Bændablaðið - 20.11.2007, Síða 10

Bændablaðið - 20.11.2007, Síða 10
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 200710 Bar sauðféð ábyrgð á landeyð­ ingunni? Um það spurði Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur á Haustþingi AkureyrarAka­ demíunnar sem efnt var til á dög­ unum en yfirskrift þingsins var: Sauðkindarseiður í ull og orðum. Alls voru flutt fimm erindi um hin ýmsu mál, sem öll þó tengdust sauðkindinni á einn eða annan hátt. Þá var efnt til sýningar á handverki, áhöldum og fatnaði af sauðkindinni, og í lok þings var boðið upp á gómsæta smárétti úr afurðum sauðkindarinnar sem Halastjarnan í Öxnadal hafði um­ sjón með. Hvenær var fyrst farið að tala illa um „íslensku ókindina“ eins og Árni Daníel nefndi erindi sitt? Réttarhöldin yfir henni hófust segir hann árið 1961 og þau stóðu yfir meira og minna til ársins 1990. Þá runnu upp bjartari tímar, sauðkindin var tekin í æ meiri sátt. Réttarhöldin yfir íslensku sauðkindinni fóru einkum fram í blöðum og tímarit- um, dagblöðum jafnt sem vísinda- tímaritum, en upphafið má rekja til greinar sem Sigurður Þórarinsson skrifaði árið 1961. Ýmsir náttúru- fræðingar munduðu einnig pennann og fetuðu í fótspor Sigurðar og það gerðu líka nokkrir sagnfræðingar. Helstu ástæður þess að umræðan um sauðkindina hófust telur Árni Daníel vera vaxandi fjölda sauðfjár á þessum tíma, sjálfstraust vísinda- manna hafði aukist til muna, land- búnaður var víkjandi atvinnugrein en sjávarútvegurinn vaxandi og að sama skapi óx þéttbýlinu ásmeg- in á kostnað sveitanna. Hápunktur umræðunnar stóð yfir á tímabilinu frá 1970 til 1990, en fljótlega upp úr því fór tónninn að breytast, hann varð jákvæðari í garð kindarinnar. Fyrst og fremst af völdum mannsins og sauðkindarinnar Sigurður sem áður er nefndur, Þór- arinsson taldi eyðingu skóga fyrst og fremst vera af völdum mannsins og húsdýra hans, einkum sauðkind- arinnar Í grein sem hann ritaði í Ársrit Skógræktarfélags Íslands 1961; Uppblásturinn á Íslandi í ljósi öskulaganna segir hann það mikinn ábyrgðarhluta að fjölga sauðfé í landinu svo sem gert hefði verið, „án þess að taka uppblást- urinn og orsakir hans til rækilegr- ar vísindalegrar athugunar, svo og beitarþol landsins. Búskapur, sem gengi á dýrmætasta kapítal lands- ins, sjálfa gróðurmoldina, myndi jaðra við glæp gagnvart komandi kynslóðum, og ekki er þekking- arleysið lengur til afsökunar.“ Vitnaði Sigurður í útlenda vís- indamenn sem kannað höfðu ís- lenska landeyðingu og voru sumir þeirrar skoðunar að sauðfé væri svo margt í landinu að til landauðnar horfði. „Ærið eru skiptar skoðanir, bæði meðal lærðra og leikra, bæði um orsök uppblástursins og umfang hans frá upphafi Íslandsbygðar. Sumir kenna nær eingönu um eyðingu skóga af manna völdum og húsdýra og þá ekki sízt vegna ofbeitar, aðrir reyna að fríkenna sauðkindina að mestu eða öllu og er jafnvel svo langt gengið, að telja sauðbeitina landinu til bóta,“ segir Sigurður í grein sinni. Einnig að forsvarsmenn sauðkindarinnar leiti orsakanna til uppblásturins aðallega í eldgosum og slæmu árferði. „Á síðustu árum virðist hafa gætt vax- andi tilhneigingar til að fría sauð- kindina af skuld í landeyðingunni,“ segir Sigurður og telur þá tilhneig- inu fremur sprottna af vaxandi áhuga fyrir fjölgun sauðfjár. Sjálfur er hann ekki í nokkrum vafa, meg- inorsök uppblásturs sé hvorki að finna í eldsumbrotum né versnandi loftslagi. „Maðurinn og sauðkindin eru megin orsök þess óhugnanlega uppblásturs, sem án afláts hefur rýrt vort dýrmæta gróðurland í „Íslands þúsund ár“. Íslenska ókindin komin fram í öllu sínu veldi Með þessu, segir Árni Daníel, hafi íslenska ókindin komið fram í öllu sínu veldi. Hann nefndi fleiri til sögunnar en Sigurð Þórarinsson, sem skrifað hefðu á þessum nótum. Gunnar Karlsson sagnfræðingur hafi til að mynda skrifað í Sögu Íslands að landbúnaður hafi aðal- lega verið reistur á rányrkju, „notk- un á gæðum hinnar villtu náttúru, en ekki ræktun.