Bændablaðið - 11.06.2009, Síða 27
27 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Síðustu daga hef ég verið við
dóma á kúm í fjósum á Suður-
landi. Þess vegna finnst mér við
hæfi að þessu sinni að víkja að
hugleiðingum Hollendinga í sam-
bandi við útlitsmat kúnna. Er
mögu legt að nota útlitsmat kúnna
til að finna kýrnar sem best henta
framtíðaraðstæðunum í fram-
leiðslunni?
Þeir segja að á ráðstefnu hjá
þarlendum kúabændum fyrir fjór-
um árum hafi framkvæmd útlits-
matsins og hvað bændur vildu í
þeim efnum verið ítarlega rætt.
Sumt af kröfum þeirra kemur
stéttarbræðrum hér á landi að lík-
indum á óvart. Þeir telja að júgur-
og spenagerð sé orðin það góð að
enga áherslu eigi lengur að leggja
á úrbætur þar. Aftur á móti eigi
að beina athygli að klaufum og
fótum kúnna. Þá megi kýrnar ekki
hækka frekar frá því sem komið
er. Eins þurfi duglegar, getumikl-
ar kýr sem haldi holdum. Þetta er
um margt lýsing á þeim harðgerðu
(e. robust) kúm sem fjallað hefur
verið um í þessum pistlum.
Þegar þeir fóru að velta fyrir
sér hvernig best væri að meta
hversu harðgerðar kýrnar væru
samkvæmt þessu var niðurstaða
þeirra sú að ekki bæri að búa til
nýjan eiginleika til að meta. Þess
í stað næðist best nálgun með því
að sameina á réttan hátt í einkunn
nokkra þætti sem þegar eru metn-
ir. Þarna höfðu þeir í höndunum
dóma fyrir um 600 þúsund kýr þar
sem þeir þróuðu slíka einkunn.
Rétt er fyrst að gera örstutta
grein fyrir hvernig þeir vinna sína
kúadóma. Það er um margt hlið-
stætt því sem hér er gert. Þeir eru
með tvískipt mat. Heildareinkunn
er gefin á grunni stigagjafar þar
sem júgurgerð og fætur ásamt sér-
kennum kynsins telja mest og er
sú heildareinkunn á bilinu 71-89
(ekki veit ég nákvæmlega hvernig
þetta bil er ákvarðað en þeir sem
þekkja okkar mat vita að þetta
fellur í tölugildum ótrúlega vel að
okkar mörkum). Til viðbótar eru
þeir með línulegt mat hliðstætt því
sem við erum að nota og er það
unnið fyrir 18 þætti.
Þeir fundu að með því að velja
saman nokkra þætti úr línulega
matinu og sameina þá í heildarein-
kunn á réttan hátt fékkst að þeirra
mati gott mat á hversu „harð-
gerðar“ kýrnar væru. Þættirnir
sem þeir völdu til að nota í slíka
heildareinkunn voru boldýpt,
útlögur, malabreidd og holdastig.
Útlögur kúnna meta þeir aðeins
á annan hátt en við gerum þó að
mér virðist að þar muni nánast um
sama eiginleika að ræða á báðum
stöðum. Rétt er að benda á að þeir
taka tillit til áhrifa af ytri þáttum
eins og stöðu á mjólkurskeiði,
sem vænta má að hafi talsverð
áhrif í sambandi við holdastig,
þegar þeir nota tölurnar.
Þeir finna hins vegar mjög
skýrt að samband þessara þátta
við „harðgerðar“ kýr er ekki
línulegt (það er að endagildi séu
æskilegust og verst), heldur hefur
það kjörgildi. Með því er átt við
það að bestu gripina er að finna
með tölugildi einhvers staðar inni
á skalanum og þess vegna fæst
heildareinkunn ekki með því að
leggja saman tölugildi heldur með
því að umbreyta tölunum í önnur
gildi. Þetta gera þeir þannig að
þeir fá fram heildareinkunn með
skilgreint bil frá 71-89 eins og
heildareinkunn kúnna.
Einkunn sú sem þeir reikna
á þennan hátt hefur síðan verið
borin saman við endingu kúnna
og er það samband sýnt á mynd.
Endingin er mæld sem hlutfall
kúnna sem nær að hefja þriðja
mjólkurskeið í framleiðslunni.
Þannig einkunn fyrir „harðgerðar“
kýr er nú reiknuð fyrir hollensku
kýrnar um leið og útlitsmat þeirra
er gert.
