blaðið - 22.09.2007, Síða 33
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
33
„Þetta eru
okkar menn!"
að er óhætt að óska lög-
reglunni til lukku með vel
heppnaða aðgerð í fyrradag
þegar fíkniefni að verð-
mæti hundruð milljóna voru tekin
úr skútu á Fáskrúðsfirði. Þótt ég
viti ekki meira um það mál en
komið hefur fram í fréttum verður
ekki betur séð en vel hafi verið að
verki staðið. Þarna þurfti íslenska
lögreglan að bregða sér í sjald-
gæfan bófaleik og allt sýnist hafa
gengið upp. Undarlegast er líklega
að horfa upp á viðbrögð Þórar-
ins Tyrfingssonar hjá SÁÁ þegar
hann var spurður hvort þessi
stóri fengur lögreglunnar myndi
ekki slá rösklega á framboðið á
eiturlyfjum hér á næstunni - og
hann taldi svo ekki verða. Nú
veit Þórarinn efalaust meira um
þennan markað en ég, en það er
óneitanlega hálf hrollvekjandi
ef ekki munar neitt að ráði um
6o kíló af amfetamíni á íslenska
fíkniefnamarkaðnum.
Hverjum var efnið ætlað?
Meðan ég var í fyrradag að
fylgjast með fréttum af atburðum á
Fáskrúðsfirði, þá varð mér einmitt
hugsað til þeirra sem þessi stóra
sending af dópi var ætluð.
Skyldu nú allir þeir sem stunda
það að fá sér línu af spítti þegar
þeir fara út að skemmta sér um
helgar sitja heima við útvarpstækið
og gnísta tönnum af reiði yfir því
að bévuð lögreglan hafi verið að
skipta sér af innflutningi á efninu
„þeirra“?
Svo mikið magn af eiturlyfjum er
nefnilega ekki aðeins ætlað hinum
langt leiddu eiturlyfjasjúklingum
sem alltaf eru dregnir fram þegar
fjallað er um eiturlyfjavandann
- krakkarnir með sprautunálarnar
lafandi í handleggnum, föl og tekin
andlitin, flóttalegt augnaráðið,
skjálfandi fingur.
Ætiað„venjulegu" fólki
Onei, þetta gífurlega magn er
náttúrlega fyrst og fremst ætlað
„venjulegú' fólki. Því fólki sem fer út
að skemmta sér um helgar og telur
sig þurfa á eitrinu að halda til þess
að halda út heila nótt á skemmti-
stöðunum, til þess að fjörinu linni
aldrei, til þess að orkan verði óþrjót-
andi. Þetta fólk hefur áreiðanlega
líkt og ég fylgst með fréttum af
atburðum á Fáskrúðsfirði og frekar
Vinalegi dílerinn
sem gaukar að fólki
grammi af spítti fyrir
helgina, nánast af greiða-
semi, hann getur varla
átt neitt skylt við gengi
handrukkara og ofbeldis-
manna.
samsamað sig með löggunni en
ekki bófunum, af því það telur sig
vera heiðarlegt og löghlýðið fólk
- svona í stórum dráttum. Og telur
sig vera óralangt frá hráslagalegum
veruleik sprautufíklanna - þó það
fái sér í nös öðru hverju.
Og vinalegi dílerinn sem gaukar
að því grammi af spítti fyrir helg-
ina, nánast af greiðasemi, bara svo
fólk skemmti sér betur, sá almenni-
legi díler getur varla átt neitt skylt
við það gengi handrukkara og of-
beldismanna sem nú virðist að hafi
staðið í smyglinu á Fáskrúðsfirði.
Innkaup
En þetta er nú bara óvart allt
sama tóbakið. Vinalegi dílerinn er
vissulega á snærum handrukkara
og ofbeldismanna. Efnið í snyrti-
lllugi Jökulsson skrifar
um fíkniefnasmygl
lega litla umslaginu sem dílerinn
laumar að manni, það er vissulega
það sama efni og örvæntingarfullir
sprautufíklarnir dæla í æðar sér
og verður þeim oftar en ekki á end-
anum að bana.
Þeir sem telja sig nota fíkniefni
bara svona öðru hverju sér til
ánægju og gleði, af því þeir ráði svo
vel við það, en FÍKNIEFNAVAND-
INN margumtalaði, hann komi
þeim ekkert við, þeir verða nú eig-
inlega að hugsa sinn gang. Þeir eru
nefnilega ekki í liði með löggunni
og okkur hinum. Þeir eru í liði
með smyglurum, handrukkurum,
steratröllum, barsmíðaföntum og
hnífastrákum - því það eru menn-
irnir sem sjá þeim fyrir spíttinu og
gleðipillunum um helgar. Og þeir
bera líka fulla ábyrgð á þeim ógæfu-
sömu einstaklingum sem leiðast æ
lengra út á braut eiturlyfjanna uns
loks er engin leið til baka - því það
eru innkaup þeirra sem halda mark-
aðnum gangandi.
Gleðipilia um helgar...
Því segi ég við unga fólkið
sem fær sér gleðipillu um helgar,
háskólanemana sem fá sér bara
eina línu að gamni, skrifstofudís-
irnar, bankamennina, fjölmiðla-
stjörnurnar og alla hina - horfið
á smyglarana leidda með lambhús-
hetturnar sinar út úr lögreglubíl-
unum í sjónvarpsfréttunum, horfið
á handrukkarana geifla sig framan
í myndavélarnar og hlæja storkandi
að fórnarlömbum sem þeir hafa
lúskrað á - og segið svo með stolti:
„Þetta eru okkar menn!“
LEIRKRUSIN
Ný námskeið í leirmótun að hefjast
hjá Leirkrúsinni á Álftanesi.
Handmótun - rennsla - rakúbrennsla
Opið verkstæði alla daga.
S: 564 0607
www.leir.is
r
Hjá okzkurfáíð fíð mXlelð ún/al af
feermw, dq fyrír böriAXtA,
W
v
www.babysam.is
FÖSTUDAGAR
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðið=
LÍFSSTÍLLBÍLAR