blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006
blaðið
í jólaísinn
Það er flott að eiga ísskeið
til að skúbba jólaísnum í skál-
arnar um hátíðarnar, og þannig
berafram hefðbundinn og
góðan desert á flottan hátt.
matur
ÆL
• •
Ostakarl
500 g rjómaostur
1 '/2 bolli niðurrifinn góður ostur
1 hvítlauksrif
Salt og svartur pipar
Sellerí, rúgbrauðsneið, negullnagli, gulrót og svartar ólífur
Aðferð
Blandið rjómaosti, '/2 bolla niðurrifnum osti, hvitlauk og salti og pipar
saman og setjið í frysti í 30 mínútur. Búið til kúlur úr ostinum og veltið
upp úr rifnum osti og raðið upp í snjókarl. Búið til trefil úr selleríi og
festið með negulnagla. Búið til hatt úr rúgbrauðinu og festið hann
saman með rjómaosti og festið með tannstöngli. Búið til hnappa úr
ólífum og gerið lítið nef úr gulrótarbita. Berið snjókarlinn fram með kexi.
matur@bladicl.net
f-------------------------------\
Kókossúpa með
engiferkeim
Guðbjbrg segir að þessi uppskrift sé
byggð á súpu sem hún fékk einu sinni
og gat ekki gleymt.
„Ég gerði mér óljóst grein fyrir hvað var
í henni og einn daginn ákvað ég að
láta vaða og treysta því að bragðlauk-
arnir myndu leiða mig áfram. Úrvarð
ein af mínum uppáhaldssúpum sem
ég hef ég bragðað í ótal útgáfum
síðan hjá vinum og vandamönnum.
Hver og einn aðlagar hana að sínum
bragðlaukum og þvi hráefni sem til er
hverju sinni... og alltaf finnst mér hún
jafn bragðgóð!”
Súpan er: Súperholl - góð til að nýta
afganga - góð í matarboö - mitt
uppáhald
Fyrir um það bil fjóra
• 4 bollar blandað grænmeti
• vænn bútur fersk engiferrót
• 4 hvítlauksrif
• 1 iaukur, smátt skorinn
• 1 dós kókosmjólk
• 1 dós tómatpúrra
• 4 bollar grænmetissoð
Laukurinn er steiktur í olíu í potti þar
til hann er orðinn mjúkur. Þá er hvít-
lauk og engifer bætt út í, síðan smátt
skornu grænmeti og er það snögg-
steikt við háan hita í 3-4 mín. Soðið,
kókosmjólkin og tómatpúrran er sett
út i pottinn. Bragðbætt með salti
og pipar og látið malla í 20 mínútur.
Vatni eða soði er bætt út í ef þörf er
á meiri vökva. Gott er að strá fersku
kóríander yfir ef þú átt það til.
>.______________________________/
Guðbjörg Gissurardóttir gefur út skapandi matreiðslubók
Hristist fyrir notkun
Hristist fyrir notkun er
matreiðslubók sem Guð-
bj örg Gissurardóttir, graf-
ískur hönnuður, á heiður-
inn af og bókin kom fyrst út árið
2002. Bókin hefur verið uppseld
um nokkurn tíma og því ákvað
Guðbjörg að endurútgefa bókina
nú fyrir jólin og breyta henni lítið
eitt og bæta. Bókin ber undirtitil-
inn skapandi matreiðsla með því
sem til er í eldhúsinu og eins og
nafnið gefur til kynna er bókin til
þess gerð að örva sköpunargleði
fólks í eldhúsinu og elda góðan
mat úr því sem til er í ísskápnum
hverju sinni.
„Það er alltaf hægt að elda eitthvað
þó að það sé lítið til í skápunum og
bókin er þannig uppbyggð að fyrir aft-
an hvert einasta hráefni segir hvernig
hægt sé að bæta, breyta eða sleppa því
og þannig laga uppskriftina að ástand-
inu í ísskápnum hverju sinni. Þannig
getur fólk togað og teygt hverja upp-
skrift í allar mögulegar áttir,” segir
Guðbjörg.
