Bændablaðið - 11.06.2009, Qupperneq 1
12
Sjálfhætt í
kjúklingarækt ef af
aðild að ESB verður
24
Útskriftir nemenda
á Hvanneyri og
Hólum
11. tölublað 2009 Fimmtudagur 11. júní Blað nr. 306 Upplag 20.500
10
Sjö þúsund
heyrúllur
á hverju sumri
Blaðauki um
hátíðir og
markaði
sumarsins
Sjá bls. 15-18
Tilraunir standa nú yfir á nokkr um
stöðum á landinu á vegum Sigl-
inga stofn unar, Land bún aðar há-
skóla Íslands og Eyrar bús ins við
ræktun á repju og nepju. Úr fræj-
um plöntunnar er pressuð olía
sem nota má á vélar. Til raun in á
Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum lítur
einstaklega vel út eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd. Akurinn er nú
í fullum blóma og algjörlega laus
við skemmdir eftir veturinn, en
sáning fór fram í ágúst á síðasta
ári. Ef vel tekst til og þroski verður
góður í sumar verða gerðar tilraun-
ir með að pressa olíu úr fræjunum
í þar til gerðum vélbúnaði sem
Siglingastofnun er að hanna og
settur verður upp á Þorvaldseyri.
Verkefnið mun halda áfram næstu
3 árin og verður þá hægt að meta
árangurinn. Á myndinni er bóndinn
á Þorvaldseyri Ólafur Eggertsson í
heiðgulum repjuakrinum, framan
við Þorvaldseyri.
Repjuakur í fullum
blóma á Þorvaldseyri
Í byrjun júní voru á ferð hér á
landi japanskir æðardúnskaup-
menn og lýstu áhyggjum sínum
af því að hluti þess æðardúns sem
seldur er í Japan sem íslenskur
sé það alls ekki. Svo virðist vera
sem í hann sé blandað dún af
öðrum fuglum og brögð eru að
því að sængur sem sagðar eru
innihalda íslenskan æðardún séu
að öllu leyti úr fiðri af kjúkling-
um eða öndum.
Shiori Hayashi forstjóri
Schönberg Marujyu heildverslun-
arinnar í Japan segir að samkvæmt
opinberum tölum séu árlega seld
um 20 tonn af æðardúni í heima-
landi hans. Óljóst er hver hlutur
Íslendinga er í æðardúnsmark-
aðnum en talið að hann sé ekki
undir 70%. Hins vegar hefur held-
arútflutningur á íslenskum æðar-
dún ekki verið nema 1,4-3,9 tonn
á ári síðastliðinn áratug. Vörurnar
sem eru á markaði eru ýmist seld-
ar undir heitinu Icelandic eider-
down eða Eiderdown mainly from
Iceland.
Hjónin Kazuaki og Yoshimi
Tanaka starfrækja fyrirtækið
Ishitaya en þau eru stærstu við-
skiptavinir Hayashi í smásölu á
vörum úr æðardúni. Þau segja
að það hafi komið oft upp þegar
dúnsængur hafa verið opnaðar
að greinilegt væri að ekki væri
um íslenskan æðardún að ræða. Í
sumum tilfellum væri hann bland-
aður öðrum dún en í öðrum væri
ekki snefill af íslenskum dún í
sængunum, þær væru gerðar úr dún
af öðrum fuglum.
Þetta er verulegt áhyggjuefni
því vörur úr íslenskum æðardún eru
mjög dýrar en þessar sængur sem
ranglega eru sagðar úr íslenskum
dún eru seldar á mun lægra verði.
Fái þetta að viðgangast er hætta á
að það leiði til verðlækkunar á dúni
til íslenskra æðarræktenda.
Með Japönunum var einnig í
för Heinz Schorrer framleiðslu-
stjóri hjá austurríska fyrirtækinu
Kauffmann sem kaupir mikið af
æðardúni frá Íslandi. Fyrirtæki
hans framleiðir sængur úr hluta
dúnsins en selur bæði sængur og
dún til Japans. Æðardúnn sem
framleiddur er hér á landi er vott-
aður og innsiglaður áður en hann
er fluttur utan. Eftir að fyrirtæki
eins og Kauffmann rýfur innsiglið
er hins vegar ekkert eftirlit með því
hvernig dúnninn er notaður.
Erfitt er að koma á frekara eftir-
liti með vinnslu æðardúns því hún
er dreifð um mörg lönd, auk þess
sem nákvæm greining styðst við
DNA-greiningar á sýnum og þær
eru kostnaðarsamar. –ÞH
Falsaður „íslenskur“ æðardúnn á markaði?
Erlendir æðardúnskaupmenn hafa áhyggjur af ódýrum eftirlíkingum
Erlendu æðardúnskaupmennirnir í Bláa lóninu í byrjun júní, frá vinstri:
Shiori Hayashi, Kazuaki Tanaka, Yoshimi Tanaka og Heinz Schorrer.
Bændur samþykkja breyt-
ingar á búvörusamningum
Talning atkvæða vegna breytinga á búvörusamningum fór fram
2. júní síðastliðinn. Breytingar á samningum sauðfjárbænda og
mjólkurframleiðenda voru samþykktar með miklum meirihluta.
Alls voru 1.344 á kjörskrá vegna kosninga um mjólkursamning.
Atkvæði greiddu tæplega 56%. Já sögðu 625 eða 83,4% en nei
sögðu 106 eða 14,2%. Alls voru 2.457 á kjörskrá vegna kosninga
um sauðfjársamning. Atkvæði greiddu rúmlega 46%. Já sögðu
929 eða 81,6% en nei sögðu 186 eða 16,3%.
Atkvæðagreiðslan fór þannig:
Mjólk % Sauðfé %
Á kjörskrá alls 1.344 2.457
Atkvæði greiddu 749 55,73% 1139 46,36%
Já 625 83,44% 929 81,56%
Nei 106 14,15% 186 16,33%
Auðir 13 1,74% 20 1,76%
Ógildir 5 0,67% 4 0,35%
Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir
niðurstöðuna vera lokahnykk á því máli sem kom upp þegar ljóst var
að ekki var hægt að standa við gildandi búvörusamninga að fullu í
kjölfar efnahagshrunsins. „Þessi breytti samningur er mikilvægt fram-
lag bænda til að takast á við þá stöðu sem komin er upp. Það verður
ekki gengið lengra í að skerða kjör bænda og ætlumst við til að stjórn-
völd standi við samningana hér eftir.“
Næsta
Bændablað
kemur út
25. júní