Orðlaus - 01.12.2005, Blaðsíða 21

Orðlaus - 01.12.2005, Blaðsíða 21
Stemmning Þar sem þessi plata er á fóninum, þar er eilift pönnukökuilmandi sunnudagseftirmiðdegi með uppdúkuð borð og malandi ketti. Ljúf rólegheit og líka dansleikur á ættarmóti, virðulega afslapp- að. Stemmningu og hljómi Push Play er best lýst með því að vísa til fyrstu plötu hljómsveitarinnar Bang Gang. Fyrir þá sem ekki þekkja hana má segja að hún sé róleg, stundum sorgleg (og eiginlega aldr- ei hressileg eða einusinni þannig að maður sæi flytjendurna fyrir sér brosandi), taktföst og mjög oft grípandi. Gráar, steinsteyptar borgir með rign- ingu og fullt af bílastæðahúsum, árið 1998. Pessu fylgir að hún er mónótónísk. Hún er Ijúf og róleg, en samt alveg æsandi og er- ótisk líka. Og aðeins reið í einu lagi. Hún fjallar um ástina og ástin er sennilega svoleiðis. Stemmning- in er mikið svona matarboð-á-sunnudagskvöldi eða jafnvel 11-á-björtum-laugardagsmorgni. Og allt þar á milli. Bestu lögin Isólgulu húsi er mjög skemmtilegt, en Krían sem fylgir er eiginlega skemmtilegra, það gera m.a. hress texti, barnakór og sniðugheit í hljóðfæra- leik. Tignarlegur tangótaktur Ég vaki kemur rass- inum á hreyfingu og lokatvennan, Fagra lif og 7/7- gangurinn, slær sannfærandi endanótu á verkið. Annars fer því best að vera spilað í heild. ElectronJohn og ThePop Catastrophe gripu þenn- an hlustanda fyrst af öllum, en einnig kunni hann vel að meta textann við Synthiu (eins og reyndar lagið sjálft). Annars fer þessari plötu best að spil- ast sem heild. Öll, meira eða minna, eftir skapi. The Gray, The Stingray, If you leave me now og Sparks fly hafa öll mikinn sjarma til að bera. En það gera líka hin ónefndu. Pau virka mjög vel i röð og segja jafnvel sögu. Að lokum Mikið er gaman að heyra af og til tónlist sem ang- ar ekki af sudda, sígarettureyk og samviskubitum, heldur er gleðileg i sjálfri sér. Harla gott! Push Play er fínasta plata. Metnaðarfull, smekk- lega unnin og aldrei hallærisleg eða leiðinleg. Væri ætlunin að finna á henni einhverja galla mætti segja að hún væri helst til flöt, laus við dýnamík og stílfæringar - svo er þessi eilífa sorg stundum aðeins of mikil. Þetta er nefnilega voða sorgleg plata. Eða svona indifferent. En það var kannski ætlunin? Allt í allt má mæla með henni í matarboðið og eins yfir góðri bók, með rauðvíns- glasi. Mikið afskaplega er gott að þessi plata er loksins komin út. Hana þurfti. Jóhann, 16. ára. Hver skrifaði söguna um Oliver Twist? Mark Twain. Hver var forseti á undan Ólafi Ragnari Grímssyni? Ég ætla að skjóta á Vigdísi. Eftir hvern er málverkið Mona Lisa? Leonardo Da Vinci. Hvað heitir höfuðborg Noregs? Osló. 1 1 Róleg, að mestu. Stundum reiðileg. Stundum há- tíðleg. Minnir um margt á Von-plötu Sigur Rósar en einnig á sumt múm og svo helling af dóti sem þú hefur aldrei heyrt um. Stemmningin sem myndi henta best er róleg en maður myndi alls ekki skella henni á fóninn í partýi. Tilvalin fyrir gott rauðvín, teppi og vinkon- ur. Einnig myndi hún henta vel við lærdóminn eða lestur góðrar bókar. Að mestu afslöppuð stemmning sem kemur manni þó í gott skap. Platan er í senn ævintýraleg, róleg og rómantísk og stemmningin magnast upp á köfl- um með kröftugum blástrinum og skemmtilegu samspili allra þeirra óliku hljóðfæra sem eru þarna samankomin. Frekar róleg og melódísk rokktónlist með skemmti- legu píanóundirspili sem verður reiðileg á köflum og hentar einkar vel á rólegum kvöldum. Tilfinningarík rólegheitastemmnig sem er fín fyr- ir róleg kvöld heima í hlýjunni með kertaljós og kakó. Stemmningin er bæði agressíf og róleg í senn og verður á köflum svolítið konfjúsing. Mér hefur fundist gott að hlusta á plötuna yfir uppvaskinu, og er það nokkuð hrós, því þaö eru alls ekki allar plötur sem ná í spilarann í eldhúsglugganum þeg- ar á að hamast á glösunum. Kittens in his pockets er skemmtilegt, en það er samt Drakúla Darling sem hefur innbyggð tölvumj- álm. Þau eru bæði mjög góð. En hvað er svosum lag? Lagiö Dýri kemst næst því að vera svoleiðis - og það er líka mjög fallegt. Svo á Toggi Sling gott inpút í Málfur Skinnytoe Junior. Fyrsta lagið sem greip mig var lagið My Delusions sem er einstaklega vel heppnað. Einnig finnst mér lögin Weather report og Precious mjög góð. Það er í rauninni ekkert lag sem mér finnst leiðinlegt. Lögin Beygja Og Beygja og hið drungalega The Doomed the Damned eru í sérstöku uppáhaldi. Út- setningin