blaðið - 22.09.2007, Blaðsíða 42
42
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007
blaöió
LIFSSTILLMATUR
matur@bladid.nel
Við sýnum dæmi um hvernig búa má til forvitnilega rétti
úr íslensku hráefni sem byggjast kannski líka á framandi
hefðum. Þannig erum við á vissan hátt að tengja framandi
matargerð við gömlu íslensku hefðina.
Ýsan vinsælust
Af öllum fisktegundum eru
íslendingar hrifnastir af ýsu
samkvæmt niðurstöðum nýrrar
rannsóknar Matís á þeim upplýs-
ingum sem fyrir liggja um fisk-
neyslu landsmanna. Á meðal þess
sem fram kemur í skýrslunni
er að fiskneysla eldra fólks er
^ meiri en þeirra yngri og að eldri
aldurshópurinn borðar einnig
fjölbreyttara úrval fisktegunda
og -afurða en þeir yngri. Nokkur
raunur virðist einnig vera á fisk-
neyslu höfuðborgarbúa annars
vegar og landsbyggðarfólks hins
vegar, bæði hvað varðar tíðni
fiskneyslu og þær fiskafurðir sem
borðaðareru.
Villibráðardagar
á Domo
Villibráðardögum á veitinga-
staðnum Domo lýkur í kvöld. Þar
sýna matreiðslumenn staðarins
nýjar hliðar á villibráðinni eins
og þeim er einum lagið. Á mat-
seðlinum má meðal annars finna
hreindýr, gæs, akurhænu, dádýr
og ferskan fisk og munu vínþjónar
staðarins bjóða upp á vín við hæfi.
Þeir sem missa af veislunni geta
huggað sig við það að villibráðar-
dagar verða endurteknir 26.-29.
september og 3.-6. október.
Villibráðardagar eru liður í
sérstökum þemadögum á Domo
en þá bregða matreiðslumenn
út af vananum og brydda upp á
skemmtilegum nýjungum.
Norðurlandamót kaffibarþjóna
íslenskir kaffibarþjónar etja
kappi við norræna starfsbræður
sína þessa dagana en um helgina
fer fram Norðurlandamót kaffi-
barþjóna í Gautaborg í Svíþjóð.
íslenska liðið er skipað núverandi
íslandsmeistara, Ingibjörgu
Jónu Sigurðardóttur frá Kaffi-
tári, Árna Ragnarssyni, Jóninu S.
Tryggvadóttur og Elfu Dröfn Stef-
ánsdóttur frá Te og kaffi. Þjálfari
er Njáll Björgvinsson sem einnig
starfar hjá Te og kaffi. Þá er einn
af dómurum mótsins Sonja Grant
frá Kaffitári en auk þess að vera
dómari hlaut hún titilinn besti
þjálfari Evrópu árið 2007.
OSKAST
Góð laun í boði fyrir duglegt fólk
Laun árangurstengd
Blaðið óskar eftir duglegum, metnaðarfullum
og kraftmiklum sölumönnum til starfa á
auglýsingadeild Blaðsins sem fyrst. Við leitum
að fólki með frumkvæði, ódrepandi áhuga, vilja
og getu til að vinna í krefjandi og erilsömu
umhverfi og hressleikann að leiðarljósi.
Umsóknir sendist á steini@bladid.net
mfim
Fundur um nýtingu íslenskra villijurta
íslensk matarhefð
og erlendir straumar
íslensk matarhefð býður
upp á ýmsa möguleika
og henni má til dæmis
blanda saman við erlenda
tískustrauma í matreiðslu
á spennandi og forvitni-
legan hátt.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Ýmsar íslenskar villijurtir má
nýta til manneldis og eru möguleik-
arnir án efa fleiri en margur gerir
sér grein fyrir. Félagið Matur-Saga-
Menning heldur fræðslufund um
íslenskar villijurtir til manneldis í
næstuvikuþarsemvalinkunnirgras-
nytjungar munu ausa af brunnum
visku sinnar og þekkingar. Þeir
halda stutt erindi um fjölbreyttar
grasnytjar og síðan verður gestum
boðið að sjá og bragða á margvís-
legum jarðargróða sem fyrrum var
almennur kostur en hefur í flestum
tilvikum vikið fyrir nýstárlegri mat.
Einnig verður komið inn á hvernig
blanda má saman gömlum hefðum
við nýrri strauma í matargerð.
íslensk hefð og erlend
„Þeir sem flytja erindi hafa sér-
staklega lagt sig eftir því að tengja
íslensku matararfleifðina við það
sem er að gerast í tískustraumum i
mat og matargerð og útlenskar mat-
arhefðir," segir Ingólfur Guðnason,
einn aðstandenda fræðslukvöldsins.
„Við sýnum dæmi um hvernig búa
má til forvitnilega rétti úr íslensku
hráefni sem byggjast kannski líka á
framandi hefðum. Þannig erum við
á vissan hátt að tengja framandi mat-
argerð við gömlu íslensku hefðina,“
segir Ingólfur.
