Bændablaðið - 11.06.2009, Page 28
28 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
2
6 4 1
9 4 5 7
2 6 9
7 8 1
8 5 7 9
1 3 2
4
5 8
8 4
6 3 9
4 1 9 6
9 8 6 2
7 3 2
1 5
2 4
9 6 3
4 2
5
3 5 9 1
8 6
1 8 9 4
5
4 2
2 7 1
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Maturinn hennar Nönnu klikkar ekki!
Nýverið kom út hjá Forlaginu enn
ein matreiðslubókin úr smiðju
Nönnu Rögnvaldardóttur: Matur-
inn hennar Nönnu – heimilismatur
og hugmyndir. Þó að þetta sé ekki
kreppumatreiðslubók, að sögn höf-
undar, þá varð hugmynd að henni
til skömmu eftir bankahrunið síð-
astliðið haust. Hér hefur Nanna
hagsýni og nýtni að leiðarljósi í
uppskriftum sem koma úr ýmsum
áttum og eru flestar fljótgerðar, en
það sem kryddar bókina enn frek-
ar eru fróðleiksmolar á víð og dreif
um ýmis hráefni.
Nautakjöt með spergilkáli
450 g nautakjöt
400 g spergilkál
1 blaðlaukur (hvíti og ljósgræni hlut-
inn)
2 hvítlauksgeirar
smábiti af engiferrót (2 cm)
2 msk. olía
200 ml vatn
5 msk. ostrusósa, eða eftir smekk
Aðferð:
Skerið kjötið í þunnar, litlar sneiðar
með beittum hníf (gott er að setja
það í frysti í 15-20 mínútur svo
auðveldara verði að skera það).
Snyrtu spergilkálið vel og skerðu
sverari hluta stönglanna frá. Skiptu
kálinu í litla kvisti. Hreinsaðu blað-
laukinn vel og saxaðu hann. Saxaðu
hvítlaukinn og engiferrótina smátt.
Hitaðu olíuna í wok-pönnu eða
á þykkbotna pönnu þar til rýkur
næstum úr henni. Settu kjötið svo
á hana – helminginn í senn, nema
pannan sé mjög stór – og steiktu
það við hæsta hita í 2-3 mínútur,
hrærðu stöðugt í á meðan. Taktu
það svo upp með gataspaða, settu
á disk og steiktu afganginn. Taktu
seinni skammtinn líka af pönnunni,
settu spergilkálið á hana ásamt 2
msk. af vatni og veltisteiktu í um 2
mínútur. Settu þá blaðlauk, hvítlauk
og engifer á pönnuna og steiktu í
um 2 mínútur. Helltu ostrusósunni
og vatninu á pönnuna og láttu sjóða
undir loki þar til komin er fremur
þykk og klístruð sósa. Hrærðu kjöt-
inu og safa, sem kann að hafa runn-
ið úr því, saman við og taktu pönn-
una af hitanum. Berðu réttinn fram
með hrísgrjónum eða núðlum.
Ostamakkarónur með beikoni
400 g makkarónur
salt
100 g beikon í sneiðum
500 ml matreiðslurjómi
200 g rifinn ostur, t.d. gratínostur
4 msk. nýrifinn parmesanostur
ögn af nýrifnu múskati eða ¼ tsk.
malað múskat
Aðferð:
Hitaðu ofninn í 200°C. Sjóddu
makkarónurnar í saltvatni þar til
þær eru næstum meyrar en ekki
alveg. Þurrsteiktu á meðan beikon-
sneiðarnar á pönnu og skerðu þær
síðan í litla bita. Settu þá í stóra
skál og blandaðu matreiðslurjóma,
rifnum osti, 1 msk. af parmesanosti
og múskatinu saman við. Helltu
makkarónunum í sigti og láttu
renna vel af þeim áður en þeim er
hvolft út í rjóma- og ostablönduna.
Hrærðu makkarónunum vel saman
við, helltu blöndunni í léttsmurt,
eldfast mót og stráðu afganginum
af parmesanostinum yfir. Bakaðu
réttinn í miðjum ofni í 20-25 mín-
útur. ehg
MATARKRÓKURINN
Nautakjöt með spergilkáli að hætti
Nönnu er girnilegur og góður réttur
þar sem ostrusósan gefur góðan
keim.
Upphaflega áttu afi og amma
Karls Guðmundssonar á Mýrum
3, bæinn Mýrar. Börn þeirra
skiptu jörðinni upp þannig að
Erla og Ása fengu hvor um sig ¼
hluta jarðarinnar en Páll bróðir
þeirra ½ jörðina.
Býli?
