blaðið - 19.12.2006, Side 34
42 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMB:
blaöiö
Verð nú 11.950,-
Allt að 50% afsláttur af völdum fiskabúrum,
fuglabúrum, hamstrabúrum og kanínubúrum.
Gildir til jóla.
pYRALA/S^)
Mjódd - Kringlan- Spöng
587-0711 588-0711 587-0744
Islensk hönnun
Einstakt íslenskt handverk og hönnun
Kristínar S. Garðarsdóttur. Karafla og þrjár stærðir
af glösum í þremur mögnuðum litum.
■%5*-ss
Nýr vefur um vísindi
Menntagátt hefur sett upp sérstakan vef um vísindi á vefslóðinni
menntagatt.is/visindi. Þar er meðal annars að finna aðgengilegar upp-
lýsingar um félög, stofnanir og viðburði sem tengjast náttúruvísindum
og kennsluefni.
menntun
menntun@bladid.net
Tölvunámskeið á Seychelles-eyjum
Seychelles-eyskir kennarar kenna hver öðrum. Á
námskeiðunum voru kennd grunnatriði í ritvinnslu,
tölvuvinnu og notkun kennsluforrits Hildigunnar
Halldórsdóttur frá Námsgagnastofnun.
Gamlar tölvur koma i góðar þarfir
Hafnfirskar tölvur
til Seychelles-eyja
Vigfús Hallgrímsson, þró-
unarfulltrúi grunnskóla
á Skólaskrifstofu Hafnar-
fjarðar, og Hildigunnur
Halldórsdóttir, tölvunar-
fræðingur hjá Námsgagnastofnun,
eru nýkomin úr tveggja vikna ferð
til Seychelles-eyja þar sem þau
héldu námskeið í tölvunotkun fyrir
grunnskólakennara. Með í för voru
einnig Guðmundur Hólmsteinsson
sem hefur haldið utan um verk-
efnið og eiginkona hans, María
Thoroddsen. Tildrög ferðarinnar
má einmitt rekja til einstaklings-
framtaks Guðmundar sem safnaði
230 notuðum tölvum, aðallega úr
grunnskólum Hafnarfjarðar, og
sendi til eyjanna síðastliðið vor eft-
ir að þær höfðu verið uppfærðar og
yfirfarnar.
„Á þessum eyjum eru 23 skólar fyr-
ir börn á aldrinum sex til ellefu ára
og verkefnið gengur út á að tölvu-
væða þá alla. Nú eru komnar íslensk-
ar tölvur í níu skóla af þessum 23
og svo á að halda uppbyggingunni
áfram á næsta ári,“ segir Vigfús.
Vigfús Hallgrímsson Vigfúsi fannst
mjög skemmtilegt, fróölegt og gef-
andi aö taka þátt i verkefninu.
Bætir úr brýnni þörf
Tölvugjöfin frá Islandi bætir úr
brýnni þörf en gjaldeyrisskortur
hefur hamlað tölvuvæðingu skóla-
kerfisins á Seychelles-eyjum.
„Það hefur ekki verið á dagskrá í
menntakerfi þeirra að hafa tölvur í
barnaskólum. Þeir eru aðeins með
tölvur í unglingaskólunum og þeir
eru í raun og veru búnir að breyta
sínum áherslum vegna þessara
gjafa frá íslandi. Þeir eru farnir að
leggja áherslu á að börnin læri fyrr
á tölvur og kennarar nýti tölvurnar
meira til kennslu, meðal annars í
stærðfræði og ensku," segir Vigfús.
Lítið ævintýri
Vigfús hélt námskeið um grunnat-
riði í ritvinnslu og tölvuvinnu fyrir
kennara en Hildigunnur kenndi
notkun 15 kennsluforrita sem hún
hefur búið til og þýtt á ensku.
Að sögn Vigfúsar voru kennararn-
ir mjög ánægðir með námskeiðið og
áhugasamir. „Þeir voru mjög mis-
jafnlega undirbúnir. Sumir höfðu
ekkert unnið á tölvur á meðan aðrir
höfðu aðeins fengist við _þí|*r,“ segir
Vigfús sem lætur sjálfur vel af ferð-
inni. „Mér fannst mjög skemmti-
legt, fróðlegt og gefandi að taka þátt
í þessu. Þetta var eins og lítið ævin-
týri,“ segir hann.
Verkefninu er þó ekki lokið því
að eftir áramót stendur til að senda
aðra sendingu af tölvum til eyjanna
og er stefnt á að tölvuvæðingu allra
skólanna verði lokið árið 2008.
Háskólanám á Spáni
Þeim sem hafa áhuga á að stunda
nám á Spáni er bent á að spænsk
stjórnvöld bjóða fram styrki til
náms á Spáni sumarið 2007 og
skólaárið 2007-2008. Meðal annars
er um að ræða styrki til framhalds-
náms í spænsku og menningu Spán-
ar í háskóla á Spáni. Styrkirnir eru
ætlaðir nemendum sem lokið hafa
BA-prófi og hafa ekki spænsku að
móðurmáli.
Einnig er hægt að sækja um mán-
aðarstyrki til sumarnáms í spænsku
og menningu Spánar og starfandi
spænskukennarar eiga kost á að
sækja um þriggja mánaða styrki.
Nám á Spáni Islendingar eiga nú
kost á aö sækja um styrki til háskóla-
náms á Spáni.
Þá eru í boði styrkir fyrir erlenda
sendifulltrúa og þá sem lokið hafa
háskólaprófi til náms í alþjóðasam-
skiptum við Escuela Diplomática de
Madrid.
Frestur til að skila inn umsókn-
um rennur út 22. og 29. desember
eftir því hvaða styrki er sótt um.
Umsókn um styrki fyrir erlenda
sendifulltrúa þarf að berast sendi-
ráði Spánar í Osló fyrir 16. febrúar
á næsta ári.
Eyðublöð og nánari upplýsingar
um styrkina má nálgast á vefnum
becasmae.es. Einnig veitir Margrét
Jónsdóttir, vararæðismaður Spánar
á Islandi og dósent við Háskólann í
Reykjavík, nánari upplýsingar.
\