“ Ein hjáróma rödd hafi þó mælt á móti, Guttormur Sigbjarnarson skrifar grein í Náttúrufræðinginn 1969 og segir að flestum hafi orðið starsýnt á jarðvegseyðingu og leitað orsaka hennar t.d. í búfjárbeit, eyð- ingu skóga eða versnandi loftslagi. Í flestum tilfellum hafa niðurstöður þeirra verið lítt rökstuddar fullyrð- ingar, þar sem felstar grundvall- arrannsóknir hefur vantað á þessum sviðum. Þannig tókust á sú kenning að landsmenn hafi stöðugt gengið á gróðurinn og eytt skógum jafnt og þétt í 1000 ár, skuldinni var skellt á manninn og sauðkindina. Guttormur taldi aftur á móti að landeyðing væri komin til vegna þriggja þátta, beitar, kólnunar og eldgosa. Landeyðingin hefði ekki verið stöðug, heldur gróið upp á milli. Tónninn í umræðunni breytist í kringum 1990, enda var sauðfé þá ekki eins margt í landinu og áður. Þá skipti máli að nýjar rannsóknir sýndu miklu stærra gróðurlendi en áður var talið og nýjar rannsókn- ir bentu til að skógur hafi horfið á 50 árum, eftir 870, en ekki jafnt og þétt yfir lengra tímabil. Niðurstaða Árna Daníels er sú að beit hafi átt þátt í að jarðvegs- eyðing hófst, en ekki sé kindinni einni um að kenna, þar komi líka til naut og hestar. Sú dökka mynd sem dregin var upp af landeyð- ingu á tímabilinu 1960 til 1990 hafi þjónað samtímaþörfum, en hún hafi vissulega verið einsleit. Ástandið á 20. öld hafi verið mun betra en menn vildu vera að láta. Jón Jónsson þjóðfræðingur fjallaði um sauðfé og seið í sínu erindi. Hann var einn þeirra sem stóðu að því að koma Sauðfjársetrinu á Ströndum á laggirnar og vann ötullega að uppbyggingu þess, sem og fleiri söfnum og sýningum í þeim landshluta. Sjálfur kvaðst hann í erindi sínu lítinn áhuga hafa á sauðfé, nema þá helst til matar. Sögur af sauðfé kynni hann hins vegar að meta og eins nefndi hann rannsóknir á háttarlagi þess, hegðun, atferli og framkomu en Jón er ekki í vafa um að kindur séu gáfaðar og klókar skepnur. Hann ólst upp við sauðfjárbúskap, en þykir hann ein- kennast af veseni! Kaus fremur að sökkva sér ofan í bækur en að vasast í fénu væri þess kostur. Kindin er uppspretta sköpunar Guðrún Hadda Bjarnadóttir lista- kona og formaður Laufáshópsins fjallaði í sínu erindi um lífið kring- um sauðkindina og hvernig hún gaf fólki innblástur til vefnaðar, klæða- gerðar, útskurðar, leikja, og skáld- skapar. Forfeður og mæður höfðu með sér harðgert sauðfé, sem lifað hefur með íslensku þjóðinni frá landnámstíð, það fæddi okkur og klæddi, færði birtu, yl og innblást- ur. Ef ekki hefði verið fyrir sauðféð værum við ekki þjóð í dag, sagði Guðrún Hadda. Kindin var uppspretta sköp- unar. „Líf Íslendinga frá landnámi til vorra tíma hefur snúist meira og minna um sauðkindina. Allt frá því að halda lífi í þjóðinni í það að vera lifandi hraðavörn á vegum lands- ins. Þessu vorum við næstum búin að gleyma. Við gleymdum því að sækja mætti innblástur til þess sem alltaf hafði verið. Einhvern veg- inn misstum við áhugann á flestu því sem innlent var og sauðkindin varð undir. Hún varð ástæðan fyrir því að landið var að blása á haf út, ullin stakk og hljóp í þvotti. Gærur voru einnig nefndar þær konur sem þurfti að tala illa