Orðlaus - 01.09.2005, Side 36
Hann var á leið á diammið. Búinn að skemmta sér mikið undan
farið en vandinn var að kellingarnar voru bara ekki að bíta á.
Hann var með öll færi úti en veiðin hafði síðustu mánuði verið
engin. Þetta var farið að leggjast á sálina og svo hann ætl
aði að lækka standardinn, reyna við einhverja sem var kannski
pinu feit, eða með skakkar tennur. Bara svona til að skora ör
ugglega
Hún hafði verið að djamma með vinkonu sinni sem að venju
hafði horfið. Um leið og sætur strákur var í sjónmáli hvarf hún
eins og fyrir töfra. Birtist þó oft aftur með stórar yfirlýsingar
um hversu miklir fávitar karlmenn væru og lét eins og ekkert
hefði í skorist. Því sat hún nú við barinn og beið. Ætlaði að
gefa vinkonunni korter i viðbót - annars færi hún heim.
Rétt í því sem skotin
koma kemur einhver
"hvalur í pilsi" og treð-
ur sér á milli þeirra.
Kappinn var búinn að fylgjast með henni
smá stund og hún var greinilega ein. Sat
þarna við barinn á Ölstofunni greinilega
ekki í miklu stuði með tómt glas fyrir fram-
an sig. Ekkert frábærlega falleg, pínu of
þung og verr máluð en hann hefði kosið,
en þetta slapp samt. Þar sem kallinn hafði
ekkert veitt um kvöldið ákvað hann að
stökkva á hana, skrúfa frá sjarmanum og
draga heim.
Kallinn rétti úr sér,
gekktil hennarörugg-
um skrefum og opn-
aði með línunni sem
alltaf sió í gegn. "Þú
ert bæði falleg og klár
og það er ekki oft sem
1 + 1 gerir 2" sagð'ann
um leið og hann nikk-
aði barþjóninn og bað
um áfyllingu handa
dömunni. Hann hall-
aði sér að barborðinu
og spurði í framhaldi
- hvað er svona mynd-
arleg dama að gera hérna ein. Hún fór
greinilega hjá sér. Bingó-hugsaði hann.
Greinilega athygliþurfi. Pottþétt skor ef
maður bara raðar inn hrósinu. Hann tók
upp símann - glænýjan Nokia sem keyptur
var í gær og smellti af henni mynd. "Rosal-
ega myndastu vel - ertu kannski módel"
sagð'ann þar sem hann stóð við barinn
og virti afrakstuinn fyrir sér. Myndin var
reyndar mjög slæm, nánast svört því eng-
in birta var á staðnum, og hún var eins og
risastór rauður depill á símaskjánum - en
línan var alveg að virka. Hún roðnaði og
flissaði. í framhaldi ákvað hann að segja
aðeins frá sjálfum sér, svona rétt til að sýna
fram á að hann væri nú sjálfstæður maður
á framabraut. "Ég er með mína eigin bíla-
sölu hérna niðri í bæ - sko. Gengur rosal-
ega vel. Fræga fólkið kemur oft og kaupir
bíla hjá mér - Herbert Guðmunds var ein-
mitt að kaupa Toyotu hjá mér í gær" sagði
hann um leið og hann nikkaði barþjóninn j
og pantaði sér annan bjór.
Rétt í því sem hann er að fara að segja j
henni frá BMW-inum sinum spyr hún I
hvort hún megi hringja. Eitthvað um vin-
konu sem stakk af - hann var í raun ekki
að hlusta. Notar tækifærið og virðir hana
fyrir sér meðan hún reynir ítrekað að ná j
sambandi. Jú, veistu - hún er nú ekkert svo
Ijót. Ætli það sé ekki best að klára dæmið |
með bragði sem aldrei
klikkar.
Nikkar barþjóninn [
einu sinni enn og bið-
ur um tvær fullnæg-
ingar - passar að hún
heyri hvað hann er að
panta. Rétt í því sem [
skotin koma kemur ein-
hver "hvalur í pilsi" og |
treðursérá milli þeirra.
Sú er algerlega óða-
mála yfir einhverjum j
persónulegum vanda-
málum - eitthvað um |
skilnað, ömurlega karlmenn og 13 börn.
Hann reynir ítrekað að ná sambandi við
höstlið aftur en hvalurinn er alltaf fyrir. |
Rétt í því sem hann er að gefast upp og
fara einn heim snýr hún sér að honum og
segist þurfa að sinna vinkonunni. Segir að
sér þyki það leitt og að kvöldið hafi verið |
skemmtilegt, þakkar fyrir drykkina greini-
lega svekkt yfir trufluninni.
