blaðið - 01.09.2007, Qupperneq 40
SAMbio.is ,
sm \ \ i-j3m
C 575 8900
íl'ffij? IWÁlfABAKKA
DiSTURBIA kl. 5:30-8-10:30 14
DISTURBIA VIP kl. 5:30-8-10:30
LICENSE T0 WED kl. -4-6-8-10:10 7
ASTRÓPÍÁ kl. 2-4-6-8-10:10
RATAT0UILLE kl. 8-10:30
RATATOUILLE ' 7 tSLTAL kl. : • -3-5:30
THE TRANSF0RMERS Íd. 2:30-5:15-8-10:40 10
THE TRANSF0RMERS M.2
SHREK3 W. -
HARRY POTTER 5 kl. -3
KRiNGLUNNI
ÍASTRÓPÍÁ kl. 2-4-6:30-8:30-10:30
LICENSE TO WED k .6-8-10:10 DIGiTAl 7 I
BOURNE ULTIMATUM k .5:40-8-10:20
RATATOUILLE ÍSLTAL k .1:30-4
RATATOUILLE k .3:30
SHREK3 M/ ÍSLTAL k .1:30
il'SíJÍ AKUREYRI i
LICENSE TO WED 16-8-10 7
RATATOUILLE ÍSLTAL I. -4
ASTRÓPIÁ 1.2-4-6-8-10 ■■■
áimislKXÍFUVfK
ASTRÓPÍA J. 2 - 6 - 8
BOURNE ULTIMATUM 18 12
RATATOUILLEM/ ÍSLTAL J. -3:40-5:50
NANCY DREW |kl.
SEIFOSSI s. 482 3007 H
ASTRÓPÍÁ k .1:30-6- 8-10 L
RUSHH0UR3 k .3:30-8-10
RATATOUILLE M/ ÍSLIAL k - 3:40
THE TRANSFORMERS k . 5:30
Nýtt 1 bio disturbia
Njjíft* 'l % :
2 450 kr. í tnó! Eimip í sllar týningar Mi með rauto! 1
REClí fomnn
H EVENING M. 3,5.30,8 og 10.30 L
1 BRETTIN UP W.3oa6 L
M GOODBYE BAFANA W.3
1 DELIVER US FROM EVIL kl.3 14
| COCAIN COWBOYS kl.5.30
DIE FALSCHER kl.5.30
S SICKO M.8 7
| SHORTBUS M.8 18
i THEBRIDGE W.8 16 j
1 ZOO kl. 10.30 16
I NO BODY IS PERFECT M. 10.30 18 (
1 AWAYFROMHER kl.1030 7 1
SmÓHH^BlÓ
1 SURF'SUP M. 2,4,6,8 og 10 L
1 BRETTIN UPP íslenskt tal W. 2,4 og 6 L
TFCBOURNEULHMAIIJM W.8og10.30 14
- T>€ æÚRIÆ U. LUXUS M. 3,5.30,8 og 10.30 14
RUSHH0UR3 kl. 6,8 oq 10.10
I SIMPSON enskttal kl. 4,8 og 10 L 1
2 SIMPSON íslenskí taJ M. 2,4 og 6 L |
i SKOPPA OG SKRÝTLA W. 2 oa 3 L |
JMÉUóy
f DISTURBIA kL 5.45,8,10-2OPCMÆR Ji.| L |
BRÉTTÍN UPPeia kl. 2,4 OQ 6
TFE BOURNE ULTIMARJM W. 5.40,8 og 10.20 14 I
RUSH HOUR 3 W. 2,8 og 10
RATATOUILLEísLtí W. 1.30 og 3.35 L
1 TRANSFORMERS kl. 3.40 10
HASKÓIABÍÓ
1 BRETTIN UPP IsTenskt tal M.4og6 -rlj
í::; ÁStROPIA W. 4,6,8 og 10.10
THE B0URNE ULTIMATUM M. 3,5S0,8og10S0 14 I
K RUSHH0UR3 M.4,6,8 og 10
: BECOMING JANE W.8og10.30 L |
Uhm
L DISTURBIA kl.8og 10.10 14 l
BRETTINUPP ■ íd.2,4og6 L
. ; THEBOURNEULTIMATUM W. 8og 10.10 14 2
H RUSHH0UR3 kl. 4 og 6
i SIMPSON íslenskt tal W.2
40 LAUGARDAGUR1 SEPTEMBER 2007 blaöió
ORÐLAUSLÍFIÐ ordlaus@bladid.net n Við erum svo mikið fyrir seventís tónlist - Yes, King Crimson og Rush. Það er farið að hafa mikil áhrif á lagasmíðarnar.
