Orðlaus - 01.09.2005, Page 42
POPP&KOK& OGEÐ
- ÐjöfDir _er (sland frábært!
-Reykjavík" ltka."Hérsé gröska,”
vín og villtar meyjar. Hér sé
heimili andagiftarinnar, kaffi-
húsanna, Sigur Rós (nýja plat-
an...!), múm! Trabant! Múg-
íson! Kímónó! Skátar! Björk!
Sling! I Adapt! Og fleira! Og
fleira! Buttercup! Reykjavík
er kannski ekki alltaf heimili
vinaleikans (þeir sem fá hvergi
fram fyrir í röð geta vottað
fyrir um það), en hún er
svo sannarlega opinber
íverustaður andagiftarinn-
ar. Og hvað annað en hið
æðisgengna íslenska um-
hverfi getur verið orsök
þessa: rímna- og sagna-
hefðin, fjöllin og Þingvell-
ir? Okkar eigin sérstæði sér-
stakleiki. Hvergi annarsstaðar
í heiminum eru jafn margar
hljómsveitir per ferkílómet-
er. Hvað annað gæti útskýrt
þennan gífurlega stormsveip
snilligáfunnar sem við höfum
orðið svo tilfinnanlega vör við
síðustu áratugi. Svo vör að við
þurfum að gefa út átta lífstílss-
blöð á mann til að koma öllum
hpccum cnillinmjm á forsíðurn-
arog Mnnsíðurnar, miNi_auglýs-_
~ingá um fartölvur og helvítis
Rob Schneider í öllum bíóhús-
um landsins.
Nema hvað, það væri glatað að
ætla öllu þessu hæfileikafólki
einhverja næfileika. Nei, það er
eitthvað í vatninu hérna sem fram-
leiðir snillinga. Þetta hefur líka
þægilegar afleiðingar. í stað þess
að öll snilldarverkin séu afrakstur
ótaldra vinnustunda dugmikilla
og hæfileikaríkra einstaklinga eru
þau afrakstur umhverfisins og okk-
ar góðu gena og þannig getum við
a) dregið úr gildi einstaklinganna
sem bjuggu þau til (og þannig ver-
ið sáttari við okkur sjálf) og b) eign-
ast hlutdeild í þeim og því. Þannig
getum við, hvar sem við förum
I heiminum, verið fulltrúar snilli-
gáfunnar, því við deilum jú vatni,
umhverfi og erfðamengi með öllu
þessu kraftaverkafólki.
í alvöru talað, þá er helvíti fínt
að búa hérna. Hér sé gott fólk og
vinalegt, fljótlegt að komast milli
staða og lítill vandi að komast í
samband við hvern sem maður vill,
vilji maður það. Og fínar plötubúð-
Jr_(allavega -tvær),-goft -aðgengi-
að almenningssamgöngum og
fjölbreytt nám í boði fyrir þá sem
það vilja stunda. Og allt ofannefnt
tónlistarfólk er frábært og auðgar
vissulega lífið hér, hvort heldur er
með hressilegu tónleikahaldi eða
bara næs plötum. Flestir ættu að
kaupa sér nýju Sigurrósarplötuna,
fyrsta múmplatan er líka væntan-
leg rímasteruð og hana þarf líka
að kaupa. Kimono skífan er þung,
en lofar góðu. Svo eru þær sætir
og viðkunnalegir náungar. Og
enn er von á góðu stöffi; veturinn
verður líklega ágætur, ef kaldur,
en þá er lag að orna sér við heima-
smíðaða músík á Grand Rokk eða
heima í stofu.
Erlendis er líka fullt af næs stöffi
í gangi. Þeir sem hafa áhuga á ný-
tísku-gamaldags gítarrokki með
Ride, Sloan, mæbloddývalentæn
sjúgeiser stemmningu ættu að
dánlóda eða kaupa plötuna Turns-
tile Blues með ameríska bandinu
Autolux. Eins og að fara aftur í tím-
annog mamma mannsverðurskot-
inn í manni, þannig að maður þarf
að finna prófessorinn og beisla
eldingu til að komast aftur heim
-og lagfæra málirr Bara"bélrá.Tins~
verður aldrei of oft mælt með sam-
krullsverkefni krúttþjóðverjanna
Notwist og hinna gallsúru Them-
selves: 13 & God. Breiðskífan Men
of Station er rosaleg, rosaleg plata
sem ætti að falla öllum þenkjandi
tónlistaráhugamönnum í geð (og
líka hinum). Útpældir hljóðheim-
ar, góðar melódíur og Ijóðrænir
textar skapa Ijúfa heildarmynd
sem hentar vel í bæði afslöppun
og (einhverskonar) dans. Hún fæst
hjá Benna í Smekkleysubúðinni.