Ástæðan fyrir því að Guðbjörg gerði
bókina var sú að hún vildi þróa sjálfa
sig á sviði matargerðarlistar og líka
sú að henni fannst vanta bók þar sem Guðbjörg Gissurardóttir er grafískur hönnuður og gefur út matreiðslubók fyrir
hráefnalisti hverrar uppskriftar væri sem örvar sköpunargáfuna 1 eidhúsinu.
stuttur og þær innihéldu ekki 13 fram-
andi kryddtegundir sem lenda síðan
aftast í skápnum.
Uppskriftirnar í bókinni eru bæði
hversdagslegar og fyrir sérstök tilefni
en Guðbjörg segir að þær eigi það all-
ar sameiginlegt að vera auðveldar að
framkvæma.
„Ég vildi líka auðvelda fólki að finna
nýjar leiðir í uppskriftaleit og það er
hægt að leita eftir uppskriftum í bók-
inni á ýmsan hátt, hvort sem það er
eftir ákveðnu hráefni, myndrænt og
það er líka hægt að leita eftir því hvort
uppskriftin sé ódýr, fljótleg eða barn-
væn,“ segir Guðbjörg og bætir við að
aftast sé listi yfir neyðarbirgðir sem
nauðsynlegt sé að eiga. „Það er aldrei
afsökun fyrir því að elda ekki og það
er hægt að elda þó að bara sé til einn
hrísgrjónapoki.”
Guðbjörg segir að það séu engar
sérstakar jólauppskriftir og segir að
þó að hún sé að hvetja fólk til að vera
skapandi í eldhúsinu þá finnist henni
að jólamaturinn eigi að vera frekar
hefðbundin og ræðst ekki í neina til-
raunastarfsemi þegar kemur að jóla-
matnum.
„Á jólunum viljum við halda í hefð-
irnar og ég vil fá gamla góða ísinn sem
mamma gerði á jólunum.”
■ ■ '
. ... ' ;.'5 «
Jólin koma. Ættingjar og vinir hittast og gleðjast saman
yfir margskonar jólagóðgæti. Hellmann's® majónes er
eitt af því sem fullkomnar jólamatreiðsluna og gerir
árangurinn ómótstæðilegan. Flauelsmjúk áferð, besta
hráefni og ósvikin bragðgæði. Gleðileg jól.
Efþú átt afgang afkalkúna um
jólin geturðu gert þetta góða salat.
Kalkúna-waldorf-salat
'/2 bolli Hellmanns's® Mayonnaise
1 msk sítrónusafi
'/2 tsk salt
2 bollar af elduðum kalkúna eða
Jólaís með
Jólaísinn er ómissandi í hugum
margra og gamaldags jólaís eins og
mamma eða amma gerði verður fyr-
ir valinu þegar kemur að eftirréttin-
um á aðfangadagskvöld.
Hér er uppskrift að einum slikum
og þessi uppskrift inniheldur líka
Toblerone sem gerir hann einstak-
lega góðan og ljúffengan.
• 6 eggjarauður
• 1 dl sykur
• 2 pelar rjómi
• 1-2 tsk vanilla
• 100-150 grToblerone
Aðferð
Eggjarauður og sykur er þeytt
saman.
Rjóminn er þeyttur og síðan er öllu
blandað saman.
Sett (fallegt form og í frystinn.
Jólasúkkulaðimús
Saxið súkkulaðið smátt. Hrærið
saman eggjarauður, sykur og salt
yfir vægum hita þar til sykurinn
hefur leyst upp og blandan er
orðin volg, þannig að hægt sé að
snerta hana.
Takið blönduna af hitanum og
blandið súkkulaðinu saman við
og kakóduftinu þar til blandan
verður mjúk og þykk. Kælið.
Þeytið rjómann í annarri skál.
Blandið helmingnum af rjómanum
saman við súkkulaðiblönduna
þegar hún er orðin köld. Blandið
hinum helmingnum af rjómanum
varlega saman við súkkulaði-
blönduna. Setjið í kæli og kælið í
2 klukkutíma að minnsta kosti.
Takið músina úr ísskápnum 15
mínútum áður en hún er borin
fram.
• 4 eggjarauður
• 14 bolli sykur
• 'A tsk. salt
• % bolli rjómi
• 2 msk. ósætt kakóduft
• 60 g gott dökkt súkkulaði
Toblerone