Sköpunargleði einkennir háværu drengina
Mínus semur nýtt efni
„Það ríkir svo mikil sköpunargleði í búðum
Mínuss. Við erum alltaf að semja,“ segir
Krummi, söngvari hljómsveitarinnar
Mínuss. Fyrr í sumar yfirgáfu Frosti og
Þröstur sveitina, stuttu eftir að fjórða
breiðskífa Mínuss, The Great Northern
Whale Kill, kom út. Bassaleikarinn
Sigurður Oddsson gekk þá til liðs
við sveitina.
Mínus hefur komið víða fram
sem kvartett í sumar, en sérstak-
lega góður rómur var gerður að
tónleikum sveitarinnar í garð-
inum hjá Dillon á Menningar-
nótt. Sveitin vinnur nú að nýju
efni, en þrálátur orðrómur
hefur verið á götum borgar-
innar um að meðlimir sveitarinnar ætli að skella sér í
hljóðver til að taka upp nýja skífu sem fyrst.
Krummi blæs á slúðursögurnar. „Við förum bara í
stúdíó þegar við erum tilbúnir til þess,“ segir hann.
„Við erum svona aðeins byrjaðir að semja og það
gengur mjög vel. Það ríkir mikið frelsi í hljómsveit-
inni. Ég, Bjarni og Bjössi höfum sameiginlegan
áhuga á músík og hlustum á svipaða tónlist. Við
erum svo mikið fyrir seventís tónlist - Yes, King
Crimson og Rush. Það er farið að hafa
mikil áhrif á lagasmíðarnar."
Mínus kemur fram í Skífunni
á Laugavegi klukkan 16 í dag.
Frítt er á tónleikana og ekk-
ert aldurstakmark.
atli@bladid.net
Misheppnuð
endurgerð
Leikarinn Jude Law segir end-
urgerð kvikmyndarinnar Alfie
hafa verið stór mistök en Law lék
aðalhlutverkið í myndinni árið
2004, sem Sir Michael Caine lék
árið 1966. Endurgerðin náði ekki
mikilli hylli og hefur verið talin
með verstu endurgerðum fyrr
og síðar. Hinn 37 ára gamli Law
hefur engu að síður tekið að sér
hlutverk í annarri endurgerð en
verið er að gera nýja útfærslu af
spennumyndinni Sleuth frá 1972,
en Caine fór einnig með hlut-
verk í þeirri mynd og mun hann
einnig birtast í nýju myndinni
þar sem hann mun feta í fótspor
Sir Laurence Olivier frá 1972.
Játar sig sekan
Maður sem er þekktur fyrir að
selja myndir af fræga fólkinu í
óþökk þess hefur játað sig sekan
um að hafa reynt að selja illa
fengnar myndir úr brúðkaupi
Tom Cruise og Katie Holmes,
en hann reyndi að kúga 70 millj-
ónir íslenskra króna út úr Cru-
ise fyrir myndirnar. Hinn 47
ára gamli David Hans Schmidt á
yfir höfði sér tveggja ára fang-
elsi verði hann dæmdur og þarf
að öllum líkindum að greiða 1;
milljónir króna í sekt. Þessi sami
maður reyndi að græða á dagbók
Parisar Hilton á sínum tíma.
Paltrow stjórnar
matreiðsluþætti
Leikkonan Gwyneth Paltrow er á
leiðinni til Barcelona til þess að
stjórna matreiðsluþætti ásamt
félaga sínum, kokkinum Mario
Batali. Paltrow sem leggur mikla
áherslu á neyslu lífrænnar fæðu
er mikil áhugamanneskju um
mat og segist afar spennt fyrir
verkefninu. „Þó að ég sé mjög
hrifin af lífrænni fæðu og vilji
borða hollan og lítið unninn mat
þá fæ ég mér samt hamborgara
og aðra óhollustu ef mig langar
mjög mikið til þess. Ekki er hægt
að neita sér um allt.“
Mjög flottir leðurskór með
góðum irmleggjum í stœrðum
41-46 akr. 6.885,-
Þœgilegir, mjúkir óreimaðir
leðurskór með innleggjum í
stœrðum 41-46 á kr. 6.885,-
Misty, Laugavegi T
Sími 551 2070
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
ORÐLAUSÚTTEKT
Eiturlyfjaneysla útbreitt vandamál meðal stjamanna
Frægðin varð
þeim að falli
Yfirleitt sömu stjörnurnar
sem koma við sögu þegar
eiturlyfjaneysla fræga
fólksins er annars vegar.
