blaðið - 12.12.2006, Page 21
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006 29
„Sjávarlóðin"
á Alftanesi
Vegna ásakana D-lista á Álftanesi
um að ég hafi misbeitt valdi mínu
gróflega sem forseti bæjarstjórnar
í tilteknu persónulegu máli vil ég
taka eftirfarandi fram.
Þetta eru stór orð. Þau eru að
öllu leyti tilhæfulaus og staðlaus og
klárlega grundvöllur að meiðyrða-
máli. Hef ávallt vikið af fundi við
afgreiðslur á málinu.
Ætlaði ekki að taka þátt í umræðu
um þetta mál en vegna grófra ásak-
ana og pólitískrar aðfarar að mér
verð ég að verja mig.
Sem bæjarfulltrúi hef ég lagt
áherslu á að vera ávallt málefna-
legur og ekki í persónulegu skítkasti
en D-listinn hefur valið að halda
sig jafnan við persónulega lágkúru
og draga þannig umræðuna ofan í
svaðið í annars friðsælli sveit sem
Álftanes er.
Orðin eru
tilhæfulaus
og klárlega
grundvöllur að
meiðyrðamáli
Umrœðan
Kristján Sveinbjörnsson
Varðandi viðtal við Henrik Thor-
arensen í Blaðinu þá er flest rangt
sem þar kemur fram. Hef aldrei
átt nokkur einustu samskipti við
þennan mann og erindið er í hefð-
bundinni og faglegri vinnslu hjá
sveitarfélaginu.
Um málefnið vil ég taka eftirfar-
andi fram:
Eignarhald á umræddri lóð er
umdeilt enda ekki til undirritað af
fyrri eigendum frumafsal af lóðinni
og mjög flókið og dýrt í okkar laga-
umhverfi að hnekkja þinglýstri sjálf-
töku á lóð.
Gildi deiliskipulags á lóðinni er
umdeilt því ekkert formlegt eða
fullunnið deiliskipulag hefur verið
gert, aðeins ófullkomin og ósam-
þykkt drög sem ekki sýna fjöruna
eða aðra staðhætti. Þá hefur Skipu-
lagsstofnun gefið út tvö misvísandi
álit og var annað þeirra um að lóðin
væri ekki á gildu deiliskipulagi.
Byggingarhæfi lóðarinnar hefur
verið umdeilt og eru til skýrslur og
yfirlýsingar, t.d. frá fyrrum bæjar-
stjóra og skipulagsfulltrúa (1998),
um að lóðin sé tæpast byggingarhæf
og rangt að leyfa byggingu á henni.
Lóðin er að 1/3 hluta neðan fjör-
unnar sem er friðlýst og sjávaröldur
leika þar um. Þá er ráðgerður göngu-
stígur og holræsalagnir ofan fjöru
gegnum lóðina. Þetta er því líklega
eina alvöru „sjávarlóðin” á landinu.
Bygging á friðlýstum sjávarbakka
er umhverfis- og skipulagsslys sem
breytti ásýnd fjörunnar, fældi frá
fuglalíf og væri í hrópandi þversögn
við óumdeilda umhverfisstefnu
Álftaness. Þá hefur komið fram að
flestir íbúar í grennd eru mótfallnir
byggingu á lóðinni og fjölmargir telja
rangt að byggja hús á þessum stað.
Ef sveitarfélagið verður skaðabóta-
skylt vegna málsins er það fyrst og
síðast vegna ákvörðunar og aðgerða
meirihluta D-listans frá október á
síðasta ári.
Fyrir þá ákvörðun var sveitarfé-
lagið ekki skaðabótaskylt þó ekki
hefði fengist að byggja á lóðinni
þar sem þá var til álit frá Skipulags-
stofnun um að það þyrfti að deili-
skipuleggja sérstaklega þessa lóð til
að fá að byggja á henni.
Fyrrum bæjarstjóri og núverandi
oddviti D-listans barðist af ein-
hverri sérkennilegri ástæðu allan
sinn starfstíma sem bæjarstjóri
(júní 2005-júní 2006) fyrir því að
hyggja þarna en náði ekki á valda-
tíma sínum að klára málið enda var
víða andstaða.
Annars er erindið nú í eðlilegri
skoðun og umfjöllun innan sveitar-
félagsins og niðurstaðan ekki ljós.
Höfundur er forseti bæjarstjórnarinnar á
Álftanesi.
Síldarævintýri
Nú er úrvalið okkar af síld og
síldarréttum ævintýri líkast.
Komdu og bragðaðu á gómsætri
jólasíld úr gæðahráefni.
Ævintýralegar fiskbúðir
Hamraborg 14a • Skipholti 70 • HöfÖabakka 1 • Vegamótum (Nesvegi 100) Sundlaugavegi 12 • Hóaleitisbraut 58-60
■i