Bændablaðið - 11.06.2009, Page 2
2 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Fréttir
Magnús Sigurðsson á Gils-
bakka í Hvítársíðu andaðist
6. júní sl. Hann var fædur 27.
september 1924 en foreldr-
ar hans voru hjónin Guðrún
Magnúsdóttir og Sigurður
Snorrason á Gilsbakka.
Magnús lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1946 og bjó eftir það á
Gilsbakka, fyrst með föður sínum
og stjúpu, Önnu Brynjólfsdóttur,
en síðan með konu sinni,
Ragnheiði Kristófersdóttur frá
Kalmannstungu. Þau eignuðust
fimm börn.
Magnús var snemma kjörinn
til forystu, bæði í heimahéraði
og fyrir bændastéttina og gegndi
þeim störfum um áratugaskeið.
Hann tók sæti á Búnaðarþingi
árið 1967 og var kosinn sama ár í
varastjórn Búnaðarfélags Íslands,
þar sem hann sat uns hann var
kosinn þar í aðalstjórn árið 1976
þar sem hann átti sæti uns BÍ var
sameinað Stéttarsambandi bænda
í Bændasamtökum Íslands árið
1995.
Þá var Magnús kosinn fulltrúi
á aðalfundi Stéttarsambands
bænda árið 1973 og sat í stjórn
þess á árunum 1981-1986.
Það var ekki í anda Magnúsar
að standa í sviðsljósinu né kom-
ast í áhrifastöður. Fæðingarjörð
hans, Gilsbakki, búskapurinn þar,
einkum fjárræktin, og umhverfið
átti hug hans.
Á opinberum vettvangi varð
hann kunnastur sem fundarstjóri
á aðalfundum Stéttarsambands
blnda, en því hlutverki gegndi
hann lengi, þannig að óumdeilt
var, af festu og lipurð. Þá var
hann gjarnan kallaður til þegar
um flókin úrlausnarefni var að
ræða í málefnum landbúnaðarins.
Í viðkynningu var Magnús
ógleymanlegur þeim sem honum
kynntust fyrir fróðleik, gerhygli
og frásagnargáfu.
Bændablaðið flytur fjölskyldu
hans innilegar samúðarkveðjur.
M.E.
Magnús á Gilsbakka látinn
Eiga Íslendingar að ganga
í Evrópusambandið?
Almennir fundir verða haldnir um fyrir hugaða
umsókn Íslands um inngöngu í ESB
í Eyjafirði og á Akureyri
Hótel KEA, föstudag 12. júní kl. 20.30
Framsögumenn:
Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður
Baldvin H. Sigurðsson, bæjarfulltrúi
Höskuldur Þórhallsson, alþingismaður
í Skagafirði
í Hótel Varmahlíð, sunnudaginn 14. júní kl. 15.30
Framsögumenn:
Gunnar Bragi Sveinsson, alþingismaður
Agnar Gunnarsson í Miklabæ
Rögnvaldur Ólafsson, Flugumýrarhvammi
Ragnar Stefán Rögnvaldsson, Sauðárkróki
Ragnar Arnalds, fyrrverandi alþingismaður
á Vesturlandi
í Bifröst, sunnudaginn 14. júní kl. 16
Framsögumenn:
Gunnar Ásgeir Gunnarsson bóndi á Hýrumel
Vigdís Hauksdóttir alþingismaður
Eiríkur Bergmann, Bifröst
Einar K. Guðfinnsson alþingismaður
Ásmundur Einar Daðason alþingismaður
Fundarstjóri verður Sturla Böðvarsson
fyrrverandi forseti Alþingis
Fundirnir eru öllum opnir
Vilt þú taka þátt í baráttunni fyrir sjálfstæði Íslands?
Skráðu þig í Heimssýn á www.heimssyn.is
Hæstiréttur hefur dæmt Íslenska
gámafélagið ehf. til að greiða
Sigurði Baldurssyni bónda á
Sléttu við Reyðarfjörð 6,3 millj-
ónir króna auk dráttarvaxta, að
líkindum 13 til 14 milljónir króna
í allt, en sanddæluskip á vegum
félagsins dældi jarðefnum af botni
fjarðarins undan bænum og innan
netlaga hans. Félagið hélt því fram
að efnistaka hefði öll farið fram
utan netlaga Sléttu og benti á að
Sigurður hefði veitt samþykki
fyrir efnistöku en ekki hefði verið
samið um verð. Fram kom í dómi
Hæstaréttar, sem féll á dögunum,
að gámafélagið hefði ekki haldið
til haga eða lagt fram gögn í mál-
inu um hvar efni hefði verið tekið,
þrátt fyrir að því hefði verið það í
lófa lagið til að styðja þá staðhæf-
ingu að jarðefni hefði ekki verið
tekið innan netlaga Sléttu.
