Orðlaus - 01.07.2005, Qupperneq 17
„Ég hef ekki hugmynd um það, þú
verður bara að spyrja aðstandend-
urna. Þeim fannst það greinilega
góð hugmynd. Ég hef unnið svona
klassík áður, en ekki gert mikið að
því. í september kemur út sinfón-
íuverkið mitt sem Þórir Baldursson
útsetti og var flutt fyrir nokkru
síðan. Ég fer einmitt út eftir tvær
vikur til þess að taka það upp með
sinfóníuhljómsveit Búlgaríu. Ég
hef bara gengið frá útgáfumálum
varðandi það stykki í Frakklandi,
en á von á því að það muni jafnvel
koma út hér líka."
-Þú ert greinilega fær á ansi
mörgum vígstöðvum. Hvernig
kom til að þú ákvaðst að vinna
tvær plötur með Bubba Mort-
hens ? Og hvernig varsamstarf-
ið?
„Hann bað mig um það. Og ég gat
ekki sagt nei. Þegar Bubbi Mort-
hens biður þig um að vinna með
sér segirðu ekki nei, það er bara
svoleiðis. Samstarfið sjálft var svo
frábært, Bubbi
er eðalmaður.
Við hittumst
öðru hverju yf-
ir langt tímabil
en tókum síðan
góða törn fyrir
rest. Yfirleitt
fór þetta þann-
ig fram að hann
kom með kassa-
gítarinn og spilaði tiltekið lag, svo
bætti ég ofan á það hljóðfærum,
fékk tónlistarmenn til að leika
undir. og gerði tilraunir með. Ég
er titlaður útsetjari á plötunum,
„producer" heitir það á ensku.
Gæti ég hugsað mér að vinna með
honum aftur? Bókað," segir Barði.
Hann er enginn gasprari eða spjátr-
ungur, Barði. Talar heldur lítið og
virðist jafnvel halda aftur af sér.
Að kúpla sig út
úr ábyrgðarstörfum
Að sögn Barða er hljómsveitin
Bang Gang, hans aðal-verkefni síð-
ustu árin, enn í fullum gangi þrátt
fyrir urmul annarra sem hljóta þó
að taka sinn tíma. „Hljómsveitin er
búin að vera aðeins til baka upp
á síðkastið, en við erum bráðlega
að fara spila í Japan og á festivali
í Frakklandi. Védís Hervör mun
syngja með mér þar. Platan [Somet-
hing Wrong] kom út núna í síðasta
mánuði í Bretlandi og er væntan-
leg í Japan bráðlega. Henni hefur
að mér vitandi verið vel tekið, ég
hef verið að fá góða dóma í öll-
um blöðunum sem skipta máli."
Þrátt fyrir að þessi verkefnaskrá
kunni að gefa til kynna talsverða
velgengni Bang Gang segir hann
hljómsveitina ekki hafa slegið í
gegn að ráði. „í Frakklandi er ég
ekkertþekktur, bransafólkog mús-
íkblaðamenn vita helst hver ég er,
en andlitið á mér vekur enga sér-
staka athygli og þetta er ekkert
mjög kommersjal dæmi. Ég held
að síðasta plata hafi selst í um
15.000 eintökum þar."
-Stundarskráin þín virðist
engu að síður talsvert þétt
skipuð. Hvernig er dæmigerð-
ur dagur hjá Barða? Er mikið
álag á þér?
„Ég vakna yfirleitt í kringum níu
á morgnana og stússast kannski í
sem nemur venjulegum vinnudegi
fólks. Að því loknu geri ég músík.
Ég er eiginlega alltaf bara heima
og hitti sjaldan fólk. Þetta er búið
að vera mjög gaman, en er núna
farið að vera svolítið erfitt því það
er alltaf meira og meira... þetta
vindur bara upp á sig. Maður þarf
stundum að kúpla sig út úr ábyrgð-
arstörfunum - svara alls kyns fólki
um hitt og þetta, gera alla skap-
aða hluti - stundum neyðist ég
til að setja það á pásu í smátíma.
Vera leiðinlegur og láta skilaboð
liggja ósvöruð. En það er sjald-
gæft, ég er mjög skipulagður og
ef eitthvað þarf að gerast, þá er
það gert."
Fólk verður
bara að þola það
-Ertu farinn að ieggja drög
að næstu Bang Gang plötu?
Hvernig verður söngmálum á
henni háttað?
„í ágúst er ég búinn að bóka mig
í að leikstýra tveimur myndbönd-
um, með Bubba og Cynic Guru.
