Bændablaðið - 11.06.2009, Síða 25
25 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Eins og undanfarin ár mun
Land búnaðarháskóli Íslands
ann ast efnagreiningar á fóðri
fyrir bændur með svipuðu sniði
og verið hefur. Fyrir jórturdýr
verður áfram notað það kerfi
sem er og verið hefur í notk-
un fyrir útreikninga á orku og
próteingildum í fóðri. Nýtt nor-
rænt forrit fyrir fóðuráætlanir,
NorFor, var reynt hjá nokkrum
bændum síðasta vetur, notuð var
norsk útfærslu af þessu kerfi. Þó
kerfið sé ekki komið formlega í
almenna notkun hér á landi verð-
ur áfram unnið að aðlögun á því
að okkar aðstæðum.
Mikilvægt er að vel sé staðið að
sýnatöku og skráningu og til upp-
rifjunar fylgja hér helstu upplýsing-
ar þar að lútandi. Sumar leiðbein-
ingamiðstöðvar hafa einnig sett til-
kynningar í sín fréttablöð um þetta
efni og munu veita ráðleggingar og
aðstoð.
Nákvæmni við sýnatöku
Ítreka verður mikilvægi þess að
sýnin séu vel tekin og gefi sem besta
mynd af því fóðri sem sýnin eru
tekin úr. Í þeim tilvikum sem bænd-
ur taka sýnin sjálfir er best að hafa
samband við héraðsráðunauta sem
veita ráðleggingar um hvernig best er
að standa að sýnatökunni og útvega
sýnatökubora þar sem það á við.
Undanfarin ár hafa bændur í æ
ríkari mæli farið að taka hirðing-
arsýni, enda verið hvattir til þess.
Ástæðan ef til vill sú að votheysgerð
var nánast aflögð með plastvæðing-
unni (heyið hjúpað plasti s.s. rúllur)
og ráðgjöfin verið að u.þ.b. hálf-
þurrka heyið fyrir plöstun. Í fóðri
sem er verkað á þennan hátt er engin
hefðbundin votheysgerjun. Nú eru
samt teikn á lofti um að menn vilji
í einhverjum mæli fara út í votheys-
gerð á nýjan leik. Verði þessi verkun
almenn í framtíðinni verður þörf á
að taka verkuð sýni til að mæla gerj-
unarþætti í votheyinu.
Séu tekin hirðingarsýni við
verkun í plasti í rúllur eða stór-
bagga þá losna menn við að gera
göt á plastið, og þá er einnig vitað
nákvæmar um uppruna (spildu)
sem sýnið er af, auk þess sem þessu
fylgir sá kostur að niðurstöður
liggja fyrir áður en innifóðrun hefst
að hausti. Hægt er að taka hirðing-
arsýni með því t.d að ganga þvert
á múgana áður en rúllað er og taka
smá viskar úr þeim, eða taka sýnið
úr rúllunum áður en plastað er og
nota heybor ef þess er kostur. Þegar
hirðingarsýni eru tekin úr múgum
(eða rúllum) er betra að fara aðeins
undir yfirborðið því það er oft eitt-
hvað þurrara en inn í múgunum. Á
svipaðan hátt er hægt að taka sýni
við hirðingu í vothey eða þurrhey.
Nægjanlegt er að sýnin séu um 0,3-
0,5 kg fer þó nokkuð eftir aðstæð-
um, sérstaklega hvert rakastigið
er og svo hversu jafn efniviðurinn
er sem sýnið er tekið úr. Séu tekin
stór sýni sem menn vilja smækka
þá er hægt að gera það með því að
blanda sýnið mjög vel upp t.d. í
pappakassa og taka úr því smærra
sýni. Þetta krefst vandvirkni því
sýnið verður að vera jafnt úr öllu
upprunalega sýninu. Gæta skal þess
að sýnin þorni ekki í meðförum
og setja þau í frysti sem fyrst í vel
lokuðum, sterkum plastpokum og
umfram allt vel merkt.
