Bændablaðið - 11.06.2009, Page 6
6 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Málgagn bænda og landsbyggðar
LOKAORÐIN
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 5.400 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.400.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 –
Ritstjóri: Þröstur Haraldsson, ábm. th@bondi.is – Sími: 563 0375 – Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is –
Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is – Matthías Eggertsson me@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins að mestu leyti. ISSN 1025-5621
Sumargleði og
búsáhaldabylting
Seinni búsáhaldabyltingin varð
skammlífari en sú fyrri og hafði
að hnika því sem í raun var búið
að blasa við þjóðinni frá því í
október: Við verðum að borga
fyrir útrásarævintýrið, loftbólu-
kapítalismann sem hér hefur verið
við lýði undanfarin ár. Undan því
verður ekki komist og eins gott að
horfast í augu við það.
Í sjálfu sér er allt í lagi að fá
útrás fyrir eðlilega reiði með því
að dangla svolítið í pottana, það er
bara hollt. Einkum þó ef það tekur
ekki mjög langan tíma því nú
verðum við að bretta upp ermarnar
og fara að vinna fyrir skuldunum
(eins og við höfum ekki verið að
vinna fram til þessa!).
Það er þó huggun harmi gegn
að þetta skuli bera upp á júnímán-
uð, þennan bjarta og veðursæla
mánuð sem vonandi er bara
byrjunin á sólríku sumri. Eins og
lesa má um aftar í blaðinu er tími
sumarhátíðanna að renna upp.
Það verður hægt að skemmta sér á
írskan, danskan, franskan og allra
handa máta um hverja helgi fram á
salta síld.
Og nú eru markaðirnir að
spretta upp um allt land. Bændur
farnir að sulta og salta, skera niður
salat og baka brauð, nú eða fram-
leiða ís og bjór. Sumarið er tíminn,
söng Bubbi Mortens um árið og
hitti naglann á höfuðið. Vonandi
fer þessi kuldapollur sem vomað
að hundskast burt. Sólin þarf að
verða tíðari gestur hjá okkur, hún
lyftir okkur upp úr þunglyndinu
sem pólitíkin og efnahagsmálin
gera sitt til þess að byggja upp
með okkur.
Já, það skiptast vissulega á skin
og skúrir, bæði í kauphöllunum og
úti undir beru lofti. –ÞH
STJÓRN OG stjórnarandstaða hafa flutt
tvær ályktunartillögur um aðildarviðræð-
ur við ESB. Framsókn sem heiðarlega
sagði kjósendum sínum að hugur þeirra
stefndi til Brussel, en með afarkostum.
Sjálfstæðisflokkur sem gekk til kosn-
inga með þau skilaboð að hagsmunum
Íslendinga væri betur komið utan ESB.
Meirihluti Alþingis er kosinn á þeirri for-
sendu að ekki bæri að sækja um aðild.
Utanríkisráðherra hefur hafið kosninga-
baráttu, sem minnir óþægilega á „svo mik-
ið 2007“ kosningarbáttu Íslands í framboði
til öryggisráðsins, þegar stjórnvöldum varð
fullljóst að kröftunum væri betur varið hér
heima við að bjarga íslensku efnahagslífi.
Eða var utanríkissráðherra að kynna sér
sérstakar undanþágur Maltverja frá sjávar-
útvegsstefnu ESB? Sem þar reka ágæta
smábátaútgerð.
Hvaða blekkingar eru þetta allt saman?
Hvað er það sem við ekki vitum? Við inn-
göngu í ESB þá fáum við ESB. Ekkert
annað. Eftirfarandi eru staðreyndir:
Sameiginleg landbúnaðarstefna ESB
(CAP) hentar ekki íslenskum landbúnaði,
hún færir fjármuni frá fæðuframleiðslu
til landeiganda. Frá fjölskyldubúum til
fjölþjóðlegra stórfyrirtækja. Fábreyttur
íslenskur landbúnaður, vegna landfræði-
legra aðstæðna, breytir ekki um fram-
leiðsluhætti í anda CAP.
Markaðsaðgangur íslenks landbúnaðar,
á innri markað Evrópusambandsins, er
nú þegar meiri en við nýtum. Viljum við
breyta áherslum í landbúnaðar- og byggða-
málum, getum við það án aðstoðar ESB.
Matarverð lækkar ekki, en afurðarverð
til bænda hrynur með tilheyrandi afkomu-
bresti.
Sjávarútvegi og nýtingu fiskistofna
verð ur stýrt frá Brussel.
