blaðið - 12.12.2006, Síða 30
38 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaðið
Ferðalag í pakkann
Flestar ferðaskrifstofur bjóða gjafakort til að setja
í jólapakka nú fyrir jólin. Það er um að gera að
búa tii fallega umgjörð um gjafakortið, setja það
í fallegan kassa eða láta ferðabók um spennandi
áfangastað fylgja með.
ferðir
ferdir@bladid.net
Sameining háskóla
Háskóli fslands og Kennaraháskóli fslands verða formlega
sameinaðir 1. júlí árið 2008 samkvæmt frumvarpi mennta-
málaráðherra um sameiningu skólanna. Munu skólarnir
sameinast undir nafni Háskóla fslands og á sama tíma falla
úr gildi lög um Kennaraháskóla íslands.
menntun@bladid.net
Á Kanarí aftur og aftur
Þúsundir í
Góðar ráðleggingar ffyrir prófin
Prófraunir
sól á jólunum
Það hefur verið að færast í vöxt að
fólk dvelji erlendis yfir jól og áramót
og Kanaríeyjar eru án efa vinsæl-
asti dvalarstaðurinn sem íslenskar
ferðaskrifstofur bjóða upp á um jól-
in. Laufey Jóhannsdóttir, sölustjóri
Plúsferða, segir að í ár muni fleiri en
nokkru sinni fyrr dvelja á Kanaríeyj-
um um jólin en hátt á annað þúsund
manns fer þangað á vegum Plúsferða
og Úrvals Útsýnar í ár. „Það er að
verða algengara að stórfjölskyldan
fari saman, allt að 10-15 manns sam-
an í ferð,“ segir Laufey og bætir við
að fullbókað hafi verið í ferðirnar í
október. „Fólk ákveður þessar ferðir
mjög snemma og við reyndum til að
mynda að fá fleiri sæti en það voru
allir gististaðir uppbókaðir.”
Laufey segir að styttri sumarfrí í
skólunum séu ein ástæðan fyrir því
að fólk nýti jólafríin til að fara út fyr-
ir landsteinana.
„Það eru margir sem fara ár eftir ár
til Kanari um jólin og þetta er fólk á
öllum aldri,“ segir hún. Laufey segir
að það sé ýmislegt gert til að skapa jól-
astemningu og það er til að mynda
alltaf haldið sameiginlegt jólaball
sem fólk kann vel að meta.
Sögur af hangikjötsilmi á aðfanga-
Jól í sól Alveg jafnhátíðleg og ís-
lensk jól.
dag á Kanarí eru réttar að sögn
Laufeyjar. „Sumir pakka hangikjöti,
grænum baunum og malti og appels-
íni með í ferðatöskuna. En aðrir eru
ekkert að velta fyrir sér jólunum
og sjá ferðina sem hverja aðra sólar-
landaferð og skilja smákökurnar og
laufabrauðið eftir heima. Það má
segja að hópurinn skiptist alveg í
tvennt hvað það varðar.“
Þó að það snjói ekki á Kanaríeyj-
um er mikið um skraut og allt fært
í jólabúning. „Nú þegar er búið að
setja upp jólaskraut á Kanarí og það
er mikið gert til að skapa jólastemn-
ingu og koma öllum í jólaskap. Það
er alltaf öðruvísi að halda jól í sól og
hita en það geta samt verið alveg jafn-
hátíðleg jól,” segir Laufey að lokum.
háskólanema
Próftímabil stendur nú yf-
ir í velflestum háskólum
landsins og víða sitja nem-
endur sveittir yfir skræð-
unum frá morgni til kvölds. María
Dóra Björnsdóttir, náms- og starfs-
ráðgjafi hjá Háskóla íslands, segir
að best sé að vinna jafnt og þétt
yfir misserið. Þegar próftímabilið
rennur upp þurfi nemendur síðan
að forgangsraða verkefnum og jafn-
vel gera breytingar á sínu daglega
lífsmynstri.
„Fólk þarf að skapa sér meira svig-
rúm til að sinna náminu og jafnvel
draga úr félags- og skemmtanalífi. Ef
fólk er að vinna með skóla ætti það
að draga úr vinnu yfir próítímann og
ef það er með börn ætti það að reyna
að fá aðeins meiri aðstoð með þau og
heimilisstörfin,“ segir María.
Æskilegt er að nemendur kynni sér
vel hvað þeir þurfi að kunna fyrir próf
í tilteknum námskeiðum og mælir
María með því að þeir geri gátlista eða
brjóti efnið niður í smærri einingar til
að það verði viðráðanlegra.
„Við mælum líka með því að nem-
endur geri sér langtímaáætlun fyrir
allt próftímabilið til að þeir fái góða
heildarsýn og geri síðan daglega tíma-
áætlun út frá henni,“ segir María og
bendir á að á vefsíðu Námsráðgjafar
HÍ sé hægt að nálgast eyðublöð sem
auðveldi nemendum að skipuleggja
tíma sinn til próflesturs.
