blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 34
blaðið
ívar og Lay Low á Akureyri
Lay Low og Ivar Bjarklind hafa bæði nýlega sent frá sér plötu. Laug-
ardagskvöldið 16. desember halda þau tónleika á Græna hattinum
á Akureyri ásamt hljómsveit. Húsið verður opnað klukkan 21.
Borgarbókasafninu
Svipur skáldanna
Spengilegt skáld Óttar
Martin Norðfjörð er einn
þeirra sem berja má augum
á sýningunni
'
•i ;
Dýrðin á Barnum
Útgáfutónleikar Dýrðarinnar
verða haldnir í kvöld, föstudaginn
15. desember, á Barnum, Lauga-
vegi 22. Einnig mun hljómsveitin
The Way Down koma fram en
sveitin sú skartar meðal annars
hinum knáa Ara Eldon úr Bless
og Magga trommara úr Bleiku
Böstunum. Gestir geta mögulega
átt von á kökum og kruðeríi og
upplífgandi leynigesti. Tónleik-
arnir hefjast um klukkan 21 og
eru allir velkomnir.
Upplestur á
Gljúfrasteini
Sunnudaginn 17. desember
klukkan 16.00 er komið að
síðasta upplestrinum í stofunni
á Gljúfrasteini að sinni. Sem
fyrr er aðgangur ókeypis og allir
velkomnir. Bragi Ólafsson les
úr skáldsögunni Sendiherrann,
Kristín Ómarsdóttir úr Ijóðabók-
inni Jólaljóð, Ingunn Snædal úr
Ijóðabókinni Guðlausir menn
- hugleiðing um jökulvatn og ást,
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
les úr ævisögu Ólafíu Jóhanns-
dóttur og Þórunn Valdimarsdóttir
les úr ævisögu Matthíasar Joc-
humssonar, Upp á sigurhæðir.
jörn M. Sigurjónsson
sviptir i dag hulunni
af ljósmyndum sem
hann tók af ungum,
íslenskum listamönn-
um. Listamennirnir hafa allir látið
að sér kveða undir merkjum hins
framsækna félags Nýhil og vakið at-
hygli fyrir frumlegheit og nýja sýn í
sinni listsköpun. „í byrjun október
var ég staddur í Þjóðleikhúskjallar-
anum þar sem ég hlýddi á ljóðalest-
ur nokkurra höfunda úr Nýhil. Ég
þekkti þá ekki neitt til skáldanna
en hafði eitthvað heyrt af þeirra
starfi í gegnum fjölmiðla. Þar sem
ég sat í Þjóðleikhúskjallaranum og
hlustaði á upplesturinn rann upp
fyrir mér að þarna var heil kynslóð
skálda að koma fram á sínum eigin
forsendum og brjóta upp ramma
sem eru í kringum þau. Eg heillað-
ist af því og fannst bráðnauðsyn-
legt að skrásetja þennan hóp með
einhverjum hætti,“ útskýrir Björn
þegar hann er spurður að því hvern-
ig honum hafi dottið í hug að festa
skáldin á filmu.
Listamenn frjálsari en annað fólk
Björn segir töluverðan mun á
því að mynda listamenn og annað
fólk. „Þegar maður myndar fólk í
formlegu umhverfi þá verður það
alltaf svolítið stressað, reynir að
setja sig í ákveðnar stellingar sem
oftast koma ekki vel út á ljósmynd-
inni og óöryggið skín í gegn. Þess-
ir listamenn virðast upplifa nánd
ljósmyndarans á annan hátt og þeir
eru yfirleitt tilbúnir til að ganga
eins langt og þarf. Ef ég stakk upp á
því við þau að fara úr að ofan þá var
það ekkert mál og peysan var látin
fjúka með það sama.“
Augnablikið fryst
Myndirnar sem eru tólf talsins
af jafnmörgum einstaklingum, eru
allar teknar á heimilum listamann-
anna þar sem þeir skapa sín verk
og hugmyndirnar fæðast gjarnan.
Björn segir ákveðna ástæðu fyrir
því að hann hafi kosið að fara með
myndavélina inn á heimili þeirra.
