Bændablaðið - 11.06.2009, Side 16
16 SUMARIÐ 2009 – VIÐBURÐIR OG HÁTÍÐIR BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 11. JÚNÍ 2009
Í hugum margra er Fiski-
dagurinn mikli á Dalvík dæmi
um einstaklega vel heppnaða fjöl-
skyldu- og bæjarhátíð. Einn af
stofnendum félagsins utan um
Fiskidaginn mikla – og vafa-
laust sá sem borið hefur hróð-
ur hans hvað víðast – er fram-
kvæmdastjórinn Júlíus Júlíusson.
Bændblaðið leitaði til hans og
freistaði þess að fá að einhverju
leyti skýringar á velgengni hátíð-
arinnar á Dalvík.
-Hvernig hófst þetta ævintýri með
Fiskidaginn mikla; hvenær var það
og hvernig kom þetta til?
Upphaflega hugmyndin var sú að
tveir fiskverkendur hittust og ræddu
um það að bjóða heimamönnum að
koma með grillin sín niður á bryggju
og þeir myndu koma með fisk og
þarna yrði nokkurksonar grillveisla.
Hugmyndin stækkaði strax upp í það
að öllum landsmönnum skyldi boðið
í mat og síðan hefur markmiðið
með Fiskideginum mikla verið að
„koma saman, hafa gaman og borða
fisk“ – og að allt væri frítt. Fyrsti
Fiskidagurinn mikli var haldinn
11. ágúst 2001 og þá mættu 5800
manns og síðan hefur gestafjöldinn
farið hratt uppá við og hefur verið
yfir 30.000 undanfarin ár.
-Í hverju er þessi hátíð fólgin í
dag? Snýst hún að mestu leyti um
fiskisúpugerð íbúa Dalvíkur sem
þeir bera í gesti og gangandi?
Fyrst og fremst er Fiskidagurinn
mikli fjölskylduhátíð og
aðaldagurinn er Fiskidagurinn mikli
sjálfur, þar sem allt hafnarsvæðið
er hátíðarsvæði og þar er öllum
boðið frítt að borða milli kl. 11 og
17 – milli 15 og 20 réttir hverju
sinni – og á hátíðarsvæðinu iðar
allt af lífi. Skemmtidagskrá er á
sviðinu allan tímann, sigling, stærsta
fersfiskasýning Evrópu, leiktæki,
götuleikhús, sýningar og fl. Það er
sumsé nóg um að vera og allt frítt
sem m.a. gerir það að verkum að
fjölskyldan skemmtir sér saman.
Þetta er ekki þannig að börnin hangi
í foreldrum sínum og betli peninga
fyrir hinu eða þessu heldur myndast
kærleiksrík stemmning, róleg og
afslöppuð. Fiskisúpukvöldið mikla
er einnig orðið jafn stórt og ekki
síður spennandi, en það er haldið
kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla og
þá bjóða íbúar Dalvíkurbyggðar
gestum og gangandi heim í fisksúpu
og stemmningin þar er einstök og
ekki hægt að setja hana á prent.
-Nú er um að ræða ókeypis veitingar
og allt frítt á hátíðarsvæðinu –
hvernig hefur fjármögnunin gengið
fyrir sig á liðnum árum, hvernig
er stuðningi við hátíðina háttað og
hvernig eru horfurnar fyrir komandi
hátíð?
Hátíðin hefur gengið mjög vel
og margt í okkar skipulagningu
og hugmyndavinnu verið notað
annars staðar – sem er vel.