Þetta gefur tilefni til örstuttra
frekari hugleiðinga. Það sem
þarna kemur fram er að eiginleikar
sem verið er að meta með línulegu
mati eigi sín kjörgildi. Þetta er
mjög auðskilið atriði þegar nánar
er skoðað vegna þess að margt af
þessu eru þættir þar sem augljóst
er að gripir sem liggja nærri með-
altali henta aðstæðum oft best,
en gripir sem verulega skortir á
um eiginleika eða sýna yfirdrifin
gildi eru ekki það æskilega. Um
leið þýðir þetta að hefðbundn-
ar tölfræðiaðferðir með skoðun
á línulegu samhengi þátta eiga í
mörgum tilvikum ekki lengur við
og hafa jafnvel í sumum tilvikum
verið að leiða menn á villigötur.
Vandamálið sem þarna kemur til
er að ákvörðun á kjörgildinu er í
mörgum tilvikum ekki augljós,
en rannsóknir hafa sýnt að rétt
ákvörðun á því skiptir miklu máli
í ýmsum tilvikum ef á að nota
slíkar einkunnir í ræktunarstarf-
inu.
Til að taka nærtækasta dæmið
sem við höfum í sambandi við
verulega mikilvægan eiginleika,
sem hefur mjög augljóst kjörgildi,
eru mjaltir kúnna. Allir eru sam-
mála um að æskilegustu kýrnar
séu þær sem selja mjólkinni hratt
og jafnt. Við mælingar á mjalta-
hraða hefur margoft komið í ljós
að alveg einhliða vali fyrir hraðari
mjöltum fylgja oftast vandamál
í sambandi við lekar kýr. Því eru
augljóslega fyrir hendi kjörmörk,
en hver þau eru hefur reynst örð-
ugt að meta. Rétt er einnig að
benda á að breyttar aðstæður með
notkun á mjaltaþjónum munu ef
til vill breyta þessu sjónarmiði
talsvert einmitt fyrir þennan eig-
inleika.
Þessar hugleiðingar leiða
einnig til þess í framhaldinu að
mér sýnist það veruleg ögrun í
íslenskri nautgriparækt að gera
sér grein fyrir hvort hin nýja tækni
(mjaltaþjónarnir) kallar á breytt
viðhorf gagnvart eiginleikum í
ræktunarstarfinu. Mjaltaþjónar
hafa verið teknir í notkun í hlut-
fallslega meira umfangi hér á
landi en í nokkru öðru landi. Þetta
setur okkur um leið þær kröfur
að hugleiða frekar en aðrir hvaða
ný sjónarmið þetta kann að kalla
á í ræktunarstarfinu. Eftir að hafa
síðustu daga komið í fjölda af
þessum nýju fjósum er ljóst að í
þeim hefur komið inn nýr vinnu-
þáttur sem er tamning á kvígunum
gagnvart hinni nýju tækni. Ef til-
fellið er að þessi tamning er erfða-
bundinn þáttur er það áreiðanlega
umhugsunarefni hvort ekki megi
mæla slíkan eiginleika og taka
tillit til í ræktunarstarfinu. Það er
þekkt að Nýsjálendingar hafa um
áratuga skeið látið bændur meta
tamningu á kvígunum hjá sér og
hafa unnið með þann þátt í sinni
ræktun. Það er viss vísbending um
að þarna geti verið eitthvað fyrir
okkur að huga að.
Útlitsmat framtíðarkúnna
Jón Viðar Jónmundsson
landsráðunautur í búfjárrækt
Bændasamtökum Íslands
jvj@bondi.is
Kynbótastarf
Hlutfall kúnna
Hlutfallsleg lifun
„Harðgerðar“ kýr
H
lu
tfa
lls
le
g
lif
un
(3
. m
jó
lk
ur
sk
ei
ð)
H
lu
tfa
ll
kú
nn
a
Samband einkunnar fyrir „harðgerðar“ kýr og lifunar hjá hollenskum
kúm.
Tilkynning vegna gæða-
stýringar í nautgriparækt
Við viljum minna á að síðasti skiladagur mjólkurskýrslna inn í HUPPU
til uppgjörs er 10. næsta mánaðar eftir skýrslutöku. Þeir sem ekki skrá
sjálfir þurfa því að gæta þess að skýrslur séu komnar inn til skráningar
í tíma. Einnig bendum við á að til að eiga rétt að þriðju gæðastýring-
argreiðslu, í lok sumarsins, þurfa að liggja fyrir tvö kýrsýni tekin af
fyrri helmingi ársins 2009. Því er nauðsynlegt fyrir þá sem aðeins
hafa skilað einu kýrsýni sem af er ár að taka kýrsýni nú í júní.
Ráðunautar
! " # $ BARNINU
LÍÐUR BETUR &
NÁTTÚRAN BLÓMSTRAR
Bændur og verktakar
Nú bjóðum við upp á bakvaktar- og þjónustusíma
á kvöldin og um helgar. Erum með vel útbúinn bíl,
komum á staðinn og leysum vandann.
Munið símanúmerið 893-2881
eða setjið það í minnið á símanum ykkar
Pardus ehf.
Sími: 453-7380 Þjónustusími: 893-2881