Lækka vextir? Hvað sýnir vaxtastig á
Icesave láninu? Vextir verða áfram háir og
endurspegla mat lánardrottna á lántakanda.
Er líklegt að íslensk heimili og fyrirtæki fái
hagstæðari kjör en Ríkisissjóður Íslands?
Lissabonsáttmálinn gerir Ísland að smá-
hreppi í sambandsríki ESB. Sjálfstæði
okkar, 65 ára gamalt, verður að engu orðið.
Launafólk á hættu á undirboðum á
vinnu markaði. Líkt og dæmi sanna, t.d. hjá
frændum okkar og nágrönnum í Svíþjóð.
Launþegar eru ekki undanþegnir frjálsu
flæði vinnufúsra handa. Undirboð frá
láglaunalöndum munu ógna stöðugleika
á vinnumarkaði og þrýsta launum niður.
Líkt og innflutningur á búvöru frá löndum
sem búa við verri lifskjör en Íslendingar.
Frumframleiðsla orku á Íslandi er eft-
irsóknarverð í Evrópu, sem er öðrum háð
um orku.
Við aðild lokum við viðskiptamögu-
leikum okkar í heiminum innan múra ESB
og fáum ekki tækifæri á öðrum og mun
áhugaverðari mörkuðum.
Aðildarsamning ætti miklu frekar að
kalla aðlögunarsamning, um hve lengi við
verðum að laga okkur að samræmdri, mið-
stýrðri Evrópu. Varanlegar undanþágur, ef
slíkar rata í aðildarsamning, eiga á hættu að
vera þurrkaðar út hjá Evrópudómstólnum
eða með endurskoðaðri stefnu ESB þar
sem áhrif okkar eru hverfandi eða 3-5 full-
trúar af 700. ESB er stjórnað af fámennum
hópi gömlu ESB landanna. Meirihlutinn
er myndaður af um 35% íbúa Evrópu.
Svo var verið að tala um óeðlilegt vægi
atkvæða í landsbyggðarkjördæmum gagn-
vart þéttbýlissvæðinu á suðvesturhorninu.
Nei, þetta er það sem vitum. Er ekki
tíma Alþingis betur varið í aðkallandi
mál? Þjóðin hefur svarað í kosningum.
Meirihluti alþingismanna er þar vegna
þess að slíkar staðreyndir voru þekktar
og þeir ætluðu ekki að fórna hagsmunum
okkar með aðild að ESB. Því er umræða
um aðildarumsókn lík og gera eigi „bjöllu-
at“ í Brussel. Við viljum sjá hvort einhver
kemur til dyra, en ekki ganga í bæinn.
HB
LEIÐARINN
Ætlar Alþingi að gera
bjölluat í Brussel?
Harald Milli framkvæmdastjóri
norsku bændasamtakanna,
Norges Bondelag, segir það gríð-
arlega mikilvægt fyrir íslenska
bændur að tengja sig við samtök
sem berjast gegn Evrópu sam-
bands aðild ætli þeir sér að koma
í veg fyrir inngöngu í sambandið.
Það hafi norskir bændur gert
árið 1994 þegar Noregur sótti um
aðild og Milli segist sannfærður
um að það hafi verið þungt lóð
á vogarskálarnar og stuðlað að
því að aðildarsamningurinn hafi
verið felldur.
Milli hefur verið framkvæmda-
stjóri Norges Bondelag síðustu
fjórtán ár og mun hann hverfa úr
því starfi 1. ágúst næstkomandi.
„Ég held að þetta sé komið gott.
Ég hef borið gæfu til að vinna að
hagsmunum norskra bænda þennan
tíma og ég vona að ég skilji eftir
mig gott starf. Það er nú reyndar
þannig að maður er aldrei búinn
að klára allt sem maður vildi gera.
Ég held samt að ég hafi átt þátt í
því að Norges Bondelag hafi náð
mikilvægum árangri í stórum póli-
tískum málum. Ég nefni mál sem
við settum af stað árið 1984, að
virðisaukaskattur af matvælum yrði
felldur niður. Við náðum árangri
ár ið 2001 þegar samþykkt var að
lækka skattinn um helming og það
var mjög mikilvægur sigur fyrir
okkur.“
Sneru afstöðunni varðandi ESB-
aðild við
Milli segir sömuleiðis að eitt
stærsta málið sem hafi komið til
hans kasta í stóli framkvæmda-
stjóra hafi verið umsókn Noregs
um Evrópusambandsaðild 1994
og sömuleiðis þegar umræðan
um aðild varð hvað háværust á
nýjan leik árið 2003. „Þegar um-
ræð an blossaði upp að nýju árið
2003 þá ákvað Norges Bonde lag
að styðja við samtök Evr ópu sam-
bandsandstæðinga, Nej til EU, og
veitti þeim meðal ann ars fjárstyrk
up á 6,5 milljónir norskra króna til
að byggja aftur upp starfsemi sína.
