blaðið - 12.12.2006, Page 24
32 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaAiö
An ogunar er
ekkert líf.
Katharine Hepburn
kolbrun@bladid.net
Afmælisborn dagsms
GUSTAVE FLAUBERT RITHÖFUNDUR, 1821
EDVARD MUNCH LISTMÁLARI, 1864
EDWARD G. ROBINSON LEIKARI, 1893
Poirot og fleiri
sögur
Bókautgáfan Skjaldborg hefur
gefið út bókina Ingu, eftir
Birgittu H. Halldórsdóttur.
Inga er ung
BIRQITTA
H. HALLPÓISPOrriB
%
NCjA'
útgerðar-
mannsdóttir í
sjávarplássi á
Suðurlandi, er
í fínni vinnu
og hann Geiri,
kærastinn
hennar, er
góður strákur.
Lífið er slétt
og fellt en
framtíðin óræð og kannski ekki
alveg nógu spennandi. Svo
hittir hún Hall á dansleik og þá
breytist altt. Fyrsta bók Birgittu
H. Halldórsdóttur kemur hér út
að nýju en hún var fyrir löngu
uppseld.
Skjaldborg gefur út bókina
Omerta, eftir Mario Puzo.
Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Don
Raymonde er aldraður maður
og nægilega
slyngurtil
að draga
sig með
lagni út úr
skipulagðri
glæpa-
starfsemi
eftir
vægðarlausa
sigurgöngu
á þeirri
braut. En
eftir að hafa setið skamma
stund á friðarstóli er Don Aprile
myrtur á hryllilegan hátt. Hver
hafði ástæðu til að fremja slíkt
voðaverk?
cs
OmertA
GÍJÐF'AÐIRINN
Skjaldborg hefur gefið út bókina
Flóð og fjara, eftir Agöthu
Christie. Ragnar Jónasson
þýddi. Auðmaðurinn Gordon
Cloade lætur
lífið í loftárás
í seinni heims-
styrjöldinni,
en ung
eiginkona
hans,
Rosaleen,
lifir árásina
af. Cloade-
fjölskyldan,
sem hafði átt
greiðan aðgang að auðæfum
hans, situr eftir arflaus, að
minnsta kosti meðan ekkja
unga er enn á lífi. Dularfullt
morð í sveitaþorpinu þar sem
fjölskyldan býr veldur því
að Hercule Poirot kemur til
sögunnar.
Skjaldborg hefur gefið út
bókina Þjóðkunnir menn við
þjóðveginn - frá landnámi
til lýðveldis, eftir Jón R.
Hjálmarsson sagnfræðing
og fyrrum
skólastjóra.
(þessari
nýstárlegu
bók er lagt
upp í langferð
í huganum
og haldið
kringum
landið
eftir hring-
veginum
og ýmsum
vegum út frá honum. Sagt er frá
leiðum og staðháttum og loks
staldrað við á faeðingarstöðum
fjölmargra einstaklinga sem
komið hafa við sögu með einum
eða öðrum hætti í aldanna rás
og rakinn æviferill þeirra.
)M>.niuiussi»
Sigriður Dúna hefur skrifað ævisögu Ólafíu Jóhannsdöttur
Búnt af mótsögnum
,y
Sigríður Dúna „Hún var skemmti-
leg, málsnjöll og frökk, fór ekki eftir
neinum reglum, elskadi heitt, hataði
af ástríðu og hafði oft óraunhæfar
hugmyndir um lífið og tilveruna,"
segir hún um Ólafiu Jóhannsdóttur.
Mynd/Eyþóf
Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir er höfund-
ur vandaðrar ævisögu
um Ólafíu Jóhannsdótt-
ur sem JPV útgáfa gefur
út. „Ólafía er ein af þessum stóru ís-
lensku konum sem Islendingar vita
næsta lítið um og reyndar er hún
betur þekkt í Noregi en hér,“ segir
Sigríður Dúna. „1 miðborg Óslóar er
brjóstmynd af henni, gata er nefnd
eftir henni og stærsta meðferðar-
stofnun í Noregi til varnar kynsjúk-
dómum er nefnd Oalfiaklinikken
í höfuðið á henni. Ekkert slíkt er
að finna á íslandi og reyndar lenti
brjóstmynd hennar, sem gefin var
Háskóla Islands árið 1963, á bak við
skáp í fordyri kapellu háskólans en
Ólafía barðist ötullega fyrir stofn-
un háskóla á íslandi. Menn sáu
að þetta gat ekki gengið og brjóst-
myndin var færð fram á gang fyrir
tæpum áratug og er þar nú.
