Orðlaus - 01.09.2005, Qupperneq 16
ERTU RAS
Fannst þér allt í einu þess virði að búa aðeins áfram á íslandi þegar þú heyrð-
ir fyrst í hljómsveitinni Hjálmar? Fórstu sérstaklega í hárlengingu til að geta
verið með dreadlokka? Áttu Jamaica fána sem hangir fyrir ofan rúmið þitt?
Ertu með Ijón tattúverað á upphandlegginn? Reykirðu mikið hass? Trúirðu
því að Guð hafi talað í gegnum Bob Marley? Á fólk ekki að ganga í gerviefn-
um? Ræktarðu kannabis? Stefnirðu á að rækta kannabis? Finnst þér gaman í
fótbolta? Finnst þér gaman að skökkum fótbolta? Hefurðu séð myndina The
Harder They Come oftar en fimm sinnum? Ertu oftast í víðum fötum?
Segðirðu Ja Man í staðinn fyrir að segja Já maður? Finnst þér eins og þú sért
negri, jafnvel þó þú hafir fæðst á Islandi og heitir Þórkatla eða Þormar? Bara
andlegur negri...
Ef þú svarar þessu öllu játandi þá eru ansi miklar líkur á því að þú sért Rasti
eða í það minnsta eitthvað afsprengi af Ra
Hæ
Lassi Lassi!
Fæstir íslendingar vita raunveru-
lega hvað rastafari merkir þrátt
fyrir að hafa heyrt minnst á þetta
í reaggelögum oftar en einu sinni
og oftar en tvisvar. Sannleikurinn
er sá að Rastafariar eru meðlimir í
sértrúarflokki. Sértrúarflokki sem
trúir því m.a. að Guð hafi mætt á
nýjan leik í mannsmynd á jörðu í
konunginum Ras Tafari sem réði
ríkjum í Eþíópíu árið 1928. Árið
1930 varð hann keisari og tók sér
þá nafnið Heile Selassie (Hæ lassi
lassi). Heile Selassie var mikill um-
bótasinni og hafði ýmsar góðar
kenningar á lofti. Meðal annars
kenningar um að blökkumenn
sem slíkir væru afkomendur Eþí-
ópíubúanna sem talað er um í
Biblíunni. Hann var á því að allir
blökkumenn yrðu að safnast sam-
an í Afríku, og þá aðallega í Eþíóp-
íu (Africa Unite), til þess að heim-
ur þeirra yrði betri.
Rastafariartóku Haile Selaissie og
gerðu hann að guði líkt og kristn-
ir gera Jesú að guði sjálfum. Haile
sjálfurvarsamtekkisammálaþessu
e n d a
bara "venjulegur"
kristinn maður, fyrir utan það að
vera Ijónið af Júda off kors. Kom-
um að því síðar.
Svartir gyðing-
ar í hörbuxum
Rastafari trúin er að mörgu
leyti einskonar blanda af hreinni
kristni og hreinum gyðingdómi.
Rastar forðast til dæmis ákveðin
matvæli líkt og gyðingar. Þar á
meðal svínaket, skelfisk, kaffi og
margt annað sem þeir telja vera
óhreint, en í þriðju Mósesbók
er einmitt upptalinn langur listi
af því sem telst óhreinn matur.
Rastarnir vilja heldur ekki ganga
í því sem þeir kalla óhrein föt og
leggja því mikið uppúr að ganga
bara í ekta efnum, en ekki nylon
og pólíester.
Fyrir Rastafarium er hinn vest-
ræni heimur synd og skömm.
Skömm sem þeir kalla sín á milli
Babylon og til að undirstrika það
hversu mikið skítapleis Babylon
er, þá halda þeir því fram að Babyl-
16
Græjur fyrir verðandi Rastafaria:
Bækur: Áhugamál:
Biblían og ævisögur Bob Biblían. Matur. Hass. Reagge.
Marley og Haile Selaissie Ska. Kynlíf. Matur. Biblían.
Bíómyndir: Starf:
The harder they come. Broken Flowers. Bob Marley, live. Ekkert frekar. Bíll:
Föt: Allt sem er úr hampi. Helst ekki. Hjól er betra.
bómull eða höri. Orðaforði:
Iþróttir: Jah is mighty (Guð er mikill),
Ja man! Africa Unite. Move
Færa jónuna að og frá munni og sparka aðeins í bolta annað slagið. out of Babylon. Man...
on muni falla
og því sé vissara að halda sig
bara í Afríku. Afríka er fyrirheitna
landið, Síon, og blökkumenn eru
hinir réttu Hebrear.
"Bob Marley und-
irstrikaði þetta
kannski þegar
hann söng lagið
No Woman No Cry.