Karl Axelsson hæstaréttarlög-
maður og lögmaður Sigurðar segir
að dómurinn sé stefnumarkandi og
að hann auki mjög öryggi bænda og
eigenda jarða við sjó. „Þessi dómur
undirstrikar að eignaréttur eigenda
sjávarjarða er varinn,“ segir hann
og bendir á að samkvæmt netlögum
hafi eigandi jarðar við sjó eða vatn
umráðarétt yfir 115 metra breiðu
belti frá stórstraumsfjörumáli og á
sjó út.
Forsaga málsins er að við bygg-
ingu stórskipahafnar við Reyð ar-
fjörð í tengslum við byggingu ál-
vers tók verktaki, Íslenska gáma-
félagið, efni úr sjó vegna fram-
kvæmdanna. Benti félagið á, sem
fyrr segir, að Sigurður hefði veitt
samþykki fyrir efnistöku en ekki
hefði verið samið um verð. Sigurð
tók að lengja eftir uppgjöri vegna
efnistökunnar og innti forsvars-
menn félagsins eftir stöðu mála
hvað það varðaði, en fékk þá þau
svör að ekkert efni til hafnargerð-
arinnar hefði verið tekið á svæði
sem tilheyrði jörð hans.
Féllst Hæstiréttur ekki á þessa
staðhæfingu Íslenska gámafélags-
ins, að efni hefði aðeins verið tekið
utan netlaga Sléttu á svæði sem til-
heyrði landi Fjarðabyggðar, enda
báru vitni í málinu því við að hafa
séð sanddæluskip við efnistöku
nálægt landi og innan netlaga. Í
yfirliti vegna efnistökunnar frá for-
svarmönnum Arnarfells, sem um
hana sá, kom fram að alls hefðu
126 þúsund rúmmetrar af sandi og
möl verið fluttir í land með sand-
dæluskipinu til hafnargerðarinnar.
Hæstarétti þótti jarðeigandi hafa
sýnt fram á að gámafélagið hefði
tekið efni úr landi hans og hann
því eiga rétt á sanngjörnu endur-
gjaldi fyrir. Mótmælti gámafélag-
ið kröfu Sigurðar um greiðslu á
75 krónur fyrir hvern rúmmetra af
jarðefni og bar því við að kostnaður
við vinnslu efna úr sjó væri hærri
en þar sem þau væru tekin úr efn-
isnámu úr landi. Engin gögn voru
þó lögð fram til stuðnings þess-
ari málsástæðu. Í úrskurði mats-
nefndar eignarnámsbóta, þar sem
metin voru jarðefni sem tekin voru
eignarnámi úr námu í landi Sléttu,
sagði að ágreiningslaust væri að
verðmæti þeirra hefði verið 50
krónur fyrir hvern rúmmetra og að
nefndinni þætti það verð hæfilegt.
Með hliðsjón af því var Íslenska
gámafélagið ehf. dæmt til að greiða
Sigurði Baldurssyni 50 krónur fyrir
hvern rúmmetra með dráttarvöxt-
um frá því mánuði eftir að hann
sendi félaginu bréf þar sem tiltekið
var magn jarðefna, sem krafist var
greiðslu fyrir, auk einingaverðs.
Karl Axelsson segir að í málinu
hafi Hæstiréttur snúið sönnunar-
byrði við; Íslenska gámafélagið hafi
verið krafið um að sýna með óyggj-
andi hætti fram á að það hefði engin
efni tekið í landi er tilheyrði Sigurði.
Það hafi félagið ekki gert. „Þessi
dómur er að mínu mati góður, hann
undirstrikar rétt eigenda sjávarjarða
um landið og hann hefur varnaðará-
hrif. Ég tel að verktakar og aðrir
hafi oft farið frjálslega um eign
bænda og eigenda sjávarjarða hvað
jarðefni varðar. Þetta er eign sem
skiptir sífellt meira máli nú, þegar
torveldara verður að afla jarðefna til
framkvæmda í landi. Í þessari eign
eru því fólgin mikil verðmæti,“
segir Karl. Hann fagnar því þess-
ari niðurstöðu Hæstaréttar og telur
dóminn stefnumarkandi hvað varð-
ar réttindi eigenda sjávarjarða innan
netlaga.