Mýrar 3.
Staðsett í sveit?
Heggstaðanesi, 531
Hvammstanga, nánar tiltekið í
Hrútafirði austan verðum.
Ábúendur?
Karl Guðmundsson og Valgerður
Kristjánsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Fjölskyldan er barnmörg, 2 börn
hafa fasta búsetu að Mýrum allt
árið. Þegar öll börnin eru heima
þá eru þau 7 talsins. Þau eru:
Eðvarð Þór 22 ára vélstjóri, Jónas
Þór 18 ára nemi VMA, Ársæll
Kristófer 16 ára nemi VMA,
Kristján 15 ára nemi Húnaþingi
vestra, Ólína Ann og Stefanía Ann
13 ára búsettar í Danmörku og
Olga Kristín 10 mánaða.
Á Mýrum búa foreldrar
Karls, þau Erla Stefánsdóttir og
Guðmundur Karlsson sem einnig
koma að bústörfunum.
Stærð jarðar?
Jörðin er 300 ha og ræktað land
um 50 ha. Karl á ¼ í Söndum
sem eru ca 1400 ha og nýtir þar
22 ha af ræktuðu landi. Þá eru
leigðir 32 ha.
Tegund býlis?
Blandað bú. Á Mýrum hefur alltaf
verið búið stórt. Upphaflega áttu afi
og amma Karls Mýrar. Börn þeirra
skiptu jörðinni upp þannig að Erla
og Ása fengu hvor um sig ¼ hluta
jarðarinnar en Páll bróðir þeirra ½
jörðina.
Fjöldi búfjár og tegundir?
300 kindur, 50 kýr og um 100
nautgripir. 7 hross. Tíkin Gríma
og kötturinn Mismas. Hundurinn
Gríma gætir barnavagnsins þegar
að yngsta barnið sefur, hún Olga
Kristín.
Húsakostur?
Fjárhús byggð 1974 og votheys-
hlaða 1984. Fjós byggt 1987 fyrir
14 kýr og geldneyti. Árið 2006
byggðu Valgerður og Karl stál-
grindahús við gamla fjósið fyrir 70
kýr auk geldneyta. Þá er á jörðinni
vélageymsla, þurrheyshlaða, tveir
braggar og tvö íbúðarhús.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnu dagur fyrir sig á bænum?
Dagurinn byrjar á fjósverkum og
endar á þeim líka. Á morgnana er
farið í húsin og síðan taka við ýmis
störf eftir árstíðum. Seinni partinn
er aftur farið í húsin og dagurinn
endar á því að húsbóndinn fer og
lítur á róbótinn.
Skemmtilegustu/leiðin leg ustu
bú störfin?
Karli finnst leiðinlegast að verka
skít en skemmtilegast að girða.
Valgerði finnst skemmtilegast að
gefa kálfunum en leiðinlegast að
gera við girðingar.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5
ár?
Þá verðum við vonandi búin að fylla
nýja fjósið og komin með rúmlega
60 kýr. Við ætlum að rækta meira af
jörðinni og auka kornrækt.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda?
Félagsmál bænda í Húnaþingi vestra
eru mjög góð og samstaða mikil.
Menn hjálpast að og eru hver öðrum
vinveittir.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Það fer eftir því hvernig ríkistjórnin
heldur á spilunum og hvort að við
göngum í ESB.
Lagist gengi íslensku krónunnar
ekki er hætta á að skuldsettir bændur
verði gjaldþrota og innganga í ESB
mun leggja landbúnað í rúst.
Hvar teljið þið að helstu
tækifærin séu í útflutningi
íslenskra búvara?
Nóg framboð er af matvöru í
Evrópu og því eins og að bera vatn
í bakka fullan lækinn að ætla að
fylja út þangað. Þó má alltaf finna
einhver tækifæri.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Smjörvi, súrmjólk og ostur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Heimatilbúin bjúgu og grillað
lambakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Karli fannst eftirminnilegast að
þreskja korn síðastliðið haust.
Valgerður var einn morguninn í
sauðburðinum. Þá heyrði hún und-
arlegt hljóð í fjárhúsunum og sá
að þar sat þröstur á garðabandinu.
Hann flaug ekki þó hún gengi að
honum. Þegar betur var að gáð þá
sá hún að þetta var ungi og tveir
aðrir voru í ganginum. Hún hjálpaði
þeim út í heiminn og lífgaði þetta
atvik upp á sálartetrið.
Frá skírn Olgu Kristínar 31. júlí 2008. Á mynd vantar elsta barnið, Eðvarð Þór.
Bærinn okkar
Mýrar 3, Heggstaðanesi