blaðið - 22.09.2007, Síða 54
54
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007
blaóiö
FÓLK
Nei, hann er
alveg priceless!
folk@bladid.net
Var þá kossinn á 100 kall?
Lísbet Harðardóttir er skemmtikraftur og umsjón-
armaður æskulýðsstarfs Isafjarðarkirkju, sem seldi
faðmlög í gær á fimmtíu krónur, en ágóðinn mun
renna í ferðasjóð til þátttöku í Landsmóti æskulýðs-
félaga á Hvammstanga í október.
HEYRST HEFUR
Stefán Eiriksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, þótti
fara á kostum við opnun lestr-
arátaksins „glæpafaraldurs" í
Eymundsson í Austurstræti
síðastliðinn fimmtudag. Stefán
las þar kafla úr einni eftirlætis-
glæpasögu sinni, Svartur á leik,
eftir nafna sinn Stefán Mána.
Fyrir upplesturinn sagði Stefán
að gott væri ef glæpir flyttust
alfarið inn í bókabúðir og héldu
sig þar á síðum bókanna. Sagð-
ist hann vona að glæpafaraldur-
inn í Eymundsson yrði umsvifa-
mikill. Stefán sagði
einnig að skoða
mætti að lengja
afgreiðslutíma bóka-
verslana um leið og
opnunartími
skemmti-
staða yrði
styttur...
fris Edda Byrjaði seint að
syngja, en segist hvergi
nærri hætt Blaðið/Goll
íris Edda Jónsdóttir sannar hið fomkveðna
Betra seint en aldrei
Fyrrum alþingismaðurinn
Sæunn Stefánsdóttir hefur nú
fundið sér annan starfsvettvang.
Mun hún vinna að sérverk-
efnum fyrir rektor Háskóla
íslands auk annarra hefðbund-
inna starfa skrifstof- m
unnar. Má segja að
kona komi í konu Vjt*
stað, því Halla jfec/ék.
Sverrisdóttir,
sem gegndi
starfi verk-
efnisstjóra
á skrifstof-
unni, ákvað
að snúa ekki
aftur úrfæð-
ingarorlofi
Stærsti fíkniefnafundur ís-
landssögunnar hefur væntan-
lega ekki farið framhjá mörgum,
sérstaklega ekki Fáskrúðsfirð-
ingum. Er um fátt annað rætt
í plássinu þessa dagana enda
ærin ástæða til, þar sem bærinn
hefur sjaldan lent í öðru eins.
Þó svo að heimamenn telji málið
ekki ákjósanlega kynningu fyrir
bæinn sinn, hafa þeir þó húmor-
inn í lagi. Kalla þeir nú skútuna
sem sigldi með fíkniefnin í höfn-
ina fátt annað en spítt-bát...
íris Edda Jónsdóttir er 44
ára gömul skrifstofukona
á Landspítalanum. Hún
er einnig söngelsk amma
sem gaf nýverið út sína
fyrstu sólóplötu sem nefn-
ist Kona á mínum aldri og
er til sölu í Hagkaupum.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Tónlistin hefur alltaf verið í mér
og ég hef sungið frá því ég man eftir
mér. Þetta kemur víst frá mömmu.
Ég hef verið í kórum síðan ég var
sjö ára og það hefur alltaf verið
draumur minn að gefa út sólóplötu,"
segir íris sem byrjaði þó ekki að
syngja opinberlega að heitið getur
fyrr en örlítið eftir þrítugt.
Aldrei of seint að byrja
„Þá lét ég þennan söngdraum ræt-
ast og henti mér í djúpu laugina
má segja. Ég fór að syngja á böllum
og börum úti á landi og var með
hljómborðsleikara mér til stuðn-
ings. Einnig var ég í hljómsveitinni
Tilþrifum og við spiluðum víða um
land. Síðan fórum við maðurinn
minn, Viðar Arnarsson, að ræða
um framhaldið. Hann hefur nú svo-
lítið vit á þessu, var umboðsmaður
Bubba Morthens í mörg ár. Hann
sagði að ég væri vel útgáfuhæf og
talaði við Halla Reynis og Hörð
Torfa um að útvega mér lög og texta
fyrir plötuna. Ég hef því miður ekki
þessa hæfileika til að semja sjálf og
fékk því þá færustu til að hjálpa mér
við það.“
Auk Harðar Torfa og Halla Reynis
koma Bjarni Tryggvason og Orri
Harðarson að laga- og textasmíðum.
Vilhjálmur Guðjónsson útsetur og
leikur á gítar, saxófón og trompet,
Ingimundur Óskarsson plokkar
bassann og Einar Valur Scheving
lemur húðir.
