Bændablaðið - 23.09.2008, Blaðsíða 21
18 Bændablaðið | þriðjudagur 23. september 2008
Á markaði
Tollar í Noregi
Í umræðu um frumvarp til laga
um innleiðingu á matvælalöggjöf
ESB, svokallað matvælafrumvarp,
hefur því nokkuð verið haldið á
lofti að tollar á innflutt kjöt frá
ESB hér á landi séu oftast lægri
og í sumum tilfellum umtalsvert
lægri en í Noregi. Dæmi um þetta
má sjá í meðfylgjandi töflu.
Tollar á innflutt kjöt hér á
landi samanstanda annars vegar
af verðtolli, sem er prósentutollur
og leggst á cif-verð vöru, og hins
vegar magntolli, sem er föst krónu-
tala. Í Noregi er hins vegar ein-
ungis lagður á magntollur. Taflan
sýnir verð og magntoll hér á landi
á nokkrum vörum, bæði almennan
toll og hins vegar toll á innfluttar
vörur frá ESB. Hins vegar er norski
tollurinn í norskum krónum. Út frá
innflutningsverði samkvæmt versl-
unarskýrslum í júní er svo reiknað
út hver álagður tollur er, annars
vegar miðað við innflutning frá
ESB og íslenskan toll og hins vegar
hver tollurinn væri ef norsk tollalög
giltu. Reiknað er með að gengi á
norsku krónunni sé 15,50 kr.
Rétt er einnig að árétta að
Norðmenn hafa ekki gert hliðstæða
samninga um gagnkvæmar tolla-
lækkanir eða tollfrjálsa kvóta við
ESB og Íslendingar. Innflutningur
á kjöti til Noregs fer hins vegar
fyrst og fremst fram á grundvelli
WTO tollkvóta annars vegar og
tímabundnum tollalækkunum hins
vegar, sem miða að því að auka
tímabundið framboð á innanlands-
markaði. Erna Bjarnadóttir
Almennur tollur ESB tollur
Afurð
Verð-
tollur, %
Magntollur,
kr/kg
Verð-
tollur, %
Magntollur,
kr/kg
Norskur
tollur
Innflutnings-
verð júlí 2008
+ íslenskur
tollur
+Norskur
tollur
Hakkað nautakjöt 0,3 510 0,18 306 119,01 432,14 815,92 2.276,79
Nautahryggvöðvar 0,3 1087 0,18 652,2 119,01 1.087,83 1.935,84 2.932,49
Nautalundir 0,3 1195 0,18 717 64,96 377,12 1.162,00 1.319,04
Kjúklingabringur 0,3 499 0,18 299,4 101,63 568,91 970,72 2.144,18
Reykt beinlaust svínakjöt 0,3 447 0,18 268,2 121,12 1.774,15 2.361,70 3.651,51
Annað reykt svínakjöt 0,3 775 0,18 465 121,12 2.062,12 2.898,30 3.939,48
Mikilvæg útflutningslönd bú-
vara, þar á meðal Indland og
Kasakstan, hafa aflétt útflutn-
ingshöftum. Fyrr á árinu lögðu
þessi lönd ýmsar takmarkanir
á útflutning til að halda aftur af
verðhækkunum á matvörum til
almennings innanlands. Þannig
mun Indland frá og með miðjum
október n.k. leyfa útflutning á
hágæða hrísgrjónum, að því til-
skildu að verðið sé að lágmarki
1200 dollarar á tonn. Þetta verð-
ur fyrsti útflutningur Indlands á
hrísgrjónum síðan útflutnings-
bann var sett á basmati-hrísgrjón
í apríl sl.
Kasakstan er eitt af mikilvægustu
hveitiútflutningslöndum heimsins,
en þaðan voru flutt út 8.000 tonn af
hveiti framleiðsluárið 2006-2007.
Hveitiútflutningur þaðan var stöðv-
aður í apríl sl. og rann það bann út í
byrjun september. Í staðinn var sett
á bann við útflutningi á sojabaun-
um. Auk þessara tveggja landa hafa
Víetnam, Úkraína og Rússland
afnumið eða létt á útflutningstak-
mörkunum sem lagðar voru á fyrr
á þessu ári.
Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO) segir nú að nokk-
uð hafi losnað um framboð á mat-
vælum á heimsmarkaði og það auk-
ist, en ástandið sé samt áfram erfitt.
Matvælaverðsvísitala FAO féll í júlí
og var þá sú lægsta í sex mánuði þar
á undan. Engu að síður er hún 37%
hærri en á sama tíma í fyrra.
