blaðið - 12.12.2006, Qupperneq 34
» Vegvísir að íbúðinni minni
blaðið
ÞRIÐJ' . . :,R 12. DESEMBER 2006
___________
Bunsen og Beaker
Tilraunir hins virðulega Bunsen Honeydew enda venjulega á því að hans holli aðstoðarmaður
Beaker er sprengdur upp í öreindir eða hann fær raflost, missir útlimi eða er étinn upp til agna
af skrímslum eða geimverum. Uppfinningar þeirra félaga eru til fyrirmyndar í heimi vísindanna
og innihalda meðal annars: ætar bréfaklemmur, górilluskynjara og bananayddara. Bunsen hefur
einnig þróað formúlu sem breytir gulli í kotasælu.
Destroy all humans 2 er eins
og nafnið gefur til kynna leikur
sem ekki ætlar að taka sjálfan sig
alvarlega. Markmið höfundanna
er ekki að reyna að ná nýjum
hæðum í grafík, og ekki að koma
með nýja, frumlega og byltingar-
kennda leikjaspilun. Það eina sem
honum er ætlað að gera er að vera
skemmtilegur og það tekst svo
sannarlega.
Leikurinn er framhald fyrri
leiksins sem gerðist árið 1959 þegar
Furon kynið gerði innrás á jörðina
til að stela DNA úr heilum mann-
vera. Ólíkt flestum leikjum var spil-
arinn ekki settur í hlutverk mann-
veru til að bjarga jörðinni heldur
geimveru að nafni Cryptoi37 og
átti leikmaðurinn að eyða mann-
kyninu í stað þess að bjarga því. f
framhaldinu sem gerist tíu árum
seinna er Crypto búinn að koma
sér vel fyrir sem forseti Bandaríkj-
anna, en þegar sovéska leyniþjón-
ustan KGB kemst að því ákveða
ráðamenn hennar að láta til sin
taka og eyða geimverunum ásamt
því að dreifa kommúnistaáróðri í
Bandaríkjunum.
Leikurinn spilast að mörgu leyti
mjög líkt Grand Theft Auto leikjun-
um en leikmaðurinn getur stjórnað
huga vegfarenda, tekið yfir líkama
þeirra eða lyft þeim upp með hug-
arorkunni og fleygt þeim í burtu.
Leikmaður hefur einnig í hendi sér
nóg af skemmtilegum vopnum.
Leikurinn er þó auðveldur og
frekar stuttur en benda má á að
grafíkin er alls ekki sú allra flott-
asta sem fyrirfinnst, hún er alls
ekkert slæm og skilar sínu, en nóg
er hægt að bæta.
En leikurinn stendur upp úr í
skemmtanagildi, samtölin eru
Destroy all humans
Playstation 2
fyndin þar sem gert er grín að
James Bond-myndum, hippum,
kommúnistum og ninjum ásamt
því að aðalsöguhetjan er skugga-
lega hrifin af kvenfólki jarðar-
innar. Fín kaup fyrir stuttan og
skemmtilegan leik.
Elías R. Ragnarsson
elli@bladid.net
Vegvísinn að íbúð
sinni i dag gefur heimsborg
arinn Frimann Gunnarsson, fyrr-
verandi þáttastjórnandi. Frímann
býr í gamla miðbænum þar sem
hannunirsér velíhringiðu
hámenningar.
og glútenlaus hirðingjabaka Frímanns -
(Frimsy's gluten-freépshepherds-pie}
Staðhættir
Á besta stað í gamla miðbænum, helstu
menningarstaðir, kaffihús og söfn í göngu-
færi. Ég er bíllaus þannig að það skiptir
mig miklu máli að búa í göngufjarlægð frá
einum rjúkandi café toscana, með örlitlu
dassi af vanillusírópi út í á tyllidögum, það
er bara ef til er Entner-Stuart-síróp, hin
tegundin er ekki mönnum bjóðandi.
Hvað þarf að hafa með í för
Ferðalangar eru beðnir um að hafa með
sér góða skapið, opinn huga fyrir ýmiss
konar fróðleik og endilega að þurrka vel
af sér á mottunni við útidyrnar, reyndar
reyni ég að fá ekki mikið af gestum ef úti
er slabb og bleyta af augljósum ástæðum.
Heilsa
Ágæt, takk fyrir, mestanpartinn.
