Bændablaðið - 11.06.2009, Page 26
26 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
DAGARNIR HAFA verið frekar mildir
hér norðan heiða nú í seinni hluta
maí og fyrrihluta júnímánaðar. Það
hefur verið sólríkt og eiginlega
heldur þurrt fyrir okkur gróðurfólk-
ið. Einn morguninn í síðustu viku
var þó von á fyrstu rigningarskúr-
um sumarsins en einmitt þá renndi
ég á reiðhjólinu upp Spítalaveginn
á Akureyri og hitti þar á Margréti
Guðmundsdóttur sem þar býr
ásamt eiginmanninum, Þórarni
Hjart ar syni.
Yfirleitt bregður Margrét sér í
buxur fyrir garðverkin, smeygir
sér í garðbomsurnar og setur upp
sólhatt sem stjúpdóttir hennar gaf
henni, enda viðkvæm fyrir sól.
Hattinn góða fékk Margrét í afmæl-
isgjöf en margar gjafir sem hún fær
tengjast einmitt garðinum, enda á
hún afmæli í júlí, um hásumar. Þá
hefur hún jafnvel óskað sér að fá
plöntur og gjarnan fjölærar plöntur
í afmælisgjöf. En þennan morgun
er hún bara í bomsunum þegar við
röltum um garðinn hennar undir
háværum þrastaklið.
Úr smáíbúðahverfinu á
Spítalastíginn
Hefur Margrét lengi haft þennan
áhuga á garðrækt? Margrét: „Áhugi
minn á garðrækt byrjaði þegar ég
var barn. Ég hafði fengið að fara
með afa mínum en hann var með
kartöflugarða í Ártúnsbrekkunum.
Þá hef ég verið bara pínulítil, innan
við fimm ára. Mér hefur verið sagt
frá því að ég var mjög sæl þarna
með honum. En síðan fer ég sem
sagt í skólagarðana og heillast þar
alveg strax. Það þurfti meira að
segja að reka mig heim. Við feng-
um eiginlega bara að vera hálfan
daginn og ég var voðalega ósátt við
það að fá ekki að vera allan daginn.
En það þurfti auðvitað að hleypa
fleiri krökkum að og takmarkað
magn af garðverkfærum. Ég vildi
helst vera þar alla daga. Þetta var
í smáíbúðahverfinu. Svo þegar ég
eltist þá hafði ég ekki alltaf tíma og
var ekki alltaf með garð. Eftir að
ég flutti norður var ég með stóran
garð þar sem ég bjó fyrst á Tjörn
í Svarfaðardal. Svo var það þessi
garður hér á Akureyri, hann var í
mjög mikilli órækt þegar ég flutti
hingað. Það höfðu búið hér ungir
krakkar sem leigðu og höfðu ekki
tíma til þess að sinna garðinum.
Og kannski ekki áhuga, hann er
minni á vissum aldri, þegar maður
er um tvítugt eða svo, þegar maður
er mjög ungur. En svo kemur þetta
aftur.“
Túlípanar og aðrir vorglaðningar
Þeir eru mjög appelsínurauðir og
litadjarfir yfirhöfuð og gleðja mjög
augað þegar komið er upp að húsi
Margrétar og Þórarins, túlípanarn-
ir sem standa þar í litlum breið-
um. „Þetta var allt gras hérna, en
ég hef svo komið fyrir túlípönum
og öðru slíku. Þetta með túlípan-
ana sá ég í Reykjavík, þá bjó ég á
Melunum. Þar var svo dásamlegur
garður hennar Kristínar Gísladóttur
á Reynimelnum. Ég kynntist henni
þegar ég var að skrifa sögu Hvíta
bandsins. Garðurinn hennar er
stundum eins og vin í eyðimörk,
dálítið eins og töfragarður, svo
ótrúlega fallegur og margt fljótt
komið upp á vorin. Hún var líka
félagi í Garðyrkjufélaginu og pant-
aði lauka og annað í gegnum það
félag, þar kynnist ég því fyrst að
það væri hægt. Garðurinn hennar
var frekar lítill en mjög inspírer-
andi og gott að sjá þar hvað hægt
er að gera og líka snemma að vori.
Það er svo ótrúlega mikil gleði að
sjá túlípanana koma upp undan
snjónum. Það er líka svo mikill
sigur lífsins á hverju vori og vekur
svo mikla gleði þegar maður geng-
ur hérna út úr húsi.“
Lystigarðurinn nærri því í
túngarðinum
Hús þeirra hjóna var byggt 1907
og er því rúmlega aldar gamalt.
