blaðið - 12.12.2006, Side 18
blaðiö
blaöið
Útgáfufélag: Arog dagurehf.
Stjórnarformaður: SigurðurG.Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjórar: BrynjólfurÞórGuðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ritstjórnarfulltrúar: Elln Albertsdóttirog Janus Sigurjónsson
Stopp
Ráðherrar hafa falast eftir ábyrgð. Með störfum sínum hafa þeir
óskað eftir að bera ábyrgð. Þess vegna bera þeir ábyrgð og það er alvara
að takast á við það sem ráðherrar hafa tekið að sér. Þess vegna eru þeim
borguð fín laun og þess vegna hafa þeir sjálfir getað réttlætt ofureftir-
laun. Það er alvara að bera ábyrgð. Og þar sem ráðherrar hafa beinlínis
óskað eftir ábyrgðinni er ekki úr vegi að benda þeim á það sem okkur
hinum þykir á vanta til að ráðherrarnir standi undir þeirri ábyrgð sem
þeir hafa sóst eftir og fengið.
Hörmuleg banaslys í umferðinni eru alltof tíð. Sú sára staðreynd
kallar á aðgerðir til að lágmarka mannskaða og í sorginni er líka hægt
að spyrja, hvers vegna? Hvers vegna var ákveðið að verja óhemju af
peningum til að gera Héðinsfjarðargöng þegar mest eknu þjóðvegir
landsins eru lífshættulegir, svo hættulegir að á þeim hafa á skömmum
tíma orðið svo hörmuleg slys, að flesta fslendinga setur hljóða. Það er
eitt að fá ekki þægindi, annað að fá að aka með sem minnstri lífshættu.
Þess vegna er æskilegt að ráðherrar hafi dómgreind til að raða rétt, láta
neyðina ráða, óþægindi og tímaeyðsla komi þar á eftir. Fleiri spurn-
ingar koma fram, til að mynda hvað megi afleggja margar einbreiðar
brýr fyrir þá peninga sem brenndir eru upp í vonlausri umsókn að
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Sama er að segja um sendiráðin öll,
sendiherrana sautján sem Davíð Oddsson skipaði og svo margt og svo
margt í okkar samfélagi sem okkur þegnana varðar ekkert um, en ráða-
mennirnir okkar kjósa að brenna peningum í hluti sem okkur hinum
er fyrirmunað að skilja hvers vegna.
Ráðherrar hafa kallað eftir ábyrgð og þeir verða þá að bera hana.
Kosningar eru framundan og þær skulu sko ekki snúast um rekstrar-
form Ríkisútvarpsins, og þær skulu ekki snúast um einstaka dekurmál
ráðherra eða þingmanna. Það er margt sem betur má gera og stjórn-
málamenn skulu ekki sleppa frá ákvörðunum um bætta þjóðvegi. ís-
lendingar vilja ekki lengur búa við það óöryggi sem nú er. Dauði eins
okkar er sorg okkar allra og það verður að ráðast að vandanum, fram-
kvæma og gera okkur kleift að ferðast af meira öryggi en nú er.
Hvað sem hver segir er vandinn mestur hér næst höfuðborginni. Um-
ferð um vegina er eflaust langtum meiri en þeir hafa verið hannaðir til
að bera. Deilur um ágæti tveir plús tveir-vega eða tveir plús einn-vega
mega ekki tefja aðgerðir. Þess vegna gerir ráðherrann best með því að
hefjast handa strax þannig að þingið geti samþykkt framkvæmdir á
þeim fáu vikum sem þingmenn mæta til vinnu eftir áramót.
Sigurjón M. Egilsson.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegísmóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Simbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadelld: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
18 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
■\}JnV/ W'olvj/ RÓLEGuR/ fiÍKi-p HÉPtW í FR-4
TYHiR H StM ERU &°Saí-bGa J&'hjÉ
LStiM/láT TiL oieieun MríK/t
W ^oo. KaLL •
n
$YY*Ktf>
FioKK^
Sóknarfæri jafnaðarmanna
Um helgina var samþykktur á fundi
kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi framboðslisti flokks-
ins fyrir næstu Alþingiskosningar.