Svefn og mataræði skiptir máli
Þó að dagleg rútína nemenda fari
eitthvað úr skorðum á próftímabili er
engu að síður mikilvægt að þeir gæti
þess að fá alltaf næga hvíld fyrir próf.
„Það er ofboðslega erfitt að halda
góðri einbeitingu og hafa úthald í krefj-
andi vinnu þegar maður er illa sofinn,“
segir María.
„Við þurfum að reyna að vinna í hæfi-
lega löngum lotum og taka mið af því
hversu erfitt efnið er sem við erum að
fara í gegnum á hveijum tíma,“ segir
María og bendir á að mataræðið skipti
einnig miklu máli á próftímabilinu.
„Blóðsykurinn sveiflast upp og nið-
ur og einbeiting okkar og árvekni
sveiflast með blóðsykrinum þannig
að það er mjög mikilvægt að vera á
nokkuð góðu fæði en ekki bara á ein-
hverjum sykurdrykkjum og súkku-
laðistykkjum,“ segir hún.
Dregið úr prófkvíða
Með því að skipuleggja tíma sinn
og huga vel að þeim þáttum sem hér
hafa verið nefndir má draga úr próf-
kvíða. Hreyfing gegnir einnig mikil-
vægu hlutverki í því sambandi.
„Við mælum með því að fólk sleppi
ekki allri hreyfingu þó að það sé í
prófum vegna þess að með hreyfing-
unni fær maður þá andlegu og líkam-
legu útrás sem maður þarf á að halda,
losar um streitu og spennu og maður
er oft betur í stakk búinn til þess að
vinna en ella,“ segir María og bætir
við að gott sé að fólk finni einhverja
einstaklingsbundna leið til að ná
fram slökun. Þá á fólk enn fremur að
forðast neikvæðar hugsanir um eigin
getu en leggja þess í stað áherslu á
styrkleika sína og þann árangur sem
það hefur þegar náð.
Þegar prófdagurinn sjálfur rennur
upp skiptir máli að fólk mæti tím-
anlega í próf enda getur það aukið á
streitu að vera á síðustu stundu. Þá
eiga nemendur að forðast að ræða
um prófið við aðra nemendur rétt
áður en þeir þreyta það þar sem það
getur valdið óöryggi og kvíða.
Þegar í stofuna er komið segir Mar-
ía að gott geti verið fyrir nemendur
að skrá minnisatriði á rissblað svo
sem formúlur, lykilhugtök og annað
slíkt.
„Það er gott að lesa allar spurningar
og leiðbeiningar mjög vel þannig að
fólk sé alveg með á hreinu hvað ver-
ið sé að biðja um. Nemandinn á að
lesa yfir alla prófþættina og byrja að
svara því sem honum finnst að hann
ráði best við. Það eykur öryggið og
tilfinningu nemandans fyrir því að
þetta sé eitthvað sem hann getur og
slær þá á kvíðatilfinningar ef þær
eru til staðar,“ segir María sem mæl-
ir jafnframt með því að nemandinn
skipti tíma sínum á hverja spurningu
með hliðsjón af vægi hennar.
„Ef fólk verður strand í einhverri
spurningu á það að geyma hana og
skilja eftir gott autt pláss fyrir neðan
og koma að henni aftur sfðar. Ef það
á að svara löngum ritgerðarspurning-
um getur verið mjög gott að skrifa nið-
ur eins konar beinagrind að svari eða
lykilatriði á rissblað. Þá er ólíklegra
að eitthvað gleymist auk þess sem
það hjálpar manni líka að hafa svarið
svolítið markvissara og skipulagðara,“
segir María.
A tvirm ua uglýsingar Auglýsingasiminn er 510 3735
Helgarvinna
Starfsfólk óskast í helgarvinnu á líflegan og skem-
mtilegann vinnustað. Kornið Lækjargötu Rvk.
Upplýsingar á staðnum og í síma 8641593. Ella.
Kornið er 25 ára gamalt fyrirtæki sem býður uppá
trausta og góða vinnustaði þar sem ánægja starfs-
fólks er höfð að leiðarljósi.
Frábær vinnustaður
Óskar eftir starfsfólki á öllum aldri.
Vinnutími 11-19.
Upplýsingar í síma 8641585 Dagbjartur
Kornið er 25 ára gamalt fyrirtæki sem býður uppá
trausta og góða vinnustaði þar sem ánægja starfs-
fólks er höfð að leiðarljósi.
MEIRAPRÓFSBÍLSTJÓRAR
ÓSKAST
Viltu koma í skemmtilega og lifandi
vinnu hjá stærsta bílaflutningafyrir-
tæki landsins? Okkur vantar menn
núna! Hafðu samband við Bjarna í
síma: 567-6700
Vaka EHF
Eldshöfða 6
s: 567-6700