blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 blaðið ÞAU SÖGÐU TILRAUNASTARFSEMI Ég tel svona tilraunastarfsemi JJ ekki eiga heima í réttam'ki." GiSU BALOUR GARÐARSSON, HRL., SEGIR ISAMTALI VID MORGUHBLADIÐ AD MED ÞVl AÐ ÁKÆRA FORSTJÚRA OLlUFÉLAGANNA i OLÍUSAMRÁÐSMÁLINU SÉ VERIÐ AD LÁTA REYNA A ÞAÐ HVORT ÁKVÆDISAMKEPPNISLAGA NÁITIL BROTA EINSTAKUNGA. KOMIÐ NÓG f BILI Ég verð bara að fara að gera eitthvað annað, þetta er komið nóg í bili.“ KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR HEFUR LOKIÐ GLÆSILEGUM SUNDFERLI OG SEGIST I SAMTALIVIO FRÉTTABLAÐIÐ HÆTTA SÁTT EFTIR LANGAN FERIL SEM SUNDKONA. Flóðbylgjan skellur á landi Enginn bjóst við flóðbygju í kjölfar skjálfta á öðrum degi jóla árið 2004. Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða krossinum: Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Fórnarlömb flóðbylgjunnar á Indlandshafi hlutu að meðaltali um 85 þúsund krónur á hvern einstakling í formi aðstoðar en fórnarlömb hungursneyðar í Malaví aðeins um 1800 krónur. Fréttir af hamförunum í Suður- og Suðaustur-Asíu bárust um allan heim en hljótt hefur verið um þurrkana sem ollu neyðinni í Malaví. Þetta kemur fram í ár- legri skýrslu Alþjóða Rauða kross- ins um hamfarir í heiminum þar sem sjónum er beint að neyð sem nýtur lítillar eða engrar athygli ráðamanna, fjölmiðla eða jafnvel hjálparsamtaka. „Það má nefna sem dæmi að á sama tíma og stefnt hefur í hung- ursneyð út af þurrkum í Malaví um langt skeið lá umsókn um lán frá yfirvöldum hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum. Það hentaði þess vegna ekki yfirvöldum að lýsa yfir hungursneyð," segir Sólveig Ólafsdóttir, sviðsstjóri útbreiðslu- sviðs Rauða kross fslands. Hún bætir því við að í Norður-Kóreu og Simbabve sé til dæmis bannað að fjalla um ástandið. „Astæðan fyrir meiri umfjöllun um náttúruhamfarir en þurrka stafar einnig af því hversu hratt hamfarirnar gerast. Myndirnar af vettvangi eru oft hrikalegar og umfjöllunin þess vegna söluvæn- leg ef svo má segja. Það geta hins vegar liðið mánuðir eða jafnvel ár áður en fólk deyr hungurdauða vegna þurrka,” bendir Sólveig á. Matvælaaðstoð stöðvi hungur- dauða aðeins tímabundið. Þess vegna hvetji Alþjóða Rauði kross- inn til þess að veitt sé langtímaað- stoð til 10 til 15 ára svo að komast megi fyrir rót vandans. „Það þarf að veita aðstoð sem gerir bændur sjálfbjarga,“ leggur Sólveig áher- slu á. Auk ástandsins í Malaví bendir Rauði kross íslands á að konur verði oft útundan þegar aðstæður á hamfarasvæðum séu metnar. Sólveig varð sérstaklega vör við þetta í Pakistan í fyrra. „Karlar voru í forsvari þegar send voru út teymi til að meta aðstoð í kjöl- far jarðskjálftans þar. Þeir höfðu enga þekkingu eða skilning á þörfum kvenna og barna. Við gripum til þess ráðs að senda pakistanska kvenkynssjálfboða- liða sem fóru I hús og ræddu við konur um hreinlætisaðstæður og daglega heilsu. Þegar farið var af stað með heilbrigðisverkefni kom í ljós að karlar leituðu sér frekar aðstoðar. Konur fóru ekki einar úr húsi og sóttu ekki aðstoð til karllækna. Það kom 1 ljós að þær höfðu ekki einu sinni leitað til læknis vegna áverka eða ígerðar í sárum. Það kom einnig í ljós að þær höfðu heldur ekki fengið þessa aðstoð fyrir jarðskjálftann. Nú búa konurnar hins vegar við betri heilbrigðisþjónustu en nok- kru sinni áður." _____SMÁAUGLÝSING /»5103737 GEFA/MGGJA SMAAUQLYSINQAR@BLAOIO.NET P L. LISTEN TO YOURBODY púlsmJéLáií Söluaöilar: Útilíf Smáralind, Kringlunni og Glæsibæ // Halldór Ólafsson Akureyri Afreksvörur // Fitness Sport // Hlaup.is // Hreysti // Intersport // Markiö ;> /?> P.ÚLAFSSCDNe rrönuhraimi • 220H.ilnaifjörðui • Sinii:565 I533 • l ,i\:565 3258 • Netfang:polafssoiu"polafsson.is Forval Vinstri grænna fór fram i byrjun mán- aðarins Fjórar konur og tveir karlmenn lentu í efstu sex sætunum. Forval Vinstri grænna: Uppstillingu ólokið „Kjörstjórn er að vinna í því að setja saman listana. Þetta er flókið dæmi og við tökum þessu með ró,“ segir Einar Ólafsson, fulltrúi í kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Forval flokksins fyrir Reykjavík- urkjördæmi norður og suður og Suð- vesturkjördæmi fór fram í byrjun desembermánaðar en ekki er búið að stilla framboðslistunum upp. Fjórar konur og tveir karlmenn lentu í efstu sex sætunum og sam- kvæmt reglum forvalsins um jafna kynjaskiptingu hefði Álfheiður Ingadóttir, sem lenti í fimmta sæti, átt að víkja fyrir Gesti Svavarssyni sem lenti í því sjöunda. Gestur óskaði hins vegar eftir því að vera ekki færður upp. Að sögn Einars hefur kjörstjórn flokksins vald til að breyta sæta- röðun en ákveðið var að gera það ein- ungis í samráði við frambjóðendur. „Við viljum vinna í góðu stamstarfi við aðra flokksmenn. Þessa regla um jafna kynjaskiptingu var sett í anda kvenfrelsis. Það að færa karl upp til að taka sæti konu gegn hans vilja er varla í anda þess frelsis. Því er eðlilegt að sætaskipun standi.“ Þá segir Einar að kjörstjórninni hafi ekki borist óskir frá fram- bjóðendum um sæti í ákveðnu kjördæmi. „Auðvitað er það svo að menn vilja eitt frekar en annað en okkur hafa ekki borist neinar eindregnar óskir. Það er einhugur hjá öllum að vinna saman og þetta verður unnið í sátt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.