Verum lausir við
kjéllingarnar og
slökum á saman"
Enginn kjélling,
ekkert væl!
Af einhverjum ástæðum fer ákaf-
lega lítið fyrir konum í rastafa-
ritrú og 99% allra mynda sem við
sjáum af röstum eru af körlum.
Bob Marley undirstrikaði þetta
kannski þegar hann söng lagið
No Woman No Cry. Verum lausir
við kjéllingarnar og slökum á sam-
an. Við karlarnir. Engar kjélling-
ar, ekkert væl! Eitthvað kannast
maður við þetta. Rastafaritrú er
ekki sú eina sem virðist hafa náð
að "deleta" konum úr trúarbrögð-
um þannig að það virðist vera að
þetta sé bara karlatrú. Ha?
Á Jamaica, þar sem hvað flestir
Rastar búa, þykja feitar konur
fallegri en þessar mjóu sem við
dýrkum svo og dáum. Þetta kem-
ur að sjálfssögðu vel út fyrir þess-
ar feitu, en hinar sem grennri eru
ganga stundum ekki út, þrátt fyr-
ir að vera fyrirmyndarstelpur. Til
þess að reyna að auka
á útgöngumöguleika sína hafa
sumar tekið upp á því að nota
dýrahormóna til að fita sig, eða
hormóna sem eru ólöglega not-
aðir til þess að fita skepnur. Ein
af ástæðum þessa er sú að matur
hefur geysilega þýðingarmikið
hlutverk í lífi Rastanna og kona
sem er feit kona, þýðir það sama
og kona sem borðar mikinn MAT.
Hærra minn Guð til
þín, hasspípan er mín
Við vitum öll að rastar reykja
hass meira en flestir aðrir. í það
minnsta svona út á við. Þetta hef-
ur verið eitt af þvi sem gerir trú-
arbrögð þeirra meira áberandi
en önnur, enda eru þeir ekkert
að pukrast með sitt hass. Ástæð-
an fyrir þessum glennuskap með
hassið er að þeir hafa trúarlega
afsökun fyrir reykingunum. Hass-
reykingar eru fyrir þeim enginn
fíkniefnavandi heldur leið til að
komast í samband við vin sinn Jah,
eðaGuð, ogskiljasannleikannbet-
ur. Hassins er neytt á ýmsan máta,
jafnvel borðað í salati með mat og
svo er tekið til við Biblíulestur og
túlkun.
Til dæmis tókst þeim að túlka
þessa setningu: Betri er einn
skammtur kálmetis með kærleika
en alinn uxi með hatri (Orðskvið-
irnir 15:17), sem: "Reyktu hass því
þaðtengir þig Guði". Þetta er nátt-
úrlega alltaf spurning um hvernig
maður "túlkar" ekki satt?
Life is a dread
Hin "bráðskemmtilega" hár-
greiðsla, dreddar, mun vera tákn-
ræn fyrir makka Ijónsis af Júda
en það spilar stórt hlutverk í trú-
Mar9rétHugrún ;
arbrögð-
um Rastanna. Nafn-
ið Haile Selassie sem "Jesúinn"
þeirra tók sér við krýninguna
merkir „máttur þrenningarinnar"
og hann var líka kallaður konung-
ur konunganna, lávarður lávarð-
anna og Ijónið af ættkvísl Júda
eins og talað er um í Biblíunni, í
Opinberun Jóhannesar... (til hvers
að vera með hógværð þegar mað-
ur velur sér "nikk"?).
Því miður hefur þessi hárgreiðsla
dreift sér sem tískufyrirbæri til
annarra menningarsamfélaga og
í dag eru það ekki bara hassreykj-
andi, karlmennsku- og fitubollu-
dýrkandi blökkumenn frá Jama-
ica sem bera þetta dú, heldur má
sjá næpuhvíta millistéttardrengi
úr Garðabæ, spóka sig um með
dreads án þess að hafa minnstu
glóru um að með þessari greiðslu
séu þeir að líkjast Ijóninu af Júda,
sem talað er um í Biblíunni.
Glaðir negrar í
góðum gír
Um ein milljón manna aðhyllist
nú rastafaritrú, aðallega á Ja-
maíku og í Bandaríkjunum. Hún
er til i mismunandi útgáfum og
áherslan á að safna öllum blökku-
mönnum til Afríku hefur minnk-
að og I staðinn er lögð áhersla
á að gera Jamaíku að vænlegra
þjóðfélagi fyrir fólk af afrískum
uppruna; að „afríkanísera" hana.
Enda vesen fyrir mannskapinn að
vera að flækjast þetta til Eþíópíu.
Góða hugmynd um nútíma rasta-
mann má sjá í Jim Jarmush mynd-
inni Broken Flowers sem er í bíó
þessa dagana.