MÞÞ
Hæstiréttur dæmir Íslenska gámafélagið til að greiða bónda við Reyðarfjörð
gjald vegna efnistöku innan netlaga jarðar hans
„Undirstrikar að eignarréttur eig-
enda sjávarjarða er varinn“
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs
bænda
Vala Rebekka Þorsteinsdóttir
hefur verið ráðin framkvæmda-
stýra Lífeyrissjóðs bænda.
Auglýst var eftir nýjum fram-
kvæmdastjóra á dögunum og
sóttu hvorki fleiri né færri en
61 aðili um stöðuna. Stjórn
sjóðsins ákvað á fundi sínum í
dag að ganga til samninga við
Völu um stöðuna. Vala er ekki
ókunnug sjóðnum en hún var
skipuð tímabundið í stól fram-
kvæmdastýru í byrjun maí á
þessu ári. Auk þess sat hún í
stjórn sjóðsins frá 1. september
2008 og þar til hún var skipuð
framkvæmdastýra.
Heimssýn, hreyfing sjálfstæð-
issinna í Evrópumálum stendur
fyrir fundaherferð undir yfir-
skriftinni Eiga Íslendingar að
ganga í Evrópusambandið? um
komandi helgi. Eins og sjá má
í auglýsingu sem birt er hér í
blaðinu verða fundirnir haldn-
ir á Akureyri, í Varmahlíð og á
Bifröst.
Ragnar Arnalds formaður
Heims sýnar segir að í ljósi þess
að fram séu komnar þingsályktun-
artillögur um aðildarumsókn og
að umræða um Evrópusambandi
þyngist sífellt telji forsvars-
menn Heimssýnar fulla þörf á að
fara af stað með slíka fundaröð.
Sömuleiðis sé stefnt að því að
stofna félagsdeildir Heimsýnar úti
um land. „Þetta verða hvort tveggja
í senn umræðufundir og um leið
verða lögð drög að stofnun svæð-
isdeilda á þessum svæðum. Þetta
verða ekki formlegir stofnfundir
heldur stendur til að skipa bráða-
birgðastjórnir sem síðan munu
koma félögunum á laggirnar.“
Ragnar segist finna mik-
inn meðbyr með málflutningi
Heimssýnarmanna nú um stund-
ir. „Það stendur til að halda fleiri
fundi víðar um land og jafnframt
að stofna fleiri félagsdeildir. Það er
ekki ráðið hvenær það gæti orðið
en væntanlega mun það gerast í
sumar eða haust. Við erum að herða
sóknina, við höfum nýlega gefið út
bækling sem heitir 12 ástæður til
að hafna Evrópusambandsaðild.
Við munum halda áfram útgáfu
bæklinga af ýmsu tagi og auglýsa
málstað okkar ásamt því að halda
fundi um allt land.“
Heimssýn með fundaherferð
Íslandspóstur hefur opnað
fimmta nýja pósthús sitt og
að þessu sinni á Sauðárkróki.
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra tók fyrstu skóflustung-
una fyrir um ári og flutti hann
ávarp við opnun hússins.
Íslandspóstur hefur þegar opnað
ný pósthús á Húsavík, Reyðarfirði,
í Stykkishólmi og á Akranesi.
Nýju pósthúsin munu auka þjón-
ustu við viðskiptavini og eru liður
í að nútímavæða póstþjónustuna.
Í nýja húsnæðinu er boðið upp á
aukna þjónustu, meðal annars sölu
á ýmiss konar vörum eins og skrif-
stofuvörum, ritföngum, pappír,
geisladiskum, póstkortum, gjafa-
kortum og öðru fyrir fyrirtæki, ein-
staklinga og ferðalanga.
Í nýjum pósthúsum eru „sam-
skiptaborð”, sem eru nýjung í
þjónustu Póstsins. Þar er í boði net-
aðgangur, mögulegt er að prenta
út gögn og ljósmyndir, skanna
og ljósrita, svo eitthvað sé nefnt.
Einnig gefst viðskiptavinum kost-
ur á að panta aðra samskiptatengda
þjónustu á pósthúsunum og fá
senda um hæl.
Nýtt pósthús á Sauðárkróki