Niðurstaðan er afar sterkur framboðs-
listi sem speglar vel samsetningu og
íbúa kjördæmisins.
Konur eru í meirihluta, u konur
og níu karlar, á listanum. Mikið er af
ungu fólki og líklega er þetta yngsti
framboðslisti á landinu. Guðný
Hrund Karldsóttir kemur ný inn í
fjórða sætið. Baráttusætið. Hún er
viðskiptafræðingur úr Reykjanesbæ
með mikla reynslu í farteskinu frá því
að hún var sveitarstjóri á Raufarhöfn.
Um framboð hennar er einhugur og
samstaða og óska ég henni til ham-
ingju með að vera komin í þennan
sterka hóp jafnaðarmanna.
Sigurlisti Samfylkingarinnar í Suð-
urkjördæmi er yfirskrift okkar fyrir
kosningarnar í vor. Við munum tefla
til sigurs og nota þá 150 daga sem til
kosninga eru til hins ítrasta. Ragn-
heiður Hergeirsdóttir ákvað að taka
starfi bæjarstjóra í Árborg og stóð þvf
upp úr fjórða sæti listans. Mikil eftir-
sjá er að henni en hún gegnir nú stóru
embætti sem styrkir flokkinn og kjör-
dæmið allt verulega.
Jafnaðarstefnan á nú sögulegt tæki-
færi. Eftir áratug gróðahyggju og
stórkapítals er meiri þörf á gildum
sígildrar jafnaðarstefnu en nokkru
sinni fyrr. Stéttskipting og efnalegur
mismunur barna er orðinn að stóru
vandamáli í grunnskólum landsins.
Það undirstrikar skýrslan um fátækt
barna á íslandi.
Aukinn jöfnuður í tekjudreifingu
og gæðum er meginhlutverk okkar
jafnaðarmanna. Því stóra og fjar-
læga markmiði náum við með því
að breyta skattkerfinu, standa vörð
um stéttlausan grunnskóla og eitt
heilbrigðiskerfi fyrir alla landsmenn.
Óháð efnahag. í því sambandi eigum
við hiklaust að skoða upptöku skóla-
búninga í grunnskólunum okkar.
Tvöfaldur Suðurlandsvegur
Eitt af stóru verkefnunum í héraði
er tvöföldun Suðurlandsvegar. Þver-
pólitísk samstaða er um málið í héraði
og ekki var hægt að skilja samgöngu-
ráðherra öðruvísi en svo að hann væri
að gefa eftir og tæki undir það að tvö-
falda skyldi veginn á næstu fjórum til
fimm árum þegar við ræddum málið
á Alþingi í síðustu viku.
Björgvin G. Sigurðsson
En hvað ef rýnt er í orð og athafnir
samgönguráðherra? Kallar hann til
baka útboð Vegargerðarinnar á tveir
plús einn-vegi sem á að duga til 2030
samkvæmt frétt á heimasíðu Vega-
gerðar frá 15. nóvember þessa árs og
setur undirbúning tvöföldunar af
stað?
Nei, það er ekki kallað til baka og
ef ég skil atburðarásina rétt þá á að
fara f 2 plús i-framkvæmdina með vír
á milli. Ljúka þeim vegi á næstu miss-
erum og stefna síðan að því að bæta
fjórðu akreininni við þá framkvæmd
eftir einhver ár eða áratugi.
öðruvísi er ekki hægt að skilja fram-
vindu málsins. Ráðherra leiðréttir ef
misskilningur er á ferðinni.
Rangfærslur og staðleysur
Vír sem víða um lönd er verið að
bannaog takauppendaskaparhann
hættu á alvarlegum slysum þó hann
þjóni einnig tilgangi með aðskilnaði
akreina. Þá skiptir miklu máli að á
fjölförnum vegi þar sem er tvöfaldur
hámarkshraði, fyrir fólksbíla annars-
vegar og flutningabíla hinsvegar, er
tveir plús einn ekki viðunandi lausn.
