blaðið - 12.12.2006, Page 22
30 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaðið
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Er verið að þræla
ykkur út?
„Þetta er ekki óhóflegur þrældómur en vissulega mætti
breyta starfsháttum þings þannig að það ynni jafnar."
fíjörgviu G. Sigurðsson,
þingmaður
Alþingismenn hófu sitt jólafrí á föstudaginn.
Menntamálanefnd Alþingis mun hins vegar
starfa í friinu við að fjalla um frumvarp um
Rikisútvarpið. Björgvin er i nefndinni.
Miðaldalíf á sumrin
HEYRST HEFUR...
A ð Björgólfur Thor sé búinn
/\. að ákveða hvað hann ætlar
að gefa föður sínum í jólagjöf.
Hingað til hefur syninum reynst
erfitt að finna hent-
ugajólagjöfhanda
karli föður sínum,
enda spurningunni
um hvað maður gefi
þeim sem á allt yfirleitt vand-
svarað. Nýleg kaup Björgólfs
eldri á fótboltaliðinu West Ham
hafa gert jólagjafainnkaupin ögn
einfaldari fyrir soninn og heyrst
hefur að hann hafi ákveðið að
kaupa nokkra nýja fótboltamenn
handa pabba gamla, pakka
þeim í bláan og vínrauðan
jólapappir og setja
þá undir tréð á
aðfangadagskvöld.
Ekki veitir liðinu af
aðkeyptum styrk
í formi jólagjafa og þetta mun
vera gjöfin sem hittir beint í
mark og vonandi verða þær
fleiri í framtíðinni.
Tveir þekktir menn héldu upp
á sextugsafmæli sitt á sunnu-
dagskvöldið og því má telja víst
að elíta landsins hafi öll verið
prúðbúin þá um
kvöldið, sötrandi
kampavín og nart-
andi í snittur. Eins
og sagt hefur verið
frá hélt ein helsta sjónvarpska-
nóna íslandssögunnar, Hee-
emmi Gunn, upp á sextugsaf-
mælið sitt á Brodway og þangað
mætti allt helsta tónlistar- og
sjónvarpsfólkið í landinu. í Iðnó
fór einnigfram fögnuður til heið-
urs Sigurði Skúlasyni leikara
sem einnig varð sextugur. Þar
var leikarastéttin samankomin
og margt um manninn. Egill
Ólafsson tók lagið og Katla
Margrét fór með ræðu. Spaug-
stofan var þar eins og hún lagði
sig að Erni undanskildum og
mikið stuð og skraf eins og leik-
urum er einum lagið.
Guðrún Steingrímsdóttir er um-
sjónarkona Smámunasafns Sverris
Hermannssonar. Safnið er staðsett
í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit og
geymir gersemar úr daglegu lífi
allt frá tekötlum til rafmagnsrofa
og allt þar á milli. Smámunasafnið
hefur þá sérstöðu að vera safn allra
mögulegra hluta og hversdagslegir
hlutir þar mitt á meðal afar óhefð-
bundinna hluta. Það er Sverrir
Hermannsson húsasmíðameist-
ari sem á heiðurinn af hlutunum
á safninu en hann hefur safnað
allt að þúsund hlutum hvert ár, í
heil fimmtíu ár. „Það eru margir
hlutir á safninu sem tengjast húsa-
smíði og þar er að finna mikið af
allskyns verkfærum. Það má segja
að Sverrir hafi byrjað söfnunina á
því að safna hlutum tengdum húsa-
smíði en áráttan hafi síðan teygt
sig til allra hluta sem eiga hlutverk
á heimilum fólks,” segir Guðrún.
Safnið er opið yfir sumartímann
en nú fyrir jólin tók Guðrún saman
hluti tengda jólunum til að hafa
til sýnis. „Þar er að finna nokkur
handgerð jólatré og gervijólatré
sem eru áreiðinlega þau fyrstu
sem seld voru í búðunum. Síðan
eru gamlar jólaseríur og ýmislegt
af handgerðu skrauti.”
