Bændablaðið - 11.06.2009, Side 13
13 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Umsvif Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga jukust verulega frá
fyrra ári, fyrst og fremst vegna
tilkomu vaxtarsamnings sem
rekinn var á vegum félagsins.
Þannig námu rekstrartekjur
rúmum 85 m.kr. á móti rúmum
50 m.kr. árið áður. Rekstur árs-
ins var hins vegar í járnum og
var jákvæður um 1,3 m.kr. á
móti 6,2 m.kr. tapi árið áður.
Þannig er félagið enn að berjast
við neikvæða eiginfjárstöðu frá
fyrra ári sem ekki hefur tekist
að laga svo neinu nemi. Aðstaða
félagsins til þess á grundvelli
rekstrar er einnig mjög erfið í
ljósi þeirra veiku fjármögnunar
sem grunnstarfsemin byggir á.
Fjármögnun verkefna byggir
á framvindu þeirra og því ekki
unnt að afla til þeirra tekna
nema þeim sé ráðstafað til við-
komandi verkefna. Eina leiðin
til að rétta þessa stöðu af er því
að eigendur félagsins leggi til
nýtt hlutafé þannig að jafnvægi
verði náð á efnahagsreikningi
félagsins.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
félagsins, en aðalfundur var hald-
inn á Raufarhöfn í fyrri viku.
Fram kemur að í upphafi þessa
árs náðust loks samningar við rík-
isvaldið um yfirtöku og ráðstöfun
á eignum fyrrum Kísilgúrsjóðs,
en málið hafði verið í meðförum
stjórnvalda og félagsins allar götur
frá 2007 er sjóðurinn hætti starf-
semi. Um er að ræða peningaleg-
ar eignir og hlutafé í félögum að
upphæð ríflega 23 milljónir króna,
sem varið skal til nýsköpunar- og
þróunarverkefna á svæðinu.
Í því efnahagsástandi sem nú
ríkir verður að telja nokkra óvissu
um opinber framlög til þróunar-
starfs á landsbyggðinni. Þess utan
hefur gætt ákveðinnar tilhneiging-
ar ríkisvaldsins til eflingar eigin
stofnana á kostnað svæðisbund-
inna þróunarfélaga á borð við AÞ.
Þetta kom berlega í ljós á árinu
þegar stjórnvöld beittu sér fyrir
því að í stað þess að efla svæðis-
bundið þróunarstarf landshlutans,
eins og gengið var út frá í tillögum
Norðausturnefndar, þá var þeim
fjármunum að mestu varið til að
koma á fót starfsstöðvum NMÍ á
svæðinu. Til AÞ hefur ekki runnið
ein króna af þeim fjármunum.
MÞÞ
Umsvif Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga jukust verulega milli ára
Óvissa um opinber framlög til þróunarstarfs á landsbyggðinni