blaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 8
Rúnar
Geirmundsson
Þorbergur
ÞórOarson
Alhliða útíararþ j ó n u s ta
Sírnar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • nmar@utfarir.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
TILBOÐ!
Blöndunar og hreinlætistæki
ATH! Aðeins í nokkra daga
i
-
50%
afsláttur
HARÐVIÐARVAL
þegarþú kaupir golfefm
Krókhálsi 4 110 Reykjavík Sími 567 1010 www.parket.is
Montreal
5. október
frá kr. 29.990
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal í Kanada 5. október. I
borginni mætast gamli og nýi timinn á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært
að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval
verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og njóttu þess
besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða. Glæsileg gisting í boði!
Verð kr. 39.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á
Travelodge Montreal m/morgunverði í 3 nætur, 5. okt.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum,
út 5. og heim 8. okt.
Verð kr. 59.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting með
morgunverði í tvíbýli á Hyatt Hotel **”+ í 3 nætur, 5. okt.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á
Hotel Delta Centre Ville **** í 3 nætur, 5. okt.
Heimsferðir
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007
blaðið
Flugfélagið SAS
Vélar gallaðar
Rannsóknir hafa leitt í ljós ryð-
galia í lendingarbúnaði á 25 af 27
Dash 8-Q400 flugvélum norræna
flugfélagsins SAS. Ryðgallinn er
sá sami og fannst í tveimur flug-
vélum félagsins sem lentu í
óhöppum við lendingu í Álaborg
í Danmörku og Vilníus í Litháen
með nokkurra daga millibili fyrr
í mánuðinum. I kjölfarið voru
allar vélar af þessari gerð kyrr-
settar.
Á vef sænska blaðsins Af-
tonbladet segir að gaUinn á lend-
ingarbúnaðinum sé ekki einungis
bundinn við vélar SAS, heldur
hafi fleiri flugfélög tekið eftir
sambærilegum göllum í vélum
sínum.
aí
Noregur
Nýir ráðherrar
Áslaug Haga, formaður norska
Miðflokksins, tók við embætti
ráðherra olíu- og orkumála í gær,
eftir að Odd Roger Enoksen sagði
af sér af persónulegum ástæðum.
í norsku miðlunum er greint er
frá því að Haga muni í nýju emb-
ætti leggja mesta áherslu á Uf-
ræna orkugjafa, en hún hefúr ver-
ið ráðherra sveitarstjórnarmála
frá árinu 2005. aí
Líbanon
Þúsundir syrgðu
Þúsundir manna komu saman
þegar líbanski þingmaðurinn
Antoine Ghanim var borinn tU
grafar í höfuð-
borginni Beirút í
gær. Ghanim
hafði lengi talað
gegn Sýrlands-
stjórn og var
myrtur í
sprengjutUræði
ásamt fimm öðr-
um á miðviku-
daginn. Líbönsk stjórnvöld hafa
heitið því að forsetakosningar
verði haldnar í næstu viku, þar
sem arftaki EmUe Lahoud verður
valinn. Lahoud er fylgjandi Sýr-
landsstjórn, en margir saka Sýr-
lendinga um sprengjutilræðið. aí
N-Kórea sögð
aðstoða Sýrland
■ ísraelar gáfu Bandaríkjunum upplýsingar um skotmörk sín í
Sýrlandi ■ Gruna Sýrland og N-Kóreu um kjamorkusamvinnu
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Ákvörðun ísraela um að gera loft-
árás á meintar kjarnorkustöðvar
Sýrlendinga þann 6. september síð-
astliðinn, var tekin eftir að ísraelsk
og bandarísk stjórnvöld skiptust á
upplýsingum, meðal annars í formi
gervihnattamynda, um að norður-
kóreskir kjarneðlisfræðingar væru
starfandi í Sýrlandi. Þetta kemur
fram á fréttavef Washington Post.