um. Kunnátta sem tilraunir og þróun í árhundruðir hafði byggt upp varð einskis virði. Gerviefnin tóku við, hið gamla gleymdist, varð að lygi. Lygin á upphaf sitt í söknuðnum, þeirri rómantík sem gyllir sögu okkar með efnislegum hlutum. Nú er bara reynt að líkja eftir hinum þjóðlega menningararfi með ódýrri fram- leiðslu. Þó það sé nauðsynlegt að líta fram á veg og vita hvert stefnt er, þá er ekki gott að gleyma hvað- an lagt var af stað,“ sagði Guðrún Hadda og vitnaði í hið fornkveðna „Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja, án fræðslu þess liðna sést ei hvað er nýtt.“ Búum fækkar en framleiðslan eykst Margt bendir til að framtíð sauð- fjárræktar sé bjartari nú en oft áður segir Jóhanna Pálmadóttir sauð- fjárbóndi á Akri sem flutti erindi á þinginu um fólk, fénað og framtíð. Jóhanna rifjaði upp að á einum áratug, frá 1997 og þar til nú hefði sauðfjárbúum fækkað um ríflega 800, en kindakjötsframleiðslan hefði engu að síður aukist um 744 tonn. Stífri kynbótastefnu er fyrst og fremst fyrir að þakka og betri fóðrun sem verður til þess að betri nýting fæst á hverja kind, meira kjöt sem þýðir hagkvæmari rekstur fyrir bóndann. Neysla landsmanna á lambakjöti hefur dregist saman um tæplega 3 kíló á ár, úr 25,8 kg 1996 í 23,2 kg í fyrra. Aukin kjötneysla kemur eink- um fram í svína- og kjúklingakjöti. Veldur minnkandi lambakjötsneysla Jóhönnu nokkrum áhyggjum, vissu- lega segir hún að það sé hátt skrifað þegar kemur að hátíðisdögum, en þegar kemur að hversdagsmatnum er lambakjötið á undanhaldi. Telur Jóhanna vel til fundið að bjóða aukið úrval tilbúinna eða hálftilbú- inna rétta úr lambakjöti, „til hæg- indaauka fyrir fólk sem virðist vera á fleygiferð alla daga og má varla vera að því að elda“. Þá nefndi Jóhanna einnig ímynd sauðfjárbænda sem væri þeim sjálf- um sem og landinu öllu mikilvæg. Of lengi hefðu bændur mátt sæta því að ímynd þeirra væri dregin upp í líki þeirra bræðra Magnúsar og Eyjólfs og eins hefði Gísli heit- inn á Uppsölum lengi verið nýtt- ur sem ímynd bóndans á Íslandi, hvorki honum sjálfum né bændum hafi verið gerður greiði með þeirri sýn. Þessi ímynd væri alls ekki viðunandi. Bændur væru upp til hópa hörkuduglegt nútímafólk og menntunarstig stéttarinnar hefði ört hækkað á umliðnum árum. Nýtni og aðhaldssemi bænda mætti vera öðrum til fyrirmyndar. Eins fjallaði Jóhanna í erindi sínu um jarðakaup auðmanna sem mikið hefði verið í umræðunni og eðlilegt að íbúar landsbyggð- ar hefðu áhyggjur af. Nefndi hún einkum uppsprengt verð jarða í því sambandi. Vissulega væri gott að bændur fengju gott verð fyrir jarðir sínar, en ungt fólk sem hug hefði á búskap réði ekki við það verð sem nú tíðkast. Annað sem nefna mætti í þessu sambandi snerist um menn- ingu í sveitunum í kjölfar þess að þéttbýlisbúar setjast þar að í aukn- um mæli að hluta til og eins væri vert að hafa áhyggjur af félags- legu hliðinni að mati Jóhönnu. Samfélagið byggði á samvinnu milli sveitunga, en þegar mjög fækkaði í sveitum væri t.d. erfitt að ná mannskap í smalamennsku. Myndir og texti: MÞÞ Sauðkindarseiður í ull og orðum á Haustþingi AkureyrarAkademíunnar: Beit átti þátt í jarðvegseyðingu en kindinni einni ekki um að kenna Íslenska sauðkindin átti hug og hjörtu gesta sem sóttu Haustþing AkureyrarAkademíunnar á dögunum, en yfir­ skrift þess var: Sauðkindarseiður í ull og orðum. Boðið var upp á gómsæta smárétti úr sauðkindinni að þinginu loknu og brögðuðust þeir einkar vel, en það var Halastjarnan sem hafði umsjón með veitingunum.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.