Orðlaus - 01.09.2005, Page 20
Texti og myndir:
Steinunn Jakobsdóttir og Hrefna Sverrisdóttir
FRANCISCO
San Francisco er einstaklega litrík og fjölskrúðug borg þar sem karlar og konur af öllum
þjóðernum lifa saman í sátt og samlyndi. Borgin býður upp á ótrúlega mikið af skemmti-
Íegum stöðum til að skoða, Golden Gate brúna, Alcatraz fangelsið, skemmtileg söfn, fjöi-
breytta veitingastaði, stóra almenningsgarða og fjörugt næturlíf. Nú er heldur ekkert mál
að koma sér þangað þar sem lcelandair býður upp á beint flug. Við mælum með Hotel
Renoir sem er staðsett við aðal götu borgarinnar og eina hótelið sem er umkringt öllum
samgönguleiðum. Borgin skiptist í nokkur mismunandi hverfi sem öll hafa sinn sjarma og
sitt sérstaka andrúmsloft og þar er hægt er að ramba inn á alls kyns fína og furðulega staði
á ferðunum upp og niður brattar hæðirnar sem borgin er byggð á. Til að auðvelda ferðina
og sjá sem mest er því gott að skipta tímanum niður eftir svæðum:
NORTH BEACH
Hverfið þar sem unga fólkið heldur sig er rétt norðan við Chinatown og kallast North
Beach. Þetta er ítalskt hverfi og því mikið af góðum ítölskum veitingastöðum og úti-
kaffihúsum. Göturnar Columbus og Broadway eru auk þess troðnar af skemmtistöð-
um þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ef þú vilt byrja kvöldið á
meira afslappaðri stemningu mælum við með því að þú kíkir á Tosca sem er skemmti-
legur, lítill, dimmur bar með djúkboxi þar sem hægt er að slaka á með glas af góðu
víni áður en haldið er út á lífið. Það er aldrei að vita nema þú rekist á Sean Penn þar
sem hann er fastagestur á barnum.
CHINATOWN
Einsog í fjölmörgum stórborgum er Kína-
hverfi í San Francisco og þangað flykkjast
túristar í stríðum straumum til að versla
minjagripi og annað skran. Chinatown er
eitt elsta hverfi San Francisco, fullt af litl-
um búðum sem selja kínaskó, kínajakka,
skartgripi, ávexti og kjúklinga í búrum.
Þar eru líka hinar fínustu tebúðir þar sem
hægt er að setjast niður og smakka alls
kyns furðulegar blöndur þar til þú finnur
bragðið sem þér líkar.
20
CASTRO
San Francisco hefur verið þekkt sem draumaborg sam-
kynhneigðra, en 15% íbúa hennar eru samkynhneigð-
ir og er það hærri prósenta en í nokkurri annarri borg
í Bandaríkjunum. Castro hverfið er mekka samkyn-
hneigðra í borginni og er Castro street hjarta þess
þar sem aragrúi af skemmtistöðum, litlum börum, hár-
greiðslustofum og nuddstofum af ýmsu tagi standa
hlið við hlið og eru máluð í öllum regnbogans litum.
Hverfið einkennist af fjörugu næturlífinu þar sem
samkynhneigðir, jafnt sem gangkynhneigðir stunda
skemmtistaðina grimmt og djamma fram á nótt við
æpandi danstónlistina.
SOMA
Hér er allt í kring mikið af klúbbum sem lífga upp á hverfið eftir að myrkrið
skellur á. Við kíktum á staðinn End Up sem er opinn alla daga fram á nótt. Þegar
við duttum þar inn á sunnudagskvöldi var staðurinn troðinn af alls kyns fólki af
öllum stærðum og gerðum og allir alveg hrikalega hressir. Á dansgólfinu döns-
uðu samkynhneigðir, gagnkynhneigðir og klæðskiptingar allir saman í einni kös
og úti í stórum garðinum var hægt að sitja í rólegri stemningu og blaðra við
mannskapinn.