Vinnur skartgripi úr beinum
Guðrún segir að hún beri líka
söfnunaráráttuna í brjósti og sé
lítið fyrir að henda hlutum, þótt
hún sé kannski ekki að eltast við
að sanka að sér munum. „ Nú er
til sýnis dúkkulísusafn sem ég á
heiðurinn af og dúkkulísurnar eru
mestmegnis frá því að ég var lítil
en þær eru vel farnar og gaman að
skoða þær.“
Guðrún á sér aðrar ástríður en
önnur þeirra er að hún vinnur
skartgripi og nytjahluti úr beinum.
,Það eru rúm 12 ár síðan ég byrjaði
að vinna úr beinum og hornum og
þetta er skemmtileg iðja en tíma-
frek. Þetta er náttúruefni og mjög
lifandi en það þarf að vinna beinin
mikið áður en hægt er að byrja að
búa til skartgripi og aðra hluti úr
þeim,” segir Guðrún en hún hefur
tekið þátt í handverkssýningum
bæði hér heima og erlendis og hún
selur handverk í nokkrum minja-
gripaverslunum og galleríum.
Býr og lifir í miðaldastíl
Eina helgi á ári fer Guðrún í ferð
aftur til miðalda og býr og lifir að
miðaldasið þar sem hún vinnur að
handverki og eldar mat á hlóðum
og gerir annað sem tengist daglegu
lífi á miðöldum. „Ég er hluti af
hópi sem heitir Gásahópurinn og
við erum að leika okkur svolítið
með miðaldirnar. Uppákoman er
tengd fornleifauppgreftri að Gá-
sum í Eyjafirði og við höfum und-
anfarin fjögur ár slegið upp búðum
í tengslum við uppgröftinn. Gásir
voru miðaldakaupstaður og þar
var höfn fyrir Eyfirðinga áður en
Akureyri byrjaði að byggjast upp.
Fornleifauppgröfturinn sýnir að
á miðöldum hafi verið stunduð
verslun í tengslum við skipaferðir á
sumrin og uppgröfturinn sýnir að
fólkið sem þar dvaldi hefur verið
efnafólk sem stundaði verslun og
handverk á staðnum. Við í Gása-
hópnum lifum þarna góðu lífi og
uppákomunni er vel tekið meðal
ferðamanna og skemmtilegt fyrir
fólk að heimsækja staðinn og
hverfa aftur til miðalda á lifandi
hátt. “
"ivnr
Astríðan min
íSÖÍKI
Guðrún Steingrímsdóttir er umsjón-
arkona Smámunasafnsins Ber líka
söfnunaráráttuna íbrjósti og sýnir
dúkkulísur sem hún hefur safnað.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir (hverri Ifnu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
4 2 8 1 5 3 6 7 9
3 9 5 2 6 7 8 1 4
6 1 7 4 8 9 2 5 3
7 8 3 6 1 4 9 2 5
1 5 9 3 7 2 4 6 8
2 4 6 8 9 5 7 3 1
8 6 4 5 2 1 3 9 7
5 7 2 9 3 8 1 4 6
9 3 1 7 4 6 5 8 2
Gáta dagsins:
2 6 5
7 1 5 8 9
1 7 3
6 7 8
7 6 8
1 9 3 4
6 4 3
9 4 5 1 2
2 7 6
eftir Jim Unger
-19
© LaughingStock Intemational Inc./dist. by United Media. 2004
Er þetta maðurinn sem reyndi að ræna þig?
Á förnum vegi
Hvað er uppáhalds-
sjónvarpsefnið þitt?
Berglind Kristinsdóttir, iðju-
þjálfi
„Það er eitthvert svona konuefni
eins og Desperate Housewives."
Elinóra Kristinsdóttir,
myndlistarkennari
„Það eina sem ég horfi á núna er
So you think you can dance.“
íris Jónsdóttir, nemi
„Kannski bara Fóstbræður.“
Denya Melissa Layne, nemi
„America's next top model.“
Guðný Ragnhildur Davíðsdótt
ir, nemi
„America's next top model.“