Á þeim tíma var staðan sú að meiri-
hluti norsku þjóðarinnar var því
fylgjandi að sækja um aðild á nýjan
leik. Við settum af stað herferð
ásamt Nei-hreyfingunni og það er
alveg ljóst að okkar barátta, ásamt
öðrum þáttum auðvitað, átti hlut
að því að almenningsálitið sner-
ist og umsóknaraðild varð ekki að
pólitísku máli.“
– Telurðu mikilvægt að bændur
tengi sig við hreyfingar sem eru
andvígar Evrópusambandsaðild,
í ljósi andstöðu bænda gegn sam-
bandinu?
„Jú, það er afar mikilvægt. Ég
veit að Bændasamtök Íslands hafa
kynnt sér hvernig við unnum að
þessum málum hér í Noregi. Það er
mikilvægt að bændur myndi banda-
lög með öðrum hópum til að vinna
gegn málflutningi þeirra hópa sem
eru hlynntir aðild eins og við mynd-
uðum með Nei-hreyfingunni. Norges
Bondelag tók á sig höfuðábyrgð-
ina í því bandalagi og við tryggð-
um fjármögnun baráttunnar. Auk
þess unnum við markvisst að því að
fjölga félögum í Nei-hreyfingunni
og tókst að fjölga félögum úr tíu þús-
und í þrjátíu þúsund.“
Landbúnaðarstefna ESB
samrýmist ekki hagsmunum
norsks landbúnaðar
– Þú ert enn alveg sannfærður
um að Noregi og ekki síst norsk-
um bændum sé betur borgið utan
Evrópusambandsins? Hefði aðild í
för með sér hörmulegar afleiðingar
fyrir norskan landbúnað?
„Já. Landbúnaðarstefna Evrópu-
sambandsins samrýmist á engan
hátt hagsmunum norsks landbún-
aðar. Við viljum halda úti land-
búnaði um allt land og við verðum
að huga að byggðasjónarmiðum
í okkar landbúnaðarpólitík. Við
verðum líka að geta stjórnað því
sjálfir hvaða leiðir við förum í
stuðningskerfi okkar til að halda
verðlagningu til neytenda í eðli-
legu horfi en á sama tíma að verja
matvælaframleiðslu hér í Noregi
og tekjur bænda. Þetta getum við
ekki gerst í Evrópusambandinu.
Við munum ekki fá undanþágur frá
sameiginlegri landbúnaðarstefnu
sambandsins.“
– Telurðu að slíkt hið sama eigi
við um Ísland?
„Já, tvímælalaust. Þið getið
ekki átt von á því að stjórna áfram
ykkar landbúnaðarkerfi né fisk-
veiðistjórnunarkerfi. Þið verðið að
halda í yfirráð ykkar yfir þessum
greinum og það gerið þið ekki í
Evrópusambandinu.“
– Er ekki hægt að fá neinar
undanþágur innan sambandsins að
þínu mati?
„Það er ekki útilokað að það sé
hægt að fá tímabundnar undanþág-
ur frá reglum Evrópusambandsins.
Hins vegar er það svo að undan-
þágur stríða gegn grundvallargerð
Evrópusambandsins, það er að allir
skuli hlíta sömu leikreglum. Það
getur hreint ekki gengið í tilfelli
Noregs og Íslands.“
Milli hvetur íslenska bænd-
ur til að beita sömu aðferðum
og Norðmenn í baráttunni gegn
Evrópusambandsaðild. „Myndið
bandalög með öllum þeim sem eru
andsnúnir aðild og dragið ekki af
ykkur í andstöðunni. Það er nauð-
synlegt að málefni landbúnaðarins
séu á hendi innlendra stjórnvalda.
Þannig verður það að vera í Noregi
og þannig verður það líka að vera á
Íslandi.“ fr
Íslenskir bændur eiga að mynda bandalög með andstæðingum ESB
"#
$#
$#
"&'
* * +<
Harald
Milli fram-
kvæmda-
stjóri
Norges
Bondelag.