur
komið upp þannig staða að menn
vilji ræða einhverja hluti betur. En
oft vita menn að það hefur engar
afleiðingar sem slíkar. Það er bara
til að viðra fleiri sjónarmið sem í
sjálfu sér allir þekkja.”
Arnbjörg bendir á að flest mál-
anna séu miðuð við að lögin taki
gildi um áramót. „Það skiptir
marga í þjóðfélaginu mjög miklu
máli að þetta geti orðið að lögum,
eins og til dæmis aldraða. Það er
verið að flytja þessi mál til betri
vegar eftir því sem menn telja for-
sendur til.”
Alþingi við Austurvöll
Alls þrjátíu frumvörp
uröu að lögum á síðustu
dögum þingsins
fyrir jólahlé.
Búnaðarfræðsla
(Háskólinn á Hólumj:
Hólaskóla breytt í háskóla. „Það
1,1 er verið að leggja niður störf
1 og stofna til þeirra á nýjan leik.
1 Þetta varðar réttindl opinberra
starfsmanna og var ekki skoðað
il fulls."
Skráning og mat fasteigna:
Álögur á fasteignaeigendur. „Sjónarmiðin
voru mjög ólík. Þetta hefði þurft aö ræða
meira.”
Málefni aldraðra
(gjald i framkvæmdasjóð):
Fé úr Framkvæmdasjóði aldraða verði ekki
varið til reksturs stofnana nema þörf fyrir
hjúkrunarrými hafi verið fullnægt. „Viö
höfum haldið því fram að aldraðir hafi verið
píndir til að skrita undir þetta. Það hafa ver-
ið mjög ólík sjónarmið uppi um þetta mál og
við hefðum þurft að geta náð sameiginlegri
niðurstöðu.”
Landsvirkjun (eignarhald og fyrirsvar):
Breytingar á lögum um Landsvirkjun til
samræmis við breytingar á eignarhaldi.
„Viðamikil mál. Viö fengum sannarlega ekki
aö taka þá umræðu um þessi mál sem við
vildum.”
Tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á
fjármagnstekjur (lækkun tekjuskatts 0. fl.):
Lækkar um 1 prósent í stað 2 prósenta eins
og ákveðið var. Skattleysismörk hækka
um 14 prósent. „Betri sættir hefðu þurft
að nást."
Upplýsingalög (endurnot
opinberra upplýsinga, EES-reglur):
Atvinnufyrirtækjum heimilaður aðgangur
að gagnagrunnum og upplýsingum í opin-
berum stofnunum án gjaldtöku. „Hingað til
hafa stofnanir keypt gögn dýrum dómum
hver af annarri. Þegar atvinnulífið krefst að-
gangs án gjalda er allt opið. Það var engin
umræða um þetta mál.”
Ráðstöfun á söluandvirði
Landsíma Islands hf. (timasetningar):
Vegaframkvæmdum
sem var lofað þegar
síminn seldur
frestað. „Þörf var á
meiri umræðu.
Ráðstafanir í kjölfar samn-
ings við Bandarikin um skil á varnar-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli:
Svæðið skilgreint í flugvallarsvæði, örygg-
issvæði og starfssvæði Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar ehf. „Við sátum hjá
vegna skoðana okkar á málinu en þarna
á að afmarka svæði tíl hernaðaræfinga
þótt herinn sé farinn. Þarna hangir líka á
spýtunni aðild að mannvirkjasjóöi Nató sem
á eftir að kosta okkur milljónatugi.”
(lækkun matarskatts):
Virðisaukaskattur á matvæli lækkar í 7 pi
sent frá og með 1. mars. „Þetta er fínt m;
en ef það hefði verið lengur í nefnd hefði
ef til vill verið hægt að knýja fram lækkun
virðisaukaskattsá lyfjum.”
Almannatryggingar og
málefni aldraðra:
Frítekjumark vegna atvinnutekna
ellilífeyrisþega verði 300.000
krónur á ári. „Við óskuðum eftir
hærri frítekjumörkum. Við hefðum
örugglega getað mæst á miðri leið.
Stjórnvöld knúðu bara
fram sína niðurstöðu.”