Islenskar villijurtir bjóða upp á
marga möguleika og það er synd að
það skuli ekki vera hægt að nota þær
nema kannski í örfáar vikur á ári,“
segir Ingólfur og bendir á að til séu
ýmsar geymsluaðferðir sem fólk geti
nýtt sér svo sem frysting og þurrkun.
Það getur sérstaklega komið sér vel
þegar fólk situr uppi með mikið af
berjum, sveppum og öðrum jarðar-
gróðri líkt og nú um stundir.
Úr miklu að moða
„Eftir þetta einstaka veður sem
hefur verið þá er meira af öllum
berjum og jarðargróðri en nokkur
dæmi eru um. Það er úr óvenju-
Drykkjarföng ur íslensku hráefni Hann
es Lárusson er áhugamaður um bruggun
og víngerð úr íslensku hráefni. Hann verður
meðal fyrirlesara á fræðslufundi félagsins
Matur-Saga-Menning I næstu viku.
erri Vilhelms
Höfundur Ætigarðsins Hild-
ur Hákonardóttir, höfundur
bókarinnar Ætigarðsins, fjallar
um söl og nýtingu þeirra.
Mynd/Kristinn Ingvarsson
miklu að moða. Fólk sem hefur
farið til berja talar um að það hafi
aldrei séð jafnmikið.“
Að mati Ingólfs er áhugi á gamalli
íslenskri matarhefð að aukast, ekki
síst áhugi á nýtingu villigróðurs.
„Það er liður í starfsemi félagsins
Matur-Saga-Menning að vekja at-
hygli á þessari arfleifð okkar. Við
erum að reyna að auka áhugann
enn frekar. Það er ákveðin hætta á
að þekking á gömlum jurtanytjum
og matarháttum glatist. Það er liður
í stefnu félagsins að koma í veg fyrir
það,“ segir hann.
Fjölbreytt erindi
Fyrirlesarar á fræðslufundinum
eru Hannes Lárusson, Hildur Hákon-
ardóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir og
Guðfinnur Jakobsson en þau hafa
öll lagt stund á varðveislu og endur-
nýjun hinnar fornu íslensku matar-
hefðar, hvert með sínum hætti.
MATUR-SAGA-MENNING
Hlutverk félagsins er að
efla þekkingu á íslenskum
mat og vekja áhuga á þeim
menningararfi sem felst I
þjóðlegum matarhefðum.
Markmið félagsins er að
kynna gildi íslenskrar mat-
arhefðar.
Félagið mun meðal annars
kynna framleiðslu á matvæl-
um og þjóðlegum réttum
frá mismunandi tímum og
áhöld, gripi og annað sem
mótaði íslenska matarhefð.
Félagið mun efna til sýn-
inga, kynninga og fræðslu-
funda um íslenskan mat.
Hannes Lárusson mun fjalla um ís-
lensk drykkjarföng og hvernig hægt
er að nota íslenskar jurtir við gerð
þeirra, meðal annars við bruggun.
Hildur Hákonardóttir kynnir
sölvatekju sem hún stundar sjálf af
kappi og nytjar þeirrar fornfrægu
nytjajurtar.
Guðrún Hallgrímsdóttir kynnir
íslensk ber og sveppatínslu sem hún
þekkir af langri reynslu. Ætlunin er
að hafa til sýnis sem flestar berjateg-
undir úr íslenskri náttúru sem nýtast
til sultu- og saftvinnslu eða annarrar
matargerðar.
Að siðustu mun Guðfinnur Jakobs-
son fræða gesti um fjallagrös, öflun
þeirra og nytjar.
Fundurinn fer fram í Grandagarði
8 (gegnt gömlu verbúðunum) mið-
vikudagskvöldið 26. september kl.
20:30. Fundurinn er öllum opinn og
er aðgangur ókeypis.
Uppskeruhátíð býflugnabænda
Uppskeruhátíð býflugnabænda
verður haldin í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum sunnudaginn
23. september milli kl. 14 og 16 í
veitingatjaldi garðsins. Býflugna-
bændur af sunnanverðu landinu
kynna býflugnarækt og koma með
sýnishorn af uppskeru sumarsins.
Þeir munu gefa gestum að smakka
eigin framleiðslu af hunangi sem
verður slengt beint úr búinu á
staðnum. Einnig verður takmarkað
magn íslensks hunangs til sölu.
Sýndar verða lifandi býflugur í sýn-
ingarbúri og að auki gefst gestum
tækifæri til að skoða og fræðast
um býflugnabúið í garðinum.
Kynnt verður efnið bývax og ýmis
útbúnaður sýndur. Sú hefð hefur
myndast að Kvenfélagasamband ís-
lands haldi sultukynningu á sama
tíma og að þessu sinni munu konur
úr Kvenfélaginu Hvöt í Sandgerði
koma með sultur sínar og kerti.
Hægt verður að bragða á afrakstri
haustsins og uppskriftum dreift til
gesta.