blaðið - 22.09.2007, Page 50
50
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007
blaóió
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Kate Moss er líklega sú kona sem hefur haft hvað
mest áhrif á tískuvitund ungra kvenna undanfarin
ár. Því er ekki furða að stór verslunarkeðja líkt og
TopShop hafi falast eftir samstarfi við fyrirsætuna.
STAÐREYNDIR
Heimsþekktar konur hanna föt fyrir almenning
Skemmtilegar vörur
í snyrtiveskið
Eyeshadow Thunder frá MAC Thund-
er-augnskugginn úr Blue Storm-línu Mac
er fallega blár og sérlega heppilegur í
hverskyns skyggingar. Liturinn er sans-
eraður og kemur vel út ásamt Ijósum
tónum, auk þess sem hann getur sett
flottan svip á augnlokin ef hann er notað-
ur einn og sér.
I'm Going Woman frá Puma Nýr og
ferskur ilmur frá Puma fyrir dömuna.
Kvenleg blóma- og ávaxtaáhrif eru aðal-
uppistaðan I ilminum og tónar tangeríu,
safaperu, sólberja, flauelsjasmínu og
annarra blóma einkenna fágaðan ilminn.
Skemmtilegur og nýtískulegur ilmur sem
ætti að henta öllum konum. Einnig er
ilmurinn l'm Going Man fáanlegur fyrir
herrann.
Nail Envy frá O.P.I Sérstaklega góð
styrking fyrir þunnar og viðkvæmar negl-
ur sem farnar eru að láta á sjá. Best er
að bera tvö lög af efninu á neglurnar, en
fylgja því svo eftir með einu lagi á degi
hverjum. Neglurnar verða fallegri og heilli
en áður, auk þess sem þær klofna síður.
Ljóst og náttúrulegt frá Lancome
Gloss númer211 úrnýjustu vörum
Lancome er náttúrulegt á lit og myndar
fallegan, mildan blæ á vörunum. Ljósbleik-
ur liturinn passar við hvað sem er og má
því nota á ballinu sem og I vinnunni. Þá
er glossið virkilega flott yfir aðeins dekkri
varalit.
Eftirsóttir fatahönnuðir
Klæðaburður frægra
kvenna vekur gjarnan
eftirtekt og ófáar
þeirra verða að tísku-
fyrirmyndum sinnar
kynslóðar. Undanfarin
ár hafa stórfyrirtæki
leitað eftir samstarfi við
þekktar konur sem þykja
hafa einstakan stíl.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
Á síðustu tveimur árum hafa
forsvarsmenn stórra tískuverslana
séð sér hag í því að fá heimsþekktar
konur til þess að hanna fyrir sig
fatalínur. Sumar stjörnur kjósa
þó að hanna undir eigin nafni en
eitt eiga þessi nýju merki sameig-
inlegt: það eru fræg andlit á bak
við þau sem gefa þeim forskot í
tískubransanum.
Farsælt samstarf systra
Haust- og vetrarlína leikkon-
unnar Siennu Miller er komin í
búðir en fötin þykja ákaflega vel
heppnuð. Miller hannar ásamt
systur sinni, Savannah Miller,
undir merkinu Twenty8Twelve en
heitið vísar til afmælisdags leik-
konunnar. Sienna Miller hefur í þó
nokkurn tíma vakið mikla athygli
og hefur þótt vera ein helsta tísku-
fyrirmynd ungra kvenna ásamt
Kate Moss, því var við því að búast
að Miller sæi sér hag í að hanna föt
fyrir ungar konur.
Tvíburasysturnar Mary-Kate
og Ashley Olsen hafa ýmist verið
taldar til best eða verst klæddu
kvenna í heimi. Olsen-systur hafa í
þó nokkurn tíma hannað föt undir
merkinu The Row en þær líkt og
Miller-systur hafa staðið undir
öllum kostnaði sjálfar. Upphaflega
FRÆGIR í FATAHÖNNUN
Madonna, J-Lo, Lily Allen,
^ Beyoncé, Victoria Beckham,
Milla Jovovich og Jessica
Simpson hafa allar hannað
föt fyrir konur á ýmsum
aldri. Jessica Alba hefur
hannað barnaföt, Gwen
Stefani hefur hannað bæði
föt og fylgihluti og Mariah
Carey hannar undirföt.
