blaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 63
blaðiö
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 63
Simpsons
í sérflokki
The Simpsons sópuðu að sér tilfnefningum þeg-
ar Handritshöfundabandalag Bandaríkjanna
tilnefndi bestu sjónvarpsþættina. Teiknimynd-
aserían langlífa fékk fjórar tilnefningar, fleiri en
nokkur önnur sjónvarpsþáttaröð. Næst kom The
Office sem fékk þrjár tilnefningar.
Þrír þættir fengu tvær tilnefningar. Það eru Lost,
Studio 6o on the Sunset Strip og 30 Rock sem er eina
nýja þáttaröðin sem fékk tilnefningu þetta árið.
The Simpsons gefa reyndar dálítið eftir frá í
fyrra. Þá fengu aðstandendur þáttanna allar sex til-
nefningarnar sem voru veittar í flokki teiknimynda.
Nú fengu Who’s your Daddy og King of the Hill hvor sína
tilnefninguna.
Ræðurðu við
fimmta bekk?
Mark Burnett, sem
hefur gert það gott með
Survivor og fleiri þáttum, er kom-
inn með nýjan spurningaleik í
gang sem hann treystir á að eigi
eftir að slá í gegn. Nú býðst fólki
að reyna sig á spurningum úr
námsefni úr fyrstu fimm bekkj-
um grunnskólans og getur fengið
aðstoð fimmtubekkinga ef þeir
lenda í vandræðum.
Nýju þættirnir heita „Ertu gáf-
aðri en fimmta bekkjar nemandi?"
og hefur Fox pantað átta þætti
til að meta hvort það er framtíð
í þáttunum. Hver þáttur verður
byggður þannig upp að fullorðinn
keppandi tekur sér sæti í kennslu-
stofu með fimmta bekkjar nemum.
Hann fær 100 þúsund dollara til að
byrja með og þarf síðan að leggja
undir við hverja spurningu. Ef vel
gengur getur keppandinn unnið
allt að milljón dollara, andvirði
um 70 milljóna króna. Viti kepp-
andinn ekki svarið getur hann leit-
að til nemendanna.
Kl. 20.10 RÚV
Kasper fer á
kreik
Kasper
fer á kreik
(Casper’s
Haunted
Christmas) er kanad-
ísk teiknimynd frá 2000 eftir
Owen Hurley. Kibosh, yfirboðari
allra drauga, mælir svo fyrir að
góði draugurinn Kasper verði
að hrella að minnsta kosti eina
manneskju fyrir jól. Kasper
fer til bæjarins Kriss í Mass-
achusetts þar sem hann hittir
Jollimore-fjölskylduna og hefst
handa við ætlunarverk sitt. En
af því að Kasper er hinn vænsti
draugur á hann erfitt með að
hrekkja nokkurn mann. Drauga-
þrenningin fær nóg af góðsemi
hans og ræður með leynd tví-
fara hans og frænda til að vinna
verk hans en útkoman úr því
verður sprenghlægileg.
Kl. 20.30 Stöð 2
X-Factor
Fimmti þáttur af tuttugu í söng-
hæfileikakeppni þar sem kepp-
endur eru á öllum aldri, frá 16
ára og upp úr. Einstaklingar og
hópar taka þátt f keppninni og
reyna að sannfæra dómarana
Einar Bárðarson, Ellý og Pál
Óskar um að þeir eigi erindi í
sjálfa úrslitakeppnina sem fram
fer í Smáralindinni. Tólf atriði
komast í úrslit og munu dómar-
arnir skipta þátttakendum jafnt
á milli sín og aðstoða þá við að
komast alla leið. Hver verður
næsta poppstjarna Islands?
Hver er með x-faktorinn? Kynnir
er Halla Vilhjámsdóttir.
Kl. 22.10 Stöð 2
Dagbók
brjálaðrar konu
Rómantísk
gamanmynd
um konu sem
lendir í því
eftir langt og
hamingjusamt
samband að
maðurinn fer
frá henni og
hún stendur
eftir ráðþrota og óhamingju-
söm. Hún gengur hálfpartinn
af göflunum, hefur nýtt líf og
fær ömmu sína til að hjálpa sér
til að ná sér niðri á eiginmann-
inum. En þegar hann lendir í
lífshættu og þarfnast hjálpar
hennar verður hún að gera upp
við sig hvort hún geti fyrirgefið
honum. Aðalhlutverk: Shemar
Moore, Steve Harris, Kimberly
Elisa. Leikstjóri: Darren Grant.
2005. Leyfð öllum aldurshópum.
>-