„Það er frábært að vinna með
svona fagmönnum. Þá syngur Biggi
í Gildrunni dúett með mér í einu
lagi og Friðrik Ómar sér um bak-
raddirnar. Þetta er mjög fjölbreytt
plata, með reggí, kántrí, rokkblús
og ballöðum sem og hefðbundnum
popplögum.“
Blóð, sviti og tár
Þrátt fyrir ungan aldur er íris
orðin amma. Hún á þrjá syni sem
allir hafa sýnt henni stuðning.
„Sá elsti er sérstaklega hugfanginn
af þessu framtaki og finnst þetta
mjög flott. Ég hef leyft þeim öllum
að fylgjast með frá upphafi og þeir
hafa allir mjög gaman af þessu. Það
KONAN
íris vinnur á hjarta- og
nýrnadeild Landspítalans
Hún er í söngkennslu hjá
Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur
í FÍH
Heimasíða írisar er www.
irisedda.com
er kannski ekki alvanalegt að fólk á
mínum aldri helli sér út í þetta svona
fyrirvaralaust, enda þarf heilmikið
hugrekki til. Það er heilmikil vinna
á bak við svona plötu. Maður vinnur
sína dagvinnu, fer síðan í söngskól-
ann og þaðan í upptökuverið. Þetta
tók samtals tíu mánuði hjá okkur og
því léttir að koma henni út. En ég er
hvergi nærri hætt, enda bara rétt að
byrja. Ég mun gefa út fleiri plötur,
þó að það verði kannski ekki strax á
næsta ári,“ segir íris sem óttast ekki
frægðina.
„Ef af henni verður er ég ágætlega
undirbúin; hef haft 44 ár til þess!“
segir íris hlæjandi. „Nei annars,
ég held mig alveg á jörðinni, enda
margar plötur gefnar út á hverju ári.
Það er aðeins byrjað að spila lögin á
öldum ljósvakans og það er frábær
tilfinning," segir íris að lokum.
BLOGGARINN..
Bjórsektir
„Líklega eru þeir nokkuð óheppnir sem
keyptu 4-5 heilsíðuaugiýsingar til þess
að auglýsa bjórinn sinn ídag. Líklega sáu
flestir þessar auglýsingar sem kostuðu fyr-
irtækið nokkrar milljónir, en þeir eru vænt-
anlega að leita að umtali og ákæru. Hvað
væri betra en að fá ákæru, þeir eyða
nokkrum milljónum í þessar auglýsingar,
fá feiknalega umræðu um bjórinn sinn
og á endanum fá þeir sekt sem er minni
en það sem meðal starfsmaður borgar í
stöðumælasektir á nokkrum vikum. “
Tómas hafliðason
eyjan.is/goto/tomash
Sögulegt hnupl
„Ég hefheyrt að Samtök verslunar og þjón-
ustu ætli að flytja hingað til lands á næstu
vikum Brian O'Hara búðarþjóffrá Bret-
landi. Brian mun þá líklega flytja erindi á
Nordica um búðarþjófnað sinn sem stóð
sleitulaust frá árinu 1996-2002. [...jTelja
verður líklegt að Brian 0 'Hara búðarþjófur
áriti ævisögu stna ÍEymundsson einhvern
daginn sem hann dvelur hér en bókina
skrifaði hann ÍHolloway fangelsinu á árun-
um 2002-2004 en þá afplánaði hann ein-
mitt dóm fyrir þetta markverðasta hnupl
sögunnar. I bókinni segir hann einmitt frá
æsilegum flótta sínum frá Lundúnum til
Swindon í Ford Fiesta árg. 1994 en það
var einmitt iSwindon sem hann náðist er
hann reyndi að stela skinkusamloku og
núðlusúpu í Tesco. “
Guðmundur Brynjólfsson
blogg.visir.is/gb
Valkvíði
„Nú þegar maður les þrjú dagblöð á hverj-
um degi og fær þannig þrjár stjörnuspár,
getur verið erfitt að ákveða hverri á að
trúa. Kannski maður hlusti bara á eigin
innri rödd og taki þvísem upp kemur?"
Vigdís Stefánsdóttir
vigga.blog.is
LAUGARDAGAR
tÐLAUSTÍSKA
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðið=
Su doku
9 8 7 2 4
3 8 9 2
4 6 3 8
1 7 4 3
2 6
8 3 1 5
4 6 2 7 5
5 8 7
6
Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERMAN
eftir Jim Ung
ilakkaföt
útsala
er
11-12 C LaughlngStock InternationaJ Inc7dist. by United Media. 2004
Hva, þú lítur bara út eins og Doddi
mágur. Hann er með stutta handleggi.