►
Af frægum karlmönnum eru
fjölmargir rapparar sem
hanna föt en þeirra á meðal
eru P. Diddy, 50 Cent, Emi-
nem, Snoop Dogg, Pharell
Williams, Kanye West, Nelly
og Jay-Z
samanstóð vorlína The Row aðeins
af 28 hlutum en þar sem línan
þótti velheppnuð var ákveðið að
tvöfalda upplag haustlínunnar og
nú hafa systurnar einnig bætt við
sig öðru merki sem kallast Eliza-
beth and James. Hönnun systranna
er í miklu uppáhaldi hjá ungum
leikkonum en meðal þeirra helstu
aðdáenda eru Selma Blair og Kirs-
ten Dunst.
Spænska leikkonan Penelope
Cruz hefur ásamt systur sinni
hannað fyrir verslunarkeðjuna
Mango, eina stærstu verslunar-
keðju Spánar. I Cruz-línunni er að
finna bæði hversdagslegan fatnað
og fína kvöldkjóla en systurnar
lögðu áherslu á að konur á öllum
aldri, af öllum stærðum og gerðum,
gætu notið hönnunar þeirra.
Ódýr föt ætluð öllum
Kate Moss er líklega sú kona sem
hefur haft hvað mest áhrif á tísku-
vitund ungra kvenna undanfarin
ár. Því er ekki furða að stór verslun-
arkeðja líkt og TopShop hafi falast
eftir samstarfi við fyrirsætuna.
Hönnun Moss hefur engu að síður
Penelope og Monica Cruz Hönnuðu
föt fyrir verslunarkeðjuna Mango.
fengið misjafnar viðtökur. Vorlínan
átti að endurspegla fataskáp Moss
sjálfrar og voru áberandi rokkaðar
flíkur í bland við bóhem-strauma.
Haustlínan þykir betur heppnuð
en Moss hefur einna helst verið
gagnrýnd fyrir það að fötin hennar
henti engan veginn venjulegum
konum þó að þau fari henni vel.
Konur víðs vegar um heiminn
biðu spenntar eftir hverjum þætti
af Sex and the City til þess eins að
sjá í hverju aðalpersónan, Carrie
Bradshaw, klæddist. Hin smávaxna
leikkona Sarah Jessica Parker í
hlutverki Bradshaw varð fljótlega
tískufyrirmynd fjölda kvenna og
er því ekki skrýtið að hún hafi
verið fengin til þess að hanna föt
en það hefur hún gert í samstarfi
við verslunarkeðjuna Steve & Barry
en Parker hannar undir merkinu
Bitten. Markmið leikkonunnar var
að hanna ódýr en falleg föt en allar
flíkurnar kosta undir 1500 krónum.
Vetrarvörumar komnar
Treflar, Slœður, Tóskur, Skartgripir mikið úrval
Best klæddir
David Bowie, Steve McQueen,
Bob Dylan og George Clooney eru
meðal þeirra manna sem tíma-
ritið GQ segir best klæddu menn
síðustu 50 ára en blaðamenn tíma-
ritsins settu nýlega saman lista
yfir þá menn sem hafa þótt betur
klæddir en aðrir í gegnum tíðina.
Verslanir nota
feitari gínur
Eins stærsta verslunarkeðja
Bretlands ætlar að nota gínur í
stærð 14 í fyrsta skipti en flestar
búðargínur hafa hingað til verið
í stærð 4. Verslunarkeðjan John
Lewis verður með þessa stærð af
gínum á meðal hinna. Fyrirtækið
hefur verið að koma til móts við
kröfur kvenna og hefur hætt
að nota eingöngu ofurgrannar
konur til þess að auglýsa föt fyrir
venjulegar konur, en fyrirsæta í
stærð 12 var notuð til þess að aug-
lýsa sundfatnað keðjunnar í vor.
Það var suðurafríska fyrirsætan
Lauren Moller sem sat fyrir en
henni hafði áður verið hafnað
af fjölda umboðsskrifstofa þar
sem hún þótti of feit. Talsmaður
John Lewis sagði það þó ekki hafa
verið auðvelt að finna fyrirsætu
í þessari stærð. „Við hringdum í
fjölda umboðsskrifstofa en engin
þeirra sagðist hafa svo stórar
konur á sínum snærum. Okkur
brá heldur við þetta. Konur í
stærð 12 eru ekki einu sinni ítur-
vaxnar. Þær eru grannar.“
Misty skór
Laugavegi 178
Sími 551 20 70
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Liftu þér upp í flottum leður-
skom í stœrðum 36-41 á
kr. 8.450,-
Mjög flottir í stœrðum 36-41 á
kr. 8.450,-