En auðvitað koma stöku skúrir,
stundum dregur fyrir sólu, og
stundum myndi maður helst vilja
að maður hefði aldrei fæðst, en
eins og ég segi, bara ágæt takk.
Hvenær er hentugt að ferðast
Helst ekki fyrir hádegi, og alls ekki fyrir
klukkan 14 um helgar. Eftir kvöldmat svara
ég ekki dyrabjöllunni, og eins vil ég benda á
að ef Ijósin í eldhúsinu blikka þá má taka þvi
sem svo að ekki sé tekið á móti gestum.
Matur og menning
Gourmet-réttir sem litið hafa dagsins Ijós
á mínu heimili eru ófáir, enda húsráðandi
óhræddur við djarfar tilraunir, nægir þar
að nefna, hvítlauks-ísinn minn fræga og
glútenlausu hirðingjaböku Frímanns eða
t “Frimsy’s gluten-free shepherds-pie”.
Siðir og venjur
Þær eru óteljandi á mínu heimili og jafn
skemmtilegar og þær eru margar. Til dæmis
að nota alltaf glasamottur, sem varð alveg
sérstaklega skemmtilegt eftir að ég fékk
nýjar með myndum af Meryl Streep úr hinum
ýmsu kvikmyndum. Og já, engar áhyggjur
kæri tilvonandi gestur þótt þú þekkir ekki
húsreglurnar, ég er óþreytandi að kenna
gestum mínum siði mina og venjur.
Hættur
Þær eru sárafáar á minu heimili, ef farið
er eftir húsreglum ættu allir að sleppa út
ómeiddir.. .ha ha ha! En að öllu gamni
slepptu þá getur maður reyndar fengið ansi
sársaukafullt rafmagnsstuð af Ijósarofan-
um inni á baðherbergi, hef ekki komið mér I
að laga það, hef haft mikið að gera.
Vert að sjá
Jahhh það er nú svo margt,
en kannski nægir að nefna
eitt: forláta taflborð þar sem
skákmennirnir eru nokkrir
helstu ráðherrar breska
íhaldsflokksins eftir 1950
útskornir í tré, og auðvitað er
Dame Thatcher drottningin.
Næturlíf
Ekki mikið, aðallega skemmtileg og fróðleg samtöl við marg-
ar af merkustu persónur mannkynssögunnar i draumaland-
inu. Það er hreint ótrúlegt hvað sumir draumar geta verið
raunverulegir, sérstaklega þessi um daginn með Gandhi.
Crypto gegn KGB
Dýralff
Nei takk. Átti eitt sinn kettling, fannst það
sniðug hugmynd, fyrir félagsskapinn. En
enginn félagsskapur er svona mikils virði.
Mér finnst ég stundum ennþá sjá kattahár-
in í sófanum hjá mér, þrátt fyrir að hann
hafi ekki verið hér lengur en í 2-3 klukku-
stundir. Ég var að hugsa um að skýra hann
Winston, en svo tók það því ekki...
Gerðist i staðinn heimsforeldri. )
ERFÍNT OG
GLJÁANDI
FYRIR JÓLIN
HREIN FAGMENNSKA
FRAM í FINGURGÓMA
HJÁ BESTA
Unger
Visa versa gluggaþvottaáhald,
hvorttveggja í senn þvottaskinn og
gluggaskafa. Auðvelt að festa á
sköft til framlengingar.
Uquid
Unger Liquid
Professional
Gluggasápa sem gerir gluggana
skínandi hreina að utan.
Ultra glerhreinsir
Vinnur á fitublettum, kámi,
blýantsförum, tússi og penna-
strikum. Gufar hratt upp án þess
að skilja eftir skán eða rákir.
Norvex glerklútur
Microfiber fægiklútur fyrir gler, spegla og
skjái. Má setja í þvottavél.
Sterling silfur
fægihanski
Með þessum hanska er ekkert
mál að fægja silfrið.
Sterling
silfur hreinsiefni
Hreinsar silfrið svo það verður
skínandi fínt.
* Trfboð gildir til jóia eöa á meðan birgðir endast.
Suðurlandsbraut 26 Miðási 7
Reykjavík Egilsstöðum
Sími: 510 0000 Sími: 470 0000
Brekkustíg 39
Njarðvik
Sími: 420 0000
Grundargötu 61
Grundarfirði
Sími: 430 0000
www.besta.is