blaðið - 12.12.2006, Blaðsíða 32
Skeytin inn
Alex Ferguson, stjóri
Manchester United,
fær ótakmarkað fé til
leikmannakaupa frá Malcolm
Glazer, eiganda félagsins,
þegar félagaskiptaglugg-
jjk-* inn opnastí
janúar. „Ef
við sjáum
leikmenn
sem geta
styrkt liðið eru pen-
ingar vissulega
til staðar," sagði
David Gill, stjórnarformaður
félagsins, við breska fjölmiðla í
gær. Owen Hargreaves hjá Bay-
ern Múnchen og framherjarnir
Fernando Torres hjá Atletico
Madrid og Klaas-jan Hunt-
elaar hjá Ajax hafa allir verið
orðaðir við Manchester United
að undanförnu.
Forráðamenn Chelsea eru
að sögn breska dagblaðs-
ins Daily Express farnir
að búa sig
undir brottför
knattspyrnu-
stjóra félags-
ins, Jose Mo-
urinho, í lok
tímabilsins og
farnir að leita að
, hugsanlegum
eftirmönnum
Portúgalans.
Eggert Magnússon rekur Alan Pardew frá West Ham:
Eriksson gæti tekið við
■ Vantar kantmann og varnarmenn ■ Spila langt undir getu
Fimm töp í síðustu sex leikjum og fjögurra
marka tap um helgina voru meira en Eggert Magn-
ússon og félagar við stjórnvölinn hjá
West Ham gátu þolað. Þeir ráku Alan
Pardew, framkvæmda-
stjóra liðsins, í gær
eftir að hann hafði
verið þrjú ár við
stjórnvölinn, og
leita nú að eftir-
manni hans.
- í yfirlýsingu
frá West Ham
sagði að
Eggert og stjórn
félagsins hefðu
haft áhyggjur
af lélegu gengi
liðsins að
undanförnu
og fundist
rétt að gera
breytingar
í þágu
félagsins.
K e v i n
Keen, aðal-
þjálfari félags-
ins, tekur við
stjórninni tíma-
bundið en Alan
Curbishley, sem nýverið var gert að taka pokann
sinn eftir fimmtán ár við stjórnvölinn hjá Charl-
ton Athletic, og Sven-Göran Eriksson, sem
þjálfaði enska landsliðið fram yfir Heims-
meistarakeppnina í knattspyrnu í sumar,
hafa verið nefndir sem líklegastir eftir-
menn Pardews. Stjórn West Ham hyggst
vera búin að ganga frá ráðningu nýs
knattspyrnustjóra fyrir áramótin.
Blaðið átti samtal við Eggert í
gærmorgun áður en fréttir bárust af
brottrekstrinum og sagði Eggert þá,
aðspurður, ekki tímabært að ræða stöðu
knattspyrnustjórans. Klukkutíma síðar birt-
ist fréttatilkynning í breskum fjölmiðlum um að
Alan Pardew hefði verið látinn fara. Blaðið hafði
þá aftur samband við Eggert sem varðist allra
frétta og kvaddi snarlega.
Spila langt undir getu
Eggert fór þó ekki leynt með dræmt álit sitt á
frammistöðu liðsins í undanförnum leikjum
í fyrra samtali, en liðið hefur tapað fimm af síð-
ustu sex leikjum sínum, síðast nú á laugardag
fyrir Bolton, 4-0.
„Ég vildi að ég hefði skýringar á því hvað er
að hrjá liðið, en ég hef þær ekki. Eftir gott gengi
liðsins í fyrra halda leikmenn kannski að þeir
séu betri en þeir eru og gleyma aðalatriðunum,
en liðið er augljóslega að spila langt undir getu,“
sagði Eggert.
„Það er brýnast fyrir félagið að finna hægri kant-
mann í janúar og svo hefur mér alls ekki fundist
vörnin vera nógu góð. Það þarf einnig augljóslega
að breikka leikmannahópinn almennt"
Argentínumennirnir
ekki sannað sig
Um framtíð Argentínu-
mannanna Carlosar Tevez
og Javiers Mascherano sem
gengu til liðs við félagið
í haust sagði Eggert West
Ham ekki áhugasamt um að
halda leikmönnum sem
ekki standa sig á
vellinum. „Tevez
og Mascherano
eiga enn eftir
að sanna sig hjá
West Ham og
það er alveg
augljóst að ef
frammistaða
þeirra batnar
ekki, mun
félagið ekki
sækjast eftir
að halda
þeim,“sagði
Eggert að
lokum.
djoaífœtti'
Krabbameinsfélagsins
% Krabbameinsfélagið
www.krabb.is
186 skattfrjálsir vinningar
að verðmæti 22.875.000 kr.
KIA MOTORS
The Power to Suprlse'*
Glæsilegir vinningar:
1 KIASorento
Verðmæti 3.475.000 kr.
1 Bifreið eða greiðsla upp í íbúð.
Verðmæti 1.000.000 kr.
184 úttektir hjá ferðaskrifstofu
eða verslun.
Hver að verðmæti 100.000 kr.
Upplýsingar um vinningsnúmer
í símum 5401918 (símsvari) og
5401900 og á heimasíðunni
www.krabbameinsfelagid.is/happ
Fjöldi útgefinna miða: 137.000
Vertu með og
styrktu gott málefni!
Dregið 24. desember 2006
ENNEMM I SÍA / NM24866