Margrét segir mér að Jón Guð-
munds son sem var einn stofnenda
Fegr unar félags Akureyrar hafi búið
í húsinu um tíma og því þurfi hún
að standa sig vel til þess að heiðra
minningu hans. „Svo bý ég nú
hérna rétt hjá Lystigarðinum sem
ég elska,“ segir Margrét. „Ég fer
þangað yfirleitt alltaf á hverjum
degi og svo alltaf tvisvar á dag, í
og úr vinnu. Svo fer ég líka bara
þangað til þess að skoða. Ég er að
reyna að læra heitin á plöntunum
en er frekar slöpp í að læra svona
utanað, gleymi þessu voða mikið.
En svo rifjast það upp á sumrin.“
Við erum sammála um hversu gott
það er að geta flett nöfnunum upp
en einnig um hvað það er frábært
að geta séð plönturnar með eigin
augum í Lystigarðinum, þær eru
alltaf öðruvísi en á mynd. Þá er líka
hægt að sjá plönturnar á ólíkum
vaxtarstigum, fyrir blóma og eftir,
auk þess sem hægt er að spyrja þau
sem vinna í Lystigarðinum.
Grasflatir víkja fyrir steinabeðum
Norðan við reynitré og sólberja-
runna hefur Margrét komið fyrir
myndarlegu steinabeði með fjöl-
æringum. „Ég sé alveg um garðinn
og það er svo hrikalega erfitt að
slá í brekkunum, þannig að ég vil
frekar hafa hér steinabeð með fjöl-
æringum. Það er miklu minni vinna
að hreinsa það heldur en að slá
grasið. Þess vegna vil ég gera þetta
allt hér smám saman að beðum og
minnka grasfletina, þá get ég bara
legið hér í brekkunum þegar ég er
orðin gömul,“ segir Margrét og
hlær. Skiljanlega, enda garðurinn
á þremur stöllum en á milli þeirra
brattar brekkur. Garðurinn fær því
með tímanum æ meira það yfir-
bragð sem hægt er að sjá á mynd-
um frá því um aldamótin 1900 en
þá voru garðarnir fullir af fjölær-
ingum og runnum og lítið um gras-
flatir. Einhvern tímann komust svo
grasflatirnar í tísku með tilheyrandi
sláttukvöð.
Björk og birkikvistur
Í miðju garðins stendur reglulega
falleg og óvenju breiðkrónótt og
vel vaxin björk eða birki, sem fer
sérstaklega vel á þessum stað.
Margrét hefur líka fellt nálæg tré
sem skyggðu á tréð til þess að leyfa
því að njóta sín enn betur. Svo er
björk þessi lýst upp á jólunum og
fær þá enn veglegri sess enda það
eina sem er upplýst. Reglulegt
djásn og mögulega nálægt því að
vera hundrað ára.
Nærri því við hlið bjarkar inn-
ar stendur birkikvistur sem Mar-
gréti þykir líka sérstaklega vænt
um. Hann kom frá föður hennar,
sem flutti kvistinn fyrst úr smá-
íbúðahverfinu austur á Miðfell í
Þingvallasveit þaðan sem faðirinn
er ættaður og þar sem fjölskyldan
átti sumarbústað. Þar var kvistin um
komið fyrir niðri við vatnið en hann
dafnaði ekkert vel þar, sennilega
hefur orðið of kalt þar á vetrum
eða rakt. Svo var birkikvisturinn
fluttur til Margrétar á Spítalaveginn
eftir að hún kom þangað og hefur
farið mjög vel um hann þarna undir
björkinni. „Mér þykir alveg sér-
staklega vænt um þennan birki-
kvist,“ segir Margrét, „það er líka
svo gaman að taka eitthvað svona
með sér frá æskuheimilinu, flytja
með sér.“
„Vildi helst vera þar alla daga“
Kíkt í garðinn til Margrétar Guðmundsdóttur, sagnfræðings,
við Spítalaveg á Akureyri
Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur og garðyrkjukona
stendur hér undir björkinni sem prýðir miðju garðs hennar við
Spítalaveg á Akureyri og er eitt helsta djásn hans.
Kristín Þóra Kjartansdóttir
sagnfræðingur og garðyrkjunemi
kristinkj@gmx.net
Gróður og garðmenning
NORFOR FÓÐURMATSKERFIÐ er sam-
starfsverkefni Norðurlandanna,
Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur og
Íslands. Það var fyrst tekið í notk-
un árið 2006 en ennþá eru löndin
fjögur mismunandi stödd í inn-
leiðingarferlinu. Á Íslandi voru
fyrstu fóðuráætlanirnar gerðar
með nýja kerfinu í lok ársins 2007.
Síðastliðin vetur voru á milli 30 og
40 bæir sem fengu fóðuráætlanir úr
nýja kerfinu og vonandi verða þeir
fleiri næsta haust og vetur.