Merking sýnanna sé nákvæm
Mjög mikilvægt er að sýnin séu vel
merkt, það gerir skráningu öruggari
og sparar fyrirhöfn. Gætið þess að
nota skriffæri sem þola bleytu! Sjá
töflu efst á síðunni.
Sýni send inn í mælingu fyrir
10. október
Þegar fyrri slætti er lokið eða í hey-
skaparlok eru hirðingarsýnin send í
efnagreiningu með tilheyrandi upp-
lýsingum. Einnig er hægt að biðja
leiðbeiningamiðstöðvar um að
koma sýnunum áfram í mælingu.
Sýni úr verkuðu fóðri eru tekin við
fyrstu hentugleika eftir að heyskap
er lokið og mælt með að sýnin séu
tekin með heybor. Mælst er til að
öll hirðingarsýni verði komin inn
til LbhÍ fyrir 10 október.
Verð og afgreiðslufrestur
Þær mælingar sem gerðar eru
við hefðbundna efnagreiningu
á heyi eru; þurrefni, meltanleiki
(og útreiknað orkugildi), prótein
(útreiknað AAT og PBV) og stein-
efnin Ca, P, K, Mg, og Na. Einnig
er sýrustig mælt í gerjuðu fóðri. Nú
er stefnt á að bæta við tréni (NDF)
við hefðbundna greiningu og verð-
ur sú mæling innifalin í verðinu.
Afgreiðslufrestur niðurstaðna
frá móttöku sýnis er að hámarki 30
dagar á háannatímanum fyrir hefð-
bundna greiningu með steinefnum.
Leitast verður við að stytta þennan
tíma. Ef þess er óskað er hægt að
senda út aukalega niðurstöður án
steinefna eigi síðar en 15 dögum
eftir móttöku og síðan send loka-
skýrsla þegar steinefnamælingar
liggja fyrir. Reiknað er með að
fyrsta útsending niðurstaðna verði
fyrir miðjan ágúst.
Ef óskað er eftir öðru en hefð-
bundinni greiningu með steinefn-
um verður að tilgreina það sérstak-
lega og skrifa það á skráningaseðl-
ana. Ofangreint gildir einungis um
heysýni og önnur gróffóðursýni.
Sé óskað eftir öðrum efnagreining-
um en getið er hér að ofan fer það
eftur sömu leiðum og hefðbundnu
heyefnagreiningarnar.
NorFor fóðurmatskerfið
Síðasta haust og vetur var nýtt for-
rit til fóðuráætlanagerðar fyrir
mjólkur kýr reynt hjá nokkrum
bændum í flestum landhlutum.
Þetta er norrænt kerfi, NorFor, sem
kynnt hefur verið af Bænda sam-
tökunum síðustu ár (sjá bls. 26). Sú
útfærsla sem notuð er hérlendis er
sú norska sem BÍ hefur samið um
afnotarétt af. Unnið er að aðlög-
un kerfisins að íslenskum aðstæð-
um af hálfu Bændasamtakanna og
Landbúnaðarháskólans. Þó um-
gjörð in um kerfið sé ekki fullbúin
verður nokkrum bændum boðið að
vera þátttakendur í þessu uppbygg-
ingarstarfi næsta vetur. Ef bænd ur
vilja reyna nýja kerfið skrifa þeir
NorFor á skráningaseðlana, við
munum sjá um framhaldið í samráði
við BÍ og leiðbeiningamiðstöðvar.
Lítill kostnaður mun koma á bænd-
ur þetta ár þar sem ekki er allt í
hendi og sumt í umgjörð um kerfið
er á vinnslustigi. Verði einhverjar
ófyrirséðar breytingar munum við
kynna það sérstaklega til þeirra
sem skráðir verða þátttakendur í
verkefninu. Umsjón með innleið-
ingu og aðlögun á NorFor kerfinu
hefur Berglind Ósk Óðinsdóttir hjá
Bænda sam tök um Íslands.