Afar misvísandi tölur hafa verið
á kreiki um kostnað við breikkun/
tvöföldun vegarins. Kostnaðurinn
liggur hinsvegar fyrir og þarf engum
blöðum um hann að fletta. Tilraunir
til að setja í loftið himinháar tölur
um að tvöföldun kosti 12 milljarða og
tveir plús enn átta milljarða eru áróð-
ursbragð andstæðinga framkvæmd-
arinnar settar fram til að drepa um-
ræðunni á dreif.
í svari samgönguráðherra við fyr-
irspurn minni í mars árið 2005 um
kostnað við tvöföldun segir að kostn-
aður verði á bilinu 5-7 milljarðar við
tvöföldun en um tveir milljarðar við
þrfgreiningu.
Rétt skal vera rétt. Staðleysur um
kostnað eru ekki annað en blekk-
ingar og þær ber að hrekja.
Nú er að tala skýrt. Hvað segja Árn-
arnir Johnsen og Mathisen í forystu
Sjálfstæðisflokksins? Ætla þeir að
beygja sig fyrir samgönguráðherra
eða hvað? Nú skulu stóru orðin
standa.
Fyrir viku voru afhentar 25.000
undirskiftir til stuðnings tvöföldun
vegarins. Það var þarft framtak
og afar vel heppnað. Nú þarf sam-
gönguráðherra að svara til um raun-
verulegar fyrirætlanir stjórnvalda í
málinu.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Klippt & skorið
Hræringar á blaöamarkaði eru mörgum
hugleiknar þessa dagana, ekki sfst
fjölmiðlafólki og eru bloggar landsins
stappfullir af vangaveltum
um næstu skref. Björn Ingi
Hrafnsson (bjorningi.blog.is)
er einn þeirra, sem ekki stand-
ast freistinguna að stinga
niður penna um þessi efni og
kveður upp úr með það, að blaðamannaveikin
sé skæður sjúkdómur, en sjálfur er hann með
mikla reynslu af fjölmiðlun þrátt fyrir ungan
aldur. Úr textanum má vel lesa að Bingi er allur
á iði vegna gróskunnar í fjölmiðlum og svo
minnir hann á að Þorsteinn Pálsson hafi alla
tíð - líka meðan hann var forsætisráðherra
- titlað sig blaðamann f sfmaskránni, enda hafi
komið á daginn að ritstjóraferii hans lauk hreint
ekki á Vísi heitnum. Segir Björn Ingi enda erfitt
að halda blaðamannaveikinni í skefjum. Ætli
honum hafi verið boðið starf nýlega?
w
Iþví samhengi má svo auðvitað minna á að
Össur Skarphéðinsson hefur jafnan sam-
tvinnað sinn pólitíska feril blaðamennsku,
m.a. sem ritstjóri á Þjóðviljanum og síðar á DV.
Á ýmsu hefur svo gengið á stjórnmálaferlinum,
en upp á síðkastið hefur hann
notað vefinn (ossur.hexia.
net) til þess að svala blaða-
mannabakteríunni. Veitir
varla af því hann mun hafa
fengið álitleg starfstilboð í
fjölmiðlaheiminum, en afþakkað til þess að
einbeita sér að þingstörfum, sem honum finn-
ast víst ekki síður skemmtileg.
Annars er gróskan f fjölmiðlum ekki hvað
síst f bloggheimum þessa dagana, jafn-
vel svo að klippari hefur látið til sín taka
á þeim vettvangi (andres.blog.
is). Morgunblaðið hefur tekið
afgerandi forystu á því sviði
og hafa flestir umsvifamestu
bloggararnir verið að færa sig
þangað. Miðað við vinsælda-
listann (www.mbl.is/mm/blog/top.html) er
Steingnmur Saevarr Ólafsson (saevarr.blog.
is) langvinsælastur, en á hæla hans koma þeir
Sigmar Guðmundsson í Kastljósi (sigmarg.
blog.is) og Guðmundur Magnússon sagn-
fræðingur (gudmundurmagnusson.blog.is),
sem ervíst með blaðamannaveikina líka.
andres.magnusson@bladid.net