Bændablaðið - 11.06.2009, Page 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Utan úr heimi
Örvænting breiðist nú út meðal
þýskra kúabænda. Konur í
þeirra hópi mótmæla fyrir fram-
an skrifstofu Angelu Merkel,
kanslara, í Berlín.
Bændur, jafnt með stór og lítil
kúabú, framleiða nú mjólk með
tapi eftir að verslanakeðjur, með
Aldi í fararbroddi, hafa enn einu
sinni þrýst mjólkurverðinu niður.
Útsöluverðið er nú 48 evrusent
(ein evra er um 170 ísl. kr.) sem er
minna en á 8. áratug síðustu aldar.
Bændur fá hins vegar að jafnaði
24 evrusent fyrir lítrann og jafnvel
eru dæmi um að mjólkursamlag
greiði undir 20 evrusentum.
Fyrir tveimur árum upplifðu
þýskir bændur hins vegar verð-
sprengju. Í nóvember 2007 fengu
þeir að meðaltali 43 evrusent fyrir
lítrann. Nú kostar það hins vegar
40 evrusent að framleiða hann,
framleiðslunni er því sjálfhætt.
Enginn markaður er nú fyrir kýr og
ekki annað í boði en að slátra þeim.
Aðrir bændur reyna að þrauka og
krefjast aðgerða af stjórnvöldum.
Bændur um allt Þýskaland hafa
staðið fyrir mótmælum. Konur
meðal bænda hafa staðið fyrir
setuverkföllum og búið um sig
utandyra í tjöldum um nætur við
stjórnarskrifstofur í mörgum sam-
bandsríkjum. Þannig hafa 200
konur lagt undir sig grasflöt fyrir
framan skrifstofu Angelu Merkel
og heimta að fá að tala við hana.
Landbúnaðarráðherrann Ilse
Aigner hefur rætt við konurnar og
fullvissað þær um að hún styðji
þær. Hún hefur, ásamt fleiri land-
búnaðarráðherrum ESB, reynt að
stöðva aukningu mjólkurkvótans,
en án árangurs. Sambandið hvikar
ekki frá henni og algjöru afnámi
kvótakerfisins í mjólk í kjölfarið,
þrátt fyrir að alltof mikil mjólk sé á
markaðnum.
ESB hóf aftur að greiða útflutn-
ingsbætur með mjólk sl. vetur án
þess að það hafi leitt til hækkaðs
verðs til framleiðenda, en það hefur
hins vegar skaðað mjólkurfram-
leiðslu í þróunarlöndum.
Konurnar, sem hafa stað-
ið fyrir mótmælum, eru félagar
í Samtökum þýskra kúabænda
(BDM – Bundesverband Deutscher
Milch vie halter), sem krefjast opin-
berrar stjórnunar á þýska mjólkur-
mark aðn um.
Konurnar krefjast þess nú að
Angela Merkel boði til sameigin-
legs fundar samtaka mjólkurbænda
í öllum löndum ESB og vilja fá að
ræða við hana. Það hefur þó enn
ekki fengist.
Í framhaldi af því hefur hópur
þeirra farið í hungurverkfall. Rauði
krossinn hefur tekið að sér að fylgj-
ast með heilsu kvennanna. Þær
hafa verið beðnar um að hverfa á
braut en neita því. Nationen
Mótmæli kúabænda í Þýskalandi
\ Í Þýskalandi eru um 100 þúsund kúabændur. Samtök þeirra, BDM,
óttast að fjórðungs fækkun verði í stéttinni á næstu árum.
\ Stærð kúabúa í Þýskalandi er afar breytileg. Í Suðvestur-Þýskalandi
er meðalbústærðin 29 kýr en í Brandenburg, fyrrum A-Þýskalandi,
222 kýr. Jafnt lítil sem stór bú eru rekin með halla.
\ Eftir mjólkurverkfall á sl. ári lofuðu stóru matvöruverslanakeðjurn-
ar að greiða meira fyrir mjólkina. Nú hefur verðið hins vegar aftur
verið lækkað. Meðalverð á lítra til bænda er nú 24 evrusent.
\ Of mikið er framleitt af mjólk innan ESB eftir að kvótinn var aftur
aukinn í apríl sl. Stefnt er að áframhaldandi aukningu kvótans skref
fyrir skref og afnámi hans innan tíðar eftir það.