Lauslega þýtt og endursagt úr
Internationella Perspektiv/eb
Útflutningslönd hafa afnumið
útflutningstakmarkanir
Framleiðsla og sala á kjöti í ágúst
Heildarframleiðsla á kjöti í ágúst var 1.564.334 tonn, 12,9% minna
en í sama mánuði í fyrra. Samdráttur er í öllum kjöttegundum
nema svínakjöti en framleiðsla þess jókst um 8,7%. Sauðfjárslátrun
fór seinna af stað en í fyrra og var 57,4% minni en í ágúst 2007.
Alifuglaslátrun var 10,6% minni og nautakjötsslátrun 14,3% minni.
Á ársgrundvelli hefur framleiðsla aukist um 2,9%.
Sala á kindakjöti í ágúst nam 603 tonnum sem er 44,9% aukning frá
sama tíma í fyrra. Talsverður hluti þessa magns mun hafa farið til vinnslu
en sala kjöts í kjötvinnslur jafnt sem verslana telst til sölu í skýrslum
afurðastöðvanna. Sala á svínakjöti jókst um 9,3% frá sama mánuði í fyrra
en samdráttur varð í sölu á öðru kjöti. Meðfylgjandi mynd sýnir skiptingu
kjötmarkaðarins milli tegunda miðað við sölu sl. 12 mánuði. EB
Útlit er fyrir að kornuppskera
í heiminum í ár verði verulega
meiri en á síðasta ári. Evrópska
rannsóknastofnunin JRC áætlar
uppskeruna 131 milljón tonna,
en hún var 112 milljónir tonna
á sl. ári. Mikill hluti hennar er
þegar í húsi og uppskerustörf-
in hafa víða gengið vel, svo sem
í Mið- og Austur-Evrópu. Á
hinn bóginn hafa uppskerustörf
dregist í Norður-Evrópu og í
Bretlandi vegna úrkomu. Þar
er kornskurði ekki lokið og má
búast við að úrkoman dragi úr
uppskerunni.
Bandaríkin hafa bætt 6,5 millj-
ónum tonna við fyrri áætlanir sínar
og áætla uppskeruna nú 670 millj-
ónir tonna, sem er aukning um
60 milljónir tonna frá fyrra ári.
Að áliti landbúnaðarráðuneytis
Bandaríkjanna er áætlað að korn-
sala þess á árinu verði 650 millj-
ónir tonna, miðað við 622 milljónir
tonna á sl. ári. Þar með aukast korn-
birgðir þar um 20 milljónir tonna.
Óvissa um verð
Útlit fyrir góða kornuppskeru hefur
lækkað verðið, en sérfræðingar
treysta sér ekki til að spá um fram-
haldið. Mikil uppskera slær á bráð-
an kornskort á markaðnum. Á hinn
bóginn heldur neyslan áfram að
aukast víða um heim. Þar fyrir utan
voru kornbirgðir nálægt því þrotnar
og brýnt var orðið að bæta úr því.
Ætla má að kornverð verði áfram
hátt, en þó lægra en það varð hæst
á síðasta uppskeruári. Þá er vænst
aukins jafnvægis á markaðnum.
Í Ástralíu gerðist það nú í fyrsta
sinn í mörg ár að kornuppskera
jókst. Þar hafa kornbændur aukið
kornrækt sína bæði vegna hærra
kornverðs og samdráttar í sauðfjár-
rækt. Áætlað er að Ástralía flytji í
ár út 16,3 milljónir tonna af korni,
sem er aukning um 10 milljónir
tonna frá sl. ári.
Í Rússlandi hefur orðið metupp-
skera á kornræktarsvæðinu sunnan
Volgograd og uppskeran hefur víðar
verið góð í landinu. Að sögn frétta-
stofunnar Itar-Tass er kornuppskera
í Rússlandi áætluð 85 milljónir
tonna í ár og ætlað að þar af verði
fluttar út 18 milljónir tonna.
Úkraína stefnir aftur að
kornútflutningi
Kornuppskera í Úkraínu varð í
fyrra aðeins 13,9 milljónir tonna
vegna erfiðra vaxtarskilyrða. Í ár er
uppskeran hins vegar áætluð 22-25
milljónir tonna. Á sl. ári flutti land-
ið aðeins út 4,2 milljónir tonna til
að tryggja framboð innanlands, en
í ár er útflutningur áætlaður 15-16
milljónir tonna.
Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi
vænta einnig metuppskeru á korni
í ár, eða 8 milljóna tonna. Á sl.
ári var uppskeran þar 7,2 millj-
ónir tonna og árið áður 5,92 millj-
ónir tonna. Forsetinn Alexander
Lukachenko hefur hins vegar mess-
að yfir kornbændum í landinu og
sagt að uppskerustörfin gangi allt-
of hægt. Bændur sýni kæruleysi í
störfum, sem rýri uppskeru.