Móttaka sýna af Norðaustur-
landi er í Búgarði, Óseyri 2, 603
Akureyri sími 460 4477. Móttaka
úr öðrum landshlutum er á Rann-
sókna stofu LbhI, Hvanneyri, 311
Borgarnesi sími 433 5000 (beint
Hvanneyri 433 5044 beint Keldna-
holt 433 5215) Flestar leiðbein-
inga mið stöðv ar sjá um að safna
sam an sýnum hvert á sínu svæði og
koma þeim að Hvanneyri.
Netföng: Hvanneyri rannsokn@
lbhi.is, Keldnaholt, tryggvie@lbhi.
is, Búgarður, ghg@bugardur.is
Auk framangreindra aðila veita
leiðbeiningamiðstöðvarnar nánari
upplýsingar og aðstoð.
Tryggvi Eiríksson
sérfræðingur í fóðurfræði við Landbún-
aðarháskóla Íslands, Keldnaholti
tryggvie@lbhi.is
Efnagreiningar
Áhugamenn um söfnun sauða-
og geitamjólkur óskast!!!
Þeim sem áhuga hafa á að mjólka
geitur og/eða ær er bent á verk-
efni sem er í gangi um framleiðslu
á sauða- og geitaostum. Mjólkin
er fryst og henni safnað saman,
hún síðan send til MS í Búðardal
sem vinnur osta úr henni. Gegn
ákveðnum skýrsluskilum fæst
greiðsla fyrir hvern framleiddan
lítra. Fagfé sauðfjársamnings styrkir verkefnið og fyrir vikið er mögu-
legt að greiða með þessum hætti fyrir framleiðsluna.
Fjórir til sex framleiðendur sauðamjólkur og einn framleiðandi
geitamjólkur hafa tekið þátt í verkefninu frá 2004. Vöruþróun hefur
átt sér stað í vinnslunni og vitneskja um framleiðslu hefur orðið til.
Þátttakendur hafa verið með á mismunandi forsendum og mjaltir þar
af leiðandi misjafnar á mörgu búinu. Síðastliðin tvö ár hefur verið
framleiddur brie-ostur úr hreinni geitamjólk annars vegar og hreinni
sauðamjólk hins vegar. Ostarnir hafa fengið góðar viðtökur og þykja
herramannsmatur.
Þeim sem hafa hug á að taka þátt í verkefninu er bent á að hafa
sam band við Sigríði Bjarnadóttur, ráðunaut á Búgarði í síma 460-
4477 eða um netfangið sb@bugardur.is í síðasta lagi 22. júní n.k.
Hefur ÞÚ áhuga á að mjólka sauðfé eða geitur?
– Hafðu þá samband
Nú eru kýrnar komnar út á flestum bæjum og vona ég
þá að sumarið sé komið um leið.
Það er vert að minna á sólvörnina í byrjun sumars,
a.m.k. á þær kýr sem eru viðkvæmar fyrir sólbruna,
venjulega þær sem eru mjög ljósar á júgri og spenum.
Sólbruni getur orsakað háa frumutölu tímabundið
og oft endað með júgurbólgu ef fleiður og sár myndast
á spenum vegna bruna og þurrks.
Sumir nota einvörðungu júgursmyrsl á sumrin
og láta það duga gegn sólinni og óhreinindum en ég
hef áður bent á að notkun efna sem borin eru á spena
handvirkt getur orsakað tíðara smitferli milli gripa
þ.e. þegar borið er á spena margra kúa í röð og þess
e.t.v. ekki gætt að viðhafa smitgá um leið, þ.e. að bera
á frumuháar kýr seinast eða þvo sér um hendur eftir
hverja kú.
Nú er ég ekki að predika að bændur eigi alfarið
að hætta notkun júgursmyrslis en munið bara að hafa
góða smitgá og reyna að halda smyrslinu hreinu, t.d.
loka fötunni eftir notkun svo flugur sæki ekki í hana
o.s.frv.
Það er mín skoðun að töluvert sé um óþarfa notkun
s.k. hjálparefna í fjósum og jafnvel á stundum skað-
lega notkun þeirra.
Sem dæmi ef júgurþvottaklútar eru þvegnir og
soðnir eftir hverja notkun, það er algjör óþarfi og gerir
ekkert gagn hvað varðar smit, líftölu og frumutölu að
nota einhver töfraefni út í júgurþvottavatnið, slíkt er að
mestu leyti blekking og óþarfa tilkostnaður.