\ Konur meðal þýskra kúabænda krefjast þess að Angela Merkel,
kanslari, boði til ráðstefnu samtaka kúabænda í öllum löndum ESB
til að fjalla um mjólkurkreppuna.
Konur meðal kúabænda í
Þýskalandi í hungurverkfalli
Bandarísk stjórnvöld hafa
ákveðið að upprunaland alls
fersks kjöts í þarlendum versl-
unum skuli koma fram á umbúð-
um. Það varðar kjöt af nautgrip-
um, svínum, sauðfé, geitum og
kjúklingum. Að auki gilda þessar
reglur um fisk, ávexti, grænmeti
og hnetur.
Nýr landbúnaðarráðherra vill
ganga lengra. Hann vill að neyt-
andinn fái að vita framleiðsluferil
matvörunnar og hvetur matvæla-
iðnaðinn til að birta upplýsingar
um uppruna hráefnanna. Ef það
gerist ekki af fúsum og frjáls-
um vilja muni hann beita sér fyrir
lagasetningu um það. Þá vill hann
að allt kjöt sem selt er soðið, grillað
eða matreitt á annan hátt skuli upp-
runamerkt.
Með þessum fyrirmælum eru
reglur um meðferð matvæla veru-
lega strangari en í ESB, en þar er
skylda að upprunamerkja naut-
gripakjöt, egg, ávexti, grænmeti,
fisk og skeldýr. Strangari og
umfangsmeiri rannsóknir eru hins
vegar nú til umræðu þar, m.a. um
að allar matvörur, sem framleiddar
eru í sambandinu, verði með sér-
stakt ESB-merki.
Í Svíþjóð hefur verið rætt um
hertar reglur um merkingar á mat-
vælum. Stjórnvöld eru þó mótfallin
því og telja skyldumerkingar auka
skriffinnsku og útgjöld.
Í Englandi er ríkisstjórnin hins
vegar fylgjandi hertum reglum. Þar
er andstaða gegn því að tilbúnir
réttir úr dönsku svínakjöti, m.a.
þjóðarrétturinn „british pie“, séu
merktir með breska fánamerkinu.
Breskir svínabændur, sem búa nú
við erfiðan rekstur, leggjast ein-
dregið gegn því.
Bondevennen
ESB hefur nýlega lokið enn einni
endurskoðun á landbúnaðar-
stefnu sinni. Viðskiptafrelsi á
búvörumarkaði verður aukið,
m.a. með því að afnema kvóta-
kerfið í mjólkurframleiðslu.
Aðildarlönd ESB efast þó um að
það sé skynsamleg ákvörðun.
Aðalbreytingin nú er „mjúk
lending“ kvótakerfisins í mjólk
fram til 2015 með auknum kvótum
og minni styrkjum skref fyrir skref,
auknum styrkjum til byggðaþróun-
ar, minni ríkisframlögum til birgða-
söfnunar búvara og afnámi stuðn-
ings við hvíldarland (land í tröð).
En undirskriftirnar voru varla
þornaðar áður en aðildarlöndin
gerðu athugasemdir og það var
einkum afnám mjólkurkvótans sem
vakti áhyggjur. Verð á mjólkuraf-
urðum hefur hrunið síðasta árið og
mörg lönd óttast að stærri kvótar
og síðan fullt frelsi til framleiðslu
mjólkur auki enn á vandann. Frá júlí
2007 til janúar í ár, 2009, hefur verð
á undanrennudufti á alþjóðamarkaði
lækkað um helming og hlutur ESB í
heimsviðskiptum á því hefur á sama
tíma dregist saman um 17%. Tekjur
kúabænda í ESB drógust á sama
tíma saman um 4% en framleiðslu-
kostnaður þeirra jókst hins vegar um
10%. Að sögn samtaka bænda og
sölufélaga þeirra, COPA-COGECA,
hefur verið taprekstur á kúabúum í
löndum samtakanna síðasta u.þ.b.
hálfa árið.
Á fundi landbúnaðarráðherra
ESB í mars sl. létu mörg lönd í
ljós efasemdir um að skynsamlegt
væri að gefa mjólkurmarkaðinn
frjálsan. Þjóðverjar bentu á að enn
frekari opnun markaðarins bitn-
aði ekki aðeins á litlum kúabúum,
heldur einnig á stórum og tækni-
væddum búum. Ásamt Austurríki,
Ungverjalandi, Slóvakíu og Slóv-
en íu lagði Þýskaland fram tillögu
um uppkaup og birgðasöfnun á
mjólk urafurðum og e.t.v. frestun
á aukningu framleiðslukvótans.