Landsbygdens Folk/ME
Kornuppskera ársins styrkir birgðastöðuna
Auglýsing um ásetn-
ingshlutfall sauðfjár
almanaksárið 2009
nr. 870/2008
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra hefur ákveðið að til að hljóta
fullar beingreiðslur árið 2009 skuli
fjöldi vetrarfóðraðra kinda vera
að lágmarki 0,6 á hvert ærgildi
greiðslumarks á lögbýli. Ákvörðun
þessi nær til framleiðslu almanaks-
árið 2009 og skal miða talningu
á fjölda sauðfjár við sannreynda
talningu búfjáreftirlitsmanns sem
framkvæma skal fyrir 15. apríl
2009.
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir ágúst 2008
ágú.08 jún.08 sep.07 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
Framleiðsla 2008 ágú.08 ágú.08 ágúst '07 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Alifuglakjöt 573.589 1.894.210 7.771.200 -10,6 -4,4 4,2 28,5%
Hrossakjöt 42.667 106.122 934.640 -42,1 -28,6 4,1 3,4%
Nautakjöt 276.532 854.353 3.720.541 -14,3 -2,7 7,5 13,7%
Sauðfé * 97.682 97.901 8.531.894 -57,4 -57,4 -0,2 31,3%
Svínakjöt 573.864 1.636.387 6.278.015 8,7 1,5 2,8 23,1%
Samtals kjöt 1.564.334 4.588.973 27.236.290 -12,9 -5,4 2,9
Sala innanlands
Alifuglakjöt 564.211 1.864.646 7.650.941 -11,5 -2,4 5,3 30,1%
Hrossakjöt 27.303 115.056 612.488 -51,7 -16,3 -10,7 2,4%
Nautakjöt 276.207 874.845 3.719.428 -13,3 -0,4 7,4 14,6%
Sauðfé * 603.310 1.723.020 7.165.801 44,9 20,0 1,6 28,2%
Svínakjöt 574.198 1.639.372 6.284.211 9,3 1,8 3,0 24,7%
Samtals kjöt 2.045.229 6.216.939 25.432.869 4,7 4,1 3,5
* Sauðfé lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
Framleiðsla mjólk-
ur verðlagsárið
2007/2008
Samkvæmt skýrslum um innvigt-
un framleiðenda hjá MS og KS
var framleiðsla mjólkur á nýloknu
verðlagsári 125.805.155 lítrar.
Ótalin er þá innvigtun hjá Mjólku
fyrstu 6 mánuði verðlagsársins
Heildargreiðslumark verðlagsárs-
ins var hins vegar 117 milljónir
lítra. Mjólkur uppgjör þ.e. útjöfnun
á ónýttum A og B greiðslum verður
kynnt um leið og það liggur fyrir.
EB
Norskir bændur eiga
von á leiðréttingu
Norskir bændur munu í nóv-
ember n.k. semja við stjórn-
völd um endurskoðun á
stuðningi við landbúnaðinn.
Ástæðan er fyrst og fremst
mikil hækkun áburðarverðs.
Þegar Felleskjöpet Agra,
innkaupasamband bænda, og
Yara luku samningum um
áburðarverð í lok júní sl. kom
í ljós að verð á áburði hækk-
aði um 100-110% frá fyrra ári.
Samningar ríkisins og bænda í
vor fólu í sér ákvæði um end-
urskoðun á stuðningi við land-
búnaðinn ef verðhækkanir á
aðföngum til landbúnaðarins
færu umfram ákveðin mörk. Nú
liggur fyrir að svo er og samn-
ingaviðræður um leiðréttingu
bændum til handa munu fara
fram í nóvember n.k. EB
Miklar verðhækkanir á rekstrarvörum landbúnaðarins
Heimsmarkaðsverð á helstu rekstrarvörum landbúnaðarins hefur hækkað mikið frá því snemma á sl. ári, 2007,
til þessa. Það á einkum við um áburðarverð sem hefur hækkað um 152% eða meira en tvöfaldast og er enn á
uppleið. Verð á díselolíu hefur hækkað um 53% á þessum tíma en lækkað þó síðustu vikurnar. Fóðurverð hefur
hækkað um 43% á sama tíma, en hafði einnig hækkað nokkuð árin áður. Það hefur einnig lækkað síðustu vikurn-
ar. Verðþróunin er sýnd á meðfylgjandi línuriti. Heimild: Internationella Perspektiv nr. 23/2008
Áburður Vísitala heimsmarkaðsverðs helstu rekstrarvara í landbúnaði, verð í sænskum kr. Árið 2000=100
Eldsneyti
Fóður
Samtals