Stærstu hátíðir landsins eru
Menningarnótt, Ljósanótt, Gay
Pride og Fiskidagurinn mikli og ef
við horfum til okkar litla bæjarfélags
þá er það með ólíkindum hve margir
hafa sótt hátíðina heim. Fjármögnun
hefur gengið vel fyrir hátíðina og
það eru alltaf fleiri og fleiri sem eru
að uppgötva hve jákvæða ímynd
hátíðin hefur og vilja setja nafn sitt
við hana en þetta er mikil vinna. Við
erum með nokkra aðalstyrktaraðila
sem koma með myndarskap að
hátíðinni, ég vil nú frekar kalla
þetta samstarfsaðila okkar því að
allir fá eitthvað fyrir snúð sinn. Sum
fyrirtæki eru sjáanleg á hátíðarsvæði
og síðan gefum við út blað og
mest af okkar beinu tekjum koma í
gegnum það með auglýsingum og
fleira. Horfurnar fyrir Fiskidaginn
mikla í ár eru góðar og skipulagning
er í fullum gangi og hefur verið
það lengi. Við erum einnig með í
undirbúningi að halda uppá 10 ára
afmæli Fiskidagsins mikla með
pomp og prakt á næsta ári , 2010.
-Hverju þakkar þú velgengni
þessarar hátíðar? Hvaða ráð
geturðu gefið til þeirra sem vilja
stofna til svipaðra hátíða eða eru
í basli með rekstur á núverandi
hátíðum.
Velgengni hátíðarinnar er að
þakka góðu starfi viðskipulagningu,
góðum stjórnendum, frábærum
sjálfboðaliðum og einstakri
samheldni íbúa Dalvíkurbyggðar.
Að hátíðinni koma hátt í 300
sjálfboðaliðar síðsutu dagana. Það
er hægt að gefa mörg góð ráð þó
svo að hver hátíð sé alltaf með sín
sérkenni og erfitt að bera hatíðir
saman vegna mismunandi aðstæðna,
staðsetninga, tíma, hópsins á bak
við verkefnið. En fyrst og fremst þá
þarf þolinmæði og ef við erum að
tala um bæjarhátíð þá er lykilatriði
að hafa alla íbúa með sér í liði. Það
er gert t.d. með því að halda þeim
vel upplýstum og gera þá ábyrga
fyrir ákveðnum þáttum og gera
hátíðina að þeirra hátíð. Síðan þarf
að hafa óbilandi trú á verkefninu
og kvika ekki mikið frá upphaflegu
hugmyndinni, margar hátíðir ráða
sér verkefnisstjóra í hvert skipti sem
er í góðu lagi, en þá er hættan að á
hverju ári komi nýr aðili að borðinu
og það er ekki gott.
-smh
Mynd að morgni Fiskidagsins mikla áður en hátíðin hefst og framkvæmdastjórinn er hér að smakka góðgæti af matseðli dagsins. mynd | hsh
Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla
Þarf samheldni og þolinmæði til að viðhalda velgengni
Höfuðborgarsvæðið
Bæjarfélag Heiti hátíðar Hvenær
Seltjarnar nes -
kaup staður
Jónsmessugangan
- hún verður tengd
bókmenntum, að venju
verður sungið við bálköst
og
boðið upp á veitingar
24. jún
Kjósarhreppur Kátt í Kjós 18. júl
Reykjavík Hinsegin dagar - Gay Pride
6. - 9.
ágúst
Reykjavík Jazz hátíð
13.-31.
ágúst
Reykjavík Reykjavíkurmaraþon 22. ágúst
Reykavík Menningarnótt 22.ágú
Mosfellsbær
Í túninu heima
– bæjarhátið
Mosfellsbæjar
28.-30.
ágúst
Reykjanes
Garður
Sólseturshátíð í Garði
- Árleg fjölskylduhátíð
haldin
um helgi
í júní/júlí
Vesturland
Borgarbyggð
Fjölskylduhátíð Björgunar
sveitanna í Borgarbyggð
- Fjölbreytt dagskrá fyrir
alla.
5.-7. júní
Borgarbyggð
IsNord tónlistarhátíð
- Böðvarsvaka í Logalandi.
Tónlistarviðburðir vítt og
breytt um Borgarbyggð.
12.-16. júní
Borgarbyggð
Sólstöðuhátíð -
Brákarhlaup
með þrautum.
Víkingaleikar
og fleira.