Írland biður um fleiri tæki til að
stjórna framleiðslunni og breska
þingið telur að frjáls mjólkurmark-
aður sendi slæm skilaboð til við-
kvæmra framleiðenda.
Landbúnaðarstjóri ESB, Mari-
ann Fischer Boel, hvikar hins vegar
ekki frá markaðri stefnu. Hún bend-
ir á að erfið staða á mjólkurmarkaði
ESB stafi ekki af aukinni mjólk-
urframleiðslu innan sambands-
ins, heldur minni sölu á mjólk og
mjólkurvörum og meiri framleiðslu
utan sambandsins, en í ESB dróst
framleiðsla saman um 0,5% á sl.
ári, þrátt fyrir 2% aukningu kvót-
ans. Fischer Boel hafnar fleiri opin-
berum aðgerðum á mjólkurmark-
aðnum. Framkvæmdastjórnin hefur
þegar fyllt þann uppkaupakvóta
sem hún hafði ákveðið; 30 þúsund
tonn af smjöri og 100 þúsund tonn
af undanrennudufti.
Svínaræktin í ESB
Fischer Boel hafnar einnig kröfum
ráðherranna um styrki til útflutn-
ings á svínakjöti. Samtök bænda í
ESB benda á að verð á svínakjöti
hafi lækkað um 10% í sambandinu
frá desember 2008 til febrúar 2009
og gengisfall samkeppnisgjald-
miðla íþyngi enn frekar svínabænd-
um í ESB. Styrkbeiðninni var
hafnað en við síðustu endurskoðun
landbúnaðarstefnunnar voru slíkir
styrkir lagðir niður.
Reynt verður að draga úr hluta af
neikvæðum afleiðingum af auknu
viðskiptafrelsi með því að gefa
aðildarlöndunum kost á að ráðstafa
sjálf 10% af beinum styrkjum til
býlanna til viðkvæmra búgreina og
landsvæða. Auk þess má nota hluta
af styrkjum til byggðaþróunar til
að styrkja mjólkurframleiðendur.
Spurningin er hvort það nægi til
að tryggja framleiðslu á viðkvæm-
um svæðum (t.d. á brattlendum og
norðlægum slóðum).
Bændur í ESB óttast einnig að
framlög til byggðaþróunar skili sér
illa og ójafnt til aðildarlandanna
þar sem gerð er krafa um að hvert
land leggi sjálft fé á móti.
Með nýrri landbúnaðarstefnu
ESB horfast aðildarlönd sam-
bandsins í augu við lægri opinber
framlög og meiri markaðsstjórn á
tímum lágs verðlags og óstöðugs
markaðar, hækkandi framleiðslu-
kostnaðar og aukinnar samkeppni
af hálfu landa utan sambandsins.
Komi svo til þess, þrátt fyrir
væntingar um annað, að Alþjóða
viðskiptastofnuninni (WTO) tak-
ist að ná saman um nýjan samning
um búvöruviðskipti, efnislega líkan
þeim samingi sem rætt var um í
júlí á sl. ári en náði þá ekki fram
að ganga, telja COPA-COGECA að
það muni kosta bændur í ESB um
30 milljarða evra til viðbótar á ári.
Þá verða bændur í ESB og
samvinnufyrirtæki þeirra bara að
vona að landbúnaðarstjóri þeirra,
Mariann Fischer Boel, hafi á réttu
að standa að ný landbúnaðarstefna
ESB auki samkeppnishæfni bænda
í sambandinu, jafnframt því að
opinberir styrkir nýtist þeim betur
en áður og að auknir mjólkurkvót-
ar ESB bænda auki hlut þeirra á
alþjóðamarkaði fyrir mjólkurvörur,
eins og hún hefur skrifað á blogg-
síðu sína.
Við sjáum hvað setur.
Bondebladet/Hildegunn Gjengedal,
Landbrukets Brusselkontor
ESB endurskoðar landbúnaðar-
stefnu sína í þröngri stöðu
Ný gerð illgresis ógnar nú
rækt un erfabreyttrar baðm-
ullar og sojabauna í mörgum
ríkjum Bandaríkjanna. Súper-
illgresið, í mæltu máli kallað
súper gaddavírinn, hefur þol
gegn hinum algenga illgresis-
eyði Roundup.