George Bush Bandaríkjaforseti hef-
ur neitað að tjá sig um árásina, en í
ffétt bandaríska blaðsins segir að
fullyrðingar tsraela um að Norður-
Kóreumenn aðstoðuðu ríki með
náin tengsl við Iran, hafi vakið
miklar áhyggjur í herbúðum
Bandaríkjastjórnar. Þrátt fyrir það
hafi bandarísk stjórnvöld kosið að
bregðast ekki við upplýsingum
Israelsstjórnar, af ótta við að slíkt
myndi grafa undan langvinnum
samningaviðræðum sexveldanna
um kjarnorkuáætlun N-Kóreu.
Fundur í Pyongyang
Fulltrúar sýrlenskra og norður-
kóreskra stjórnvalda funduðu í
Pyongyang, höfuðborg Norður-
Kóreu, í gær og var fundurinn
sagður snúast um tvíhliða sam-
skipti ríkjanna. Sögusagnir hafa
verið á kreiki um samstarf ríkjanna
á sviði kjarnorkutækni, en stjórn-
Mikil spenna
Bæði ísraelar og Sýrlendingar eru
með mikinn viðbúnað á landamærum
Israels og Sýrlands við Gólanhæðir.
ÁRÁSIN
Árásin átti sér stað um 80
kílómetrum frá landamær-
unum að (rak, þann 6. sept-
ember.
Þremur dögum fyrr hafði
norður-kóreskt skip lagst að
bryggju í borginni Tartus
með varning, sem var sagður
steypa.
völd í báðum ríkjum hafa hafnað
því að Sýrlendingar njóti aðstoðar
Norður-Kóreu á þessu sviði.
Benjamin Netanyahu, formaður
Likudflokksins og íyrrum forsætis-
ráðherra Israels, viðurkenndi á
fimmtudaginn að Israelar hefðu
gert skotárás langt inni í Sýrlandi í
byrjun mánaðar, en Israelsstjórn
hafði fram að því neitað að svara
ásökununum. Árás ísraela var gerð
að næturlagi, að sögn til að lág-
marka mögulegt mannfall. Wash-
ington Post segir að enn sé margt á
huldu, þar á meðal um gæði upp-
lýsinga ísraelsmanna, umfang að-
stoðar Norður-Kóreumanna við
Sýrlandsstjórn og hver alvöruþungi
Sýrlendinga er í málinu.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Glæpaklíkur kaupa böm til Svíþjóðar
Neyða bömin til
að stunda þjófnað
Sænska lögreglan hefúr komið
upp um fjölmargar erlendar glæpa-
klíkur sem hafa misnotað börn
með því að ferðast með þau um
Evrópu og láta þau stela. Lögreglan
rannsakar nú ásakanir um mansal,
þar sem fátækir foreldrar í Austur-
Evrópu hafa selt börnin sín, sem
eru svo neydd til að stunda þjófn-
að. „Þau eru þjálfuð til að stela í
verslunum og vöruhúsum, og jafn-
framt í vasaþjófnaði,“ segir Kajsa
Wahlberg, fúlltrúi lögreglunnar, í
samtali við sænska ríkisútvarpið.
Lögreglan í Svíþjóð hefúr helst
verið að fást við mál er varða börn
sem hafa verið seld frá Rúmeníu og
Búlgaríu. Wahlberg segir foreldra
barnanna marga virðast gefa nafn-
greindum mönnum skriflegt leyfi
til að ferðast um með börnin og að
slík leyfi geti gert yfirvöldum erfitt
fyrir að sanna mansal.
atlii@bladid.net
STUTT
• Hönnunargalli Bandaríski
leikfangaframleiðandinn Matt-
el hefur viðurkennt hönn-
unargalla í flestum leikfang-
anna sem fyrirtækið hefur þurft
að innkalla. Mattel hefur jafn-
framt staðfest að sökin sé ekki
kínverskra framleiðenda.
• Látinn 42 ára gamall Græn-
lendingur, sem stunginn var í
brjóstið í úthverfi Árósa í Dan-
mörku um síðustu helgi, er lát-
inn. Fjórtán ára drengur er
grunaður um að hafa ráðist á
manninn en hann neitar sök.
• Skotárás Tveir nemendur
voru fluttir á sjúkrahús eftir
skotárás við Delawareháskóla í
Bandaríkjunum í gær. Að sögn
er annar nemendanna lífs-
hættulega særður en líðan hins
sögð stöðug.