blaðið - 19.12.2006, Page 26

blaðið - 19.12.2006, Page 26
A förnum vegi HEYRST HEFUR... Hvenær fórstu síöast í leikhús? Una ívarsdóttir, nemi „Ég fór fyrir kannski tveimur ár- um en man ekkert hvað ég sá.“ eftir Jim Unger loa@bladid.net Heimspekileg brauð og samfélagsumræður „Ég er ekki mikill ástríðumaður í grunninn og á mér ekki hefð- bundnar ástríður eins og golf eða frí- merkjasöfnun. Ég reyni að skara að þeim glæðum sem eru þó til staðar og sú ástríða sem kveikir helst í mér eru hugleiðingar og samræður um manninn, samfélag og þjóðfélagið,” segir Sigfús Guðfinnsson, bakari í Brauðhúsinu i Grímsbæ. Bakaríið bakar eingöngu lífræn brauð og kökur og er eina lífræna bakaríið í Reykjavík „Ég held að þessi áhugi hafi byrjað þegar ég var lítill en ég fékk hug- myndir 68 kynslóðarinnar frá eldri systkinum mínum og þá kviknaði áhugi á þjóðfélagsumbótum og ég hef síðan fundið þeim farveg meðal annars í áhuga mínum á lífrænni ræktun," segir Sigfús. Ætlaði ekki að verða bakari Sigfús segir að hann hafi fyrst fengið áhuga á lífrænni ræktun í kringum 1980. „Ég hafði heyrt að einn stærsti mengunarvaldur í heiminum væri tengdur landbúnaði en þegar réttar ræktunaraðferðir eru stund- aðar getur maður aftur á móti auðgað lífríkið og þetta fannst mér heillandi. Ég ætlaði mér aldrei að verða bakari en það var fyrst með tengingunni við það lífræna sem ég sá flöt á því að læra að baka og nota þá einungis lif- rænt hráefni," segir Sigfús. Piparkaka Framtíðarlandsins Desember er búinn að vera anna- samur í bakaríinu en auk þess að baka brauð og smákökur hefur hópur sjálfboðaliða frá Framtíðarland- inu bakað íslandspiparkökur þar á kvöldin og um helgar. „Það hefur ríkt sannkölluð jólastemning hér í bakarí- inu,” segir Sigfús. Hann segir að hann finni samhljóm með hugmyndum sínum um samfélagið og þeim sem Framtíðarlandið stendur fyrir.“ Ég las Draumalandið eftir Andra Snæ og framtak Ómars Ragnarssonar hafði áhrif á mig og ég vildi leggja þessu málefni lið. Mér finnst mikil- vægt i sambandi við náttúruvernd að hún verði til þess að auka mögu- leika mannsins en ekki takmarka þá. Maðurinn á með atferli sínu að auðga lífríkið og hann getur það ef hann kemur fram með ábyrgð, hugmynda- auðgi og næmi fyrir náttúrunni. Hugmyndir Framtíðarlandsins um fjölbreytileika í framleiðslu og menn- ingu fara saman með hugmyndum um lífræna ræktun. Ég vona líka að það opnist fleiri möguleikar fyrir fólk að fara út í lífræna ræktun hér á landi en það er mikill áhugi fyrir lífrænum vörum meðal neytenda.” Fjörugar samræður í bakaríinu Sigfús vinnur í bakaríinu ásamt bróður sínum Guðmundi og hann segir það oft vera fjörugar umræður sem skapast yfir bakstrinum. „Það er mjög gott að hugsa og hnoða brauðdeig. Það eru oft mjög heimspekilegar umræður sem spinn- ast hér í bakaríinu og okkar helsta umræðurefni er maðurinn og samfé- lagið og það má segja að brauðin sem við bökum séu því í heimspekilegri kantinum.” loa@bladid.net Okkur fannst allt of heitt hérna inni, vörður. Kristinn Sigurbjörnsson, nemi „Ég sá Dýrin í Hálsaskógi þegar ég var svona átta ára.“ Þorbjörn Jóhannesson, bæjarverkstjóri „Ætli það sé ekki komið svona ár síðan, ég man ekkert hvað ég sá.“ Nokkuð hefur verið talað um það af hverju Þóra Tómasdóttir í Kastjósinu talaði við Dorrit Moussaieff á ensku þegar Dorrit var valin kona árs- ins á dögunum Það kom frekar kjánalega út þar sem Dorrit svaraði á íslensku og hefur verið að læra málið í nokkurn tíma. Nú virðist það hafa verið svo að Þóra hafi verið beðin um að tala við Dorrit á ensku og sú beiðni hafi komið frá forsetaskrifstofunni. Þóra hafi hins vegar fyllilega treyst Dorrit til að tala íslensku og samkvæmt heimildum er það víst eilifðarspursmál varðandi Dorrit og fjölmiðla á hvoru tungumálinu sé réttast að ræða við hana. Hljómsveitin Trabant stóð fyrir tónleikum á laugar- dagskvöldið á Nasa. Tónleik- arnir voru vel sóttir og gríðarleg stemning á staðnum. Ekki er langt síðan trommuleikari sveitarinnar, Þorvaldur Gröndal, hætti í hljómsveitinni, en hann þurfti að einbeita sér að öðru. Áhorfendum til mikillar undrunar mætti Þorvaldur á svið með sínum gömlu félögum á Nasa og barði bumburnar sem aldrei fyrr. Gestir tónleikanna voru á einu máli um að svetin hafi staðfest það sem áður hefur verið sagt að þarna fer ein af bestu tón- leikahljómsveitum landsins. O LaughingStock Intemational Inc./dist. by Unlted Media, 2004 Sigfús Guðmundsson bakar lífræn brauð Maðurínn á með atferíi sínu að auöga l/fríkið og hann geturþað efhann kemur fram meö ábyrgð og næmi fyrir náttúrunni.” Astnðan mm Alexis Mea Leonar, nemi ,Ég hef bara farið í leikhús til að horfa á Skrekk." Erla Karlsdóttir, aðhlynningarstarfsmaður ,Ætli það séu ekki svona tvö ár síðan, sá eitthvað í Borgaleik- húsinu en man ekkert hvað ég sá.“

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.