blaðið - 12.12.2006, Page 26
34 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaðið
(JPPÁIIAIJ)S ÍSLI‘\!)I\(iASA(iA\
Hér vekja útímalegur texti og dramatískar
Ijósmyndir Jóhannesar Eiríkssonar Njálu
eftirminnilega til lífs á nýrri öld. Margslungin,
æsispennandi örlagasaga sem snertir streng
í brjósti allra Islendinga.
m. t.
...
FYRIR LIFSKUNSTNERINN
Lífsspeki Tolteka-indjána minnir oft á
hugarheim okkar íslendinga. Hér er sagt
frá mögnuðum ráðum sem frelsa
okkur úr viðjum vanans.
'
i
FVRIR VINKONUNA
Bráðskemmtileg og nauðsynleg lesning fyrir
allar konur eftir fimmtugt! Frábær hvatning
og upplífgandi frásagnir af konum sem
njóta nýrra hlutverka í lífinu.
SÖLKUKORN:
Á aðventunni er gott að sitja við kertaljós með
sínum nánustu og maula smákökur.
Mýrin-JAR CITY
Stærsta mynd ársins 2006, Mýrin, er nú sýnd i Regnboganum með
enskum texta. 80.000 manns hafa séð myndina hingað til og nú
gefst þeim sem skilja enska tungu tækifæri til að sjá myndina.
{$£*■ '
Barði tilnefndur til íslensku
tónlistarverðlaunanna fyrir
tónlist sína við sænsku
djöflamyndina Haxan. Barði
segir tónlistina vera draum-
kennda en hressandi
arði Jóhannsson er til-
nefndur til íslensku
tónlistarverðlaun-
anna fyrir tónverk sitt
Háxan.
Tónverkið er samið við gamla,
samnefnda, þögla kvikmynd frá
1922 um nornir og djöfladýrkun.
„Ég var beðinn um að semja tón-
list við kvikmynd í tengslum við
viðburð í París er kallast Cinemix,"
segir Barði. „Ég gat valið á milli
Viva la Mexico eftir Eisenstein og
Háxan eftir Benjamin Christen-
sen,” segir hann.
Aðspurður um hvað hafi tælt
hann við myndina Háxan segir
hann myndmálið vera skemmti-
legt og sterkt auk þess sem honum
hafi fundist mynd Eisensteins
heldur langdregin. „Það er mikið
af tæknibrellum í myndinni,“ seg-
ir Barði. „Og hún tók langan tíma
í vinnslu því leikstjórinn var allt-
af að gera tilraunir með alls kyns
brellur. Það er ekkert í henni sem
þætti hryllilegt í dag,“ bætir hann
við.
Frumflutningur á verkinu fór
fram í kvikmyndahúsinu Forum
des Images of Paris árið 2004. Var
verkið flutt við sýningu mynd-
arinnar ásamt tveimur fiðlum,
áslætti, gítar og rafhljóðum. „Síð-
an var kvikmyndin sýnd á vetrar-
hátíð í Reykjavík 19. febrúar 2005,“
segir Barði um framhaldið. „Þar
sem Sinfóníuhljómsveit íslands
lék undir frumsamda tónlist við
kvikmyndina og var það Þórir
Baldursson sem útsetti megnið af
verkinu og ég kom aðeins að einm
hluta af sjö.”
Upptökur á verkinu fóru fram í
Búlgaríu og verkið er leikið af 80
manna Sinfóníuhljómsveit Búlg-
aríu og hljóðritað í ríkisútvarpi
landsins. „Ég staldraði ekki lengi
við í Búlgaríu,” segir Barði frá. „En
eftirvinnslan tók töluverðan tíma
og fé, miklu var fórnað til þess að
þessi geisladiskur gæti komið út.
Ég var aðeins fjóra daga í Búlgaríu.
Þar var áhugavert að dvelja um
stund í þessu kommúnistaríki
sem nágrannaþjóðirnar skiptast á
að valta yfir. Byggingarnar, eins og
til að mynda byggingin sem hýsir
búlgarska ríkisútvarpið, eru enn-
þá í þessum austurevrópska stíl
sem nú er svo mikið í tísku að eyði-
leggja til að koma inn vestrænni
áhrifum.”
Barði er önnum kafinn þessa
dagana. “Nú er ég að vinna að
tónlist fyrir næstu Bang Gang-
plötu, bætir hann við.” Hann er
ánægður með tilnefninguna þótt
hún muni ekki ríða baggamuninn.
„Ég hef ekkert unnið til neinna
verðlauna fyrir tónlist á Islandi,
bara unnið til myndbanda -og
útflutningsverðlauna,” segir hann.
„Mér hefur annars gengið ágætlega
þrátt fyrir það.”
dista@bladid. net
öimi
TIGITAL heldur
ka á SIRKUS
Annað kvöld spilar Ghostigital
efni af plötu sinni In Cod We
Trust á Sirkus. í síðustu viku
fékk GHOSTIGITAL hvorki
rneira en minna en þrjár tilnefn
ingar til ÍSLENSKU TÓNLIST-
ARVERÐLAUNANNA: - Hljóm-
plata ársins (ýmis tónlist): IN
COD WE TRUST- Lag ársins:
NOT CLEAN- Myndband ársins:
NORTHERN LIGHTS.