blaðið - 22.09.2007, Síða 15
blaöið
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007
FRÉTTIR
15
CNN fjallar um ísland
Olía víkur fyrir
hreinni orku
Bandaríska sjónvarpsstöðin
CNN fjallaði á fimmtudaginn
um tilraunir fslendinga til að
nota vetni sem orkugjafa. í
fréttinni er meðal annars rætt
við Braga Árnason, fyrrum
prófessor við Háskóla íslands
sem segir að ísland sé tilvalið
land til að skapa fyrsta vetnis-
vædda samfélagið í heiminum
og spáir því að landið verði
laust við notkun jarðefnaelds-
neytis þegar árið 2050.
í fréttinni er meðal annars
sagt frá tilraun Strætó með
vetnisvagna og fjölgun
vetnisbíla á götum Reykja-
víkurborgar. Fréttin um
vetnistilraunir f slendinga var
einnig aðalfréttin á vef sjón-
varpsstöðvarinnar aðfaranótt
gærdagsins. a!
Vigtarmenn
Fiskistofa
borgi launin
Hafnarstjórn ísafjarðarbæjar
lýsir yfir vanþóknun sinni á
úrskurði Neytendastofu um
að starfsmenn hafnanna á
Þingeyri, Flateyri og Suður-
eyri séu vanhæfir samkvæmt
reglugerð um vigtarmenn sem
tók gildi þann 1. september.
í reglugerðinni segir að
löggiltur vigtarmaður teljist
vanhæfur séu tengsl hans við
hlutaðeigandi fyrirtæki eða
forsvarsmenn þess til þess
fallin að draga megi óhlut-
drægni hans í efa með réttu.
Hafnarstjórn ísafjarðarbæjar
tók fyrir erindi frá Fiskistofu
þar sem tiikynnt var um
úrskurðinn á fundi á þriðju-
dag. í fundarbókuninni segir
að einungis sé hægt að fylgja
úrskurðinum greiði Fiskistofa
helming launa vigtarmanns-
ins. Umsvifin séu lítil og vigt-
unin aðeins hálft dagsverk,
samkvæmt fréttavefnum bb.is.
gag
Kísiliðja í Helguvík
Áætlun um
mat samþykkt
Skipulagsstofnun hefur fallist
á tillögu danska ráðgjafarfyr-
irtækisins Tomahawk Develop-
ment um áætlun um umhverf-
ismat vegna kísilverksmiðju
í Helguvík í Reykjanesbæ.
Stofnunin gerir þó nokkrar at-
hugasemdir og telur meðal ann-
ars að í frummatsskýrslu þurfi
að gera grein fyrir því hvers
konar atvinnurekstur keppi
við fyrirtækið um vinnuafl.
Þá verði gerð grein fyrir
helstu uppsprettum mengun-
arefna áhrifum útblásturs á
umhverfið, svo og hvernig
losun gróðurhúsalofttegunda
samræmist stefnu íslenskra
stjórnvalda og hvernig fyrir-
tækið hyggist mæta því ef ekki
reynist unnt að fá losunarheim-
ild vegna starfseminnar. mbi.is
Upplýsingar um verð hjá tannlæknum
Svíar ætla að birta verðið á Netinu
Stefnt er að því á Norðurlöndum
að auðvelda neytendum að bera
saman verð á þjónustu tannlækna.
Á næsta ári munu til dæmis neyt-
endur í Svíþjóð geta borið saman
verðið á Netinu.
„Það verða settar nýjar reglur um
styrki vegna tannlækninga og um
leið á að gera neytendum kleift að
sjá verðlagningu einstakra tann-
lækna,“ segir Lars Brandin, deild-
arstjóri hjá Försakringskassan,
sænsku tryggingastofnuninni.
Lars segir enn ekki ákveðið hvort
það verður á heimasíðu sænsku
tryggingastofnunarinnar sem upp-
lýsingarnar verða veittar eða á síðu
einhverrar annarrar stofnunar.
TR íhugar að birta verð
Tryggingastofnun ríkisins ætlar
nú að kanna hvort stofnuninni sé
heimilt að veita upplýsingar um verð
fyrir þjónustu einstakra tannlækna.
Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá
Persónuvernd, kveðst aldrei hafa
heyrt talað um að upplýsingar um
verð fyrir ákveðna þjónustu eigi
að fara leynt en Tryggingastofnun
hefur talið málið vera á gráu svæði.
Formaður Tannlæknafélags
Islands, Sigurjón Benediktsson,
segir að allt samkeppnisumhverfi í
tannlækningum muni raskast veiti
Tryggingastofnun upplýsingar um
verð.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
segir það ekki eiga að vera leyndar-
mál hvað hver tannlæknir fær greitt.
,Það á að vera uppi á borðinu, enda
hagur hvers tannlæknis,“ segir hún.
ingibjorg@bladid.net
r
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra
vinningnum þegar þú getur unnið fyrir öllu
sem þig langar í? Það eina sem þú þarft
að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag
og í staöinn borgum við þér allt að 140
þúsund krónur í mánaðarlaun.
Síðan kaupir þú þér það sem hugurinn
girnist. Besta aukavinna sem þú getur
fundið og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna í oq sœktu um í síma
569 1440 eða á mbl.is/mm/mogginn
Sæktu um blaðberastarf
- alvöru peningar í boði!
J