Bændablaðið - 11.06.2009, Qupperneq 23
23 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Á vordögum fengum við heim-
sókn hér í Bændahöllinni.
Hollenski þýðandinn og fræði-
maðurinn Kim Middel staldraði
við í tölvudeildinni í tvo daga
og vann við skráningu í ættbók
íslenska hestsins, WorldFeng.
Hún hefur fjölbreytt tengsl við
Ísland og stenst áreiðanlega öll
próf sem Íslandsvinur. Og hún
hefur auk þess sterkar mein-
ingar um það hvert Ísland eigi
að stefna, að minnsta kosti hvað
varðar Evrópusambandið.
Aðaltilgangurinn með heimsókn
Kim hingað til lands var sá að hún
sat þing þeirra sem fást við þýð-
ingar á íslenskum bókmenntum á
erlendar tungur. Hún hefur feng-
ist við að þýða íslenskar bækur
á hollensku, þar á meðal bækur
Arnaldar Indriðasonar. Auk þess
er hún að vinna að doktorsritgerð í
miðaldafræðum og þar er viðfangs-
efnið einnig íslenskt, nánar tiltekið
þróun sjálfsins og sjálfsvitundar
Íslendinga fyrr á öldum. Hún rýnir
í lykiltexta til þess að varpa ljósi á
það hvernig Íslendingar litu á sjálfa
sig áður en sjálfsvitund þjóðarinn-
ar birtist sem gerðist á 16. eða 17.
öld. Í því sambandi segir hún for-
vitnilegt að siðaskiptin virðist
ekki hafa skipt miklu máli fyrir þá
þróun, ártalið 1262 þegar við geng-
umst Noregskonungi á hönd er það
sem öllu máli skiptir.
Síðast en ekki síst hefur Kim
starfað um árabil í hollenska
Íslandshestafélaginu og sat í stjórn
þess þegar WorldFengur kom fram
á sjónarsviðið árið 2001. Hún
segir að hann sé stórkostlegt tæki
í kynbótastarfi eigenda íslenska
hestsins um allan heim og lætur
vel af samskiptunum við tölvudeild
Bændasamtakanna. Sjálf á hún
þrjá íslenska hesta, 21 árs gamla
meri og tvö yngri hross, og er með
þá í nágrenni við heimabæ sinn,
Enschede, í austurhluta Hollands.
Hvað yrði um íslensku sveitina?
Enschede er borg með fornfræg-
an vefjariðnað og hún er umluk-
in landbúnaðarjörðum. Þegar ég
spurði Kim hvort hún ætti ekki
eigið hesthús hristi hún höfuðið
og sagði að land væri svo dýrt í
Hollandi vegna þéttbýlisins að hún
hefði engin efni á því. Upp úr því
barst talið að Evrópusambandinu.
„Ég er enginn sérfræðingur í
Evrópusambandinu en var lengi
þeirrar skoðunar að Íslendingar
ættu að sækja um aðild, ekki síst
af efnahagslegum ástæðum,“ sagð
hún. „En þegar ég var á þýðing-
arþinginu flugum við austur á
Hornafjörð og ókum til baka í rútu.
Þar sem ég sat í rútunni og virti
fyrir mér íslensku sveitabæina fóru
að renna á mig tvær grímur. Hvað
yrði um íslenskan landbúnað og
þessa bæi í ESB?
Við höfum séð að ESB hefur
verið að breyta áherslum sínum
og þar með reglum sem gilda um
niðurgreiðslur og rekstrarum-
hverfi landbúnaðarins. Það er ýtt
undir stöðuga stækkun og fækkun
búa sem eiga að keppa innbyrð-
is á markaði. Smærri býlum hefur
fækkað ört og margir bændur hætt
rekstri, farið snemma á eftirlaun
eða jafnvel stytt sér aldur, vegna
þess að stuðningurinn sem þeir
höfðu notið var skyndilega tekinn
af þeim, án nokkurs fyrirvara.
Ég las það ekki alls fyrir
löngu að í hverjum mánuði hætti
17 bændur búskap í Hollandi.
Stjórnvöld okkar eru mjög áköf í
að innleiða tilskipanir ESB, enda
eru þau hreint ekkert á móti þess-
ari þróun því við þetta losnar land
sem hægt að nota undir stöðuga
útþenslu borganna.“
17 bændur hætta í hverjum
mánuði
Kom segir að þessi þróun á vett-
vangi ESB hafi leitt til þess að
bændur þurfi að hafa sig alla við
í samkeppninni, ekki bara innan-
lands heldur við allan heiminn.
