blaðið - 19.12.2006, Side 12

blaðið - 19.12.2006, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 blaðið TOMADO Glæsileg og öflug safapressa. Hnífar og sía úr ryðfríu stáli. Fullt verð: 9.900 kr. roau t o Safnkortshafar borga aðeins: 3.900 kr. auk 1000 punkta •••• • • •••• • •••• • •••• Safnkort Punktaðu það hjá þér! Bardagar þrátt fyrir vopnahlé Sextán ára palestínskur drengur særðist alvarlega í bardaga milli liðsmanna Fatah og Hamas í gærmorgun. Átök brutust út örfáum klukkustundum eftir að tilkynnt var að samkomulag um vopnahlé hefði náðst milli fylkinganna. Mikil spenna hefur verið milli fylkinganna á heimastjórnarsvæðunum síðustu daga og um helgina tilkynnti Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, að hann hygðist boða til þing- og forsetakosninga í Palestínu. Þýskur nauðgari dæmdur í fimmtán ára fangelsi: Hélt stúlku í fimm vikur og nauðgaði Mario Mederake, 36 ára þýskur verkamaður, var dæmdur í fimm- tán ára fangelsi í gær fyrir að hafa haldið þrettán ára stúlku fang- inni í fimm vikur og nauðgað henni rúmlega þrjátíu sinnum. Maðurinn rændi stúlkunni um miðjan janúarmánuð síðast- liðinn þegar hún var á leið í skól- ann í Dresden. Lögregla réðst inn á heimili mannsins fimm vikum síðar eftir að stúlkan hafði sleppt miða á götuna með upplýsingum þegar Mederake fór út að ganga með henni. Mede- rake hélt stúlkunni fanginni í tré- kassa í íbúð sinni og myndaði oft nauðganirnar. Maðurinn vakti mikla athygli í síðasta mánuði þegar hann losnaði frá fangavörðum og klifraði upp á þak fangelsisins og kom sér fyrir á brúninni. Sálfræðingar ræddu við hann í marga klukkutíma áður en tókst að fá hann niður af þakinu. Þetta er ekki fyrsti fangelsisdóm- urinn sem Mederake hlýtur, en hann var dæmdur í rúmlega þrig- gja ára fangelsi árið 1999 fyrir að misnota barn kynferðislega. Mario Mederake Talið erað hann hafi nauðgaö fórnarlambinu þrjátíu sinnum. Við hjálpumst að á jólunum f '•* Árum saman hefur Eimskip Flytjandi aðstoðað jólasveininn við að koma jólapökkunum til fólksins (landinu. Út af þeirri venju bregðum við ekki þetta árið - og ef þú getur borið sendinguna inn til okkar, borgarðu aðeins 500 kall! Upplýsingar um næsta afgreiðslustað er að finna á www.eimskip.is. Skilafrestur er til kl. 12 á hádegi 22. desember. 4Hámarbstærð pakka er 1x0,7x0,9 m. Á ekki við kæli og frystivöru. Verö fyrir heimakstur med jólapakka et 500 kr. Eeimskip

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.