Decemberists eru líka bestir í
heimi (gefið þeim séns í svona tíu
spilanir og þið verðið sammála)
- breiðskífan Picaresque ber af öðr-
um í heiminum. Meðan beðið er
eftir nýju Kanye West plötunni er
líka margt vitlausara en að tsékka
á plötunni Be með félaga hans
Common, en henni er óhætt að
mæla með við hiphopunnendur
sem aðra cool einstaklinga. En það
er óþarfi að vera cool, cool er bor-
ing og klisjulegt. Betra er að vera
velmeinandi klaufi. Svo er nýja
Bob Mould platan mjög flott.
hauxotron@hotmail.com
TWISTED
minds
Tríóið Jói, Siggi og Pan mynda hip-hop hljómsveitina Twisted Minds
sem hefur verið starfandi frá því árið 1996. Síðan hljómsveitin var
stofnuð hefur tónlistin þróast mikið og allir vinna þeir nú að öðr-
um verkefnum með hinum ýmsu tónlistarmönnum þó að upphaflegi
kjarninn sé alitaf til staðar. Jói sem gegnur undir tónlistarnafninu
Rain fræddi Orðlaus um sveitina.
Hvað hafið þið verið að gefa út?
Á þessu ári höfum við gefið út
fimm sinnum. Fyrst gáfum við út
kasettu sem hét Garbage Music.
Síðan gaf Siggi út sólóplötuna
Distribution of Wealth, Pan hefur
gefið út tvær plötur á árinu og sól-
óplata frá mér, Rain, er nýkomin
út.
Hver gefur þetta allt út?
Bara við sjálfir.
Hvar er tónlistin fáanleg?
í öllum bestu plötubúðunum eins
og í Smekkleysu og 12 Tónum en
einnig I ígulker, Nakta apanum og
Brim. Síðan erum við með heima-
síðuna triangle-productions.com
og þar er hægt að nálgast lög með
okkur.
Hafiði verið að reyna að koma
ykkur á samninga við útgáfufyrir-
tækin?
Við erum búnir að fá fullt af við-
brögðum frá útlöndum en það ger-
ist alltaf allt svo hægt.
Hvernig myndirðu lýsa tónlist-
inni?
Hún er rosalega mismunandi. Þeg-
ar við vinnum þrír saman verður til
gjörólík tónlist heldur en þegar við
vinnum í sitthvoru lagi. Við reyn-
um bara að gera eins fjölbreytta
tónlist og við mögulega getum og
tökum rokk, elektróník og djass
inn i þetta.
Hvað með textagerðina? Eruð þið
pólitiskir?
Nei, við erum ekki mjög pólitískir.
Ég sjálfur reyni bara að skrifa um
allt sem ég lendi í. Stundum get ég
til dæmis bara verið að labba úti á
götu og fengið hugmynd að lagi.
Þið eruð sjálfir með stúdíó og tak-
ið þetta allt upp sjálfir. Fyrir þá
sem hafa áhuga á að semja og
koma sér á framfæri, hvað myndir
þú segja að væri fyrsta skrefið?
Það er að reyna að skipuleggja sig
geðveikt vel því þetta er ógeðs-
lega mikil vinna. Mesta vesenið
er nefnilega ekkert endilega að
semja tónlistina heldur að mixa
og mastera, gera plötuumslögin,
fá auglýsingar og redda sér viðtöl-
um.
Hverjir eru þinir helstu áhrifavald-
ar?
Það er úr svo miklu að velja. Ef ég
mætti mæla með einum gaur þá
væri það Buck 65 frá Kanada.
Ég fæ samt ekkert mestu
áhrifin frá hip-hopi. Ég
elska líka að hlusta á
djass, elektróník og rokk.
Þið eruð allir að vinna í
öðrum verkefnum,
ekki satt?
Jú, allt í allt
eru þetta átta
hljómsveitir.
Ég og Addi
í Forgotten
Lores mynd-
um dúettinn
HumanSubst-
ance og ég
og Pan vinn-
umundirheit-
inu Audio Improvement. Síðan
hef ég verið að gera sólóvekefni
undir nafninu Rain. Twisted Minds
er þó alltaf grunnurinn en ég skil
ekki hljómsveitir sem eru búnar að
spila saman í kannski tíu ár á n
þess að vinna með nein-
um öðrumt. Það hlýt-
ur að verða svolítið þreytt.
Hvað er siðan á döfinni?
Ég er að vinna að plötu með Adda
í Forgotten Lores. Við gerðum plöt-
una árið 2002 en útgáfan er búin
að tefjast en platan kemur út í þess-
um mánuði. Hljómsveitin Twisted
Minds mun síðan spila á Airwaves
hátíðinni þar sem við verðum með
live hljómsveit með okkur.