Bændablaðið - 11.06.2009, Side 29
29 Bændablaðið | fimmtudagur 11. júní 2009
Jóhanna Jóhannesdóttir er 14
ára gömul og býr í Snæfellsbæ.
Hún æfir blak og fótbolta og
finnst leiðinlegast í heimi að taka
til í herberginu sínu. Jóhanna
ætlar að bralla ýmislegt í sumar,
meðal annars að ferðast um
landið sitt.
Nafn: Jóhanna Jóhannesdóttir.
Aldur: 14 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Ólafsvík.
Skóli: Grunnskóli Snæfellsbæjar.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Myndmennt.
Hvað er uppáhalds dýrið þitt?
Fiskar.
Uppáhaldsmatur: Lasagne.
Uppáhaldshljómsveit: Jonas
Brothers og 3OH!3
Uppáhaldskvikmynd: Step Up 1
og 2
Fyrsta minningin þín? Áramótin
2000.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og blak.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Að vera á Netinu,
hlusta á lög í iTunes og skoða
iPhoto.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ég hef ekki hug-
mynd.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Líklegast ekkert.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að taka til í herberg-
inu mínu.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í
sumar? Ferðast innanlands. ehg
Fólkið sem erfir landið
Jóhanna Jóhannesdóttir er 14 ára gömul og stundar nám við Grunnskóla
Snæfellsbæjar í Ólafsvík.
Ætlar að ferðast innanlands í sumar ÆðarbændurTökum á móti
æðardúni til
hreinsunar og
sölu.
Hafið samband í síma 892-8080
Dúnhreinsunin ehf.
Digranesvegi 70 - 200 Kópavogur
Veggspjald af
íslenska hundinum
Tvær stærðir eru í boði, 88 sm X 61 sm
og A3.
Verð er kr. 1.500 af stærri gerðinni og
kr. 900 af litlu spjöldunum. Að auki
bætist við sendingarkostnaður.
Hringdu í síma 563-0300 eða sendu
tölvupóst á netfangið jl@bondi.is til
þess að panta veggspjald.
Hægt er að greiða með
greiðslukorti
eða fá sendan
greiðsluseðil.
Nýtt og glæsilegt veggspjald af
íslenska fjárhundinum er komið út.
www.bondi.is
Bændur, Bændur, Bændur
Nú styttist í heyskapinn og gott er að fara að huga
að tækjunum.
Af því tilefni ætlar Pardus ehf. að halda námskeið á
Welger, New Holland og Case sambyggðum rúlluvél-
um þann 16. júní næstkomandi.
verður á staðnum Ingvar Guðmundsson tæknimað-
ur í Vélaveri og mun hann svara spurningum sem
brenna á ykkar vörum. Þátttökugjald er 8000 krón-
ur og fer námskeiðið fram á Pardus-verkstæðinu á
Hofsósi. Þeir sem hafa hug á að mæta skrái sig hjá
Jóhanni í síma 453-7380 eða 893-2881 fyrir 12. júní.
Pardus ehf.
Áhugi fólks á hvers kyns rækt-
un hefur vaxið mjög á undan-
förnum árum Endurmenntun
hyggst koma til móts við alla
þessa grænu fingur með því að
efna til tveggja námskeiða í sam-
starfi við Horticum menntafélag.
Námskeiðin verða haldin núna í
júni og eru eftirfarandi:
Fáðu krydd í tilveruna: Námskeið
um ræktun kryddjurta
Ferskleikinn er afar mikilvægur til
að kryddjurtir njóti sín til fulls og
því fátt betra en að hafa aðgang
að þeim beint úr eigin ræktun. Á
námskeiðinu verður fjallað um
ræktun og notkun helstu tegunda
kryddjurta sem þrífast utandyra
hér á landi. Helstu efnisþættir
námskeiðsins eru ræktunarskipu-
lag, sáning, forræktun, plöntun,
jarðvegur, áburðargjöf, umhirða,
plöntuheilbrigði, uppskera,
geymsla og ræktun innandyra.
Kennari: Björn Gunnlaugsson,
cand. agro. Tími: Þri. 23. júní kl.
19:30-22:00. Verð: 4.900 kr.
Rósir og rósarækt
Rósir hafa löngum prýtt garða
landsmanna með fallegu vaxtarlagi
sínu og óviðjafnanlegum blómum.
Undanfarin ár hefur úrval yrkja
sem þrífast í görðum landsmanna
aukist jafnt og þétt. Námskeiðið
gerir grunnatriðum rósaræktar
skil. Það er ætlað hinum almenna
garðræktanda sem hefur áhuga á
að auka þekkingu sína á þessum
þrautreyndu garðplöntum og þá
sérstaklega ræktun þeirra.
Farið verður yfir ákjósanleg
jarðvegsskilyrði, atriði er varða
gróðursetningu, staðarval, klipp-
ingu og almenna umhirðu rósanna.
Einnig munu ólíkar tegundir, yrk-
ishópar og algengustu yrki verða
kynnt ásamt því sem ræktunarsaga
þeirra verður rakin í grófum drátt-
um, allt frá hirð keisarans í Kína til
Napóleonsstyrjaldanna.
Kennari: Hjörtur Þorbjörnsson,
grasafræðingur. Tími: Mán. 29. júní
kl. 19:00-22:00. Verð: 5.500 kr.
Námskeiðin fara fram í húsi
Endurmenntunar við Dunhaga.
Nánari upplýsingar og skráning
fer fram á vef Endurmenntunar,
www.endurmenntun.hi.is (velj-
ið Námsframboð > Námskeið >
Menning, sjálfsrækt og tungumál)
eða í síma 525-4444.
Ræktun krydds og rósa
kennd hjá Endurmenntun
Frábær verð fyrir frábæra bændur!
Arctic Wear býður
bændum vinnugalla frá
2.900 til 3.900 kr.
Arctic Wear ehf. - Reykjanesbæ - Sími: 824 4070 - Fax: 421
4163 - arcticwear@arcticwear.is - www.arcticwear.is
Stundum
erfið ár
sem enda
á tölu 9
Eitt er það sem allir þrá,
yl og sólarhlýju.
Það eru stundum erfið ár,
sem enda á tölu 9.
Með þessari vísu ljúka hinir
veðurglöggu spámenn Veður-
klúbbsins á Dalbæ í Dalvíkur-
byggð júníspá sinni. Tungl
kvikn aði sunnudaginn 24. maí
í SSA. Telja klúbbfélagar að
hugs anlega verði norðanáttir
ríkjandi í júní og mánuðurinn
frekar kaldur. Nokkrir góðir
dagar muni þó koma inn á milli.
Voru menn ánægðir með að
veðurspá fyrir nýliðinn maí-
mánuð hefði gengið vel eftir
og þá voru rifjaðar upp gaml-
ar sagnir varðandi hvítasunnu,
sem ganga út á að ef yrðu á
víxl hlýir og kaldir dagar, væri
það góðs viti varðandi komandi
sumar.