Það er hins vegar besta leiðin til góðra mjalta og
hreinlætis að þvo og sjóða klútana daglega.
Þar sem júgurheilbrigði er gott og lág frumutala
ættu bændur að takmarka notkun sótthreinsiefna sem
kostur er því þá er einhver leið ófarin ef þörf er á og
upp koma vandamál sem krefjast sýkladrepandi efna
í neyð.
Ég tala fyrir því á mínum svæðum og það er bjarg-
föst skoðun mín að t.d. eigi að þvo fjósin, veggi og
bása einu sinni á ári ef þau eru skítug eftir veturinn,
þvo í byrjun sumars þegar kýr eru farnar út en ef ekki
eru vandamál með smitandi júgurbólgu eða langvar-
andi háa frumutölu eigi aðeins að nota vatn til þvotta
og jafnvel smá sápu þar sem skítur er fastur en ekki að
sótthreinsa með efnum eftir þvottinn að óþörfu.
Tíðar og óþarfar sótthreinsanir geta leitt til meiri
ásóknar harðgerðra sýkla á kostnað hættuminni og
vægari sýkla og þannig valdið ójafnvægi á sýklaflór-
unni í fjósinu.
Sem sagt hófleg notkun hjálparefna er boðskapur
þessa pistils.
Ef sótthreinsun er talin nauðsynleg, leitið þá ráða
hjá dýralæknum eða mjólkureftirlitsmönnum um
aðferðir í hverju tilfelli fyrir sig.
Ágætu lesendur.
Þetta mun vera sjötugasti pistillinn af „Heyrt í sveit-
inni“ og er nú mál að fara að hvíla bæði ykkur og höf-
und pistlanna.
Ég hef farið út og suður í þessum skrifum sem í
upphafi áttu að snúast um fræðslu um mjólkurgæði
en hafa oft orðið að þjóðfélagsádeilu eða smásögu
byggðri á minningum um menn og málefni.
En það er ekki endalaust hægt að vera með fræðslu-
erindi og nudd um góða umgengni.
Þakka tryggum lesendum og hafið það öll sem allra
best.
Kristján Gunnarsson
Kristján Gunnarsson
mjólkureftirlitsmaður
HEYRT Í SVEITINNI
Eftirfarandi upplýsingar skulu fylgja heysýnum:
Tökudagur sýnanna
Sendandi: Nafn bónda, heimilisfang og kennitala. Einnig
lögbýlisnúmer.
Gerð sýna: Hirðingarsýni eða sýni úr verkuðu fóðri.
Verkunaraðferð: Þurrhey, vothey, rúllur, stórbaggar, grænfóður eða
annað.
Söxun: Er heyið fínsaxað minna en 40 mm, grófsaxað eða ósaxað?
Auðkenni: Af hvaða túni, úr hvaða hlöðu, eða annað auðkenni fyrir
sýnið.
Dagsetningar: Sláttudagur og hirðingardagur.
Sláttur: Fyrri sláttur eða seinni sláttur.
Tegund: Skrá ríkjandi grastegundir, þarf ekki að vera mjög
nákvæmt.
Grænfóðurtegund skal ávallt skrá (hafrar, rýgresi, kál eða annað).
Aðrar mælingar. Ef óskað er eftir öðrum greiningum en hefðbund-
inni greiningu skal skrifa það á skráningarseðilinn, nægir td. að
skrifa Norfor greining þá er allt mælt sem þarf fyrir það kerfi.
Verð fyrir heildarmælingar (með steinefnum) er 4.900 kr. hvert sýni án vsk
Verð án steinefna 2.800 kr. hvert sýni án vsk
Viðbót fyrir Norfor kerfið (aska, sCP,NDF og iNDF) (óvíst) kr. hvert sýni án vsk
Viðbót við steinefni til að reikna CAB gildi (Cl, S) 2.500 kr. hvert sýni án vsk
Upplýsingar vegna hey-
efnagreininga árið 2009