Bændablaðið - 20.11.2007, Page 30
Bændablaðið | Þriðjudagur 20. nóvember 2007
Á markaði
30
Í norska blaðinu Nationen þann
11. nóvember sl. segir frá heim
sókn Terje RiisJohansen til
pólska kúabóndans Stanislaw
Derbin. Með í för var ráðuneyt
isstjóri pólska landbúnaðar
ráðuneytisins. Derbin lætur vel
af ESBaðildinni og segir stuðn
ing ESB þýða að áburður og olía
verði ódýrari en áður. Hann er
með 23 Holstein kýr sem mjólka
að meðaltali 6000 lítra á ári
(meðalafurðir íslenskra kúa sam
kvæmt skýrsluhaldi voru 5.470
kg árið 2006 en þær eru líka
heldur minni). Mjólkurverðið er
2,70 norskar kr á kg (ca. 30 kr.
íslenskar).
ESB hefur veitt 17 milljörðum
evra í þróunaraðstoð í dreifbýli í
Póllandi. Þetta hafa pólskir bænd-
ur verið duglegir að notfæra sér og
fleira ungt fólk sér framtíð í að set-
jast að í dreifbýlinu en áður. Derbin
selur framleiðslu sína sjálfur og
segir fæsta bændur sjá samvinnu-
félög sem lausn á markaðsmálum
sínum. Samvinnufélög tengi þeir
líka við þá tíð þegar kommúnist-
ar voru við völd og menn hafa að
fullu sagt skilið við þann tíma.
Norski landbúnaðarráðherran
spurði hvort takmarkanir væru á
stærð svínabúa í Póllandi og hvaða
kröfur væru um aðgang að landi til
að dreifa mykju á. Engar takmark-
anir eru á bústærð og ráðherranum
til undrunar er ekki krafa um aðgang
að landi til að dreifa búfjáráburði á
nema á afmörkuðum svæðum þar
sem hætta á nitratmengun er talin
meiri en almennt.
Um helmingur af landbúnaðar-
landi Póllands er nýtt til búskap-
ar og er landið það fjórða stærsta
innan ESB sé litið til hveiti- og
mjólkurframleiðslu og í þriðja sæti
í svínaframleiðslunni.
Pólskir bændur hafa einnig tekið
upp byggða- og landbúnaðartengda
ferðaþjónustu. Ástæðan er sjálfsagt
sú að margir þeirra hafa ekki nægar
tekjur af landbúnaði einum og
verða að hafa aðra starfsemi til að
auka þær. Norski ráðherrann kynnti
sér þessa starfsemi en verðlagn-
ing var nokkuð önnur en hann átti
að venjast eða 30 krónur norskar á
nóttina!
Þess má að lokum geta að
Pólland varð aðili að ESB 1. maí
2004. Þar sem verðlag og allar
aðstæður voru með allt öðrum hætti
í A-Evrópu á þeim tíma var samið
um að pólskir bændur, sem og
bændur í öðrum A-Evrópulöndum,
fengju aðeins hluta þeirra styrkja
sem kollegar þeirra í V-Evrópu
njóta. Samið var um að bilið
þarna á milli minnkaði í áföngum
á nokkrum árum þar til þetta yrði
jafnað að fullu. Allur samanburð-
ur við hvernig ESB aðild kæmi út
fyrir íslenskan landbúnað er því
fráleitur eins og látið er liggja að
í netpósti Evrópusamtakanna þann
15. nóv. sl.
Stytt og endursagt EB
Pólskir bændur una
hag sínum vel í ESB
Hlutur matvöru í útgjöldum
heimilanna lækkar stöðugt
Hlutur mat- og drykkjarvöru í útgjöldum heimilanna hefur lækkað jafnt
og þétt undanfarin ár. Frá því í nóvember 2004 til nóvember í ár hefur
þetta hlutfall lækkað úr 15,1% í 12,1%. Meðfylgjandi tafla sýnir þró-
unina eftir helstu undirflokkum. Sem dæmi hafa búvörur án grænmetis
lækkað úr 5,8% í 4,9% og aðrar innlendar mat- og drykkjarvörur úr
5,8% í 4,3%. EB
2004 2005 2006 2007
Vísitala neysluverðs 100 100 100 100
Búvörur án grænmetis 5,8 5,6 5,4 4,9
Grænmeti 0,7 0,7 0,7 0,7
Aðrar innlendar mat- og
drykkjarvörur
5,8 5,2 4,7 4,3
Innfluttar mat- og drykkjarvörur 2,8 2,5 2,5 2,3
Mat- og drykkjarvörur samtals 15,1 14,0 13,4 12,1
Innflutningur á ostum og grænmeti í september
September
kg
Frá áramótum
kg
Frá áramótum
kr. cif verðm.
