blaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006
blaöið
Tölvukerfi Þjóðskrár
er tuttugu ára gamalt
Úrbótum á kerfinu hefur
verið lofað frá árinu
Tölvukerfi Þjóðskrár uppfært á næsta ári:
s
Ovíst hversu
mikið breytist
„Féð er ekki ótakmarkað þannig
að það þarf að átta sig á því hvað
er hægt að gera fyrir það fé sem
fékkst,“ segir Skúli Guðmundsson,
skrifstofustjóri Þjóðskrár, um þær
breytingar sem verða gerðar á
tölvukerfi Þjóðskrár.
Gert er ráð fyrir að tölvukerfið
verði uppfært á næsta ári. í ný-
samþykktum fjárlögum fyrir árið
2007 eru 25 milljónir ætlaðar til
uppfærslu á tölvukerfinu en sú
uppfærsla myndi þýða að um 22
þúsund Islendingar þyrftu ekki
lengur að stytta nöfn sín í þjóð-
skránni. Tveir vinnuhópar hafa
verið settir á fót, annars vegar
stýrihópur og hins vegar tækni-
hópur sem mun meta umfang
þeirrar tæknilegu vinnu sem þarf
að leggja í verkefnið.
Skúli segir að fyrsta verkefni
hópanna verði að meta hvers
konar breytingar verði gerðar á
kerfinu. Hann segir að hóparnir
séu búnir að hittast einu sinni en
næsti fundur er ekki áformaður
fyrr en eftir áramót. „Menn eru
búnir að átta sig á því hvaða hópar
eiga að koma nærri þessu, þannig
að eftir áramót þurfa menn að setj-
ast niður og ígrunda þetta nánar.“
• •
Örvaðu barnið þitt
til frekari þroskaé
litrík, brakandi, hringlandi,
^ tístandi leikföng með
margskonar áferð.
Námii hefst vii fædingu.
Barnið og Lamaze leik/öng.
www.ymus.is
Flugdólgur skilinn eftir í Halifax:
Farið heim kostar
200 þúsund krónur
■ Var með dólgslæti við flugfreyjur og farþega
■ Barði eiginkonuna þegar hún reyndi að róa hann
inn hafi tekið þá ákvörðun að skilja
manninn eftir í Halifax. „Flugstjór-
inn hefur fullan rétt til þess að meta
aðstæður og hann gerði það. Það er
ekki hægt að bjóða samfylgdarfólki
upp á svona uppákomur.“ Hann
segir það alveg ljóst að það hafi ekki
verið hægt að fljúga áfram með
hjónin og því hafi þau verið sett úr
í Halifax. Ef þau hefðu fengið að
vera áfram í vélinni hefði kannski
þurft að lenda aftur, til dæmis á Ný-
fundnalandi, gagngert til þess að
láta þau frá borði. Það hefði reynst
kostnaðarsamt. Hann segir enn-
fremur að einungis manninum hafi
verið vísað úr flugvélinni en kon-
unni hafi boðist að ferðast áfram.
Hún mun hafa afþakkað það og fór
einnig úr vélinni.
Tómas segir að starfsfólk Heims-
ferða hafi hjálpað hjónunum að
finna far heim til Islands en sú
ferð var í dýrari kantinum. „Þetta
er dálítil upphæð, hann fer frá Hali-
fax til Boston og þaðan til íslands.
Núna í jólatraffíkinni eru miðar
ekki ódýrir. Ég gæti trúað því að
þetta hafi kostað meira en 200.000.“
Hann reiknar með að flugdólgurinn
þurfi ekki að hafa áhyggjur af ein-
hverjum eftirmálum vegna þessarar
flugferðar. „Það er erfitt að dæma
menn við fyrsta brot þannig að
menn hafa ekki viljað ganga of langt
í svona málum. Ég á ekki von á að
það verði nein eftirmál af þessu.“
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@bladid.net
Karlmaður á miðjum aldri, sem
hafði verið með dólgslæti í flugvél á
leið frá Kúbu til íslands, var skilinn
eftir í Halifax ásamt eiginkonu sinni
á aðfaranótt sunnudags. Hjónin ferð-
uðust í leiguflugvél á vegum Heims-
ferða. Þegar flugvélin nálgaðist Hali-
fax, þar sem skipta átti um áhöfn
og taka eldsneyti, fór maðurinn að
vera með dólgslæti við flugfreyjur
sem og aðra farþega vélarinnar. Þá
reyndi eiginkona hans að róa hann
en fékk barsmíðar að launum frá eig-
inmanni sínum. Hjónin munu bæði
hafa verið töluvert ölvuð þegar þau
stigu upp í vélina á Kúbu.
Tómas Björnsson, framkvæmda-
stjóri Heimsferða, segir að flugstjór-
Mundu eftir að linna besta verðið óðuren
Car-rental / Bílaleiga
JjJkSSu
Smurþjónusta
Alþríf JÉm
• Rafgeymar
mJ
Dekkjaþjonusta
Sími: 557-9710
Sími: 555 3330
m
Q»
www.bilko.is
www.hasso.is
-j'. -V’- : Mí-
Vetrardekk - Heilsársdekk - nagladekk - loftbóludekk
*U - Betri verð! . ... ____
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110