„Við flytjum inn kjöt frá Ástralíu
og Afríku þar sem það er ódýr-
ast en flytjum svo okkar dýr út til
slátrunar í öðrum löndum af því við
erum hætt að slátra sjálf, það borg-
ar sig ekki. Megnið af dýrunum
okkar eru leidd til slátrunar á Ítalíu,
í Englandi eða á Norðurlöndunum.
Það sama gildir um fiskinn.
Bændur eiga í vök að verj-
ast vegna þess að þeir fá svo
lágt verð fyrir afurðir sínar.
Verslanakeðjurnar ráða því hvað
þær borga fyrir þær. Ég get nefnt
dæmi af bændafólki sem ég kynnt-
ist þegar ég bjó í Þýskalandi. Það
voru hjón sem framleiddu nauta-
kjöt og korn, en afkoman var svo
léleg að þau urðu bæði að vinna
launavinnu utan heimilisins. Á
endanum neyddust þau til að hætta
búrekstrinum vegna þess að stuðn-
ingurinn við hann hafði verið skor-
inn niður. Bóndinn sagði mér að
það hefði þýtt að hann hefði ekki
haft efni á að kalla til dýralækni ef
dýrin veiktust. Kostnaður við eitt
veikt dýr hefði étið upp allan hagn-
að af búrekstrinum.
Það sem er líka slæmt er að
ESB er sífellt að breyta reglunum
svo bændur eiga mjög erfitt með
að gera áætlanir um reksturinn. Ég
þekki til sykurræktar sem er tölu-
vert mikil í Hollandi af því að við
höfum svo góðan leirjarðveg fyrir
sykurrófurnar. Það eru töluverðar
hefðir sem tengjast sykurrækt þar
sem ég bý, en nú er önnur tveggja
sykurverksmiðja hætt rekstri og hin
hangir á horriminni. Ástæðan er
sú að ESB ákvað með engum fyr-
irvara að flytja stuðninginn til syk-
urræktar í nýju aðildarríkjunum í
austanverðri álfunni.
Um þetta var ég að hugsa í rút-
unni og sá íslensku sveitabæina
líða hjá. Ég gat ekki séð hvernig
Ísland með sín smáu býli gæti stað-
ist því snúning þegar innflutningur
á ódýrum erlendum búvörum verð-
ur gefinn frjáls,“ sagði Kim Middel
hin hollenska.
–ÞH
Hvernig á íslenska sveitin
að standast samkeppnina?
– spyr hollenski Íslandsvinurinn Kim Middel sem hefur áhyggjur af því
hvernig íslenskum landbúnaði myndi reiða af í Evrópusambandinu
Kim Middel að störfum í
tölvudeild Bí.
14625 - Rammasamningsútboð á ferskum matvör-
um og drykkjarvörum.
Kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 12. júní kl.
11:00 í húsakynnum Ríkiskaupa, Borgartúni 7 C.
Eru bjóðendur hvattir til þess að mæta. Þátttaka óskast til-
kynnt á utbod@rikiskaup.is.
Þær vörur og þjónusta sem verið er að leita eftir tilboðum í,
1 kindakjöt / lambakjöt
2 Nautgripakjöt
3 Svínakjöt
4 Annað kjöt (kjúklingur)
5 Fiskur
7 Hráar / soðnar saltaðar vörur
8 Álegg í neytendapakkningum
9 Grænmeti og ávextir
10 Gos, sódadrykkir og ávaxtasafar
!
#
Markmið útboðsins er að veita áskrifendum rammasamn-
inga ríkisins, sem fjölbreyttast úrval af ferskum matvörum
og drykkjarvörum, að uppfylltum ásættanlegum gæðum og
þjónustu. Leitað er eftir því að aðilar bjóði sem fjölbreyttast
$
&
$!' +
Opnun tilboða er 27. ágúst 2009 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum.
;<
=
'
>$!'= aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
--- ÚTBOÐ ---
Jörð til leigu
Jörðin Torfastaðir í Jökulsárhlíð
á Fljótsdalshéraði er laus til leigu.
Á jörðinni er sauðfjárbú í rekstri. Stærð jarðar er
1.900 hektarar, þar af ræktað land um 30 hektarar.
Bústofn sem fylgir í leigu er 300 kindur.
Greiðslumark 400 ærgildi.
Leigugjald 150.000 kr á mánuði.
Jörðin leigist til 5 ára.
Upplýsingar gefnar í síma 895-1085
eða á netfangið allij@centrum.is