Ostur 8.931 140.328 97.716.666
Kartöflur 56.345 1.459.911 83.028.567
Tómatar 53.721 502.754 69.704.649
Nýtt blómkál og hnappað spergilkál 2.588 251.395 46.622.900
Nýtt hvítkál 14.000 585.198 15.519.232
Nýtt kínakál 211.795 20.992.546
Nýtt spergilkál 5.280 145.618 22.459.835
Jöklasalat 87.566 889.262 115.873.949
Annað nýtt salat 25.759 288.813 166.797.103
Nýjar gulrætur og næpur 22.890 668.735 80.823.333
Nýjar gulrófur 2.802 135.370 7.256.648
Gúrkur 11.022 142.521 22.999.794
Sveppir 12.640 134.011 48.513.207
Paprika 77.107 916.118 184.133.412
Ný jarðarber 29.005 288.290 169.919.472
Framleiðsla á kjöti í október var
6,8% meiri en í sama mánuði í
fyrra. Framleiðsla á hrossakjöti,
um 30,1% og á alifuglakjöti um
21,1% miðað við sama mánuði í
fyrra. Síðastliðna 12 mánuði hefur
framleiðsla á kjöti aukist um
9,2%. Mest munar um að fram
leiðsla alifuglakjöts hefur aukist
um 20,5%. Mest er framleitt af
kindakjöti, 32,5% af heildarfram
leiðslunni. Framleiðsla þess síð
ustu 12 mánuði er hálfu prósenti
meiri en árið á undan sem er í
takt við það sem búist var við.
Sala á kjöti var 4,6% meiri en
í sama mánuði í fyrra og sala síð-
ustu 12 mánuði. Mest hefur sala á
alifuglakjöti aukist, um 16,6% sl.
12 mánuði. Sala á svínakjöti hefur
aukist um 7,3%, nautgripakjöti
um 11,9% (sem svarar til fram-
leiðsuaukningar á sama tíma) og
hrossakjöti um 7,9%. Sala á kinda-
kjöti hefur hins vegar dregist saman
um 3,6%.
Meðfylgjandi mynd sýnir skipt-
ingu kjötmarkaðarins miðað við sl.
12 mánuði. EB
Yfirlit um framleiðslu og sölu á kjötvörum
Bráðabirgðatölur fyrir október 2007
okt.07 ágú.07 nóv.06 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
Framleiðsla 2007 okt.07 okt.07 október ‘06 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Alifuglakjöt 735.033 1.977.400 7.625.921 21,1 12,5 20,5 28,3%
Hrossakjöt 77.807 200.277 917.529 30,1 18,7 14,9 3,4%
Kindakjöt * 4.709.552 8.353.594 8.751.318 4,4 1,2 0,5 32,5%
Nautgripakjöt 370.922 986.849 3.515.800 12,1 10,1 12,0 13,1%
Svínakjöt 581.375 1.568.220 6.101.595 5,7 0,6 7,5 22,7%
Samtals kjöt 6.474.689 13.086.340 26.912.163 6,8 3,6 9,2
Sala innanlands
Alifuglakjöt 669.507 1.910.227 7.392.240 15,7 11,3 16,6 29,8%
Hrossakjöt 63.082 178.546 702.014 -3,5 11,7 7,9 2,8%
Kindakjöt 803.856 1.903.659 7.066.043 -3,2 -4,8 -3,6 28,5%
Nautgripakjöt 352.507 969.603 3.510.106 4,9 9,8 11,9 14,2%
Svínakjöt 581.285 1.568.613 6.102.759 5,7 -0,1 7,3 24,6%
Samtals kjöt 2.470.237 6.530.648 24.773.162 4,6 3,2 7,0
* Kindakjöt lagt inn samkvæmt útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
Innflutningur á kjöti
Fyrstu 9 mánuði ársins voru flutt
inn 673 tonn af kjöti. Mest er flutt
inn af alifugla- og nautakjöti, um
242 tonn af hvorri tegund. Tæp
178 tonn hafa verið flutt inn af
svínakjöti og 11 tonn af kjötvörum
úr þessum kjöttegundum. EB
Innflutningur, janúar-september 2007
Nautakjöt 242.016
Alifuglakjöt 242.150
Svínakjöt 177.756
Aðrar kjötvörur
af áðurtöldu
11.011
Samtals 672.933
Framleiðsla og sala á kjöti í októberHlutfall útgjalda samkvæmt vísitölu veysluverðs sem rennur til kaupa á drykkjar- og matvöru, nóvember ár hvert%
15,1
14,0
13,4
12,1
Skipting kjöt
markaðarins