blaðið - 12.12.2006, Síða 27
blaöið
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006 35
Dagur íslenskrar tónlistar í dag
Blásið til sóknar
Þau hagsmunafélög tónlistargeir-
ans sem hafa sameinað krafta sína
í heildarsamtökunum Samtóni
hafa nú tekið höndum saman með
fjölmiðlum og fleiri aðilum í þeim
tilgangi að endurvekja dag íslenskr-
ar tónlistar sem var í heiðri hafður
áður fyrr. Islensk tónlist nýtur vissu-
lega margvíslegrar athygli á hverj-
um einasta degi en hugmyndin er
að helga íslenskri tónlist einn ákveð-
inn dag á hverju ári og vekja athygli
á því sem er í brennidepli hverju
sinni. Þriðjudagurinn 12.12.2006
hefur orðið fyrir valinu að þessu
sinni en ætlunin er að festa dag ís-
lenskrar tónlistar í sessi og halda
hann hátíðlegan með reglulegum
hætti næstu árin. Blásið verður til
enn frekari sóknar næsta sumar til
að efla íslenska tónlistarútgáfu og
tónlistarflutning utan hinnar hefð-
bundnu jólavertíðar.
Undanfarin ár hefur verið lögð
áhersla á að reyna að dreifa útgáf-
unni eins og hægt er þó svo að
meginþungi hennar falli á vikurn-
ar og mánuðina fyrir jólin. Þegar
meðfylgjandi listi yfir 25 söluhæstu
íslensku hljómplöturnar það sem af
er árinu er skoðaður kemur margt
áhugavert í ljós. Fjöldi titla sem
fylla efri hluta listans kom út síðast-
liðið sumar og það vekur einnig at-
hygli að nokkrar plötur sem komu
út á síðasta ári hafa selst ágætlega á
þessu ári. Svona leit staðan út fyrir
helgina, en nýjustu plöturnar sækja
hratt upp listann og eiga væntan-
lega eftir að yfirtaka efstu sætin áð-
ur en árið er liðið, enda mikil sala
þessa dagana.
Mest seldu plötur ársins til þessa
1. Ýmsirflytjendur: 100 íslensk jólaög
2. Ýmsir flytjendur: 100 islenskir sumarsmellir
3. Ýmsir flytjendur: (slensk ástarlög
4. Papar: Papará balli
5. Ýmsir flytjendur: Söngvakeppni Sjónvarpsins 2006
6. Baggalútur: Aparnir í Eden
7. Ýmsir flytjendur: Pottþétt 40
8. Bubbi Morthens: Lögin mín
9. Ýmsirflytjendur: Pottþétt4t .
10. Bubbi Morthens: 06.06.06
11. Ýmsir flytjendur: Eurovision Song táoptest 2006
12. Guörún Gunnarsdóttir og Friörik Ómar: Ég skemmti mér í sumar
13. Sigur Rós: Takk
14. Latibær: 20 bestu Latabæjarlögin
15. EmillanaTorrini: Fisherman'sWoman
16. Ampop: My Delusions
17. Hjálmar: Hjálmar
18. JeffWho: Death Before Disco
19. Stebbi og Eyfi: Nokkrar notalegar ábreiöur
20. Lay Low: PleaseDon't Hate Me
21. Ýmsir flytjendur: 100 vinsæl lög umástina
22. Mugison: Little Trip To Heaven
23. Raggi Bjarna: Vel sjóaður
24. Björgvin Halldórsson: Ár og öld
25. K.K.: Blús
Bubbi Morthens Dagur
íslenskrar tónlistar verð-
ur sennilega til að auka
spilun á íslenskri tónlist
á útvarpsstöðvunum.
aÍIS!
HÖFUM FLUTT SKRIFSTOFUR OKKAR AÐ FORNUBÚÐUM 5.
MEST hefur flutt skrifstofur sínar frá Malarhöfða 10 að Fornubúðum 5 í
M Hafnarfirði. Þarverðureinnig vöruhús MEST.
f, «1 j STÆRRA OG MEIRA MEST
Malarhöfða 10, Bæjarflöt 4, Reykjavík / Hrísmýri 5, Selfossi / Leiruvogi 2, Reyðarfirði / Bæjarhrauni 8,
Hringhellu 2, Kaplahrauni 2-4, Fornubúðum 5, Hafnarfirði / MEST / Sími 4 400 400 / www.mest.is
VETUR
NÝR GRAND VITARA
Verð frá 2.790 þús.
XL-7
Verö frá 3.190
Swift 4X4
Verð 1.749 þús.
SX4
Verð 2.089 þús.
$ SUZUKI
...er lífsstíll!
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100.