á Til eru Fræ er auk þess hreint frábær og síðast en ekki síst lagið Sumarnótt sem er alveg fast í hausnum á mér. Annars standa öll lögin að mínu mati fyllilega fyrir sínu og auðveldlega hægt að renna disknum I gegn aftur og aftur og aftur. Upphafslagið Losing Every Day er I sérstöku uppá- haldi, Someone, Somewhere sömuleiðis, enda afbragðs rólegheitaballaða. Chloe er mun meira hressandi og My Other Big Brother harðara og greip mig strax. Lögin eru hvert öðru betra en til að nefna nokkur þá eru Nupur Lala og Gimmie, Gimmie, Gimmie al- veg frábær, textinn I Placebos and Plastic Knives sérstaklega skemmtilegur og reiðilegur, fallegt gítar og píanósamspil i My Home Isn't Me gerir það að einu af mínum uppáhalds og Þórir hefði ekki getað endað betur en á 2 Minutes to Midn- ight. Mörg lög sem hafa mikið að bera og eru Girl og Sexy Dick, í sérstöku uppáhaldi. Þar er margt að gerast i einu og hlustandinn verður svolitið átta- villtur, sem er alltaf skemmtilegt Ef þú ert að leita þér að jólagjöf fyrir einhvern, þá er þetta kannski ekki besti kosturinn nema um sé að ræða ævintýragjarna þiggjendur. Fæstir kasjú- al músikhlustendur myndu gefa henni verðskuld- aðan séns - og þetta er plata sem þarf að játast eigi maður að meta hana að verðleikum. í heildina finnst mér platan mjög góð. Hún byrj- ar mjög hressilega á laginu Eternal fliss en róast siðan niður. Þó mætti segja að platan sé ekkert sérstaklega framúrstefnuleg og engir nýjir hlutir i gangi enda held ég að það sé ekki tilgangur henn- ar. Samt sem áður hin fínasta plata og mjög vel gerð “núbylgju" (ítaktviðtíðarandann) plata. Þetta er stórgóð plata sem sker sig úr í plötuflóð- inu, textarnir eru einfaldir og margir hverjir frem- ur fyndnir og dimm og lágstemmd rödd Benna passar einkar vel við tónlistina. Að lokum má hrósa Auði Jörundsdóttur sérstaklega fyrir plötu- umslagið. Platan telur 12 lög sem öll eru vel unnin, fjölmörg mjög grípandi og ekkert sem er beint leiðinlegt. Það sem mætti gagnrýna plötuna fyrir er að hún er helst til aðeins of einsleit og sem heild vantar herslumuninn til þess að ég nenni að renna plöt- unni allri í gegn oft og mörgum sinnum. Brothætt rödd Þóris minnir mann stundum á Bright Eyes, og eru lögin mörg einföld þar sem Þór- ir notast aðallega við kassagítarinn og sleppir öllu óþarfa skrauti. Trommur, píanó, bassi og fleiru bætir hann svo inn annars staðartil að gefa auka krydd og er hljómurinn allur sérlega skemmtileg- ur. Persónulegir og vandaðir textar þar sem Þórir veltir fyrir sér ástinni, eftirsjá, lífinu og tilverunni undirstrika einnig hvað hann er hæfileikaríkur tón- listarmaður. Lögin mörg frekar kaflaskipt þar sem rennur ekki beint rauöur þráður í gegn. Trommurnar eru sterk- ar en ég persónulega hefði viljað meira öskur og meira fútt. Þetta er engu að síöur fjölbreytt plata sem verður að hlusta á nokkrum sinnum til þess að hún síist inn. Hver var valinn sjónvarpsmaður ársins? Ég ætla að skjóta á Silvía Nótt. Helga Guðrún, 22. ára. Hver skrifaði söguna um Oliver Twist? Það var Charles Dickens. Hver var forseti á undan Ólafi Ragnari Grímssyni? Vigdís Finnbogadóttir. Eftir hvern er málverkið Mona Lisa? Það er eftir... manþaðekki. Hvað heitir höfuðborg Noregs? Osló. Hver var valinn sjónvarpsmaður ársins? Silvía Nótt. Svör: Hver skrifaði söguna um Oliver Twist? Charles Dickens Hver var forseti á undan Ólafi Ragnari Grímssyni? Vigdís Finnbogadóttir Með svona blöndu ferðu úr þvl að velta fyrir þér ástinni og tilgangi lífsins yfir i að hoppa upp á stól og stíga trylltan dans. Lagavalið er það mikið og fjölbreytt að það er erf- itt að telja upp bestu lögin, sér i lagi þar sem þetta er safndiskur, en mér finnst að minnsta kosti gam- an að eiga l've got a Date with my Television með Jakobínarínu á diski, sömuleiðis In Cod ive Trust með Ghostigital þó ólik séu. Lögin ýta undir eftir- væntingar eftir plötum frá sveitunum. Þó að margir séu eflaust búnir að dánlóda miklum hluta þeirra laga sem eru á disknum eða eiga lög- in á öðrum plötum þá er stór bæklingurinn sem fylgir með fullur af fróðleik um lög og flytjendur og gerir gripinn enn eigulegri. Auk þess eiga ef- laust margir eftir að uppgötva nýjar sveitir sem þeir höfðu ekki þekkt áður. Eftir hvern er málverkið Mona Lisa? Leonardo Da Vinci Hvað heitir höfuðborg Noregs? Osló Hver var valinn sjónvarpsmaður ársins? Silvía Nótt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.