Illgresiseyðing er lítið mál
fyrir bandaríska ræktendur erfða-
breyttrar baðmullar og sojabauna,
en þessir stofnar eru kynbættir
m.t.t. þess að þola illgresiseyð-
inn Roundup. Illgresið deyr en
nytjajurtirnar blómstra.
Illgresistegundin „Palmer
amar anth“ hefur hins vegar sett
krók á móti bragði og lætur sér
ekkert bregða við Roundupið,
heldur lifir góðu lífi og leggur
undir sig akrana. Tegundin er
með mótstöðu gegn glyfosfati,
sem er virka efnið í Roundup,
og getur hún náð allt að þriggja
metra hæð. Palmer amaranth
dreifir sér mjög hratt, ein planta
getur borið hundruð þúsunda
fræja.
Vex hratt og þrífst í þurrki
Jurtin getur vaxið um allt að hálf-
an sentimetra á dag. Hún hefur
mikið þol gegn heitu og þurru
veðri og við vaxtarskilyrði þar
sem aðrar jurtir drepast.
Illgresisins varð fyrst vart árið
2004 í ökrum með erfðabreytt-
um gróðri í Macon-sýslu í ríkinu
Georgia í Bandaríkjunum. Sýslan
hefur síðan verið nefnd uppruna-
staður þess. Þar hefur illgresið
nú lagt undir sig 70-80% akr-
anna. Taka varð um 4000 ha af
ökrum úr notkun þar árið 2007
af þeim sökum og áætlað er að
um 40 þúsund ha akra í Georgíu
séu nú undirlagðir illgresinu. Þá
hefur illgresið dreifst til Suður-
Carolina, Norður-Carolina,
Arkansas, Tennessee, Kentucky
og Missouri.
Illgresið veldur nú miklum
skaða í ræktun á erfðabreyttri
baðmull og sojabaunum í
Bandaríkjunum. Níu af hverjum
tíu bandarískum bændum rækta
þessar sojabaunir, sem líftækni-
risinn Monsanto setti á markað
á 10. áratug síðustu aldar ásamt
með illgresiseyðinum Roundup.
Áhyggjufullir bændur
Órói meðal bænda er áberandi
og eru þeir nú farnir að fylgjast
með ökrum sínum með stækk-
unargleri. Rannsóknamenn og
ráðunautar telja fyrirbyggjandi
aðgerðir mjög áríðandi til varn-
ar. Sá, sem finnur litla illgres-
isplöntu í akri sínum, á von um
að bjarga sér með því að bregðast
fljótt við og eyða henni. Hafi ill-
gresið hins vegar dreift sér er lítil
von til björgunar.
Rannsóknamenn telja að
bændur hafi gert sig alltof háða
Roundup. Það er auðvelt að þurfa
ekki annað en að dreifa einu
jurtaeyðingarefni, en sú tíð er nú
liðin.
Umhverfissamtök halda því
fram að þetta nýja súperillgresi
staðfesti öll varnaðarorð um
áhættu af erfðabreyttri ræktun
og telja að náttúran hafi sín eigin
svör við líftæknilandbúnaði.
Að sögn Soil Association var
Monsanto ljós hættan á að upp
kæmi súperillgresi, strax þegar
fyrirtækið tók einkaleyfi á blöndu
ólíkra efna gegn glyfosfatþolnu
illgresi. Þannig getur Monsanto
nú hagnast á vandamáli sem þess
eigin söluvara hefur valdið.
Monsanto gerir sér grein
fyrir vandamálinu og leitar nú
leiða, í samstarfi við Háskólann í
Georgia og aðrar rannsóknastofn-
anir. Menn ráðleggja notkun á
ýmsum blöndum varnarefna og
leggja áherslu á skiptirækt.
Margir bandarískir bænd-
ur hyggjast nú hverfa aftur til
hefðbundinnar ræktunar, eink-
um af fjárhagslegum ástæðum.
Kostnaðurinn við erfðabreytta
ræktun er farinn að fæla þá frá
slíkri ræktun.
Landsbygdens Folk
Ágengt illgresi gerir banda-
rískum bændum lífið leitt
Strangari upprunamerkingar
á matvælum í Bandaríkjunum
Mariann
Fischer Boel
kynnir sér
þýskar pylsur