„Ég kýs að mynda þau heima því
ég vildi vinna með umhverfi sem ég
þekki ekki. f hverri einustu mynd
er mikið af smáatriðum, urmull af
smáhlutum og það sem vakir fyrir
mér er að láta þessa smáhluti byggja
myndina. Það er mikil áskorun fyr-
ir mig að fara inn í þeirra rými og
reyna að smíða úr því mynd sem hef-
ur sína eigin frásögn. Markmiðið var
því að finna merkingu í umhverfinu
sem styður þessa frásögn og frysta
hana í tíma. I þessu er skrásetningin
fólgin.“ Sýningin, sem ber yfirskrift-
ina „Skrásetning kynslóðar“, verður
opnuð í Borgarbókasafni Grófarhúsi
í dag klukkan 17. Á opnun sýningar-
innar verður dagatal fyrir árið 2007
með úrvali sömu ljósmynda kynnt.
Þá munu skáldin lesa upp úr nýleg-
um verkum sínum. Sýningin er opin
á afgreiðslutíma Borgarbókasafns-
ins fram í janúar.
hilma@bladid.net
þessir ófrýnilegu grallarar
eru komnlr aftur. Hér f uppsetningu
Leikfélags Akureyrar með dyggri
aðstoð 200.000 Naglblta
2 glænýir geísladiskar fyrir jólin
m w
m§
200.000 naqlbítar
meö
m£
mnakornum
sigildar Jólapcrlur
1. MeMlsnjó
2. Lltill stúfur
3. Kœri stútuf
4. Yfir fannhvfta jörö
5. Jcrfamyndir
6. Bjóilurnar hhngja
7. Hátiö (txe
8. Hvft jói
9. Hín fyrstu Jói
10. Eigum saman gloöilega hátiö
11. Gloöl og friöar Jól
otfouuou u ée u u u 0 o n u »1 o e j 4 j j j
<orn koma hér saman ásamt
gestum á afar vönduðum og
um jóladiskl
Vlö óskum landsmönnum gieöl og frlöar jóta
Lögðu sitt af mörkum til
miðstöðvarinnar Dagný
Heiðdai, .Jiildigunnur
Sverrisdóttir og Valgerður
Hauksdóttir
Menningararfurinn
gerður aðgengilegur
Mikil tíðindi verða í Listasafni
íslands í dag en þá verður hulunni
svipt af nýrri fræðslumiðstöð sem
er kærkomin nýjung fyrir alla þá
sem leggja ást á íslenska mynd-
list. Miðstöðin samanstendur af
veglegum bóka- og tímaritakosti
auk sýndarsafns þar sem gestir
hafa aðgang að rafrænum gagna-
grunni um íslenska listarverka-
eign safnsins. „í sýndarsafninu er
að finna um 8500 íslensk verk eftir
300 listamenn. Gestir geta skoðað
ljósmyndir af verkunum ásamt
ítarlegum heimildum um þau og
höfunda þeirra. Heildareign safns-
ins spannar um 10000 verk en í
þessum fyrsta áfanga ákváðum
við að einbeita okkur að íslensku
verkunum," útskýrir Dagný Heið-
dal, deildarstjóri listaverkadeildar.
„Einnig getur fólk leitað að ákveðn-
um atriðisorðum, til dæmis nöfn-
um listamanna eða ákveðnum
greinum myndlistar og fengið þá
upp öll verk eftir viðkomandi lista-
mann eða allt sem fellur undir
þessa ákveðnu grein. Þannig getur
fólk auðveldlega nálgast þær upp-
lýsingar sem það leitar eftir.“
Með opnun Fræðslumiðstöðvar-
innar eflir safnið menntunarhlut-
verk sitt til muna og auðveldar
gestum aðgengi að hinum listræna
menningararfi. Arkitekt að innrétt-
ingum og skipulagi er Hildigunnur
Sverrisdóttir hjá Arkitektur.is en
umsjón og hönnun Sýndarsafnsins
annaðist Valgerður Hauksdóttir,
myndlistarmaður hjá VIA ehf. Mið-
stöðin er til húsa í kjallara safnsins
og er öllum velkomið að koma og
kynna sér þessa nýbreytni. Safnið
er opið þriðjudaga - sunnudaga
klukkan 11 -17.