Þegar því er lokið mun ég hefja
vinnu við nýja plötu. Ég ætla að
syngja þessa plötu sjálfur, það
verða engir gestasöngvarar utan
þess að Keren Ann syngur eitt lag.
Fólk verður bara að þola það. Það
er frekar nýtilkomið að ég syngi,
ég hef yfirleitt eitthvað muldrað í
lögunum okkar en á síðustu plötu
söng ég talsvert. Það átti ekkert
að verða svoleiðis, ég gerði nokk-
ur demó sem ég söng inn á og í
kjölfarið þröngvaði útgáfan mín
mér til að syngja meira. Verður
tónlistin betri með mig að syngja?
Þetta verður ekkert betra svona:
ég hef aldrei litið á mig sem söngv-
ara. Ég get samt alveg gert það. Ef
það þarf að gera eitthvað, þá er
það bara gert."
Týnda kynslóðin
Tal okkar beinist að íslenskri tón-
list og ástandi hennar. „Sumt gott,
sumt vont," segir hann, en lætur
fátt annað uppi.
Hvað varðar
ástand íslensks
tónlistarlífs seg-
ir Barði að sér
þyki vanta kyn-
slóð í íslenskt
tónlistarlíf. „Sú
sem er fædd í
kringum '80-'82.
Hvaða tónlistar-
fólk á þessum aldri er að gera ein-
hverja músík, það vantar bara allt
þarna? Hvarer þettafólk?Mérsýn-
ist yngra liðið, þeir sem eru núna á
aldrinum 18-20 ára, vera að koma
inn með eitthvað skemmtilegt, en
hjá kynslóðinni á undan hef ég
ekki tekið eftir neinu." Hann ber
þessa týndu kynslóð við sína eig-
in, „þar var fullt af frambærileg-
um hljómsveitum. Sjáðu til dæmis
Popp í Reykjavík myndina, þar eru
Mínus [í græðlingaformi reyndar,
sem Spitsignj, Quarashi, allt þetta
sem var þá í gangi og er enn. Við
Sölvi Blöndal og Henrik úr Singa-
pore Sling útskrifuðumst saman,
vorum þrír í árgangi. Það mætti
taka mun fleiri dæmi." Barði ger-
ir það þó ekki, svo næsta spurning
kemst fljótt á dagskrá.
-Hvaða tónlistarfólki dreymir
þig helst um að vinna með?
Sú [kynslóð] sem er fædd í kring-
um '80-'82. Hvaða tónlistarfólk
á þessum aldri er að gera ein-
hverja músík? Það vantar bara
allt þarna, hvar er þetta fólk?
NIVEA KREM GELgefur
hárgreiðslu þinni öruggt
hald án þess að verða
stíft og er mjúkt
viðkomu meðan
það er sett í. Hið
nýstárlega NIVEA
CREAM GELbygg-
ir sveigjanlega
umgjörð um hvert
hár sem gefur því
sveigjanleika og held-
ur greiðslunni án þess
að hárið verði stíft. Pant-
henol og B3 vítamín viðhalda rakajafnvægi
hársins og koma í veg fyrir að það þorni.
Notkun: Mótaðu og endurmótaðu hárið hvenær
sem þú vilt með litlu magni í þurrt eða rakt hárið.
2004
Tónlist fyrir myndina And Bjork
of Course.
Frumsamin tónlist við kvikmynd-
ina HAXAN. Frumflutt á tónleik-
um í „Forum des images" í París
sýnt á sjónvarpsstöðinni Cine Ci-
nema.
Tónleikar á ýmsum tónlistarhátíð-
um í Evrópu með Bang Gang svo
sem Les Nuits Botanique í Belgíu,
Montreux í Sviss, Arezzo Wave
festival á Italíu og Palermo Ov-
erground festival á Sikiley.
Frumflutningur á tónlist og stutt-
myndinni Red Death í Centre
Pompidou í París.
Tónlist við heimildarmyndina
Islenska Sveitin sem sýnd var á
STÖÐ 2.
2005
Þátttaka í samsýningunni Dress-
ing ourselves í Triennale í Mil-
anó.
Höfundur og þátttaka I útsend-
ingu á verkinu HAXAN fyrir Sin-
fóníuhljómsveit íslands
Stýrði upptökum á tveimur plöt-
um Bubba Morthens, Ást og I 6
skrefa fjarlægð frá paradís.
NIVEA hárvörurnar
- Þegar þú vilt að greiðslan haldist
og að hárið sé þægilegt viðkomu.
Þessi var hentar vel stuttu
og axlarsíðu hári.