Helstu kostir þess að fá áætl-
anir úr NorFor kerfinu eru þeir að
kerfið byggir á hámarks notkun
gróffóðursins og lágmarkar þann-
ig notkun kjarnfóðurs eins og
mögulegt er. Mikilvægt er að setja
inn nákvæmar upplýsingar um
búskapinn og dýrin til þess að for-
ritið reikni bestu og hagkvæmustu
lausnina. Upplýsingarnar sem sett-
ar eru inn í kerfið og tekið er tillit
til við útreikninga er hvort um sé
að ræða lausagöngufjós, básafjós
eða áætlun á beit. Þungi, staða á
mjaltaskeiði, staða í meðgöngu,
númer mjaltaskeiðs, nyt og efna-
innihald mjólkur eru þær upplýs-
inar um dýrin sem nauðsynlegt er
að setja inn í kefið. Þarfir dýranna
eru reiknaðar út frá þessum upplýs-
ingum og svo er fundin áætlun sem
uppfyllir þessar þarfir á sem hag-
kvæmastan hátt. Til þess að geta
reiknað fóðurskammt sem upp-
fyllir þessar þarfir þurfa einnig að
liggja fyrir upplýsingar um fóðrið.
Upplýsingar um gróffóðrið, sem á
að nota, koma með efnagreiningum
en upplýsingar um þær kjarnfóð-
urtegundir sem eru á markaðnum
liggja inni í kerfinu. Þannig er
mögulegt að velja kjarnfóðurteg-
undir sem passa best við gróffóðrið
hverju sinni og fá þannig út hag-
kvæmari lausn. En það er einmitt
reynsla nokkurra bænda sem fengu
NorFor fóðuráætlanir eftir seinasta
vetur, kjarnfóðurkostnaður lækkar
án þess að það hafi neikvæð áhrif á
framleiðslu eða heilsu dýranna.
Meginmarkmið síðasta vetr-
ar var að kynnast nýja kerfinu og
prufa það við íslenskar aðstæður.
Héraðsráðunautar voru í sambandi
við bændur á sínum svæðum sem
höfðu áhuga á að vera með í verk-
efninu. Mikilvægt var að halda vel
utan um þessa bæi þar sem ekki
dugir hefðbundin efnagreining á
fóðursýnunum. Nýja kerfið gerir
ráð fyrir fleiri þáttum greindum
en venjan hefur verið. Þess vegna
þurfti að sjá til þess að sýni úr því
fóðri sem átti að nota við áætlana-
gerðina væri greint þannig að það
passaði inn í kerfið.
Næstu skref í innleiðingarferl-
inu eru að fjölga bændum sem fá
fóðuráætlanir með NorFor kerf-
inu og styrkja umgjörð og notkun
kerfisins á Íslandi. Það felst meðal
annars í því að tengja hugbúnaðinn
sem vinnur fóðuráætlanirnar og
skýrsluhaldskerfið Huppu saman.
Með þeirri tengingu verður hægt
að nota upplýsingar um kýrnar í
skýrsluhaldskerfinu þegar vinna á
fóðuráætlun með NorFor. Þannig
er hægt að nota raun-
verulegar upplýsing-
ar sem eru uppfærð-
ar reglulega. Einnig
þarf að aðlaga efna-
greiningar að nýja
kerfinu og niðurstöð-
ur efnagreininganna
þurfa svo að vera
aðgengilegar inni í
kerfinu. Markmiðið
er að öllum þess-
um tengingum verði
komið á í vetur og
kerfið verði því
orðið fullbúið að
ári. Einnig verður
boðið upp á nám-
skeið í notkun kerf-
isins næsta haust
þar sem áhugasamir
bændur geta fengið
aðgang að kerfinu
með sínum ráðunaut
og unnið áætlanirnar
að miklu leyti sjálfir.
Þó er mikil vægt
að hafa góða yfirsýn
yfir það hvaða bænd-
ur komi til með að
taka þátt í verk-
efninu næsta vetur
og þá sérstaklega
vegna þess að kerf-
ið krefst viðbót-
ar efnagreininga á
gróffóðursýnunum sem verða þá
framkvæmdar á þeim sýnum sem
nota á í fóðuráætlanagerð með
NorFor. Áhugasömum bændum á
að hafa samband við héraðsráðu-
naut eða undirritaða ef þeir vilja
taka þátt í verkefninu og fá fóður-
áætlanir úr NorFor komandi vetur.
Meðfylgjandi er fylgiseðill sem
sýnir þær upplýsingar sem þurfa að
koma fram með NorFor sýnum.
Bændur, notfærið ykkur NorFor fóðurmatskerfið
! " #
# $
%
&
' (
% # )*+ *+
,-
#
./0 1 /0 )
2 3
%
!
!
!
4
5
"
$
66
# #
'
7 7 7
8
4
6
4 9
$
% #:
&; 6