Hann ákveður að gefa þessu einn sjens |
í viðbót. Bíður á barnum í ca. 20 mínútur
áður en hann fattar að vandamál hvalsins |
verða greinilega ekki leyst á nokkrum mín-
útum. Hann lætur sig því hverfa en hugsar |
að hann ætli að koma aftur á Ölstofuna
um næstu helgi, leita kellinguna uppi og
klára dæmið. Þetta hefði pottþétt virkað
ef hvalurinn hefði ekki eyðilagt allt. Hann |
tekur leigubíl heim - einn að venju.
Ótrúlegt hvernig henni
tekst alltaf að höstla
flotta stráka meðan ég
sit uppi með lúðana.
Hún hafði tekið eftir honum nokkru áður.
[ Pínu púkalegur stákur sem hafði greini-
lega farið í allar réttu búðirnar og keypt
öll réttu merkin - en var greinilega alveg
blindur á hvað átti saman. Brúnn jakki,
bleik skyrta og svartar gallabuxur (sem í
ofanálag voru aðeins of stuttar) eiga ekki
saman. Hann hafði verið að glápa á hana í
I meira en korter.
Hún leit upp og sá hvar hann var að staul-
| ast í átt til hennar,
með greinilegan kort-
[ er í þrjú glampa í aug-
unum. Hún reyndi að
líta undan til að forð-
ast augnsamband, en
hann tróð sér upp við
barinn og kom með
j þessa líka ömurlegu
pickuplínu. Hann pant-
[ aði annað glas handa
henni áður en henni
gafst tóm til að svara
og bætti við annari kli-
sju. Langaði að hreyta
einhverju í hann en ákvað að bíða aðeins,
hún fengi þá kannski góða sögu í versta-
viðreynslubankann hjá vinkonunum. Eitt
glas enn var líka vel þegið, hún var blönk
og það var búið að loka visakortinu. Helga
[ vinkona hvergi í sjónmáli til að redda fjár-
málum kvöldsins og kannski fátt annað að
| gera en að spjalla við þetta grey. Allt í einu
dregur hann upp síma og smellir af mynd.
| Spyr - "Ertu módel?" kommon. Hún þurfti
hreinlega að snúa sér undan til að hann sæi
| ekki að hún væri farin að hlægja að honum.
Þvílíkar línur. Ætli hann trúi því virkilega að
þetta sé leiðin til að heilla konur. Fer svo
að tala um einhverja hallærislega bílasölu
og hvað hann þekki mikið af frægu fólki.
Húrra fyrir þér hugsaði hún um leið og þús-
und flóttaleiðir runnu í gegn um hugann.
Þetta var reyndar of fyndið til að sleppa
því, hægt að lifa á þessu næstu mánuðina.
Svo pantar hann sér annan bjór, eins og
hann sé ekki nógu drukkinn fyrir.
Klukkanerorðin hálffjögurog húnákveð-
ur að tékka á Helgu vinkonu, hún er búin
að vera helvíti lengi i burtu. Sjitt-inneignin
búin. Hún verður að fá að hringja hjá trúðn-
um. Helga svarar ekki, hún er sennilega
farin heim með einhverju sólbrúnu vöðva-
tröllinu. Ótrúlegt hvernig henni tekst alltaf
að höstla flotta stráka meðan ég sit uppi
með lúðana.
Þegar hún er rétt búin
að gefast upp á Helgu
kórónar hann ömur-
legheitin með því að
panta fullnægingu.
Þarna fór hann alveg
yfir strikið - þetta er
hætt að vera fyndið.
Hún grípur tækifærið
samstarfskona birtist
á svæðinu og dregur
hana að barnum. Passar
að við það ýti hún bíla-
salanum í burtu. Hann
stendur áfram eins og
kjáni við barinn - fær reyndar kredit fyrir
þrautseigjuna því hann er ekki að gefast
upp. Að lokum snýr hún sé að honum og
segir að það hafi komið upp smá neyðar-
tilfelli - samstarfskonan sé í tómu tjóni og
sem góð vinkona verði hún að sinna henni.
Þakkar fyrir drykkina og dregur samstarfs-
konuna með sér inn á bað þar sem saga
kvöldsins er rakin.
Þegar hún kemur út af klósettinu um hálf-
tíma síðar er hann sem betur fer búinn að
láta sig hverfa. Er orðin þreytt og pirruð
eftir ömurlegt kvöld og er á leiðinni út þeg-
ar barþjónninn kallar. Heldurðu að helvítis
lúðinn hafi ekki sleppt því að borga reikn-
inginn. Sem betur fer sleppur kortið í gegn
þó ekkert sé inni á því og um leið og hún
gengur heim (á ekki fyrir leigubíl) ákveður
hún að hringja í hann daginn eftir og rukka
helvítið.
ÍPÖBBA
lÍLOVE
36