20.júní
Akranes -
kaupstaður
Írskir dagar 4.-6. júlí
Dalabyggð
Heim í
búðardal
- Bæjarhátíð Dalamanna
júlí
Grundar-
fjörður
Fjölskylduhátíð
í Grundarfirði
júlí
Ólafsvík Ólafsvíkurvaka 4.-5. júlí
Borgarbyggð
Safnadagurinn
- Opin dagskrá í öllum
söfnum Borgarbyggðar.
12. júl
Borgarbyggð
Reykholtshátíð -
Tónlistarhátíð í Reykholti
22.-27. júlí
Borgarbyggð
Tónleikaröð í
Skallagrímsgarði.
Allir
laugardagar
í júlí
Stykkis-
hólms bær
Danskir dagar
3. helgin í
ágúst
Borgarbyggð
Sauðamessa í Borgarnesi
- Hátíð til dýrðar íslensku
Sauðkindinni
lok
ágúst/
byrjun
september
Vestfirðir
Patreksfjörður
Sjómannadagurinn á
Patreksfirði
4.-7. júní
Flateyri-
Önundarfjörður
Víðavangshlaup - Árlegt
hlaup haldið í
Önundarfirði.
Nokkrar vegalengdir í boði,
ætlað öllum aldursflokkum
17. júní
Arnarfjörður-
Hrafnseyri
Þjóðhátíðarsamkoma á
Hrafnseyri fæðingarstað
Jóns Sigurðssonar - sjá
nánar á www.hrafnseyri.is
17. júní
Ísafjörður
Við Djúpið - Tónlistarhátíð
og masterclassar
- sjá nánar
á www.viddjupid.is
18.-23. júní
Bíldudalur
Bíldudals-grænar - Haldin
annað hvert ár á Bíldudal
og verður haldin í ár.
26.-28. júní
Ísafjörður
Saltfiskveisla - Hin rómaða
saltfiskhátíð
27.jún
Ísafjörður
Act Alone - leiklistarhátið
(einleikir) - sjá nánar á
www.actalone.net
1.-5. júlí
Hólmavík Hamingjudagar 3.-5. júlí
Þingeyri
Dýrafjarðardagar - Hátíð
með víkingablæ - sími: 450
8060
3.-5. júlí
Suðureyri
Sæluhelgin - Hátíð fyrir
alla fjölskylduna
- sjá nánar á
www.sudureyri.is
9.-12. júlí
Þingeyri-
Dýrafjörður
Hestaþing Storms -
Gæðingakeppni,
kappreiðar
og hinn sívinsæli útreiðatúr
10.-11. júlí
Ísafjörður/
Bolungarvík
Óshlíðarhlaupið - Hlaupið
frá Bolungarvík til
Ísafjarðar. Vegalengdir:
hálfmaraþon, 10km, 4km
17.júl
Drangsnes
Bryggjuhátíðin á
Drangsnesi - Þetta er
fjölskylduhátíð sem haldin
hefur verið árlega siðan
1996.
18. júlí
Hesteyri,
Jökulfjörður
Kjötsúpuferð - Árviss ferð,
farið frá Ísafirði
1.ágú
Tungudalur,
Ísafjörður
Mýrarboltinn -
Evrópumótið í
Mýrarfótbolti. Sjá nánar á
www.myrarbolti.com
31. júlí
-2. ágúst
Reykhólar
Reykhóladagurinn
- Uppskeruhátíð og veisla
með aðföngum úr sveitinni
og Breiðafirði, t.d.
fulgakjöt,
selur, kræklingur og
ýmislegt þess háttar.
29.ágú
Norðurland
vestra
Húnaþing
vestra
Fjöruhlaðborð
Húsfreyjanna á Vatnsnesi -
Sjaldséður matur og hátíð.
Bjartar nætur í Hamarsbúð.
20.jún
Sveitarfélagið
Skagaströnd
Kántrýdagar
14.-16.
ágúst
Ýmsir viðburðir og hátíðir sumarsins 2009
– Höfuðborgarsvæðið, Reykjanes, Vesturland, Vestfirðir og Norðurland vestra