blaðið - 12.12.2006, Page 14
LISTMUNASALA
fflPURINA
14 ÞRIÐJUDAGUE 12. DESEMBER 2006
blaöiö
ProPlan
l’roucts Wl.ilc ii Noiirislu*
HVAÐ MANSTU?
Skeifunni 6 - Sími: 533 4450 - www.everestis
GARÐHEIMAR
SöluaðiII:
Garðheimar í Mjódd • Stekkjarbakka 6
109 Reykjavík • sími 540 3300 • www.groduris
1. Hverfer meö hlutverk Finns í nýjustu kvikmynd Lars von Trier, Direktoren for det Hele?
2. Hver eru þrjú fjölmennustu ríki Bandaríkjanna?
3. Hvaða heimsfrægi Islendingur lést á þessum degi fyrir þremur árum, 27 ára gamall?
4. Hver er forsætisráðherra Palestínu?
5. Hvaða plötu gaf hljómsveitin U2 út árið 1987?
Svör:
? ■= 'is I -53 ! 2
ul o ^ z ^ l-
y-Z CNÍ O CÓ ^ U)
Pro Plan
fæðulínan
sérsniðin fyrir
hundinn þinn
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiöm
SMAAUGLYSINGAR@BLADiD.NET
Lög um stjórnmálastarfsemi:
Lögin meingölluð
■ Andstætt lýðræði í landinu ■ Hættuleg þróun ■ Fullkomið álitaefni
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Með þessum lögum er verið að
snúa á haus grunnhugmyndum um
hvernig lýðræðisþjóðfélag virkar.
Þetta eru í raun aðgerðir til þess að
ríkisvæða stjórnmálaflokka sem
hafa það að meginmarkmiði að
stjórna ríkinu. Grundvallaratriði er
að flokkarnir séu frjálsir gagnvart
ríkisvaldinu," segir Þórlindur Kjart-
ansson, fyrrverandi oddviti SUS.
Fyrir helgi sendi SUS frá sér
ályktun vegna laga um stjórnmála-
starfsemi sem sambandið telur
meingölluð og vanhugsuð. Gunnar
Helgi Kristinsson, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskóla Islands, telur
lögin vera góða málamiðlun ólíkra
sjónarmiða.
„Það er augljóst vandamál þegar
mjög fjársterkir aðilar geta gert fram-
bjóðendur háða sér vegna fjárfram-
laga. Jafnframt er varhugavert þegar
flokkar eru í mikilli fjárþörf,“ segir
Gunnar Helgi. „Lögin nú eru ágæt
málamiðlun í þeim efnum að koma
í veg fyrir að flokkar og frambjóð-
endur verði háðir þeim sem styrkja
þá. Það er fullmikil einföldun að
halda því fram að um leið og einstak-
lingar fái að styðja flokkana frjálst
verði lýðræðiskerfið heilbrigt.“
Fullkomið álitaefni
Aðspurður telur Gunnar Helgi
gagnrýni SUS varðandi takmark-
anir fjármagns skiljanlega. „Það er
alltaf fullkomið álitaefni hvað eigi
að ganga langt í að takmarka rétt-
indi fólks til að hafa áhrif á stjórn-
mál. Fyrir takmörkunum þurfa að
vera rík rök og að því leytinu tel ég
andann hjá SUS vera réttan," segir
Gunnar Helgi. „Hins vegar er það
grundvallaratriði að það liggi fyrir
hverjir eru að styrkja flokkana og
með hvaða hætti. Tryggja þarf að lýð-
ræðið sé ekki leiksoppur fjársterkra
aðila.“
Óverjandi stefna
Þórlindur telur mikilvægt að bók-
hald flokkanna sé opið og segir for-
menn flokkanna vera að slá skjald-
borg um eigin hagsmuni. Hann er
á móti því að takmarka fjármagn í
prófkjörum sérstaklega. „Að setja
hömlur á innra starf flokkanna tel
ég óverjandi og alvarlegt mál. Með
því er ríkisvaldið að koma sér inn
í eina leið af vali á framboðslista.
Þetta er einfaldlega heimskulegt,"
segir Þórlindur. „Flokkarnir sjálfir
eiga að setja sér sínar eigin reglur
hvað sitt starf varðar. Slíkt á að gilda
um öll frjáls félagasamtök og þvi er
þetta mjög hættuleg þróun.“
Grundvallaratriði
er að flokkarnir
séu frjálsir
CSþ gagnvart rikinu
Þórlindur Kjartansson,
fyrrverandi oddviti SUS
Tryggja þarf
1 að iýðræðið sé
I ekki leiksoppur
fij fjársterkra aðila
s*' M Gunnar H. Kristinsson,
Hættuleg þróun
Gunnar Helgi er að vissu leyti
sammála því að frekari ríkisvæðing
flokkanna geti verið varhugaverð.
Hann bendir á að slíkt sé engin ný-
lunda en erfitt geti reynst fyrir ný
öfl að sækja fjármagn. „Það sem er
hættulegt í þessu er hve stutt leiðin
er í ríkissjóð úr höfuðstöðvum flokk-
anna. Með þessu eru þeir að úthluta
sjálfum sér fé og geta gert það sem
þeim sýnist,“ segir Gunnar Helgi.
„Hver á að hafa hemil á því hvaða
fjármagni er úthlutað? Hlutverk al-
mennings og fjölmiðla er að veita
flokkunum aðhald í þessum efnum
þannig að þeir eigi ekki alltaf sið-
asta orðið.“
Jólasýning í
Galleríi Fold
A,.... sidam
: o
Verk eftir fjölmarga listamenn gallerísins
Kringlunni, 2. hæö, sími 5680400
Rauðarárstíg 14, sími 5510400 • www.myndlist.is
Gallerí Fold • Rauðarárstíg og Kringlunni