blaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 40
48 ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006
blaðið
arformadur VVesf Ham
segir breytinga hafa verið
þörf miðað við stórbætta
frammistöðu liðsins f 1-0
sigri á Manchester United.
Prolux
sjónvörp
Tilboðsverð gilda til og með 23 des.
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Eyðsluþak UEFA íhugarað setja
hömlur á eyðstu evrópskra knatt-
spyrnufétaga til að jafna samkeppni.
UEFA íhugar eyðsluþak:
Chelsea er sér á báti
Lars-Christer Olsson, fram-
kvæmdastjóriEvrópskaknattspyrnu-
sambandsins, segir sambandið vera
að íhuga að setja reglur um fjársýslu
evrópskra félaga með það að mark-
miði að jafna samkeppni liða.
„Það er ekki sanngjarnt að sum lið
hafi það fjársterka eigendur að þau
þurfi ekki að skeyta um hvort stórtap
er á rekstrinum eða ekki. Chelsea er í
algjörum sérflokki. Það hefur ekkert
félag eins mikið fjármagn til ráðstöf-
unar og þeir,“ sagði Olsson.
Olsson segir sambandið hafa
í huga kerfi þar sem félög eru
gerð ábyrg fyrir því að afla sinna
eigin tekna í stað þess að geta
treyst á ríka velgjörðarmenn til að
dæla fjármagni inn í félagið eftir
hentugleikum.
Fertugur i markinu
Gianluca Pagliuca, markvörður Ascoli í ítölsku a-deildinni, fagnaði fjörutiu ára afmæli sínu
í gær. Pagliuca er næstleikjahæsti leikmaður a-deildarinnar frá upphafi með 585 leiki en sá
leikjahæsti hefur ieikið 594. Óliklegt verður að teljast að Pagliuca takist að slá metið, þvi eig-
andi bess er hinn 38 ára varnarmaður AC Milan. Paolo Maldini. sem
Eggert ánægður með sigur Hamranna á Man Utd.:
37” 137.990.-
Skerpa 500:1
Birtustig 500cd/m2
Upplausn 1366*768 • HD Ready
42” 219.990.-
Skerpa 500:1
Bírtustig 500cd/m2
Upplausn 1366*768 • HD Ready
VISA
HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
p: Staðgreityslu
VE8TURLAN08VEOUR ÁRTÚNSBREKKA
/ h | |
1 § HÚSOAONAHÖLLIN
m Ruby Tuesday § |
5S9S ^ 3 2
Höföabakka 9 2. hæö éff®11 561 9200
austurinngangur \ 561 6960
Vilji og jákvæðni í
West Ham að nýju
■ Pardew hafði tapað trausti leikmanna ■ Erfitt að kaupa leikmenn í janúar
„Það var alveg augljóst í fyrradag
að þetta var allt annað lið sem spilaði
heldur en í leikjunum þar á undan,
hver sem ástæðan er,“ sagði Eggert
Magnússon, stjórnarformaður West
Ham, um í-o sigur liðsins á Manc-
hester United, efsta liðinu í ensku úr-
valsdeildinni á sunnudag. Leikmenn
West Ham liktust loksins sjálfum sér
eftir dapran fyrri helming tímabils.
„Leikmenn virtust miklu jákvæð-
ari og höfðu augljóslega viljann til að
vinna leikinn, sem er nokkuð sem
hefur skort fram að þessu,“ segir hann.
Alltaf einhverjir ósáttir
„Ég gerði þessar breytingar að ráða
nýjan knattspyrnustjóra vegna þess
að ég var óánægður með það sem
var verið að gera. Auðvitað eru alltaf
einhverjir ósáttir við þá ákvörðun,
en ég held að miklu fleiri séu sáttir
við hana. Þetta var orðið erfitt fyrir
Pardew. Hann hafði tapað sambandi
við leikmennina sem kom greinilega
niður á leik liðsins. Ég taldi þörf
á breytingum og við gerðum þær,“
sagði Eggert um umdeilda tímasetn-
ingu á uppsögn Alans Pardews. Fjöl-
miðlar og sérfræðingar í Englandi
hafa gagnrýnt Eggert fyrir að segja
Alan Pardew upp eftir aðeins tvo
leiki sem stjórnarformaður og að
Eggert hafi horft fram hjá góðum
Prolux
Veröhrun á
Hagæða LCD skjaum
• 2 •
• ^ •
• ára •
‘•fbyrgs •
Ve9gfest \
20” 46.990.-
Skerpa 500:1
Birtustig 450cd/m2
Upplausn 800*600
32” 79.990.-
Skerpa 800:
Birtustig 500cd/m2
Upplausn 1366*768
árangri West Ham
undir stjórn Pardews
síðustu tvö árin.
Janúarglugg-
inn erfiður
Spurður um
hvort hann og
Alan Curbishley
hefðu komið sér
saman um hvaða
leikmenn West
Ham ætlaði að
falast eftir í fé-
lagaskiptunum
í janúar sagði Egg-
ert að það hefði
enn ekki verið rætt, en
að fundur væri áætlaður á
næstunni.
„Við munum setjast niður
á næstu dögum og ræða
leikmannamál. Það er hins
vegar ekki hlaupið að því
að kaupa leikmenn í þessum
janúarglugga. Félög eru treg
til að láta leikmenn ef þau
hafa ekki tryggt sér aðra í stað-
inn. Það er eins með West Ham.
Ef af einhverjum leikmanna-
kaupum verður er líklegt að það
verði ekki fyrr en á síðustu dögum
félagaskiptagluggans í lok janúar,“
sagði Eggert.
„Við erum með nógu sterkt lið
núna til að halda okkur í deildinni
og erum mikið frekar að horfa til
næsta sumars með breytingar á
leikmannahópnum."