blaðið - 19.12.2006, Page 21
blaöift
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 21
Þegar andskotinn hljóp í svínin
Þingflokkur Framsóknar minnir
nú sterklega á frásöguna úr Biblí-
unni þegar andskotinn hljóp í svínin.
í kjölfarið hlupu svínin fyrir björg og
spurðist aldrei til þeirra meir.
í biblíulegum skilningi er Fram-
sóknarflokkurinn orðinn að svína-
hjörð. Hann má varla sjá pólitískt
þverhnípi án þess að gera einbeitta
tilraun til að fleygja sér fyrir það. Um
þetta eru allmörg nýleg dæmi.
Undir þinglok varð gervöll grísa-
hjörð þingflokksins svo undirlögð
af demóni pólitískrar sjálfseyðingar
að hún nánast krafðist þess að fá að
fórna sér opinberlega fyrir heimsku-
legt frumvarp menntamálaráðherra
um einkavæðingu RÚV. Fyrir Fram-
sóknarflokkinn jafngildir það því að
fleygja sér fyrir pólitísk björg.
Enginn gekk þar jafn harkalega
fram og Hjálmar Árnason. Hann er
formaður þingflokks Framsóknar.
Hjó þar sá, er hlífa skyldi - að minnsta
kosti Framsóknarflokknum.
landsmanna. Hann fær ekki einu
sinni að sitja á friðarstóli síðasta spöl
sinn á þingi.
Hjálmar er að leika hættulegan
leik. Tapi hann, sem ég geri fastlega
ráð fyrir, þá munu andstæðingar úr
öðrum flokkum geta bent á þá aug-
ljósu staðreynd, að hann hafi sjálfur
með framboði sínu lýst þeirri skoðun,
að Framsókn eigi ekki möguleika á
nema einum manni í kjördæminu.
Því sé engin ástæða til að kjósa lista
Framsóknar - Guðni sé vitaskuld ör-
uggur sem efsti maður.
Bröltið í Hjálmari mun því leiða til
þess að besta von Suðurnesjamanna
til að eignast öflugan þingmann
verður að slá skjaldborg um Guðnýju
Hrund Karlsdóttur, sem er í fjórða
sæti á lista Samfylkingarinnar. Það
er þingsæti í dag, og allir Suðurnesja-
menn vita hverskonar framtíðarefni
hún er - og þurfa ekki nema skoða í
henni genin til að skilja það.
Óafvitandi er því Hjálmar búinn að
leggja öðrum flokkum til lurka til að
lemja Framsókn með í kosningunum
í vor - og leggja Samfylkingunni
upp í hendurnar sterkt sóknarfæri
gegn honum sjálfum og Framsóknar-
flokknum á Suðurnesjum.
Höfundur er þingflokksformaður
Samfylkingarinnar.
Umrœðan
Framboð
Hjálmars gegn
varaformanni
Össur Skarphéðinsson
Nú hefur Hjálmar Árnason enn
lagt lóð á vogarskálar þeirra, sem
vilja koma Framsóknarflokknum
fyrir kattarnef. Forystumaðurinn
Hjálmar hefur lýst stríði á hendur
öðrum forystumanni flokksins, og
þeim vinsælasta, varaformanninum
Guðna Ágústssyni.
Atlaga Hjálmars gegn Guðna sem
oddamanni framboðsíistans í Suður-
kjördæmi felur í sér hörð og opinber
átök milli varaformanns og þing-
flokksformanns í aðdraganda þing-
kosninga. Það er um það bil besta jóla-
gjöfin sem andstæðingar Framsóknar
gátu hugsað sér. Ástæðurnar eru
margar, og líklega allar jafnaugljósar.
í fyrsta lagi endurspeglar það
djúpan skort forystu flokksins á
sjálfstrausti, því framboð Hjálmars í
fyrsta sætið gegn Guðna er ekki hægt
að túlka öðruvísi en svo, að formaður
þingflokks Framsóknar telji að flokks-
ins bíði slíkt afhroð í kosningunum í
vor að í Suðurkjördæmi fái Framsókn
ekki nema einn mann kjörinn. Fram-
boð hans er yfirlýsing um að eina leið
hans til að halda þingsæti sé að verða
í efsta sæti listans.
f öðru lagi undirstrikar framboð
Hjálmars að eldarnir sem loguðu víða
um flokksskipið hafa nú læst sig í stýr-
ishúsið. Opin, logandi átök hafa brot-
ist inn í raðir forystunnar sjálfrar, þar
sem þeir tveir, sem gegna valdamestu
embættum að formanni frátöldum,
takast á í hatrömmum átökum.
í þriðja lagi munu átök svo valda-
mikilla manna korteri fyrir kosningar
tæta burt það litla traust á flokknum,
sem eftir lifði meðal kjósenda. Þó
litlar líkur séu á því að Hjálmari takist
að berja köttinn Guðna úr tunnunni
mun atlaga hans verða smiðshöggið
sem lemur af henni síðustu gjörðina
svo stafirnir þeytast einsog sprek um
víðan völl þegar kemur í kosningar.
Heift Halldórs Ásgrimssonar gagn-
vart Guðna Ágústssyni virðist ætla
að lifa lengur en allt annað orðspor
hans í íslenskum stjórnmálum - að
frátöldum afglöpum hans gagnvart
írak. Hjálmar var helsti lautinant
Halldórs, og framboð hans gegn
Guðna verður ekki túlkað öðruvísi
en sem áframhaldandi sókn gömlu
flokkseigendaklíkunnar, sem ætlar
ekkert til að spara til að koma Guðna
úr stjórnmálum. Því hvernig sem úr-
slit verða, þá er alveg ljóst, að atlagan
veikir eina stjórnmálamann Fram-
sóknar sem nýtur vinsælda meðal
Fyrir veiðimanninn í fjölskyldunni þinni
veidihornid.is
Jólatil boð
aðeins 38.995..
Simms Classic Guide
vöðlusett.
Simms Classic Guide
Gore-tex vöðlur.
Áralöng frábær reynsla
veiðileiðsögumanna á
Islandi tryggir gæðin.
Simms Freestone skór með
filtsóla. Sterkir skór með
góðum ökklastuðningi.
Simms Freestone
vöðlusett.
Simms Freestone
öndunarvöðlur.
Mest keyptu öndunar-
vöðlurnar á markaðnum.
Simms Freestone skór með
filtsóla. Sterkir skór með
góðum ökklastuðningi.
Jólatilb oð
aóeins 27.995.
Scierra Blackwater
vöðlusett.
Scierra Blackwater
vöðlurnar hafa reynst
frábærlega vel við íslenskar
aðstæður. Scierra skór
með filtsóla. Léttir og
sterkir skór. Vöðlutaska
Ron Thompson
öndunarvöðlusett.
Ron Thompson Aquasafe
öndunarvöðlur. Ron Thompson
vöðluskór með filtbotni.
Vatnsheldur Ron Thompson
Aquasafe jakki með útöndun.
Jólatilb oð
^óejns 28.995,-
Erfitt að velja?
Gefðu gjafabréf í stærstu veiðiverslun landsins. Þar er úrvalið
Þú sérð jólatiiboðin iíka á veidihornid.is
- Opið alla daga -
Sfðumúli 8