Lindsay Lohan, Amy Wine-
house og Pete Doherty
þau allra umtöluðustu.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
Eiturlyfjaneysla hefur alltaf fylgt
fræga fólkinu og eru það bæði
gömul sannindi og ný að frægðin
verður mörgum að falli. Ófáar
stjörnur hafa komist í kast við
lögin vegna fíknar sinnar.
Barnastjörnur í klóm eiturlyfja
Lindsay Lohan hefur líklegast
prýtt flestar síður blaðanna undan-
farin misseri vegna fíkniefnaneyslu
sinnar. Lohan er forfallinn kóka-
ínfíkill og hefur verið gert að sæta
meðferð oftar einu sinni. Barna-
stjarnan, nú aðeins rétt rúmlega tví-
tug, hefur nokkrum sinnum komist
í kast við lögin vegna neyslunnar.
Þrátt fyrir að stúlkan viðurkenni
nú að hún eigi við vandamál að
stríða og sé nú þegar komin í með-
ferð, segja starfsmenn stofnunar-
innar hana vera þá allra erfiðustu
á svæðinu þar sem hún vill ólm
komast aftur út á lífið.
Svipaða sögu er að segja af
poppstjörnunni Britney Spears sem
var orðin stórstjarna aðeins 15 ára
gömul. Spears var draumadóttir
Kanans framan af og fyrir fjórum
árum virtist ekkert geta hreyft við
henni á toppnum.
Seig á ógæfuhliðina þegar söng-
konan kynntist Kevin Federline
sem hún giftist árið 2004. Hjóna-
bandið varð ekki langlíft og stendur
Spears nú í forræðisdeilu þar sem
óhætt er að segja að hún standi
höllum fæti. Eftir skilnaðinn virð-
ist sem Spears hafi neytt fíkniefna
í miklum mæli en hún leitaði sér
meðferðar fyrr á árinu. Federline
hefur verið duglegur að opinbera
neyslu Spears og segir hana hafa
notað kókaín, alsælu og róandi lyf á
meðan á hjónabandi þeirra stóð.
DÓPFRÆGA FÓLKSINS
► Kókaín er eitt vinsælasta
fíkniefnið meðal fræga
fólksins en neysla þess
hefur einnig aukist meðal
almennings. í Bretlandi hef-
ur neyslan aukist úr 0,6% í
2,4% á síðustu tíu árum á
meðal fólks á aldrinum 16
til 59 ára.
W í kringum 1990 voru ofskynj-
unarlyf eins og alsæla vin-
sælust hjá fræga fólkinu.
►
Vinkonurnar Paris Hilton,
Nicole Richie og Lindsay
Lohan hafa allar hlotið dóm
fyrir að aka undir áhrifum
fíkniefna.
Forfallnir nýliðar
Frægðin getur lagst illa í þá sem
skjótast á skömmum tíma upp á
stjörnuhimininn. Stjörnur á borð
við Amy Winehouse og Pete Do-
herty eru nú orðnar frægari fyrir
eiturlyfjaneyslu sína en það sem
þau hafa afrekað hingað til.
Ekki er langt síðan Amy Wine-
house varð þekkt andlit en hún er
nú langt leiddur fíkill sem neytir
einna helst heróíns og kókaíns.
Winehouse tók nýlega of stóran
skammt af heróíni og var nær
dauða en lífi þegar tekið var við
henni á sjúkrahúsi í Lundúnum, en
þar þurfti að dæla úr maga hennar
og gefa henni adrenalínsprautu
til þess að koma hjarta hennar í
gang aftur. Aðeins þremur dögum
seinna var hún komin í aftur
neyslu.
Pete Doherty, söngvari hljóm-
sveitarinar Babyshambles, er
orðinn einn þekktasti eiturlyfja-
neytandi Breta fyrr og síðar. Aður
var Doherty afbragðsnemandi
sem hlaut styrki til náms en nú
neytir hann allra efna sem hann
kemst yfir. Ekki nóg með það að
Doherty sé forfallinn fíkill heldur
hafa einnig mælst leifar af kókaíni
í blóði kattar hans sem kallast
Dinger, en Dinger er slanguryrði
yfir enska orðið syringe sem þýðir
sprauta.