Það var nú samt ekki þetta styttu-
mál en annað viðlíka sem fékk mig
til að takast á við Ólafíu. Eftir at-
burðina 11. sept 2001 og það sem
fylgdi í kjölfarið langaði mig til að
skilja þá „fórnfýsi” trúarinnar sem
fékk fólk til að stunda sjálfsmorðs-
árásir í nafni hennar. Sem trúkona
lá Ólafía beint við enda reyndi hún
ítrekað að „deyða” sjálfa sig i óeigin-
legri merkingu eftir að hún gekkst
Guði á hönd. Ég vildi líka auðvitað
skrifa um konu, slökkva um stund
á hárþurrku hinnar karllægu sögu
sem blæs á konur og framkalla
mynd af svo sem einni merkri konu
í leiðinni.“
Femínisti og byltingarkona
Var eitthvað sem kom þér á óvart
í sambandi við lífhennar eða hana
sjálfa þegar þú fórst að vinna verk-
ið?
„Já, svo sannarlega. Ég hafði ekki
áttað mig á því fyrirfram hversu eld-
heitur femínisti og byltingarkona
Ólafía var. Hún var potturinn og
pannan í íslenskri kvennabaráttu
í upphafi hennar, heimskona sem
ferðaðist um heiminn til að breiða
baráttuna út og kynntist helstu
kvenréttindafrömuðum síns tíma.
Sjálf þegir Ólafía um þetta í endur-
minningum sínum, þar talar hún
aðallega um glímu sína við trúna
og sem trúkona er hún fyrst og
fremst þekkt. Ef endurminningar
hennar væru teknar á orðinu mætti
halda að hún hefði aldrei nálægt
kvennabaráttu komið eða þekkt
Einar Benediktsson skáld, frænda
sinn, sem mér sýnist hafa verið
stóra ástin í lífi hennar ef Kristur er
frátalinn. Einnig kom fóstra henn-
ar, Þorbjörg Sveinsdóttir ljósmóðir,
mér á óvart. Þar fór kvenskörung-
ur og áhrifamaður í íslenskum
þjóðmálum sem er að litlu getið í
íslenskri stjórnmálasögu. Þorbjörg
framkallast á sviðinu í ævisögu Ól-
afíu en hún á skilið að fá sína eigin
ævisögu.“
Frelsisþráin dýra
Hvernigpersónuleiki var Ólafía?
„Hún var skemmtileg, málsnjöll
og frökk, fór ekki eftir neinum regl-
um, elskaði heitt, hataði af ástríðu
og hafði oft óraunhæfar hugmynd-
ir um lífið og tilveruna. En hún
gat líka verið lítil og aum og ang-
ist hennar var stundum djúp sem
hyldýpi. Hún var bindindiskona á
sögubækur og vín, hafði lítið álit á
prestum en mikið álit á hjartalagi
vændiskvenna. Hún var í raun búnt
af mótsögnum og óróleikinn í blóð-
inu, frelsisþráin dýra, yfirgaf hana
aldrei.“
Er ekki rétt hjá mér að þú hafir
verið nokkuð lengi að rannsaka
lífshlaup hennar? Var þetta mikil
vinna.
„Langt eða stutt fer nú eftir við-
miðinu. Ég byrjaði að viða að mér
heimildum um Ólafíu í árslok 2002
og er afar minnisstætt þegar ég
einn kaldan og gráan nóvemberdag
árið á eftir barðist gegn vindinum
upp Karl Jóhann i Osló og vissi að
nú yrði ekki aftur snúið. Rannsókn-
in og ritun bókarinnar tók því um
fjögur ár. Já, heimildavinnan var
mikil og ég sparaði heldur ekki tím-
ann í ritunina. Þessi vinna var hins
vegar svo skemmtileg og gefandi að
árin hefðu mátt vera fleiri.“
menningarmolinn
Stórsöngvari
fæðist
Á þessum degi árið 1915 fæddist
söngvarinn og leikarinn Frank Sin-
atra í Hoboken, New Jersey, sonur
ítalskra innflytjenda. Hann fór að
syngja strax á unglingsárum. Árið
1940 gekk hann til liðs við hljóm-
sveit Tommy Dorsey og komst á met-
sölulista.
Sinatra varð vinsæll kvikmynda-
leikari, auk þess að vera dáður söngv-
ari. Hann missti röddina árið 1952
og ferill hans virtist vera á enda. Þá
fékk hann aukahlutverk í kvikmynd-
inni From Here to Eternity og vann
Óskarsverðlaun. Upp frá því lá leiðin
upp á við. Hann endurheimti söng-
röddina og lög hans nutu æ meiri vin-
sælda eftir því sem leið á ferilinn.
Sinatra var fjórgiftur og stærsta
ástin í lífi hans var eiginkona núm-
er tvö, Ava Gardner, sem yfirgaf
hann. Sinatra lést árið 1998.